Fréttablaðið - 23.01.2006, Síða 16

Fréttablaðið - 23.01.2006, Síða 16
 23. janúar 2006 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Súr hvalur sá besti í bænum Nesvegur 100 s:5576922 Arnarbakka 4-6 s:5621070 -Þú getur alltaf treyst á prinsinn- Hlíðasmári 8 • S:5547200 • www.hafid.is Sjálfstæðismenn í Garðabæ eiga að fá að velja sjálfir á lista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningar. Telji þeir að nú sé fullreynt að hafa konur í bæjarstjórninni – nú þá eru þeir á þeirri skoðun og bjóða bæjarbúum upp á lista með eintómum miðaldra skröggum. Í lýðræðisþjóðfélagi okkar daga gætir þess of mikið að flokkar hafi rangt við og komi ekki hreint fram, gangist ekki við því sem þeir standa í raun og veru fyrir en reyni að lokka til sín hugsanlega kjósendur annarra flokka með því að fá til liðs við sig fólk sem betur færi á að væri fulltrúar ann- arra stjórnmálaafla. Fyrir vikið gerist það sem öll börn upplifa þegar þeim verður það á að sulla of mörgum litum saman: litirnir eyða hver öðrum, allt verður alls- herjar grámugga. Smám saman verða flokkarnir allir eins: sams konar fólk með sams konar bak- grunn segir það sama með sama orðalagi og kjósendurnir þurfa að úllendúllendoffa sig í gegnum kosningar með þá nagandi tilfinn- ingu að þetta skipti hvort sem er engu máli, allt sé ákveðið hvort sem er með hagsmuni verktaka að leiðarljósi. Því er það fagnaðarefni að fram komi listi með svo afdráttarlaus- um sérkennum. Þetta er algerlega prjállaus listi og verður það von- andi áfram svo að kjósendur fái nú einu sinni skýrar línur – hér er flokkur sem kemur nákvæmlega til dyranna eins og hann er klædd- ur: í jakkaföt með bindi; listi þar sem er engin kona, engin ung manneskja, engin gömul mann- eskja, engin fötluð manneskja, með öðrum orðum ekkert skrýtið fólk sem truflar bara ákvörðun- artökuna með þvaðri um hluti sem koma málum ekkert við; bara miðaldra karlmenn, hið eðlilega kyn. Hér er sem sé flokkur þeirra sem telja að affarasælast sé að láta karlmenn ráða för. Sjálfstæðismenn í Garðabæ eru í svona skapi um þessar mund- ir og við skulum alveg leyfa þeim að vera það – gleymum því ekki að ekki er langt síðan þetta sama fólk treysti ungri og hæfileikamikilli konu fyrir bæjarstjórastarfinu, Ásdísi Höllu Bragadóttur. Hún var hins vegar sjanghæjuð yfir í atvinnulífið að því er virðist með þeim afleiðingum að sjálfstæð- ismenn í Garðabæ telja sig for- smáða af gjörvöllu kvenkyninu: á hverfanda hveli eru hjörtu kvenna, hugsa þeir beisklega og neita að hafa meira við þetta dyntótta kyn að sælda. Ásdís Halla setti ýmislegt skemmtilegt í gang á sinni stuttu tíð, sem maður getur ímyndað sér að hafi mælst misjafnlega fyrir í flokknum sem ráðið hefur bænum frá því að hann hét Garðahreppur og mótað allt það sem hún vildi bylta. Ásdís Halla vildi meðal annars búa til miðbæ þar sem fólk legði í jafn róttækar aðgerð- ir og að ganga eigin fótum á milli staða, og rífa þá forsmán sem nú getur að líta í miðju bæjarins. Þótt þessi áform séu enn uppi í orði kveðnu hefur manni virst að held- ur sé verið að milda þau í þágu jeppismans. Og nú þegar boðið verður upp á sveit miðaldra skrögga sem sjálf- ir viðurkenna að þeir séu „ekki sölulegir“. Fyrir vikið gefst nú kjósendum fágætt og langþráð tækifæri til að hleypa að annars konar öflum við stjórn og mótun bæjarins. Línurnar skýrast og aðrir flokkar en Sjálfstæðisflokk- urinn