Tíminn - 04.05.1977, Blaðsíða 2
2
Miðvikudagur 4. mai 1977
Nokkrir aðalleikaranna I Skipinu.
Þjóðleikhúsið:
Talið frá vinstri: Sveinn Einarsson þjóðleikhússtjóri, Steinbjörn B.
Jacobsen, Birgir Engilberts, Finnbogi Jóhannessen og ieik-
stjórinn, Eyðun Jóhannessen. Timamynd: Róbert
Fyrsta færeyska leikritið á
íslenzku sviði
gébé Reykjavik — Þann 3. mai
s.l. var frumsýnt á stóra sviði
Þjóðleikhússins, færeyska leik-
ritið Skipið eftir Steinbjörn B.
Jacobsen. Þetta mun vera i
fyrsta skipti, svo ótrúlegt sem
það nú virðist, sem færeyskt
leikrit er þýtt á islenzku og
leikið á Islenzku leiksviði af Is-
lenzkum leikurum. Leikritið er
nýlegt, var frumsýnt I Sjón-
leikahúsinu I Þórshöfn 1975 og
hlaut afbragðsviðtökur, en talið
er að fjóröi hver Færeyingur
hafi séð þaö þá. Var leikritiö
sýnt alls fimmtiu sinnum, sem
mun einsdæmi i Færeyjum.
Leikstjóri sýningarinnar i
Færeyjum var Eyöun
Jóhannessen, leikhússtjóri
Sjónleikarahússins og setur
hann leikritiö einnig á svið i
Þjóöleikhúsinu nú. Þýðingu
verksins gerði Stefán Karlsson,
leikmynd er eftir Birgi Engil-
berts, tónlist eftir Finnboga
Jóhannessen og Kristinn
Danielsson annast lýsingu. Að-
stoöarleikstjóri er Guöjón Ingi
Sigurösson og Carl Billich hefur
æft tónlistina í leiknum.
Um 20-30 leikarar koma fram
I sýningunni, en aðalhlutverkin
eru I höndum Rúriks Haralds-
sonar, Bessa Bjarnasonar,
Erlings Gíslasonar, Hákonar
Waage, Sigurðar Sigurjónsson-
ar, Baldvins Halldórssonar,
Helga Skúlasonar, Gunnars
Eyjólfssonar, Randvers Þor-
lákssonar, Gisla Alfreðssonar,
Eddu Þórarinsdóttur, Margrét-
ar Guðmundsdóttur, Guöbjarg-
ar Þorbjarnardóttur, Ævars R.
Kvaran, Bryndísar Péturs-
dóttur, Bjarna Steingrimsson-
ar, Siguröar Skúlasonar o.fl.
Leikritið Skipiö gerist um
borð I skuttogara, en gæti alveg
eins gerzt á hvaða vinnustaö
sem er að sögn höfundar, Stein-
björns B. Jacobsen. — Þetta er
manneskjuleg og nærfærin lýs-
ing á samskiptum fólks á vinnu-
stað. Höf., Steinbjörn B.
Jacobsen, sem staddur er hér á
landi f boði Þjóöleikhússins, til
að vera viö frumsýningu verks-
ins, er tæplega fertugur aö aldri
og mjög afkastamikill rithöf-
undur. Hann hefur gefiö út fjöl-
margar bækur, en meðal þeirra
fyrstu sem hann sendi frá sér
voru myndskreyttar barnabæk-
ur og ljóöabækur. Auk Skipsins,
hefurhann skrifað mörg leikrit,
sem sýnd hafa veriö i Færeyj-
um, auk útvarpsleikrita. Hann
hefur einnig samiö kvikmynda-
handrit fyrir danska sjónvarpiö,
og nú mun veriö aö þýöa Skipiö
yfir á sænsku, en i Sviþjóö er
áætlaö aö flytja verkiö i útvarpi.
Steinbjörn er skólastjóri Lýöhá-
skólans i Þórshöfn og hefur látið
mjög aö sér kveöa i ýmsum
þjóöfélagsmálum I Færeyjum,
baröist m.a. fyrir útfærslu land-
helginnar.
Eybun Jóhannessen, hefur
verið leikhússtjóri og leikstjóri
hjá Havnar Sjónleikarafélagi
viö Sjónleikarahúsiö I Þórshöfn
frá 1973, en var áöur leikari og
leikstjóri þar. Eyðun varö
fyrstur Færeyinga til aö afla sér
leikaramenntunar. Nam hann
leiklist i Kaupmannahöfn,
Óöinsvéum, og i Þýzkalandi.
