Tíminn - 15.04.1977, Blaðsíða 24
28644 ET'MJJll 28645
fasteignasala öldugötu 8
Fasteignasalan sem sparar hvorki
tima né f yrirhöf n til aó veita yður sem
bezta þjónustu
nur Karlsson Valqan
Sölumaöur: Finnur Karls^o'n Valgarður Sigurdsson
• heimasimi 4-34-70 lögfræðingur ■
HREVFIU
Slmi 8 55 22
GSÐI
fyrir góúan mat
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
»Um 70 eru pörin, er hafa
gengið héðan út frá mér”
JH-Reykjavik. — „Þetta eru
vandræ&i vlöa — konur á góö-
um aldri sitja uppi einar meö
tvö eöa þrjú börn, og vænstu
menn, sem gjarna vildu festa
ráö sitt, búa meö öldruöum
foreldrunum, ef þeir eru þá
ekki hreinlega cinbúar. Þaö er
ekki gott, þegar mikil brögö
eru aö þessu — þaö sjá allir”.
Eitthvaö á þessa leiö féllu
orö hjá Kristjáni Jósefssyni I
tslenzka dýrasafninu, sem
jafnframt forstööu þess safns
hefur rekiö hjúskaparmiölun i
rúmlega tvö ár.
— Ég fór bæöi á biskups-
skrifstofuna og I dómsmála-
ráöuneytiö, áöur en ég hleypti
þessu af stokkunum, sagöi
Kristján, En þaö kom upp úr
kafinu, aö engin lög eru til um
svona starfsemi, svo aö opin-
berir aöilar geta hvorki leyft
hana né bannaö, þótt hún veröi
aö lúta réttum reglum, sem
finnást i ýmsum lögum um
önnur málefni, auk þess sem
sumar skyldur eru sjálfsagö-
ar. Hér veröur aö gæta þag-
mælskuog trúnaöar til dæmis,
þetta er þess eölis.
Kristján sagöi, aö þeir, sem
væru i leit aö maka, útfylltu
fyrst skýrslu, þar sem upp
undir tuttugu atriöi væru tekin
fram og legöu fram mynd, og
um leiö greiddu þeir fimm
þúsund krónur, sem væru
vinnulaun viö samanburö á
skýrslum og annaö fleira.
Þegar samband væri fengiö,
greiddi siöan hvor aöili eitt
þúsund krónur.
— Alls eru þau um sjötfu
pörin, sem fariö hafa héöan út
frá mér, sagöi Kristján, en ég
veit ekki til hlitar hve mörg
þessara para hafa gengiö i
hjónaband. En ég veit um
ungar konur, sem áttu I erfiö-
leikum, en hafa gengiö inn á
ljómandi heimili hjá góöum
mönnum. Fólkiö, sem til mfn
leitar, þaö er af öllum lands-
hornum og öllum stéttum og
stigum, flest þó 45-55 ára, þar
á meöal forystumenn I
menntamálum og fjármálum.
Yngst hefur þetta veriö 28 ára,
en elzt 74. Nokkurri fyrirstööu
getur valdiö, aö sumir rosknir
menn vilja helzt fá miklu
yngri konur, en þó getur sitt-
hvaö blessast, þótt aldurs-
munur sé þó nokkur. Konur,
sem fara út i sveit, vilja oft fá
eins konar kynningardvöl á
heimilinu aö sumarlagi, áöur
en þær ráöa viö sig, hvaö þær
gera, og reyndar vill fólk yfir-
leitt fá dálitiö ráörúm til kynn-
ingar eins og eölilegt er, áöur
en fariö er til prestsins eöa
fógetans.
—' Ég gæti nefnt þess dæmi,
aö fólk hefur flutzt landshorn-
anna á milli, ef út i þaö væri
fariö, og öllu reitt vel af, sagöi
Kristján aö lokum. En ég vil
ekki rekja þetta náiö, ég hef
trúnaöar aö gæta — þaö
kemur ekki til mála, aö ég fari
aö benda á fólkiö, sem leitaö
hefur hingaö til min i einka-
málum sinum. Ég þegi eins og
læknarnir og prestarnir um
þaö, sem þeim er sagt, þó aö
þaö sé auövitaö ekki neitt til
þess aöbera kinnroöa fyrir, aö
fólk hefur hug á aö finna sér
maka. Þaö er sá eölilegi gang-
ur lifsins, hvort sem þar koma
aöeins tveir viö sögu eöa hinn
þriöji stuölar aö þvi, aö þaö
megi takast.
Óöinn haföi hrafna tvo, sem sögöu honum tföindi. Kristján Jósefsson I tslenzka dýrasafninu, sem
jafnframter forstööumaöur hjúskaparmiölunar, hefur lika fugia f kringum sig, þótt ekki séu þeir
iengur fleygir og færir. Þess vegna veröur hann aö ráöfæra sig viö sjálfan sig um þaö, hvaö muni
mestri giftu stýra i hjúskaparmálunum. — Timamynd: Gunnar.
Sýni úr búðum:
Hvernig
geymdust
mjólkur-
vörur um
páskana?