fá tækifæri til að verða raunverulegur valkostur fyrir þá kjósendur sem vilja setja önnur sjónarmið í öndvegi við rekstur bæjarins en þau sem miðaldra skröggar aðhyllast, og eru stund- um kennd við verktakastjórnmál. Hinir flokkarnir geta til dæmis boðið kjósendum upp á konur. Því að þótt sjálfstæðismenn í Garðabæ séu í þannig skapi um þessar mundir að telja að ekki sé óhætt að hleypa konum mikið upp á dekk þá er það ekkert lögmál fyrir fólk – jafnvel þótt það búi í Garðabæ – að þurfa að kjósa Sjálf- stæðisflokkinn. Lýðræðið virkar þannig að við eigum að kjósa það fólk sem við treystum best til þess að starfa vel fyrir samfélag- ið en hins vegar er það útbreidd- ur misskilningur að okkur sé það áskapað að kjósa tiltekinn lista umfram annan, annaðhvort vegna erfða eða umhverfisþátta. Eitt af því sem á að gera okkur að virk- um þátttakendum í eigin lífi er kosningarétturinn. Engin moðsuða í Garðabæ Í DAG LISTI SJÁLFSTÆÐ- ISMANNA GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Það er fagnaðarefni að fram komi listi með svo afdráttar- lausum sérkennum, algerlega prjállaus listi sem kemur nákvæmlega til dyranna eins og hann er klæddur: í jakkaföt með bindi… Jonas.is Þeir sem sakna Jónasar Kristjánssonar eftir að hann hætti sem ritstjóri DV geta fundið skrif hans á netinu. Jónas hefur um árabil haldið úti heimasíðu, Jonas. is, þar sem meðal annars má finna nær alla leiðara hans frá ritstjóraárunum á Vísi, Dagblaðinu og DV, en þau skrif spanna yfir meira en þrjátíu ára tímabil. Ekki er ólíklegt að sagnfræðingar muni þegar fram líða stundir leita í þessa námu. Sem stendur birtir Jónas einkum örstutta pistla um alþjóðamál og þá aðallega um eitthvað sem virðist fara í taugarnar á honum. Engu að síður er þetta oft ágætt efni og ábendingar gamla ritstjórans umhugsunarverðar. Viðhorf breytast Vefþjóðviljinn á Andriki.is veltir því fyrir sér hver sé ástæðan fyrir því að margir hafi að undanförnu skipt um skoðun á Norðlingaölduveitu. „Fyrir aðeins þremur árum virtist nokkuð góð sátt um veituna eftir úrskurð Jóns Kristjáns- sonar, setts umhverfisráðherra, um nýja útfærslu á henni. Á þessum þremur árum hafa efnisatriði málsins ekki breyst heldur hugur manna til veitu á þessum stað“, segir Vefþjóðviljinn. Og bætir við: „Það sem hefur einnig gerst á þessum þremur árum er að efnahagsástandið hefur batnað verulega. Atvinnu- leysi var nær tvöfalt meira á vetrarmánuðum árið 2003 en það er um þessar mundir. Íslend- ingar eru líklega á toppi hagsveiflunnar nú en voru að byrja að fikra sig upp á við vorið 2003.“ Ræður efnahagur? Vefþjóðviljinn segir að það sé áhuga- verð spurning hvaða áhrif efnahags- ástandið hefur á afstöðu manna til virkjana og annarra framkvæmda sem ganga augljóslega á náttúruna. Það megi gera því skóna að í hagsæld séu fáir tilbúnir til að fórna fallegri náttúru undir veitur, virkjanir og háspennulín- ur. Þegar atvinnuleysi aukist sé ekki óvarlegt að gera ráð fyrir að einhverjir vegi það þyngra að atvinna verði til við virkjanir og línulagnir. Vefþjóð- viljinn segir að „heilnæmt umhverfi, óspillt náttúra, fjölbreytt lífríki og önnur umhverfisgæði“ verði seint efst á forgangslista þeirra sem búa við mjög kröpp kjör. Menn þurfi að hafa efni á umhverfisvernd til að stunda hana. gm@frettabladid.is Margt bendir til þess að sjálfstæðismenn endurheimti meirihluta sinn í Reykjavíkurborg í borgarstjórnarkosn-ingunum