Hann hefur svibsett fjölda verka
Bessi Bjarnason i hlutverki sinu
sem kokkurinn I færeyska leik-
ritinu Skipið.
i Færeyjum, þar á meðal leikrit
Birgis Sigurössonar, Pétur og
Rúna, og i vetur sviösetti hann
Fjalla-Eyvind með áhuga-
leikurum i Húsavik i Færeyjum.
Aö lokum má þess geta, aö
leikritiö SKIPIÐ vann fyrstu
verölaun I leikritasamkeppni,
sem færeyska bókmenntafé-
lagiö Varðin efndi til 1974.
þrátt fyrir gífurlega aðsókn
gébé Reykjavik — Þaö hefur
varla farið fram hjá neinum,
sem leiö átti nálægt Hótel Loft-
leiöum þann 1. mai, aö þar var
eitthvaö mikiö um að vera. Um-
ferðaröngþveiti mikiö skapaöist
þar strax upp úr hádeginu og
hafði lögreglan I nógu að snúast.
Kunnugir telja, aö öngþveiti
sem þetta skapist ekki einu
sinni þegar stærstu landsleikir I
knattspyrnu eru leiknir I
Reykjavik. Og hvaö var svo um
að vera? Jú, þaö var fyrsta
kattasýning á tslandi, sem opn-
uð var að Hótel Loftleiöum kl. 14
1. mal, en það var hin kunna
söngkona Guðrún A. Simonar,
sem fyrir henni stóð. — Ég er
afskaplega ánægð með sýning-
una og þá gifurlegu aðsókn sem
við fengum. Þetta var mjög
elskulegt fólk sem þarna kom og
virtist hafa mikinn áhuga á
köttunum. Ég bjóst að visu við
aðsókn, en ekki svona mikilli
eins og raun varð á, sagði Guö-
rún A. Simonar I samtaU við
Timann.
— Sýningin fór afskaplega vel
fram, þrátt fyrir aö þaö var
mikil örtröö allan tlmann sem
hún stóö. Nei, ég get ekkert sagt
um hve margir komu, þar sem
viö vorum ekki meö neina miöa,
en þetta var gifurlegur fjöldi.
Viö vorum meö skemmtidag-
skrá, sem áætlab var aö fara
meö einu sinni, en viö fórum
fjórum sinnum I gegnum hana á
sýningunni. Þaö kom mikiö af
börnum, og þau voru mjög
kurteis og góö, mér fannst
áhorfendurnir vera til fyrir-
myndar, sagöi Guörún.
Guörún kvaöst ekki búast viö
aö hafa aöra kattasýningu meö
þessu sniði, en kvaö þetta jafn-
vel geta veriö visi aö þvi aö
halda sýningu, eins og tiökast
erlendis. — Þar standa katta-
sýningar I 2-3 daga, og fólk get-
ur sótt um aö fá aö sýna ketti
slna. Þá myndu veröa fengnir
dómarar erlendis frá og verö-
laun veitt. Þar myndu einnig
framleiöendur kattamatar sýna
framleiöslu sina og fleira.
Kettir eiga fjölmarga aödá-
endur meöal tslendinga, þaö
sýndi þessi fyrsta kattasýning á
sunnudaginn var, og eru þeir
Guörúnu A. Simonar mjög
þakklátir fyrir þetta framtak
hennar.
Sauðfjár-
ræktar-
félag í
Ölfusi
PÞ-Sandhóli — Hér i öifusi hefur
veriö stofnaö sauöfjárræktarfé-
lag, og voru þeir Sigurjón Bláfeld
ráöunautur og Birgir Jónsson
sjúkraþjálfi aðaihvatamenn þess,
en þeir keyptu hér jörð, Ingólfs-
hvoi siðastliðið haust, og reka þar
félagsbú.
Hjalti Gestsson, framkvæmda-
stjóri Búnaöarsambands Suöur-
lands, hefur einnig átt hlut aö
þessu, en hann hefur beitt sér
fyrir stofnun margra sauöfjár-
ræktarfélaga I vetur. 1 stjórn
ölfusfélagsins eru Sigurjón Blá-
feld, Hrafnkell Karlsson á Hrauni
og Asgeir Eggertsson I
Auösholtshjáleigu.
