Tíminn - 09.03.1977, Side 17

Tíminn - 09.03.1977, Side 17
Miðvikudagur 9. marz 1977 17 Mánudaginn 6. desember 1976, um kl. 18.30-19.00, gaf Keflavikurlögreglan sig á tal við tvo menn sem sátu i bifreið I Ægisgötu i Vogum, Vatns- leysustrandarhreppi. Menn þessir reyndust vera Guðbjartur Pálsson og Karl Gumundsson, báðir úr Reykja- vik. Var Guðbjartur eigandi bifreiðarinnar en Karl ökumað- ur. Viö leit I bifreiðinni fannst ferðataska meö tveimur 5 pela flöskum af Smirnoff-vodka og einn kassi af áfengum banda- rlskum bjór af tegundinni Schlitz. Báðir mennirnir voru hand- teknir og settir I hald. Guöbjart- ur var Utskuröaður I gæzluvarð- hald vegna gruns um fjármála- brot, en Karl kveðst hafa verið hafður I haldi þar til kl. 19.00-20.00, þriðjudaginn 7. des- ember. Hann kveðst hafa verið leiddur fyrir dómara kl. 18.00 þann dag. Fljótlega vöknuðu grunsemd- ir hjá yfirmönnum lögreglunnar um að ekki væri allt með felldu varðandi handtökuna, og þann 9. desember sl. barst rikissak- sóknara bréf þar sem þess var krafizt af hálfu Karls Guðmundssonar að rannsókn færi fram út af meintri ólöglegri handtöku á honum. Með umboðsskrá 14. des- ember 1976 var Steingrimur Gautur Kristjánsson, héraðs- dómari I Hafnarfirði, skipaður til þess að fara með rannsókn vegna handtökunnar. Þann 15. desember var rann- sóknin hafin. Þeir Karl og Guðbjartur hafa skýrt svo frá að þann 6. desem- ber, kl. 16.00-18.00, hafi stúlka gefiö sig á tal við Guðbjart þar sem þeir sátu I bifreið hans á horni Spitalastigs og Grundar- stigs I Reykjavik, og spurt hann hvort hann gæti útvegað sér erlendan gjaldeyri. Guðbjartur kveðst hafa sagt að svo væri ekki en segist hafa boðizt til að flytja hana og stúlku, sem með henni var, þangað sem þær vildu fara, hafi orðið að ráði aö þeir ækju þeim upp I Breiðholts- hverfi. A leiðinni kveða þeir Karl og Guöbjartur stúlkurnar hafa haft orð á að þær þyrftu að fara til Grindavikur. Segjast þeir hafa boðizt til að aka þeim þangað. Þegar komið var upp i Breið- holt hafi stúlkurnar farið úr bilnum, en komið að vörmu spori aftur með stóra ferða- tösku, sem sett hafi verið i farangursgeymslu bilsins. Eftir að sett hafði verið brennsluolia á bilinn kveða þeir hafa verið ekið áleiðis til Grindavikur, en á leiðinni þang- að hafi stúlkurnar óskað eftir að komið væri við I Vogunum, hafi önnur stúlkan visað leiöina inn I Ægisgötu að skurði, sem grafinn hafði verið þvert yfir veginn og þarna hafi stúlkurnar farið út úr bifreiðinni. Þeir segjast slðan hafa beðið stúlknanna i bilnum þar til lögreglan kom. Þrir leigubflstjórar I Reykja- vik hafa komiö fyrir dóminn. Kveðst einn þeirra hafa ekið tveimur stúlkum um bæinn og haft uppi á Guðbjarti Pálssyni fyrir þær. Hann staðfestir að þær hafi setzt inn i bll Guðbjarts. Annar bilstjórinn kveður þann fyrrnefnda hafa komið akandi, gefiö sig á tal við Handtakan í Vogum Greinargerð rann- sóknardómara sig og spurt hvar Guðbjart væri að finna. Hann kveðst hafa séð tvær stúlkur I bifreiðinni. Sá þriðji kveðst hafa hitt Karl Guðmundsson á bensinstöð I Breiðholtshverfi kl. 17-18 þann 6. desember sl. og séð tvær stúlkur I bil hjá honum. Hann kveður sig einnig minna að hafa séð Guðbjart i bilnum. Haukur Guðmundsson, rann- sóknarlögreglumaöur I Kefla- vik, kveður mann hafa hringt I sig á skrifstofu lögreglunnar kl. 13.20, þann 6 desember sl., ekki látið nafns sins getið, en sagt að von væri á Guðbjarti Pálssyni suður með sjó I bil með smygl- varning slöari hluta dagsins. Hann kveðst hafa ekiö til Reykjavikur þeirra erinda aö hafa tal af vitnum vegna rann- sóknar á fjármálastarfsemi Guðbjarts Pálssonar, sem hann vann að um þessar mundir ásamt Kristjáni Péturssyni, fulltrúa við tollgæzlu og útlendingaeftirlitið á Kefla- vikurflugvelli. Haukur kveðst hafa komið viö I fikniefnadeild lögreglunnar I Reykjavik og hjá kunningjafólki sinu I