í vor, en þeir hafa ekki verið við völd í borginni frá því 1994, þegar Reykjavíkurlistinn komst þar til valda undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins, sem gerð var á laugardag og sagt var frá í blaðinu í gær, þá myndi Sjálfstæðisflokkurinn undir forystu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar fá tæplega 53 af hundr- aði atkvæða í kosningunum í maí, og það myndi þýða að flokkur- inn fengi níu fulltrúa af sextán í borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta er að vísu aðeins minna í prósentum talið en í síðustu könnun Fréttablaðsins í ágúst á síðasta ári og enn er langt í kosningar, en engu að síður er þetta staðfesting á sterku og stöðugu fylgi Sjálf- stæðisflokksins í borginni eins og kom fram í ummælum oddvita flokksins í borginni í blaðinu í gær: „Þetta er afar ánægjulegt og traustvekjandi, sérstaklega í ljósi þess að könnunin er gerð þegar yfir stendur prófkjörsbarátta hjá bæði Framsóknarflokknum og Samfylkingunni,“ sagði Vilhjálmur. Sundrungin á vinstri vængnum kemur því sjálfstæðismönnum enn til góða, en á það ber að líta að Samfylkingin, sem veita mun Sjálfstæðisflokknum mesta samkeppni, er enn ekki búin að velja forystumann sinn fyrir kosningarnar, og gerir það ekki fyrr en rétt um miðjan næsta mánuð. Þar eru þrír um fyrsta sætið og virð- ist baráttan einkum vera á milli Stefáns Jóns Hafstein, sem var í efsta sæti hjá Samfylkingunni síðast, og eins nýjasta liðsmanns flokksins, Dags B. Eggertssonar. Það hefðu einhvern tímann þótt tíðindi að sitjandi borgarstjóri skuli koma á eftir þessum tveimur herramönnum samkvæmt skoðanakönnunum og ekki ólíklegt að einhverjir muni ganga sárir frá borði að loknu prófkjörinu. Eins og nú horfir, þá stefnir í yfirráð Sjálfstæðisflokksins í flest- um fjölmennustu sveitarfélögunum á þéttbýlasta og fjölmennasta svæði landsins eða öllu Suðvesturlandi, þótt undantekningar séu vissulega þar á. Flokkurinn er nú þegar með meirihluta á mörg- um þessara staða og fátt sem bendir til annars en að hann haldi þar styrk sínum í flestum tilfellum. Það munar að vísu mjóu sums staðar og það hlýtur að vera andstæðingum Sjálfstæðisflokksins hvatning til að halda vöku sinni, því það er á þessu svæði sem mannfjöldinn eykst stöðugt og velmegunin virðist vera mest. Úrslitin í prófkjörinu í Kópavogi renna enn stoðum undir sterka stöðu Sjálfstæðisflokksins þar, sérstaka athygli vekur þar útkoma Ásthildar Helgadóttur i fjórða sæti listans. Árangur hennar einn- ar vegur aðeins upp á móti hrakförum kvennanna í „Karlabæ“ um næstliðna helgi. Þarna sannast enn og aftur að fólk úr íþrótta- hreyfingunni á oft auðvelt með að komast áfram í pólitík. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Könnun Fréttablaðsins fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Yfirburðir Sjálf- stæðisflokksins Eins og nú horfir, þá stefnir í yfirráð Sjálfstæðis- flokksins í flestum fjölmennustu sveitarfélögunum á þéttbýlasta og fjölmennasta svæði landsins eða öllu Suðvesturlandi, þótt undantekningar séu vissulega þar á. Flokkurinn er nú þegar með meirihluta á mörg- um þessara staða og fátt sem bendir til annars en að hann haldi þar styrk sínum í flestum tilfellum. Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. est les skiptabla ið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉ ÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.