Fréttablaðið - 23.01.2006, Side 6
6 23. janúar 2006 MÁNUDAGUR
www.icelandair.is/london
London
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
30
92
7
0
1/
20
06
Innifali›: Flug báðar leiðir með flugvallarsköttum.
Verð frá
25.690 kr.
Þetta flug gefur 3.000 Vildarpunkta
KJÖRKASSINN
Fylgistu með forkeppni Evrópu-
söngvakeppninnar?
Já 60,6%
Nei 39,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætlarðu að borða súrmeti á
þorranum?
Segðu þína skoðun á vísir.is
STJÓRNMÁL Sautján gefa kost á sér
í prófkjöri Samfylkingarinnar
fyrir borgarstjórnarkosningarn-
ar í Reykjavík í vor. Listi flokks-
ins verður boðinn fram undir
merkjum hans og óháðra.
Þrír gefa kost á sér í efsta sætið,
borgarfulltrúarnir Dagur B. Egg-
ertsson, Stefán Jón Hafstein og
Steinunn Valdís Óskarsdóttir.
Prófkjörið fer fram dagana 11.
og 12. febrúar og verður aðalkjör-
staður í Félagsheimili Þróttar í
Laugardal. Öllum með kosninga-
rétt og lögheimili í Reykjavík
frá og með gærdeginum er
heimil þátttaka í prófkjör-
inu. Ekki þarf að undirrita
sérstaka stuðningsyfirlýsingu við
Samfylkinguna heldur er litið á
þátttöku í prófkjörinu sem
slíka yfirlýsingu. - bþs
Sautján gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar og óháðra í Reykjavík:
Þrjú berjast um efsta sætið
ÞÁTTTAKENDUR Í PRÓFKJÖRI
SAMFYLKINGARINNAR
1. sæti Dagur B. Eggertsson
Stefán Jón Hafstein
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
2.-3. sæti Stefán Benediktsson
Þórir Karl Jónsson
2.-4. sæti Sigrún Elsa Smáradóttir
3. sæti Kjartan Valgarðsson
Stefán Jóhann Stefánsson
3.-4. sæti Björk Vilhelmsdóttir
4. sæti Andrés Jónsson
Oddný Sturludóttir
4.-5. sæti Gunnar Hjörtur Gunnarsson
4.-6. sæti Dofri Hermannsson
Guðrún Erla Geirsdóttir
Ragnhildur Sigríður Eggertsdóttir
5. sæti Ingimundur Sveinn Pétursson
5.-6. sæti Helga Rakel Guðrúnardóttir
LONDON, AP Mark Oaten, þingmað-
ur Frjálslyndra demókrata, annars
helsta stjórnarandstöðuflokksins
í Bretlandi, tilkynnti á laugardag
að hann segði af sér sem talsmað-
ur flokks síns í innanríkismálum.
Tilkynningin kom í kjölfar fréttar
dagblaðsins News of the World,
þess efnis að Oaten, sem er gift-
ur tveggja barna faðir, hefði átt
í sambandi 23 ára gamlan mann
og greitt honum fyrir kynlíf. Átti
sambandið að hafa átt sér stað frá
sumrinu 2004 og fram í febrúar
2005. Oaten hafði nýlega fordæmt
dómara sem var rekinn úr starfi
fyrir samband sitt við mann sem
stundaði vændi.
Oaten sendi frá sér yfirlýsingu
þar sem hann baðst afsökunar á
dómgreinarleysi sínu og þeirri
smán sem hann hefði kallað yfir
fjölskyldu sína og vandamenn.
Um leið sagði hann af sér sem
talsmaður flokksins í innanríkis-
málum.
Það á ekki af Frjálslyndum
demókrötum að ganga því aðeins
tvær vikur eru síðan formaður
flokksins, Charles Kennedy, sagði
af sér. Uppsögn hans kom í kjölfar-
ið á miklum deilum innan flokks-
ins sem urðu
eftir að hann
viðurkenndi að
hann ætti við
á feng isva nd a -
mál að stríða og
hefði leitað sér
hjálpar. Kennedy
hafði áður neitað
því að hann væri
alkóhólisti, en
sögusagnir um
slíkt höfðu geng-
ið árum saman.