HV-Reykjavik. — Heilbrigöis-
eftirlit rikisins stóð aö þvi
núna eftir páskahelgina, aö
framkvæmd var viötæk rann-
sókn á mjólk og mjólkurvör-
um i verzlunum á Reykja-
vikursvæöinu, Ueykjanesinu,
Akranesi og Akureyri. Þessi
rannsókn fór þannig fram, aö
viökomandi heilbrigöiseftirlit
á hverjum staö framkvæmdi
sýnatökur í verzlunum þann
12. april og þessi sýni eru svo
scnd Matvælaeftiriiti rikisins
til rannsókna, sagöi Hrafn
Friöriksson, yfirlæknir og for-
Stöðumaöur heilbrigöiseftir-
lits rikisins, I viötali viö Tim-
ann I gær.
— Þessi rannsókn er fram-
kvæmd nú, sagöi Hrafn enn-
fremur, vegna þess aö um er
aö ræða mjög langa helgi og
mjólkursamsölurnar aö
minnsta kosti samsalan hér i
Reykjavik, fengu undanþágu
til dagstimplunar, umfram
þaö sem venjulegt er.
Með þessari rannsókn ætl-
um við að fá innsýn i hvernig
gæði mjólkur og mjólkurvara
haldast viö langan geymslu-
tima.
Það er fastur liöur I heil-
brigðiseftirliti að framkyæma
gæðaeftirlit af þessu tagi og
væntanlega verða niðurstöður
þessarar rannsóknar geröar
opinberar áöur en langt um
liöur.
SIG OG RIS
VIÐ KRÖFLU
gébé Reykjavik — Þaö er ekkert
marktækt, þótt land sigi i tvo
sólarhringa eins og nú hefur
gerzt. Þessi þróun á virkjunar-
svæöi Kröflu, sem verið hefur
að undanförnu, getur haldiö
áfram i nokkra mánuöi, sagöi
Axel Björnsson jaröeölis-
fræöingur i viðtali viö Timann I
g,ær— Þá getur þetta róazt, eða
þá aö mikiö landsig veröur
og/eöa gos. Það er ómögulegt
aö segja nokkuö um hvað þarna
kemur til meö aö gerast.
Aö sögn Einars Svavarssonar
á skjálftavakt I gærkvöldi sýndu
nýjustu tölur að noröurendi
stöövarhússins, miöað við
suöurendann ris á ný, en tvo
sólarhringa þar á undan, hafði
mælzt nokkuö landssig. Klukk-
an 15 i gær, höfðu mælzt 91 jarö-
skjálfti frá þvi á sama tima
deginum áöur. Atta skjálftar
reyndust vera yfir 2 stig á
Richter en sá sterkasti 2,5 stig.
Sólarhringinn þaráðir, mældust
106 jaröskjálftar.
— Þessi þróun er ekki mjög
ólik þeirri sem átti sér staö á
svipuðum tima i fyrra. Að visu
eru jarðskjálftarnir nokkru
fleiri á sólarhring en þá, en að
öðru leyti er þróunin mjög
svipuö, sagði Axel Björnsson.
1 gær mældist landrisiö,
norðurendi stöðvarhússins
miöað viö suðurendann 11,9 mm
en var áöur en landsig hófst
fyrir tveim sólarhringum i rúm-
um 12 mm.
Síminn í lagi vestra
SE-Þingeyri. — Viö hér höfum
veriö aö mestu leyti sfmasam-
bandslaust siöan fyrir páska, og
var þaö loks á miövikudagskvöld-
iö, aö samband komst á aö nýju.
Hér innan bæjar var þó nokkurt
slmasamband, en þó stirt, þvl aö
aðeins var kostur á einni svokall-
aöri vallinu. Um eina handvirka
llnu var unnt aö ná sambandi viö
Bildudal og þaðan áfram.
1 Dýrafiröi er nú indælisveöur
og fjögurra stiga hiti. Vegir, sem
spilltust I leysingunum fyrir
páskana, hafa veriö heflaöir
tvisvar, og er góö færö alla leiö til
lsafjarðar. Hrafnseyrarheiöi,
sem lokaöist fyrir páskana, er
aftur á móti ófær.
Skattar starfsmanna
meiri en fyrirtæMsins
JH-Reykjavlk. — í tsal-tlöindum,
sem gefin eru út af Alfélaginu
sjálfu, kemur fram, aö af 2800
milljón króna viröisauka, sem
varö hjá þvi áriö 1976, hefur fé-
lagið sjálft fengiö 32% í afskriftir
og hagnaö, en þá var taliö „nokk-
urn veginn jafnvægi I fjárhagsaf-
komu tsal — þaö er aö segja, þaö
er nánast enginn hagnaður né var
um greiösiu aö ræöa fyrir eigiö
fé”.
Þá segir, aö af þessum virðis-
auka hafi 29% fariö I skatta, en af
þvi greiddi fyrirtækiö sjálft ekki
nema tólf krónur á móti hverjum
seytján, sem starfsmenn fyrir-
tækisins inntu af höndum.