Tíminn - 15.04.1977, Síða 1
Steingrímur Hermannsson um þörungavinnsluna bls. 10
VÆNGIR?
Áætlunarstaðir:
Bildudalur-Blönduót Búðardalur
! Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug
um allt land
Símar:
2-60-60 oa 2 40-66
Slöngur — Barkar — Tengi
SMIÐJUVEGI 66
Kópavogi — Sími 76-600
Þófið að hefjast
Nú er komast skriður á
samningaumleitanir i yfir-
vofandi kjaradeilum, og i
gær komu fulltrúar launþega
og verkþega saman á Hótel
Loftleiðum til fyrsta fundar
sins með sáttasemjara rikis-
ins og sáttanefnd. Að sjálf-
sögðu bar fátt til tiðinda á
þessum fyrsta fundi nema
hvað viðhorf deiluaðila voru
kynnt. Hér sést Torf i
Hjartarson glugga i kröfu-
gerðarskjöl A.S.t. ásamt
tveimur fulltrúum atvinnu-
rekenda, ólafi Jónssyni frá
Vinnuveitendasambandinu
og Þorvaldi Guðmundssyni i
Sfld og fiski. Næstu daga
verða fundir með fulltrúum
ýmissa félaga. Tmynd: G.
„Lagginn”
heim í dag
Álafoss út
HV-Reykjavik. — Það er gert
ráð fyrir þvi að Lagarfoss
haldi heimleiðis frá Port
Harcourtá morgun (i dag), en
þá á affremingu hans að vcra
að fullu lokið. Það er a.m.k.
tvcggja vikna sigling heim
fyrir skipið, en endanlega hef-
ur ckki vcrið gengið frá því
hvcrnig heimferðinni vcrður
háttað, það er hvort skipið
kcmur beint, cða kemur ein-
hvers staðar við og tekur farm,
sagði Sigurlaugur Þorkelsson,
hjá Eimskipafélagi tslands, i
viðtali við Timann i gær.
— Þvi er ekki að neita,
sagði Sigurlaugur ennfremur,
að þessir skreiðarflutningar
Lagarfoss til Nigeriu eru bún-
ir að vera svolitið langur
róður. Upphaflega var skipið
tilbúið til brottferðar frá
Reykjavik þann 4. febrúar, en
þar sem bankaábyrgðir og
annað vantaði lagði það ekki
af stað fyrr en 11. marz. Þann
28. marz kom það svo til Port
Harcourt, en þá tók við önnur
bið, sem stóð til 11. april, þeg-
ar afferming loks hófst. En nú
er skipið sem sé laust.
Það er svo jafnframt að
frétta af þessum flutningum,
að Alafoss á væntanlega að
fara annað kvöld (i kvöld) til
Austfjarða, þar sem hann mun
lesta fimmtán þúsund balla af
skreið, sem fara á til Lagos i
Nigeriu.
Ætlunin er að hann leggi af
stað þangað um miðja næstu
viku og skilst mér að þannig sé
nú frá málum gengið, að ekki
eigi að vera um sömu tafir að
ræða hér heima vegna
ábyrgöanna. Hins vegar er
ómögulegt að segja hvort
hann verður fyrir sömu töfum
úti og Lagarfoss, við þekkjum
ekki nógu vel skipulagið þar til
að geta spáð um slikt. —
Járnblendiverksmiðjan
í Hvalfirði
Verður að hlíta
ísl. lögnm
MÓ-Reykjavik. — Það, scm
mestu máli skiptir er að járn-
blendiverksmiðjunni er skylt
að hlita islenzkum lögum og
reglum, sem i gildi eru og
kunna að verða sett, sagði
Matthias Bjarnason heilbrigð-
isráðherra á Alþingi i gær
þegar rætt var um væntanlega
járnblendiverksmiðju i Hval-
firði.
Ráðherra sagði, að skilyrði
þau, sem heilbrigðisráðuneyt-
ið hefur sett vegna starfsemi
járnblendiverksmiðjunnar
væru i flestu samhljóða um-
sögn, sem heilbrigðiseftirlit
rikisins gaf út fyrr i vetur.
Tvær breytingar voru þó
gerðar frá þvi, sem umsögn
heilbrigðiseftirlitsins kvað á
um. Annars vegar lagöi heil-
brigðiseftirlitið til, að aðeins
yrði gefið starfsleyfi fyrir ein-
um ofni, en lögfræðingar ráðu-
neytisins og ráðuneytisstjóri
töldu að annað hvort yrði að
veita leyfi fyrir báðum ofnun-
um, sem farið var fram á að fá
að starfrækja, eða hvorugum.
Skilyrði er þó sett i starfsleyf-
ið, að starfsemi siðari ofnsins
verði hafin eigi siðar en 24
mánuðum eftir að fyrri ofninn
verður tekinn i notkun.
Hitt atriðið er, að i umsögn
heilbrigðiseftirlitsins var á-
kvæði um að ef hreinsibúnað-
ur verksmiðjunnar bilaði yrði
rafstraumur til ofnsins rofinn
innan klukkustundar, ef ekki
tækist að gera við bilunina.
Þetta atriði var talið of
strangt, og i starfsleyfinu er á-
kvæði um að ráðherra geti lát-
ið rjúfa rafstrauminn innan
þriggja stunda frá þvi bilun
verði i hreinsibúnaði, hafi við-
gerð ekki verið lokið.
Benedikt Gröndal (A) sagði,
að heilbrigðisráðuneytið hefði
staðið vel i istaðinu i viðræð-
um við Járnblendifélagið um
starfsleyfið og sett mjög
ströng skilyrði, sem hann taldi
mjög fullnægjandi. Kröfur
heilbrigðiseftirlitsins hefðu
eðlilega verið settar mjög
miklar i upphafi svo fremur
væri unnt að slá eitthvað af,
eins og oft þyrfti að gera i
samningum.
Þessar umræður urðu á Al-
þingi, þegar rætt var um þing-
sköp, en nánar segir frá um-
ræöum um járnblendiverk-
smiðjuna á þingsiðu Timans i
dag.
Hrognkelsi eru fyrir
löngu gcngin upp að
Norðurlandi, og nú eru
þau einnig farin að slæð-
ast að landi hér syðra.
Hér sjáum við einn i
Reykjavikurhöfn, er
fengið hefur dálitið af
rauðmaga. Það stendur
vist ekki þvi að selja hann
nú fyrsta kastið. — Tima-
mynd: Róbert.
■
Hjúskaparmiðlun í fullum gangi — sjá baksíðu