Tíminn - 11.03.1977, Síða 15
Föstudagur 11. marz 1977
12.00 Dagskráin. Tórileikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Spjall frá Noregi Ingólf-
ur Margeirsson tekur til
meðferöar starfsemi neðan-
jaröarblaöa á striösárun-
um. Lesari meö honum:
Börkur Karlsson. Siöari
þáttur.
15.00 Miðdegistónleikar Walt-
er Klien leikur á planó Ball-
ööu í g-moll op. 24 eftir
Grieg. Martti Talvela syng-
ur Ljóöasöngva op. 35 nr.
eftir Schumann, Irwin Gage
leikur á pianó.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.20 Popphorn Vignir Sveins-
son kynnir.
17.30 Útvarpssaga barnanna:
„Benni” eftir Einar Loga
EinarssonHöfundur les (8).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Þingsjá Umsjón: Nanna
Úlfsdóttir.
20.00 Frá tónleikum Sinfónlu-
hljómsveitar tslands I Há-
skólabiói kvöldiö áöur, —
fyrri hluti tónleikanna.
Stjórnandi: Jean-Pierre
Jacquillat frá Frakklandi.
a. Sinfónia nr. 40 I g-moll
(K550) eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. b. „Eldfugl-
inn”, balletttónlist eftir Igor
Stravinský. — Jón Múli
Arnason kynnir tónleikana.
20.55 Leiklistarþáttur i umsjá
Siguröar Pálssonar.
21.30 útvarpssagan: „Blúndu-
börn” eftir Kirsten Thorup
Nina Björk Arnadóttir les
þýöingu sina (12).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Lestur
Passiusálma (29)
22.25 Ljóðaþáttur Umsjónar-
maöur: Öskar Halldórsson.
22.45 Áfangar Tónlistarþáttur
I umsjá Asmundar Jónsson-
ar og Guöna Rúnars
Agnarssonar. 23.30. Fréttir.
Einvigi Horts og Spasskýs:
Jón Þ. Þór lýsir lokum 6.
skákar. Dagskrárlok um kl.
23.55.
sjónvarp
Föstudagur
11. mars
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Skákeinvigið
20.45 Mannraunir f óbyggöum
Fyrri hluti myndar um
fimm unga borgarbúa, sem
dvöldust i sex vikur I
óbyggöum Natal-héraös i
Suöur-Afriku og voru oft án
matar og vatns. Meö þess-
um leiöangri hugðust ung-
lingarnir kynnast af eigin
raun nauösyn náttúru-
verndar. Siöari hluti
myndarinnar veröur sýndur
laugardaginn 12. mars kl.
21.00.
21.10 Kastljós Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjónar-
maöur Eiöur Guönason.
22.10 Atök I E1 Pao (La fiévre
monte a E1 Pao)
Frönsk-mexikönsk biómynd
frá árinu 1959, byggö á sögu
eftir Henri Castillon. Leik-
stjóri Luis Bunuel. Aöal-
hlutverk Gérard Philip,
Maria Felix og Jean Ser-
vais. Myndin gerist á eynni
Ojeda, en hún tilheyrir Suö-
ur-Amerlkuriki, þar sem
einræöisherrann Carlos
Barreiro fer meö völd, og er
hún notuö sem fangabúöir
fyrir pólitiska fanga og af-
brotamenn. Þýöandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
23.45 Dagskrárlok
15
Hættulegt ferðalag
mmm
eftir Maris Carr
sullar vatni á hálsinn á mér, sagði hún gremjulega. —
Geturðu ekki gert þetta almennilega?
— Við getum hætt með kalda bakstra núna, svaraði
Penny rólegri röddu. — Hjartslátturinn er orðinn eðli-
legur. Þetta hefur bara verið svolítið aðsvif. María
hjálpar þér að hátta í sjúkrasalnum og sér um að þú
fáir allt, sem þú þarfnast.
— Hvers vegna getur þú ekki gert það?
— Vegna þess að María hefur beðið mig að sjá um
hina sjúklingana.
Júlía leit hæðnislega á hana. — Ef Mike væri hérna
kæmirðu ekki svona fram við mig.
— Það skipti engu máli, hvort hann væri hér eða
ekki, og ef þú værir eins og þú ættir að þér, segðirðu
ekki svona vitleysu. Það er slasaður maður þarna
frammi og þarf að hjálpa honum strax.
Penny var önnum kafin allan fyrri hluta dagsins og
það var farið að halla af degi, þegar hún hafði lokið öllu
á læknisstofunni. Svo þurfti hún að hugsa um Grace og
barnið. Sjúklingarnir í salnum höfðu aðeins fengið lág-
marks umönnun þennan daginn og nú varð einnig að
líta til þeirra. Júlía hafði séð svo um að María hafði
nær enga stund haft af lögu allan daginn. Hún var ein-
staklega kröfuharður sjúklingur. Mike kom um f jögur-
leytið til að spyrja um liðan hennar og það var með
naumindum að Penny gat stillt sig.
— Það er ekkert að henni, sagði hún og leit upp frá
skjölunum, sem hún var að útfylla. Hún sat við skrif-
borð Vincents og reyndi að Ijúka dagsverkinu. Hana
verkjaði í hendurnar og hvíti sloppurinn límdist við bak
hennar, blautur af svita. Nú þráði hún það eitt að kom-
ast heim í kofann sinn og þvo sér og f á sér vel að borða.
Enginn hafði munað eftir að senda þeim hádegismat
yfir og þær höfðu ekki mátt vera að því að sækja hann
sjálfar.
— Júlía getur verið hérna í nótt, en í rauninni er ekki
nauðsynlegtaðhún hafi rúm hérna. María hefur meira
en nóg að gera án hennar.
Mike beit saman vörunum. — Ertu ekki einum of
hörð núna? spurði hann stuttlega. — Allt sem hún
þarfnast er svolítil hlýja. Hún sagði mér í morgun, að
henni fyndist allir á móti sér og enginn þarfnaðist
hennar. Hann þagnaði og gráu augun voru stálhörð. —
Ég hélt að þú værir öðruvísi, en þú kemur fram við
hana nákvæmlega eins og hinir. Engri af hinum konun-
um geðjast að henni. Hugh sagði mér það líka.
— Ef hann hef ur sagt það, þá hef ur hann kannski líka
vitað, hvers vegna það er, sagði Penny hvasst. Henni
gramdist að hann skyldi gagnrýna hana svo ranglega.
— Þú þarf ekki að vera illgjörn, hreytti Mike út úr
sér.— Það eina sem ég bið um, er þolinmæði. Ég er viss
um að þú gætir dulið andúð þína á henni í nokkra daga.
Ég hélt að hjúkrunarkonur mættu ekki blanda einkatil-
finningum sínum í starfið.
— Ég veit ekki til að ég geri það. Álit mitt á Júlíu
kemur þessu ekkert við. Penny þóttist einbeita sér að
skjölunum á borðinu, ákveðin í að láta hann ekki f inna,
hvað hún var í rauninni reið. — Ef þú vilt að hún verði
hér, er það þitt mál. Vintent kemur bráðlega aftur og
hann tekur ákvörðun. Þangaðtil hefur María beðið mig
að vera hér og hjálpa sér. Hún hikaði. — Nema þú viljir
að ég sé alls ekki hérna.
Mike bandaði frá sér með báðum handleggjunum og
var greinilega á takmörkum þolinmæði sinnar. — Láttu
ekki eins og kjáni. Við erum öll þakklát fyrir aðstoð
þína. Hann leit rannsakandi á hana. — Ég kem bráðum
aftur. Will bað mig að koma og líta á bókhaldið hjá sér.
Hann snerist á hæli og var horfinn áður en Penny
fékk tíma til að segja honum einu sinni enn, að ekkert
væri að Júlíu. Hvernig stóð á því að alltaf urðu einhver
vandamál í öllum samskiptum hennar við Mike? Hvers
vegna var hann svona viss um að henni geðjaðist ekki
að Júlíu? Hún hafði aldrei minnzt á eitt slíkt við hann
og reynt að vera eins vingjarnleg við Júlíu og tækifæri
voru til. Gallinn var bara sá, að Júlía vildi ekki koma til
móts við hana. Penny lagði hendur í skaut og starði
vonlaus á hvíta veggina umhverfis sig. Framkoma
Mikes hafði rænt hana síðustu kröftunum og henni
fannst hún of þreytt til að hreyfa sig frekar. Er hann
ástfanginn af Júlíu? Að minnsta kosti virtist hann láta
velferð hennar sig miklu skipta.
Ekki bætti úr skák, að Penny fannst brögð Júlíu
viðurstyggileg. Skyndilega fannst henni hún búin að fá
nóg af sjúkraskýlinu þennan daginn, lagði f rá sér skjöl-
in og stóð upp. Hún leitt út um gluggann og komst að
þeirri niðurstöðu að ennþá heitara væri úti en inni, en
allt væri betra en að sitja hér og hugsa um áhyggjur
Mikes af Júlíu. En meðan hún var á leið yfir torgið í
áttina að kofanum sínum, rann upp fyrir henni, að það
var ekki hin raunvérulga ástæða fyrir leiða hennar.
Hún hafði hugsað mikið um Mike s.l. tvo daga, allt
of mikið. Ég vildi óska að hann hefði aldrei kysst mig.
Hann er ekki maðurinn, sem ég kom hingað til að f inna
og ef hann er ástfanginn af Júlíu, er það jafn gott eins
og komið er. En hún vissi að þetta var sjálfsblekking.
Mike var ekki sú manngerð. Verið gat svo sem að hon-
um þætti vænt um Júliu og það að viðbættri dálítilli
meðaumkun gat leitt til margs... meira að segja hjóna-
bands. En hún vísaði þessari hugsun strax á bug og
undraðist, hvað hún var mótfallinn henni.
Penny hafði varla verið fimm mínútur í kofanum,
þegar barið var að dyrum og einn innfæddu piltanna
kom inn. Hann hélt á bakka, sem breitt var yfir og
brosti út að eyrum.
— María sendir þetta, útskýrði hann og horfði for-
vitnislega á málaða veggina.
— Þakka þér fyrir Paul. Þú þarft ekki að skila
bakkanum. Ég tek hann með mér, þegar ég fer út.
Eftir að hafa þvegið sér, fór hún í slopp og settist
niður til að borða. Hún þakkaði Maríu í huganum f yrir
að muna, að hún hafði ekkert borðað síðan um morgun-
inn. A bakkanum var soðin skinka, hrísgrjón, kartöf lur,
avocadoávextir og sítróna. Ekkert varað matarlystinni
og skapið batnaði stórum. Kjánalegt af henni að láta
Júlíu fara svona i taugarnar á sér. Fanný hafði varað
hana við, svo hún haf ði átt að vita betur.
Eftir hálftíma hvíld fór hún aftur í sjúkraskýlið.
Þegar Mike loks leit inn, á leið í matinn, var hún róleg
og eðlileg og það vottaði ekki fyrir gremju í rödd
hennar. — Júlíu líður mun betur, sagði hún og brosti til
hans. — Viltu tala við hana?
— Nei, ég vil helzt ekki trufla hana. Ertu samferða I
kvöldmat?
— Ja, ég get það alveg eins. Penny fór úr
hvíta sloppnum og hengdi hann á stólbakið. — Annars
fékk ég hádegismatinn svo seint að ég veit ekki hvort ég
kem nokkru niður núna.
Hann setti upp vanþóknunarsvip. — Hvenær-
borðaðirðu eiginlega?
— Um hálf fimm. Palul kom með mat handa mér
heim.
— Þá er ekki furða þó þú hafir kveikt á öllum við-
„Marama, ég get ekki eytt öllum
deginum I þaB aö vera hlýr og
notalegur.”
DENNI
DÆMALAUSI