Tíminn - 13.05.1977, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 13. mal 1977
Grásleppu-
sjómenn á
Bakkafirði:
Fegnir
að
hætta
KJ-Reykjavik. — Ilér er ævin-
lega fremur fréttasnautt en
alltaf eitthvaö mannlif, sagði
Járnbrá Kinarsdottir, stöðv-
arstjóri Pósts og sima á
Bakkaíirði i viðtali við blaða-
mann Timans.
Hérgera allirút á grásleppu
en gengur treglega. Það gaf
illa á sjó framan af og netin
skemmdust mikið, núna er
betri veðurtið en aflinn eng-
inn. Á Bakkafirði ér eingöngu
gert út á trillur, enda ekki
haínarskilyrði fyrir stærri
báta. Menn mega gera út á
grásleppuna fram til 10. júni
og taldi Járnbrá að menn yrðu
þvi fegnastir að hætta, slik
væru aflabrögðin.
Um hvitasunnu verður eitt
barn úr hreppnum fermt á
Skeggjastöðum og annað sem
kemur frá Reykjavik. tbúar
eru ekki margir eins og kunn-
ugt er, þó þokast talan upp á
við, sagði Járnbrá. Hreppur-
inn byggði tvö hús árið 1975 og
býr nú ungt fólk i þeim báðum.
Ekki er mikill snjór i byggð,
aðeins blettir. Hins vegar er
mikiil snjór á heiðunum i
kring og tók langan tima að
moka Sandvikurheiði svo hún
yrði fær bilum.
-
r
Kolmun naver
gébé Reykjavik — Verð á kol-
munna og spærling var loks
ákveöiö í gær, átta krónur hvert
kg. t Danmörku er verðið hins
vegar kr. 15.74 og I Færeyjum
kr. 14.45 fyrir spærling og kr.
13.50 fyrir kolmunna. Verðmun-
ur eftir að tekiö hefur verið tillit
til Stofnfjárssjóös, verðjöfnunar
og útflutningsgjalds, er frá
31-53%.
Það var yfirnefnd Verðlags-
ráðs sjávarútvegsinssem ákvaö
lágmarksverðið á spærlingi og
Sýnikennslan á laugardaginn
hefst klukkan 14.00 i Fossvogs-
stöðinni. Þátttökugjald er ekkert
og engan sérstakan útbúnað eða
klæðnað þarf, þar sem væntan-
legir nemendur þurfa ekki að
gera annað en hlusta og horfa.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
efnir til
Sýnikennslu
í garda-
trjárækt
HV-Reykjavik. —Það hcfur löng-
um verið verulegur þáttur i starfi
Skógræktarfélags Reykjavíkur
að veita almcnningi upplýsingar
af ýmsu tagi. Við höfum líka
lagl nokkra áher/.lu á fræðslu-
starf að vctrum, en i fyrravor
tókum við upp þá nýbreytni að
liafa sýnikennslu fyrir þá, sem
vilja, hér i Fossvogsstöðinni, og
nú ætlum við, næstkomandi laug-
ardag, að gera slikt hið sama,
sagði Ouðmundur Martcinsson,
formaöur Skógræktarfélags
Iteykjavikur, á blaðamanna-
fundi, setn boðað var til i Foss-
vogsstöðinni í gær.
Sýnikennslan i fyrravor
tókst alveg ágætlega, sagði Guð-
mundur ennfremur, enda vorum
við heppin meö veður og hingað
komu þennan dag um þúsund
manns. 1 fyrrahaust efndum við
svo aftur til sýnikennslu, sem um
þrjú hundruð manns sóttu, en þá
var aðallega sýnt, hvernig búa á
tré og runna undir veturinn. Að
vorinu leiðir af sjálfu sér, að á-
herzlan er lögð á gróðursetningu
og umhirðu á trjágróðri yfir sum-
artimann.
Sýnikennslan mun fara þannig
fram, að einn maður mun vinna
þau verk, sem skýra á, en annar
sjá um skýringarnar, sem verður
varpað út um hátalara.
Ein af orsökum þess, að við nú
boðum til blaðamannafundar,
núna er einfaldlega sú að kynna
fólki, hvernig hægt er að komast
hingað að stöðinni, þvi frá þvi nýi
Hafnarfjarðarvegurinn kom til,
eru samgöngur hingað ekki jafn-
greiðar og áður.