Bændum þykir nú grúfa yfir
dimmur skuggi, þar sem er yfir-
vinnubanniö og yfirvofandi verk-
föll og fyrirsjáanlegur fóöur-
bætisskortur.
Ys og þys
út af engu:
Aðeins 2
sýningar eftir
gébé Reykjavik — Aöeins tvær
sýningar verða til viöbótar á
ballettnum Ys og þys útaf engu,
vegna brottfarar gesta Þjóðleik-
hússins, þeirra Maris Liepa, frá
Bolshoi-leikhúsinu I Moskvu og
Þórarins Baldvinssonar, sem
starfar I Bretiandi. Mjög góð að-
sókn hefur veriö að sýningunum
fram til þessa, en þær tvær siö-
ustu verða á miðvikudagskvöldið
og á laugardaginn kl. 15.
Ballettmeistari Þjóöleikhúss-
ins, Natalie Konjus, samdi
þennan leikdans, sem byggöur er
á samnefndu leikriti Shakes-
peares vib tónlist eftir Tikhon
Khrennikov.
Helga Bernhard hefur dansaö
eitt aöalhlutverkið á nokkrum
sýningum I staö Auöar Bjarna-
dóttur, sem varö aö hætta vegna
meiösla. Aörir helztu dansarar,
auk áöurnefndra gesta, eru: As-
dis Magnúsdóttir Nanna ólafs-
dóttir, Bessi Bjarnason, Ólafia
Bjarnleifsdóttir, örn Guömunds-
son, Guömunda Jóhannesdóttir,
Birgitta Heide, Helga Eldon,
Ingibjörg Björnsdóttir, Einar
Sveinn Þórðarson, Sigmundur
Orn Arngrimsson, ólafur Om
Thoroddsen og Eirikur Eyvindar-
son.
Stöðugar
yfirheyrslur
Gsal-Reykjavik — Stöðugar
yfirheyrslur fara nú fram yfir
piltinum, sem kvaddur var
heim frá Spáni sem vitni i
Guömundarmálinu. Að sögn
Gunnlaugs Briems sakadóm-
ara er hér um að ræða lokað
réttarhald i málinu og af þeim
sökum kvaðst hann ekki geta
greint frá framburði vitnisins
né hvort framburöur hans
hefði veigamikil áhrif á
rannsókn málsins, en svo sem
greint hefur verið frá I fréttum
er taliö, að piltur þessi hafi
verið viðstaddur, er
Guðmundur Einarsson var
myrtur.
Gunnlaugur kvaö liklegt aö
yfirheyrslum yfir piltinum
færi senn aö ljúka.
Líkamsárás í rannsókn á Akranesi:
MIÐALDRA MAÐUR VEITT-
IST AÐ ÁTTRÆÐRI KONU
Atburöur þessi varö meö
þeim hætti, aö maöurinn knúöi
dyra hjá gömlu konunni undir
fölsku yfirskyni umrædda
nótt. Kvaöst hann vera annar
maöur, og hleypti konan hon-
um inn I Ibúöina. Hvað þar
geröist siöar er ekki aö fullu
ljóst, en maöurinn mun hafa
veitzt aö konunni meö þeim
afleiöingum, aö hún er meö
sýnilega áverka. Kæröi konan
árásina og situr maðurinn nú
undir lás og slá.
Maöurinn mun hafa veriö
ölvaöur er þetta geröist.
Gsal-Reykjavik — Miöaldra unnar á Akranesi vegna
maður er nú I haldi lögregl- Hkamsárásar á rúmlega
áttræða konu aöfaranótt
siðastliöins fimmtudags.
Samkvæmt upplýsingum yfir-
lögregluþjónsins á Akranesi
hefur maðurinn veriö úr-
skurðaöur i allt að 10 daga
gæziuvarðhald. Verið er aö
rannsaka þetta mál, og voru
stöðugar yfirheyrslur i gær
undir stjórn Jóns Sveinssonar
fulltrúa bæjarfógeta.
Svo sem sjá má á þessari Timamynd GE, var þröngt á þingi á fyrstu kattasýningunni, er haldin
hefur veriö hér á landi. Hér er Guðrún A. Simonar að kynna Tralla, sem er afbrigði af persnesku
kattakyni, hinn myndarlegasti köttur.
Stórkostleg
kattasýning
— sem fór afskaplega vel fram,