Tíminn - 09.03.1977, Síða 20
20
Mi&vikudagur 9. marz 1977
Fyrsta Irlandsferöin
tökst meÖ ágætum
„Hún fDyflim] hefur ekki nusst andlitió
og drukknað í blikkandi, litskrúðugum
Ijó'saskiltum, eins og svo margar borgir
Evrópu" sagði blaðamaður sem var með í
fvrstu ferðinni til Dyflinar (Vísir).
,Aðbúnaður var allur hinn ágœtasti“
sagði annar fulltrúi pressunnar (Þjóðvilj-
inn).
,, Gestrisni þessa
elskulega fólks er
einstök“ sagði sá
þriðji (Tíminn).
Nú er f yrirhuguÖ
8 daga írlandsferö
7.-14. maí
Flogið verður til Dyflinar og ferðast þaðan
til hinna fögru héraða í suð-vestur hluta
landsins. Dvalið verður í Kilkenny og Cork,
auk Dyflinar. Ferðamönnum verður gefinn
kostur á laxveiði og golfiðkun.
Verðið er mjög hagstætt eða frá kr. 46.200,-
og er þá gistikostnaður (með morgunmat)
og ferðalög innifalið.
Þar er líka Abbey Tavern með Guinness
og írskri tónlist.
Samvinnuferðir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077
Nýkomin styrktarblöð
og augablöð í
eftirtaldar bifreiðir:
Bedford 5 og 7 tonn augablöö aftan.
Datsun disel 70-77 augablöö aftan.
Mercedes Benz 1413 augablöð og krókblöö
Mercedes Benz 322 augablöð aftan og framan.
Mercedes Benz 322 krókblöö aftan.
Scania Vabis L55 og L56 augablöö aftan.
Volvo 375 augablöö framan.
2” og 2 1/2” styrktarblöö I fólksbfla.
Mikið 'úrvai af miðfjaðraboltum og
fjaðraklemmum.
Smiðum einnig fjaðraklemmur eftir
máli.
Sendum i póstkröfu hvert á land sem er.
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2, simi 82944.
Afturgang-
an í þinginu
Mikil skrif hafa veriö undan-
farið um breytingu á áfengis-
löggjöfinni, og ýmsir legið þeim
á hálsi, sem vilja heröa á henni.
Einn þin8maf>ur hefur vakið
upp bjórmáliö og telur það lausn
vandans að láta nú brugga nóg
af bjór.
Reynsla annarra þjóða hefur
sýnt að bjórinn er sizt til þess
fallinn að bæta ástand áfengis-
málanna. Það er engin ástæða
til þess að apa allt eftir öðrum
þjóðum og sizt það, sem allir, er
engra hagsmuna eiga að gæta,
vita að miður fer. Ég skora
á alla alþingismenn að láta sér
ekki detta I hug að samþykkja
að hér verði framleiddur áfeng-
ur b jór — og ég skora á kvenna-
samtökin i landinu að standa nú
saman og mótmæla bjórnum —
konur hafa oftsýnt að samtaka-
máttur þeirra er mikill — þær
hafa of litiö skipt sér af áfengis-
málunum — sýnið nú hvaö I
ykkur býr.
Rvik, 17/2 1977
Ásgeröur Ingimarsdóttir.
0
lesendur segja
útf lutningsbæ tur ?
Siðastliðin 50 ár hefur verið I
tizku hjá mörgum, sem sæmi-
legt kaup hafa, að etja hinum
lægst launuöu saman — þ.e.
bændum og verkamönnum.
Þetta hefur tekizt svo vel, aö
útilokaö viröist að þessar stéttir
geti staðið saman gegn hákörl-
um þeim, er hirða aröinn af iöju
þeirra.
Nýjasta dæmiö er vist tilraun
foringja Alþýðusambands Is-
lands til að fá dómstóla til að
lækka kaup bænda. Bændur
munu þó af flestum, sem til
þekkja, vera taldir lægst laun-
aða stétt landsins.
Ekki veit ég hvernig ASÍ for-
ingjarnir finna út að hagsmunir
þeirra, er mat framleiöa, séu
andstæöari hagsmunum verka-
manna en t.d. hagsmunir
þeirra, sem hús byggja.