Breiðholts- hverfi. Hann segist hafa reynt að ná sambandi við vitnin án árangurs. Einnig hafði hann samband við lögregluna I Kefla- vik og gerði ráðstafanir til að setið Væri fyrir bifreið Guð- bjarts I Kúagerði, þar sem eru vegamót Keflavikurvegar og Vatnsleysustrandarvegar. Sið- an kveðst Haukur hafa ekiö i Vogana og heimsótt þar for- eldra sina I Kirkjugerði. Þaöan kveðst hann hafa fariö áleiðis I Hófgerði. Þegar hann kom að gatnamótum Kirkjugerðis og Ægisgötu kveðst hann hafa séð Guðbjart og bil hans handan við skurðinn sem grafinn haföi ver- iö.I götuna. Eftir að hafa gert ráðstafanir til aö fá aukinn liðstyrk kveðst Haukur hafa haft talstöðvar- samband viö lögreglumennina, sem höfðu annazt fyrirsátina, skýrt þeim frá hvar bfll Guð- bjartsværi niðurkominn og sagt þeim að koma á vettvang. Haukur tók ekki þátt i hand- tökunni en ók að lögreglustöð- inni I Keflavlk. Ung kona I Keflavik kveöur Hauk hafa beðið f ig að ná Guö- bjarti til Keflavíkur fyrir sig. Skyldi hún hafa að yfirvarpi að hún þyrfti að biðja hann að út- vega peninga. Haukur kveður konuna upphaflega hafa boöizt til að gera þetta, en kveðst hafa ámálgaö þetta við hana aftur eftir miðjan nóvember sl. Hann vill ekki aftaka að hann hefði ætlað að handtaka Guðbjart. Eins og að framan greinir heldur Haukur þvi fram að ónafngreindur maður hafi hringtisig kl. 13.20, þann 6. des- ember sl. Lögreglumenn, sem voru I lögreglustöðinni I Keflavik á þessum tima, halda þvi fram að Haukur muni hafa verið farinn af skrifstofunni á þessum tima. I ibúð þeirri sem Haukur kom I i Breiðholtshverfi hitti hann fyrir húsmóðurina, en talaöi við eiginmanninn 1 sima. Samkvæmt framburöi hans sagði Haukur að hann væri með tvær stúlkur I bilnum hjá sér. Haukur kveður geta verið að hann hafi sagt þetta, en þá I gamni, og synjar fyrir að nokkr- ir farþegar hafi verið i bilnum. Húsmóðirin, sem segist ekki hafa hlustaðá samtalið, en telur sig þekkja bifreiðina, sem Haukur haföi til afnota á vegum lögreglunnar, segist hafa séð að einhver sat I sætinu við hlið bfl- stjórasætisins. Hún segir að sér hafi sýnzt þetta vera kvenmað- ur og að önnur persóna sæti I aftursætinu. Haukur hefur látið að þvi liggja að þarna muni hafa veriö um að ræða aðra bifreið en sina. Þegar Haukur reyndi að hafa talstöðvarsamband við lögreglubilinn, sem notaður var við fyrirsátina, kveðst hann hafa fengið litil og óskýr svör. Hann kom þvi skilaboðum til lögreglumannanna I bllnum með talstöð lögreglunnar sem millilið. Samkvæmt framburöi lög- reglumanna, sem voru á stöð- inni, voru skilaboðin á þá leið að bfllinn væri farinn fram hjá og kominn á staöinn og að lögreglumennirnir ættu aö fara á fyrirfram ákveðinn stað. Enginn þessara manna kvaðst hafa heyrt sagt I talstöðina að billinn væri kominn I Ægisgötu i Vogum eða að Iögregrumenn- irnir ættu aðfara þangað. Þegar Haukur var spurður um þetta atriði neitaöi hann að hafa sagt að lögreglumennirnir ættu að fara á fyrirfram ákveöinn staö. Sagðist hann munu hafa komið upplýsingum um staðinn milli- liðalaust á annarri rás en lögreglan notar að jafnaði. Tvö vitni hafa borið að hafa séð bifreið, sem þau telja vera þá, sem Haukur hafði til afnota, standa á bflastæði á lóð húss sem er rétt þar hjá sem hand- takan fór fram. Telur annað vitnið að þetta hafi verið skömmu fyrir kl. 19, en hitt kl. 18.20-18.30. Haukur hefur neitað þessu. Þann 14. október 1976 var hnuplað ölkassa af tegundinni Schlitz úr m/s Selfossi i Kefla- vik. Lögreglan náði kassanum og var hann fluttur á lögreglu- stöðina þar sem hann var fyrst geymdur á varðstofunni en sið- an á skrifstofu Hauks Guðmundssonar. Um mánaða- mótin nóvember-desember var skýrslan um töku kassans af- hent dómara, en Haukur kveðst hafa sett kassann i bfl sinn I stað þess aö láta hann fylgja skýrsl- unni. Þann 19. desember sl. afhenti Haukur fulltrúa bæjarfógetans