Mark Oaten var
einn af þeim fjór-
um sem sóttust eftir því að taka við
af Kennedy en hætti við framboð
sitt á fimmtudag þar sem hann
hafði ekki nægan stuðning annarra
þingmanna.
Starfandi leiðtogi flokksins, Sir
Menzies Campbell, hvatti flokks-
menn sína til að einbeita sér að
pólitískum málefnum flokksins
og staðhæfði að hneykslið myndi
ekki leiða athygli flokksmanna frá
þeim. solveig@frettabladid.is
Greiddi ungum karl-
manni fyrir kynlíf
Mark Oaten, þingmaður Frjálslyndra demókrata í Bretlandi, sagði af sér um
helgina þegar upp komst að hann hefði greitt ungum manni fyrir kynlíf. Að-
eins tvær vikur eru síðan leiðtogi flokksins sagði af sér vegna hneykslismáls.
UMHVERFISMÁL Stærstur hluti
Íslendinga telur stóriðjufyrirtæki
standa sig vel í umhverfismálum
ef marka má niðurstöður könnun-
ar sem IMG Gallup gerði að beiðni
Samtaka atvinnulífsins. Í könnun-
inni kemur einnig fram að meiri-
hluti fólks telur unnt að sætta
sjónarmið umhverfisverndar og
orkuvirkjana.
Þátttakendur voru spurðir að
því hvort þeir teldu raforkufyr-
irtæki standa sig vel í umhverfis-
málum og svöruðu 77 prósent því
játandi. Álfyrirtæki komu litlu
verr út en 72 prósent töldu þau
standa sig vel á því sviði.
Einnig voru þátttakend-
ur spurðir að því hvort þeir
teldu hægt að sætta sjónarmið
umhverfisverndar og annars
vegar gufuaflsvirkjunar, sem 88
prósent svarenda játti, og hins
vegar vatnsaflvirkjunar, sem
heldur færri, eða 70 prósent, svör-
uðu játandi.
Könnunin var gerð á tímabilinu
16.-29. nóvember, úrtakið taldi
1.303 og svarhlutfall var 61,5 pró-
sent.
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands,
segir niðurstöðurnar ekki koma
sér sérstaklega á óvart. „Deilan
hefur aldrei staðið um það hvort
stóriðjurnar standa sig vel eða
illa í umhverfismálum heldur
hvort eðlileg áhrif stóriðjunnar á
náttúruna séu boðleg hér á landi.
Í þessu máli þarf að fara miklu
lengra en að spyrja um sátt því
það þarf að skýra um hvað sáttin
snýst. Ég vil vita hvort Samtök
atvinnulífsins hafa hug á því að
reisa margar aðrar virkjanir á
miðhálendi Íslands eða hvort þau
ætla að lýsa yfir stuðningi við
verndun hálendisins.“ - sh
Meirihluti Íslendinga er ánægður með umhverfismál stóriðjufyrirtækja:
Flestir telja sættir mögulegar
STEFNA Á FYRSTA SÆTIÐ
Dagur B. Eggertsson, Stein-
unn V. Óskarsdóttir
og Stefán Jón
Hafstein gefa
öll kost á sér
í leiðtogasæti
Samfylkingar-
innar.
ÞINGMAÐUR Í
VANDA Mark Oaten
þótti allt eins
líklegur til að taka
við sem leiðtogi
Frjálslyndra demó-
krata. Sá draumur
er á enda.
HÚS HNEYKSLANNA Þinghúsið í London hefur ekki farið varhluta af hneykslismálum þing-
manna í gegnum tíðina. MYND/AFP
ÁLFRAMLEIÐSLA Meirihluti landsmanna
telur stóriðjurnar standa sig vel í umhverfis-
málum.