Allir verða bæði að eta og búa
I húsi. En afstaðan hjá þessum
foringjum er sú, að þeir styöja
af öllum mætti kaupkröfur
þeirra, sem hafa riflegar tekjur
af byggingariðnaði — en þá,
sem mjólk og kjöt framleiöa og
fá litiö I sinn hlut, telja þeir af-
brotamenn. Bændur eru vist
eina stéttin, sem fær sitt kaup
ákveðið af gerðardómi, og þetta
kaup fá þeir svo ekki fyrr en eft-
ir 1-2 ár — það af þvi, sem þeir
fá nokkurn tlma. Verulegan hlut
þess fá þeir aldrei. Það, sem
þeir fá fá þeir helzt ekki nema I
vörum eins og var um aldamót-
in.
Verkamenn munu ekki
ofhaldnir af sinu kaupi
— þaö er ekki hægt aö
borga þeim lægst launuðu meira
þvi það eru svo margir hákarl-
ar, sem taka margföld verka-
mannalaun. Jafnvel með ötulli
aðstoð ASl foringjanna. Tillaga
Stefáns Jónssonar um að enginn
megi hafa meira en tvöföld
verkamannalaun er eitt af þvl
vitlegasta, sem ég hef heyrt
lengi. Einn af ráöherrunum gat
þess á Alþingi, að útflutnings-
uppbætur á landbúnaöarafuröir
væru 1800 millj. Þótti honum
þetta fávíslegasta ráðstöfunin á
fé rlkissjóðs. Hann gat ekki oröa
bundizt um þetta, þó að honum
væri illa við að fara I meting
milli starfsgreina, og hann
langaði ekki til að allar jarðir á
Islandi færu I eyöi.
Sjálfsagt eru tölur ráðherrans
réttar. Maður I hans stöðu fer
ekki með rangar tölur til að etja
saman starfsstéttum.
En — kannski sagði Tlminn
ekki nógu ýtarlega frá ræöunni.
Sjálfsagt hefur hann lika sagt
frá þvl, hvernig rlkið fær þessar
1800 m illjónir s vo það spilar f rítt
I þessu öllu saman. Ætli það fái
ekki nokkuð myndarlega upp-
hæð I tollum af því, sem inn er
flutt fyrir andviröi kjötsins.
Söluskattur af sömu vöru gæti ,
jafnvel jafnað metin. Svo eru nú
gærusneplarnir eftir — eitthvað
fæst fyrir þá llka af vörum, toll-
um og söluskatti. Mér skilst, að
ekkertaf þessu fengist — hvorki
vörurnar né aurarnir I rikis-
sjóðinn, ef ekki væri flutt út
kjöt. Hitt er svo annaö mál hvað
ráöherranum finnst að sveita-
fólk eigi aö hafa mikið minna
kaup en aðrir. Um þaö er deilt
og hann hefur auðvitað slnar
skoöanir á þvl.
Otvarpiö og ég eigum oft litla
samleið. Þættir, sem ég vil
heyra, eru oft að deginum, þeg-
ar ég er úti við min störf. Skepn-
urnar þurfa að eta hér bæbi á
laugard. og sunnud. auk
hinna fimm daganna I vik-
unni. A kvöldin hefur það svo
safnað saman þvl, sem ég hef
ekki áhuga á. Einn nýr þáttur er
á sunnudagsmorgnana. Ég
heyrði þáttinn frá Egilsstöðum.
Bóndi þar eystra var spuröur
um álit á þvl ljóta athæfi að
borga útflutningsuppbætur.
Bóndinn' taldi erfitt að stilla
framleiðsluna það nákvæmt, að
ekki þyrfti að flytja út kjöt —
sem mér skildist á spyrjanda og
bóndanum, að væri óæskilegt.
Aðrir menn ræddu um ágæti
Egilsstaða. Þar eru nú nær 1000
manns aö mig minnir. Fólk unir
þar vel og hefur þar þokkalegar
tekjur.
En hvorki bóndanum né
kratanum, sem spuröi, virtist
detta I hug, að án kjötútflutn-
ings væru Egilsstaöir — I bezta
falli — ei,tt býli með innan við 10
manns — hinir 990 væru I
Reykjavlk.
Halldór Þóröarsor,
Laugalandi
Hér sjást kjötskrokkarnir á ránum, en aö vlsu er myndin norölenzk. Kjötið er þess vegna ekki af
fé IDjúpinu, þarsem féerhvaðvænztá landihér.