i Keflavík kassa, sem hann sagði vera þann, sem hnuplað var úr m/s Selfossi. Dálitill munur er á þessum kassa og þeim sem fannst I bil Guðbjarts. Þrir lögreglumenn hafa borið að útilokaö sé aö kassinn, sem Haukur skilaöi, geti verið sá, sem tekinn var i Selfossi, en segja á hinn bóginn að sá kassi sé eins og sá, sem fannst i bil Guöbjarts. Ung kona i Keflavik, sem er velkunnug Hauki, kveöur hann hafa hringt i sig I desember sl. og beðið sig að útvega sér tvo kassa af áfengum bjór. Hún kveðst hafa reiðzt og neitaö bóninni. Haukur hefur harðlega neitað þessu og komiö með þá tilgátu að annar maður hafi hringt og kynnt sig meö sinu nafni. 1 blaðaskrifum hefur gætt ýmiss konar misskilnings um rannsóknina og eöli hennar. Meðal þessara atriöa er hraði rannsóknarinnar. Samkvæmt 138. gr. laganna 'um meðferð opinberra mála skal hraða meðferð máls eftir föngum. Dómari ræöur gangi máls. Reynt hefur verið að hraða rannsókninni eftir þvl sem kost- ur hefur verið á. Til þess lágu tvær sérstakar ástæður. 1 fyrsta lagi þótti einsýnt að taka yröi skýrslur af mönnum og fram- kvæma aðrar rannsóknarað- gerðir, svo sem sakbendingu, eins fljótt og kostur væri, ef á annað borð ætti að takast að upplýsa málið. 1 annan stað var Hauki Guðmundssyni vikið úr starfi um stundarsakir vegna rannsóknar málsins og var taliö mikilvægt að þvi millibils- ástandi gæti lokið sem fyrst. Sótt var þing af hálfu ákæru- valdsins viö dómsrannsóknina. Var það gert samkvæmt sér- stakri ósk dómarans. Allmargar ábendingar bárust lögreglunni um stúlkur sem tal- ið var að gætu hafa verið I bil Guðbjarts. Var gripið til þess ráðs að láta vitnin sjá þessar stúlkur I hópi annarra. Þessar aðgerðir báru ekki afgerandi árangur. Skoraö er á alla sem kunna að búa yfir vitneskju, sem gæti varpað frekara ljósi á málið, að 'gefa sig fram við rannsóknar- lögregluna I Reykjavik eða rannsóknardómarann. Systir María í Reykjadal Leikararnir reykdælsku vinstri. systir Marfa f nunnubúnlngl, yzt til Listin býr I fólkinu og er hluti af þvi og kemur fram með ýms- um hætti. Ungmennafélagiö Efling I Reykjadal hefur aö und- anförnu verið aö sýna sjónleik- inn Systur Marlu eftir Charlotte Hastings, með miklum ágætum. Félagið sýnir fyrst og fremst I félagsheimili sveitarinnar að Breiöumýri, en hafði aö þessu sinni þrjár sýningará leikritinu i Samkomuhúsinu á Húsavik. Sýningarnar á Húsavik voru ekki eins vel sóttar og þær áttu skilið, þvi að það er með ólikind- um hvað hið fámenna ung- mennafélag hefur mörgum ágætum leikurum á að skipa. Systir Maria er sakamála- leikrit og gerist i klaustri. Hetjan i leiknum, sá sem leiðir allan sannleikann I ljós, er ung og lagleg nunna, og barátta hennar beinist að þvi að koma i veg fyrir, að saklaus verði dæmdur sekur. Að sjálfsögöu ber barátta hennar ávöxt og réttlætið sigrar fyrir hennar til- stilli. 1 sýningunni er hógvær spenna i takt við ró og einbeitni systur Mariu. Leikhúsgestir eru stöðugt fullir eftirvæntingar þar til gátan er ráðin og sýningunni lýkur. Hvergi er bláþráður i sýning- unni, en einstaka leikarar gera þó hlutverkum sinum betri skil en aörir. Sérstaka athygli mina vakti leikur Unnar Garðarsdótt- ur i hlutverki systur Mariu. frumraun sina á leiksviði mun Unnur hafa háð er Ungmenna- félagið Efling sýndi leikritiö Kertalog eftir Jökul Jakobsson i fyrravetur. Þá hlaut hún almennt lof leikhúsgesta fyrir túlkun sina á geðsjúku stúlkunni Láru, i þvi leikriti. 1 sýningunni á Systur Mariu þótti mér mjög góður leikur Hrannar Benónýs- dóttur, sem lék sakfelldu kon- una, Arnórs Benónýssonar, sem lék þroskaheftan ungan pilt, skjólstæöing systur Mariu, Guörúnar Glúmsdóttur og Guðrunar Friöriksdóttur, sem báðar léku nunnur. Leikstjóran- um, Ingunni Jensdóttur, hefur tekizt bel að ná góðum heildar- svip á sýninguna. Þorm.J.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.