Fréttablaðið - 23.01.2006, Síða 18
[ ]
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
����������������
����������
�����������
������������
��������������
����� ������
�����������������
����������
�������������
������������������������
����� �����
�
�
�
��
��
��
���
�
���������������������������������
Viðhald á heimilum utandyra er erfitt yfir vetrarmánuðina. Hins
vegar er um að gera að nota tímann til þess að fegra heimilið innandyra.
Karl Reynisson er að stækka
hús sitt um rúma 50 fermetra.
Hann segir að slíkar fram-
kvæmdir borgi sig fjárhagslega
ef menn gera sem mest sjálfir.
,,Konan vildi stærra eldhús og ég
vildi bílskúr,“ segir Karl Reynis-
son sem stendur í stórræðum. Þau
hjónin búa í tveggja hæða húsi
í Litla-Skerjafirði og ákváðu að
stækka húsið um 55 fermetra. ,,Við
erum að bæta tveggja hæða við-
byggingu við húsið. Eldhús verður
á efri hæðinni, vaskahús niðri og
svo er 36 fermetra bílskúr sem er
innangengur úr vaskahúsinu.“
Ferlið hefur tekið langan tíma.
,,Byrjað var á teikningum haustið
2004 sem síðan fóru til bygging-
arfulltrúa í febrúar í fyrra og það
mátti byrja að grafa í júlí á síðasta
ári,“ segir Karl og bætir því við að
ekkert megi gera án leyfis. ,,Þetta
þurfti að fara í gegnum það sem
kallað er grenndarkynningu, allir
sem sjá húsið í hverfinu fengu teikn-
ingarnar ef þeir vildu mótmæla.“ Í
dag er húsið orðið fokhelt og verið
að vinna í rafmagni og vatnsleiðsl-
um. Í framhaldinu verða veggirnir
klæddir að innan og næsta sumar
verður haldið áfram að múra og
mála að utan.
Karl segist hafa skellt sér út
í framkvæmdirnar þar sem gott
hafi verið að fá lán. Aðra sögu var
að segja af iðnaðarmönnunum. ,,Ég
var heppinn með byggingameistara
og -stjóra sem er sami maðurinn.
Hann hefur staðið sig alveg 100
prósent. Svo þarf maður að hafa
meistara í öllu hinu en þeir hafa
ekki alltaf verið til þegar maður
vildi fá þá. Eitt sem maður hefur
lært af þessu er að hafa rosalega
þolinmæði. Maður var stundum
alveg að fara á límingunum að bíða
eftir mönnum sem voru alltaf að
koma en komu svo aldrei.“
Það liggur beinast við að spyrja
hvort hjónin hafi ekki viljað flytja
fremur en standa í þessum stór-
ræðum. ,,Við fluttum hingað haust-
ið 1997 og vildum vera áfram á
svæðinu. Það er yndislegt að vera
hérna, hverfið er rólegt og gott sem
og fólkið. Þetta er eins og lítið þorp
í Reykjavík. Þess vegna fórum við
út í þetta þó að miklu auðveldara
hefði verið að selja bara húsið og
kaupa nýtt,“ segir Karl hlæjandi.
Aðspurður hvort þetta borgi sig
fjárhagslega játar Karl því, það
er ef maður gerir mikið sjálfur
sem hann hefur gert. ,,Ég get rifið
veggi, maður er orðinn ansi góður
í því, málað, sparslað og neglt eitt-
hvað. Svo fær maður hjálp með til
dæmis rafmagn og vatn, maður
lætur iðnaðarmenn alveg um það
og er ekkert að fikta í því.“
Blaðamaður spyr Karl að lokum
hvenær hann áætli að framkvæmd-
um ljúki. ,,Það er góð spurning. Ég
get nokkurn veginn sagt að þær
verði langt komnar þetta árið.“
mariathora@frettabladid.is
Karl hefur unnið mikið í viðbyggingunni sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
Krefst mikillar þolinmæði
Gamla húsið er 150 fermetrar en við það bætast nú um 55 fermetrar. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
Í viðbyggingunni verður þvottahús, eldhús og bílskúr. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
Á heimasíðunni www.theclear-
boxiceland.com/shop má
kaupa skemmtilegar glærar
skóhirslur sem hjálpa til við
skipulagningu á fataskápnum.
Netverslunin Clear Box selur
skemmtilegar skóhirslur sem
koma að góðum notum á heimilinu.
Skóhirslurnar eru glær box og eru
frá The Clear Box Company. Glæru
boxin eru frábær lausn fyrir þá
sem kaupa mikið af skóm og vilja
halda þeim í góðu ásigkomulagi.
Glæru boxin eru einfaldlega glær-
ir skókassar sem gera það að verk-
um að auðvelt er að koma röð og
reglu á fataskápana og þau horn
sem skófatnaðurinn hleðst upp í.
Auðvelt er að stafla boxunum og
innihald þeirra sést auðveldlega.
Hægt er að fá boxin í nokkrum
litum, fyrir hatta, töskur, löng og
stutt stígvél. Boxin eru gerð úr
endurvinnanlegu og umhverfis-
vænu plastefni og þeim er pakk-
að flötum svo það er auðvelt að
geyma þau þegar boxin eru ekki í
notkun.
Skoða má vöruúrvalið á www.
theclearboxiceland.com.
Lausn á skófjalli
Clear box skóhirslurnar eru skemmtileg
lausn á óreiðu í fataskápnum.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI