Tíminn - 11.03.1977, Blaðsíða 23
, Föstudagur 11. marz 1977
•u
23
flokksstarfið
Hádegisverðarfundur
SUF
Steingrímur Hermannsson ritari Framsókn-
arflokksins veröur gestur á næsta hádegis-
veröarfundi SUF n.k. mánudag kl. 21.00.
Fundurinn er haldinn aö Rauöarárstlg 18.
Allir ungir framsóknarmenn velkomnir.
Stjórn SUF
Vopnafjörður
Aöþingismennimir Halldór Ásgrimsson og Tómas Arnason
halda almennan fund i félagsheimilinu Miklagaröi, Vopnafiröi,
föstudaginn 11. marz. n.k. kl. 21. Fundarefni: Stjórnmála-,
viöhorfiö og málefni héraösins.
Keflavík
Björk, félag Framsóknarkvenna
Sýnikennsla Imatreiöslu smárétta, m.a. kinverskar pönnukökur
og fiskréttir, einnig meöferö djúpsteikingarpotts og mínútu-
grills, veröur haldin 13. marz og hefst kl. 15.00 I Framsóknar-
húsinu aö Austurgötu 26.
Félagar takiö meö ykkur gesti.
Stjórnin.
FUF Keflavík
Stjórnarmeölimir I Félagi ungra framsóknarmanna I Keflavik
veröa til viötals I Framsóknarhúsinu aö Austurgötu 26 laugar-
daginn 12. marz kl. 14.00-16.00.
Ungt fólk á aldrinum 16-35 ára er hvatt til aö nota þetta tækifæri
og kynna sér starfsemi félagsins. Stjórnin
Norðurlandskjördæmi eystra
Almennir fundir um landbúnaöarmál veröa haldnir sem hér seg-
ir:
A Hótel KEA föstudaginn 18. marz kl. 20.30
A Hótel KNÞ Kópaskeri laugardaginn 19. marz kl. 15.00
1 Hafralækjarskóla Aöaldal sunnudaginn 20. marz kl. 13.30.
Frummælendur veröa Jónas Jónsson, ritstjóri og . Bjarni
Bragi Jónsson, hagfræöingur.
Allir velkomnir.
Stjórn kjördæmissambandsins
Freyja félag Framsóknarkvenna
í Kópavogi
Heldur námskeiö i skermasaumi. Kennsla hefst 17. marz.
Nánari upplýsingar I sima 40576.
Sauðórkrókur
Framsóknarfélag Sauöárkróks heldur fund í Framsóknarhúsinu
mánudaginn 14. marz kl. 20.30.
Bæjarstjórinn, Þórir Hilmarsson og bæjarfulltrúar Framsókn-
arflokksins ræöa bæjarmál.
Fjölmenniö á fundinn og takiö þátt I umræöum.
Stjórnin.
Félag Framsóknarkvenna
í Reykjavík
Fundur veröur haldinn n.k. miövikudag 16. þ.m. kl. 20.30 aö
Rauöarárstlg 18.
Fundarefni:
1. Fréttir frá aöalfundi Bandalags kvenna I Reykjavik.
2. Upplestur: Guörún E. Jónsdóttir
3. Þingmál: Jón Helgason, alþm.
4. ?
Veitingar á staönum. Fjölmenniö. Stjórnin
Framsóknarfélögin I Arnessýslu gangast fyrir almennum fundi
um stjórnmálaviöhorfiö I Hótel Selfossi þriöjudaginn 15. marz kl.
21. Frummælandi Olafur Jóhannesson dómsmálaráöherra. A
fundinn koma einnig alþingismennirnir Þórarinn Sigurjónsson
og Jón Helgason.
Fundurinn er öllum opinn.
Félag ungra framsóknarmanna. Framsóknarfélag Árnessýslu.
Framsóknarfélag Hverageröis. Framsóknarfélag Selfoss.
Framsóknarvist
Framsóknarvist veröur spiluö á Hótel Esju fimmtudaginn 17.
marz. Húsiö opnaö kl. 20.30 og byrjaö veröur aö spila kl. 20.30.
Þriöja vistin I fimm kvölda keppninni.
o Rússar
þegar viö spuröum hana um
afköstin:
— Hjá okkur hafa þessar
konur fengiö svona eina eöa
tvær vefjur hver á dag. Þær
eru nýbúnar aö fá verkalaunin
sln I fyrsta skipti. Þarna fá
þær dálitla vasapeninga, svo
aö þær þurfa ekki aö vera upp
á aöra komnar meö slíkt.
Sumar þeirra höföu ekki unniö
áöur en þetta kom til.
— Ég veit ekki betur en
þetta hafi gengiö vel, sagöi Jó-
hanna að lokum. Auövitaö
veröur aö lita eftir þvi, aö frá-
gangur sé góöur, en þaö lærist »
laghentum konum fljótt. Hing-
aö til höfum viö haft vel undan
með alla þá trefla, sem viö
höfum getað fengiö.
— Hér vinna um fjörutiu
manns aö þessu, sagöi Anna
Ingvarsdóttir hjá öryrkja-
bandalaginu.
o Afhenti
sambönd, sem fylgt hafi verið,
enda hafa mörg þeirra þá fariö
aörar leiöir, og alkunna er, hve
sænska samvinnuhreyfingin
hefur lagt geysilega mikiö af
mörkum I samvinnustarf þró-
unarlandanna.”.
