Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.01.2006, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 23.01.2006, Qupperneq 2
2 23. janúar 2006 MÁNUDAGUR Fyrir mannlegri borg Marsibil í 2. sætið 28.01.2006 Reykjavík er ekki fjölmenn borg á heimsmælikvarða. Það er vel raunhæft að tryggja öllum íbúum hennar mannsæmandi lífsskilyrði. Það á að vera forgangs- og metnaðarmál í mannlegri borg þar sem hver einstaklingur skiptir máli. marsibil.is / málefni / greinar / dagbók / myndir ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� Sluppu ómeiddir úr veltu Bílvelta varð á Jökuldalsheiði um níuleytið í gærmorgun en akstursskilyrði á heiðinni voru slæm en mikil hálka og hvassviðri var á þessum slóðum. Þrír voru í bílnum og sluppu þeir allir ómeiddir en lögregl- an á Egilsstöðum kom fljótt á vettvang og flutti ökumann og farþega til byggða. LÖGREGLUFRÉTTIR LÖGREGUMÁL Fjórtán ára piltur var tekinn af lögreglu í Keflavík í gærmorgun en hann hafði tekið bíl fjölskyldu sinnar ófrjálsri hendi. Lögreglan þurfti að hafa nokkuð mikið fyrir því að stöðva drenginn en hann hlýddi ekki skipunum lögreglu um að stöðva bifreiðina strax. Eftir nokkurn eltingarleik tókst lögreglu þó að stöðva bifreiðina. - mh Fór í bíltúr á fjölskyldubílnum: Fjórtán ára í bílaeltingaleik LÍFEYRISMÁL Raunávöxtun Lífeyr- issjóðs verslunarmanna nam 16,1 prósenti á síðasta ári og hefur ekki verið betri í fimmtíu ára sögu sjóðsins. Eignir Lífeyrissjóðsins námu 191 milljarði króna við árs- lok 2005 en til samanburðar má nefna að markaðsvirði Actavis er um 190 milljarðar. Eignirnar juk- ust um 40 milljarða króna á árinu eða um 26,7 prósent. Þorgeir Eyjólfsson, fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs versl- unarmanna, er að vonum ánægður með gengi síðasta árs. „Þessi góða afkoma skýrist aðallega af mjög góðri ávöxtun á innlendri hluta- bréfaeign og við náðum þónokkuð betri ávöxtun heldur en hækkun Úrvalsvísitölunnar sýnir. Sam- fara því náðum við líka ágætri arðsemi af erlendu verðbréfa- eigninni og innlenda skuldabréfa- eignin skilaði líka góðum árangri, þannig að allar eigninrnar voru að gera vel.“ Nafnávöxtun innlendra hluta- bréfa Lífeyrissjóðsins var 71,8 prósent en til s a m a nbu r ð a r hækkaði Úrvals- vísitala Kaup- hallarinnar um 64,7 prósent. Í ljósi þessar- ar góðu ávöxtun- ar og tryggrar stöðu sjóðsins gerir stjórn hans að tillögu sinni við aðild- arsamtök sjóðs- ins að lífeyris- réttindi sjóðfélaga og greiðslur til lífeyrisþega verði hækkaðar um 4 prósent frá síðustu áramótum. „Samþykktir sjóðsins gera ráð fyrir að þessi gangur sé á málum og það er engin ástæða til annars en að ætla að hún fái hratt og gott brautargengi,“ segir Þorgeir. Á síðasta ári fjárfesti sjóður- inn í innlendum hlutabréfum fyrir 12,7 milljarða króna en seldi bréf fyrir 13,1 milljarð. Keypt voru erlend verðbréf fyrir 13,3 millj- arða. Þorgeir segir að með því sé áhættunni dreift enda tiltölulega fá félög á Íslandi sem hægt sé að fjárfesta í þó að innlendur hluta- bréfamarkaður sé góður og sýni góða ávöxtun. Um framhaldið segist Þorgeir vera þokkalega bjartsýnn þó að jafn góður árangur og náðist í fyrra geti tæpast endurtekið sig. „Mér þykir ólíklegt að þetta ár verði jafn gott og árið í fyrra og jafnvel þrjú síðustu ár því þau hafa verið alveg sérstök. Iðgjaldagreiðslur í Lífeyrissjóð verslunarmanna námu ellefu milljörðum króna á síðasta ári og greiddu tæplega 48 þúsund einstaklingar og 6.800 fyrirtæki til sjóðsins. 7.400 lífyeirisþegar nutu lífeyrisgreiðslna á síðasta ári upp á samtals 2,9 milljarða króna. Rekstrarkostnaður sjóðsins var 0,06 prósent af eignum eða sem nemur 64 aurum fyrir hverjar 1.000 krónur. bjorn@frettabladid.is INNKAUP Greiðslur til lífeyrisþega Lífeyrissjóðs verslunarmanna hækka um fjögur prósent í ljósi góðrar afkomu sjóðsins á síðasta ári og tryggrar stöðu hans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Eignirnar jukust um 40 milljarða á einu ári Metávöxtun varð hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna á síðasta ári. Eignir sjóðsins nema 191 milljarði króna. Réttindi og greiðslur til lífeyrisþega hækka um fjög- ur prósent. Framkvæmdastjórinn efast um að jafn góður árangur náist aftur. ÞORGEIR EYJÓLFS- SON Forstjóri Lífeyrissjóðs versl- unarmanna. STJÓRNMÁL Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, hittir forseta annarra norrænna þinga og for- sætisnefnd Norðurlandaráðs í Noregi í dag. Á fundi þeirra verð- ur starfsemi Norðurlandaráðs og áherslur í starfi þess næsta árið til umræðu. Þá mun Sólveig ræða sérstak- lega við forseta norska Stórþings- ins og kynna sér ýmsa þætti í starfsemi þess. - bþs Sólveig Pétursdóttir þingforseti: Hittir norræna starfsbræður SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR Verður á fundi í Noregi í dag. Fórust við köfun Par drukknaði í ís- köldu vatni í frönsku ölpunum í gær þeg- ar það tók þátt í skipulagðri uppákomu fyrir ferðamenn þar sem kafað er undir þykka íshellu. Bæði misstu takið á reipi sem átti að tryggja öryggi þeirra. FRAKKLAND LÖGREGLA Héraðsdómur Reykja- víkur hafnaði á laugardag kröfu lögreglunnar í Reykjavík um far- bann á hendur mönnunum þremur sem grunaðir eru um að hafa ætlað að svíkja fé út úr Íslandsbanka með fölsuðum bankaábyrgðum. Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn í Reykjavík, sagði ekki ljóst hvers vegna beiðninni um farbannið hefði verið hafnað. Hann neitaði að tjá sig um það hvort höfnun Héraðsdóms hefði komið honum á óvart. Mennirnir þrír eru grunað- ir um að hafa ætlað að svíkja út úr bankanum hundruð milljóna íslenskra króna. - mh Héraðsdómur Reykjavíkur: Hafnaði kröfu um farbann LÖGREGLA Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, segir fólk undir lögaldri ekki hafa verið að drekka áfengi á kosn- ingaskrifstofu hans við Suður- landsbraut. „Vinir mínir og stuðn- ingsmenn óskuðu eftir að halda einkasamkvæmi á kosningaskrif- stofunni og ég veitti leyfi fyrir því. Ég var ekki á staðnum en hef fengið staðfest að fólki undir lög- aldri hafi ekki verið veitt áfengi.“ Sveinn Erlendsson, varðstjóri lögreglunnar í Reykjavík, segir fólk undir aldri hafa verið fyrir utan skrifstofuna með áfengi. - mh Björn Ingi Hrafnsson: Ungmennum ekki veitt áfengi NÁTTÚRA Áberandi lítið af andfugli sást á suðvesturhorni landsins í árlegri vetrarfuglatalningu Nátt- úrufræðistofnunar Íslands en aðaltalningardagur var 8. janúar síðastliðinn. Sömuleiðis var lítið af æðarfugli við suðvesturhorn- ið en óvenjumikið af svartbak en hann hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár. Svartsvan- ur og förufálki komu í fyrsta sinn fram í vetrarfuglatalningu og eitt eintak fannst af smæsta fugli Evr- ópu, glókolli, en árið 2002 komu 127 glókollar fram í vetrarfugla- talningunni. Ævar Petersen, forstöðumað- ur Reykjavíkurseturs Náttúru- fræðistofnunar, telur að skýring- in á fáum öndum í ár sé að varp hafi gengið illa í sumar og því hafi óvenju lítið sést af ungfugli. Um 120 manns tóku þátt í taln- ingunni, vítt og breitt um land, en Ævar segir veður hafa verið frem- ur óhagstætt til talningar. „Ég held að það skýri hversu lítið sást til æðarfugls en hann hefur lík- lega haldið sig langt frá ströndinni talningardaginn,“ segir Ævar. - kk Vetrarfuglatalning Náttúrufræðistofnunar Íslands: Sáu förufálka og svartsvan SVARTSVANUR Í LÓNI Förufálki og Svartsvanur komu í fyrsta sinn fram í vetrarfuglatalning- unni en svartsvanurinn sást í Lóni austan Hafnar í Hornafirði. SPURNING DAGSINS Kristján, hvernig líst þér á nýja nafnann? „Þetta er greinilega myndarpiltur sem á framtíðina fyrir sér. Hann ber að minnsta kosti fallegt nafn.“ Sonur Friðriks, krónprins Danmerkur, og Maríu prinsessu var skírður í fyrradag og hlaut nafnið Kristján Valdimar Hinrik Jóhann. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar, er einn þeirra ljónheppnu sem deila nafni með prinsinum. RÚSSLAND AP Mikhail Saakashvili, forseti Georgíu, sakaði Rússa á sunnudag um að stöðva gasveitu til Georgíu um hávetur. Tvær sprengjur sprungu með stuttu millibili aðfaranótt sunnudags við gasleiðslu í Norður-Ossetíu skammt frá landamærum Georg- íu. Leiðslan flytur gas til Georgíu og Armeníu. Búist var við að gasskorts yrði vart strax í gærkvöld enda á Georgía engar gasbirgðir. Miklir kuldar geisa í landinu líkt og víðar og hefur ekki verið kaldara þar í tuttugu ár. Kemur gasleysið sér því sérlega illa fyrir íbúa landsins auk þess sem rafmagnslínur hafa eyðilagst sökum kuldans. Búist er við að viðgerð á leiðslunum geti tekið nokkra daga enda veður vond. Saakashvili kennir Rússum um skemmdirnar enda hafi rússnesk- ir hermenn gætt leiðslanna. Emb- ættismenn í Rússlandi segja hins vegar sprengingarnar skemmdar- verk. Samskipti milli Rússlands og Georgíu hafa verið slæm allt frá því að Saakashvili komst til valda fyrir þremur árum og er þetta nýjasta atvik ekki til að bæta þau. Forseti Georgíu sakar Rússa um skemmdarverk: Gasleiðsla sprengd í loft upp Í SUNDUR Gasleiðslan sem flytur gas til Georgíu og Armeníu var sprengd í loft upp. AP/REUTERS VIÐ KOSNINGASKRIFSTOFU BJÖRNS INGA Ungmenni voru utan dyra með áfengi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.