Fréttablaðið - 23.01.2006, Page 12
23. janúar 2006 MÁNUDAGUR12
XX
X
.X
XX
XX
X
.X
XX
XX
X
.X
XX
4. ársfj.
3. ársfj.
1. ársfj.
H
ei
ld
ar
la
un
XX
X
.X
XX
2. ársfj.
1.-4. ársfjórðungur 2004
Ef þú vilt að hrökkbrauðið þitt sé hollt en líka sérlega bragðgott
skaltu velja Burger hrökkbrauð. Í því er enginn viðbættur sykur
og ekkert ger. Svo er bragðið er ómótstæðilegt. Það er engin
tilviljun að Burger er mest selda hrökkbrauðið á Íslandi.
Hugsaðu um hollustuna!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
FÉLAGSMÁL Samningur um rann-
sókn á framlagi eldri borgara til
samfélagsins hefur verið und-
iritaður. Rannsóknin er sam-
starfsverkefni Félags eldri
borgara, Rannsóknarstofnunar
Kennaraháskóla Íslands og Sam-
bands íslenskra sparisjóða.
Ingibjörg H. Harðardóttir, lekt-
or í sálfræði við KHÍ, stýrir fram-
kvæmd verkefnisins. Hún segir
meginmarkmið rannsóknarinnar
vera að kanna hvert framlag eldri
borgara sé til samfélagsins, hvert
framlag samfélagsins sé til eldri
borgara og enn fremur hverjar
skoðanir almennings séu á þessu
gagnkvæma framlagi.
Bryndís Víglundsdóttir, sem
á sæti í undirbúningshópi Félags
eldri borgara, bendir meðal ann-
ars á að nokkur umræða hafi
verið um kjör og aðbúnað fólks
sem orðið sé lasið og ósjálfbjarga
og búi á stofnunum fyrir aldraða.
Upplýsingar um fjölda, aðbún-
að, aðstöðu og aðstöðuleysi liggi
fyrir. Þá sé einnig rætt um fátækt
aldraðra og mætti draga þá álykt-
un af umræðunni að allir íbúar
landsins, 67 og eldri, sitji fastir í
fjötrum fátæktar. Hins vegar sé
það svo að stór hópur gamals fólks
búi við góða heilsu, góðan efnahag
og taki á ýmsan hátt virkan þátt í
hinu daglega lífi. - jss
UNDIRRITUN Margrét Margeirsdóttir,
formaður Félags eldri borgara, Guðjón
Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra sparisjóða, og Ingibjörg
H. Harðardóttir frá Rannsóknarstofnun
Kennaraháskóla Íslands.
Samningur um tímamótarannsókn undirritaður:
Kanna framlag eldri borgara
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest dóm héraðsdóms og þar með
gert Byggðastofnun að greiða
tæpar 2,6 milljónir króna til kaup-
anda jarðarinnar Króks í Ása-
hreppi. Byggðastofnun hafði láðst
að segja kaupandanum, fyrirtæk-
inu Suðutækni, fyrir fjórtán árum
að vatnsréttur í Þjórsá fylgdi ekki
jörðinni en rétturinn hafði verið
seldur árið 1918.
Hæstiréttur féllst ekki á skaða-
bótakröfu kaupandans en gerði
Byggðastofnun að greiða máls-
kostnað að upphæð 1,3 milljónir
króna. Jörðin var keypt á nauð-
ungaruppboði í febrúar 1991 á
10,6 milljónir króna. - gag
Byggðastofnun tapar máli:
Gert að greiða
2,6 milljónir
SLYS Maður á þrítugsaldri fannst
meðvitundarlítill í Böggvisstaða-
fjalli, skíðasvæði Dalvíkinga, á
laugardag. Maðurinn var með sár
á höfði. Fáir voru á ferli í fjall-
inu og má telja manninum það til
happs að hann fannst. Sjúkrabíll
var kallaður á staðinn og var mað-
urinn fluttur á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri. Þar komst hann
til meðvitundar en meiðsli hans
séu ekki alvarleg.
Að sögn lögreglu á Dalvík voru
engin vitni að slysinu en maðurinn
virðist hafa rekið sig í ofarlega í
fjallinu og runnið niður ef marka
má blóðslóð í fjallinu. -fgg
Skíðaslys í Böggvisstaðafjalli:
Fannst með lít-
illi meðvitund
SKÍÐASVÆÐI DALVÍKUR Talið er að maður-
inn hafi runnið til og rotast.
Fiskbúðin Hafrún
Skipholti 70
Sími 553 0003
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1
sími 587 5070
Fiskbúðin Árbjörg
Hringbraut 119
Sími 552 5070
Hrogn og Lifur
399 kr.kg.
Stórlúða, smálúða,
lax, fiskréttir,
fiskibollur,
plokkfiskur VÍMUEFNI Vínbúðir seldu áfengi fyrir 13,1 milljarð króna á síðasta ári sem er aukning um 8,6 prósent frá árinu áður. Selt magn áfengis
nam 17,2 milljónum lítra sem er
8,16 prósent aukning milli ára.
Vínbúðirnar seldu tóbak fyrir
sjö og hálfan milljarð árið 2005.
Áfengis- og tóbakssala:
Aukning um
tæp 10 prósent
TVEIR SEKTAÐIR Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt tvo menn til að greiða
rúmar þrjú hundruð þúsund krónur
til ríkissjóðs fyrir að hafa tæp þrettán
grömm af amfetamíni og lítilræði af
hassi í fórum sínum. Báðir játuðu brot
sitt skýlaust.
HÉRAÐSDÓMUR
MÓTMÆLT MEÐ NEKT Dýraverndunarsinnar
lágu allsnaktir fyrir utan ráðhúsið í Barce-
lona um helgina og mótmæltu því að dýr
væru drepin til að búa til loðfeldi. Á skilti
ungu konunnar stendur: „Hve mörg líf fyrir
eina kápu?“ AP/REUTERS