Erlendur rakti sögu SIS innan
Alþjóöasamvinnusambandsins
og sagöi m.a.: „Sambandiö
geröist aöili að ICA áriö 1927.
Slöan 1946 hefur Sambandiö
veriö virkur aöili aö ICA á þann
hátt, aö þaö hefur átt fulltrúa I
miöstjórn , og fulltrúar Sam-
bandsins hafa sótt þing ICA og
miöstjórnarfundi, eftir þvi sem
aöstæöur hafa leyft. Ef ég ætti
aö láta i ljós skoöun á þvi, hvaöa
gagn islenzka samvinnuhreyf-
ingin hefur haft af þvi aö vera
þátttakandi IICA, fram yfir þaö
aö standa aö alþjóölegri stofn-
un, þá myndi ég telja, aö hin
persónulegu kynni viö menn alls
staöar aö Ur heiminum væru
þýöingarmest. Gegnum þau lá
greiöuraögangur aö gagnlegum
upplýsingum og einnig aögang-
ur aö viðskiptum.
Ég hefi átt þvl láni aö fagna
aö hafa mætt á öllum þingum
ICAfrá 1948, er ég mættil Prag,
en slöan voru þing haldin I
Kaupmannahöfn 1951, Paris
1954,Stokkhólmi 1957, Lausanne
1960, Bournemouth I Bretlandi
1963, Vin 1966, Hamborg 1969,
Varsjá 1972, og i Parls á sl. ári.
Þá hafa leiðir legiö á miöst jórn-
arfundi I hinum ýmsu löndum,
og 1975 lá leiöin á samvinnu-
fiskiráöstefnu i Tokyo. Ég met
mikils þá vináttu sem til hefur
veriö stofnaö viö samvinnu-
menn frá hinum ýmsu löndum.”
Aö lokum sagöi Erlendur
Einarsson forstjóri I ávarpi
sinu: „I tilefni af 75 ára afmæli
Sambandsins á þessu ári, kom
til álita I stjórn Sambandsins,
hvort ekki ætti aö leggja fram
einhverja fjárupphæð til stuön-
ings góöu málefni. Fyrir valinu
varö Þróunarsjóöur ICA. Sam-
bandiö vill á 75 ára afmælinu
beina athygli að þróunarlöndun-
um, aö fátækt og neyö fjölda
fólks i þessum löndum og
nauösyn þess, aö meira veröi
gert til þess aö styrkja og efla
efnahag þessara landa. Stjórn
Sambandsins ákvaö, aö I tilefni
afmælisins, skyldi framlagiö I
Þróunarsjóöinn I ár veröa 5
faldaö, úr 5 pencum fyrir fé-
lagsmann I 25 pence, eöa fyrir
fjörutiu þúsund félagsmenn úr
2000 pundum I 10.000 pund.
Stjórn Sambandsins er
kunnugt um skort á fjármagni
til þess aö hrinda I framkvæmd
ýmsum áætlunum viö eflingu
samvinnustarfs I þróunarlönd-
unum.Hún væntir þess.aö þessi
fjárhæö 10.000 pund, geti komiö
aö góöum notum og mætti hún
einnig skoöast sem fordæmi.
Um leiö ég ég afhendi þér, hr.
forseti, ávisun aö upphæö 10.000
pund, vil ég I nafni Sambands
Islenzkra samvinnufélaga flytja
ICA beztu óskir um góöan
árangur I þvi mikla starfi aö
bæta kjör fólksins I þróunar-
löndunum meö eflingu sam-
vinnustarfs. Ég óska ICA
farsældar og góös árangurs 1
störfum þess á komandi árum.”
Atvinna
Menn óskast til starfa í mötuneyti strax
helzt vanir. Húsnæði á staönum.
Góð laun.
Umsóknareyðublöð á skrifstofu vorri,
Lækjargötu 12 (Iðnaðarbankahúsið) efsta
hæð.
íslenzkir aðalverktakar s.f.
ÚTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum
i lagningu dreifikerfis i Keflavik 2.
áfanga.
trtboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitu Suðurnesja, Vesturbraut 10 A,
Keflavik og á verkfræðistofunni Fjarhitun
h.f. Álftamýri9, Reykjavik gegn 10.000 kr.
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja þriðjudaginn 29. marz
kl. 14.00.
Ráðstefna um erlenda
auðhringi og
sjálfstæði Islands
Miönefnd Samtaka herstöövaandstæöinga boöar til ráöstefnu I
TjarnarbUð, Reykjavik, laugardaginn 12. mars kl. 13.00.
Eftirfarandi erindi veröa flutt:
1. ólafur Ragnar Grimsson prófessor:
Eöli fjölþjóöafyrirtækja og upphaf stóriöjustefnu á Islandi.
2. Kjartan Ólafsson ritstjóri:
tslenskt sjálfstæöi og ásókn fjölþjóölegra auöhringa.
3. Jónas Jónsson ritstjóri:
Nýting Islenskra náttúruauðlinda til lands og sjávar.
4. Jón Kjartanssonformaöur Verkalýösfélags Vestmannaeyja:
Verkalýöshreyfingin og stóriöjan.
Frjálsar umræöur veröa um hvert erindi.
Skráning á ráöstefnuna fer fram á skrifstofu samtakanna I slma
17966milli kl. 16og 19og viö innganginn.
Þátttökugjald er 500 kr. Mætiö stundvlslega.
Miönefnd.
1