Um þrjár leiðir er að velja. 1
fyrsta lagi að fara suður i Kópa-
vog, þar undir brúna, upp á nýja
veginn með stefnu á Reykjavik og
koma svo heimreiðina til okkar.
önnur leiðin er að fara Grensásr
veginn, niður Eyrarland og svo
hér að hjá okkur. Hin þriðja er að
fara Háaleitisbraut, niður nýja
veginn fram hjá Borgarspitala og
niður á Fossvogsbrautina. Það er
auðvelt að rata þessar leiðir,
hverja þeirra sem er, ef fólk bara
veit af þeim.
Á blaðamannafundinum i gær
kom fram, að greiniiegt væri, að
þörf fyrir kennslu af þessu tagi
væri allmikil, enda væri ekki
greiður aðgangur að góðum upp-
lýsingum um þessi efni, ööruvisi
en að leggja út i kaup á stórum og
dýrum bókum. Þekking þeirra,
sem eru að reyna að rækta garða
á höfuðborgarsvæðinu, væri oft
mjög takmörkuð, til dæmis ’um
atriði eins og bil milli plantna,
áburðargjöf og fleira.
Skógræktarfélag Reykjavikur
gefur út blað, sem nefnist Skógur-
inn, en það er upplýsingarit i litlu
broti og er sent félagsmönnum,
sem nú eru um eitt þúsund og tvö
hundruð.
Framkvæmdastjóri Skógrækt-
arfélagsins, Vilhjálmur Sig-
tryggsson, skýrði fréttamönnum
frá þvi i gær, að nú væri plöntu-
sala um það bil að hefjast hjá
þeim, en nú orðið er svo til ein-
göngu um plöntur, sem uppaldar
eru hjá þeim sjálfum, að ræða,
þvi félagið er nánast hætt að
flytja inn.
Mikið af trjáplöntum er alið
upp i plasthúsum i stöðinni i Foss-
vogi, bæði með sáningu á fræi,
svo og með græðlingum. Sérstakt
hús, svonefnt rætingarhús, er not-
að til uppeldis á græðlingum, sem
þar eru settir i vikur og hvattir
með hormónagjöfum. Að sögn
Vilhjálms hefur það marga kosti
að fjölga með beinni æxlun á
þennan hátt, til dæmis er nú hægt
að fjölga hér plöntum, sem ekki
var hægt áður, svo og er árangur
öruggari, þegar græðlingur er
tekinn af plöntu, sem sýnt hefur
góða eiginleika, en þegar notað er
fræ af óvissu foreldri.
Siðastliðið ár mun félagið hafa
selt um þrjú hundruð þúsund
plöntur.
Framsóknarfélag Hveragerðis og nágr:
Samþykkja ber kröf-
ur um lágmarkslaun
FRAMSÓKNARFÉLAG Hvera-
gerðis og nágrennis hélt aðal-
fund sinn 11. maí sl. og var hann
fjöisóttur. Sátu hann meðal ann-
arra Þráinn Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Framsókn-
arflokksins og Þórarinn Sigur-
jónsson alþingismaður.
1 stjórn félagsins voru kjörn-
ir: Formaður Garðar Hannes-
son, ritari Páll Þorgeirsson,
gjaldkeri Kristján S. Wium.
Varastjórn Þorsteinn Bjarna-
son, Þorlákur Kolbeinsson og
Þórður Snæbjörnsson.
A fundinum voru miklar um-
ræður um landsmálin, stjórnar-
samstarfið og yfirstandandi
kjaradeilur. 1 fundarlok var
samþykkt eftirfarandi ályktun
meö öllum greiddum atkvæð-
um:
„Aðalfundur Framsóknarfé-
lags Hveragerðis og nágrennis
haldinn 11. mal 1977 lýsir fullum
stuðningi við baráttu láglauna-
fólks og treystir þvi að ráðherr-
ar Framsóknarflokksins beiti
sér fyrir eftirfarandi:
1. Samþykkt verði lágmarks-
laun kr. 100 þús. á mánuði, eöa
kjarabætur i öðru formi
jafngildandi þvi marki.
2. Að alþýða manna geti hér,
eins og i nágrannalöndunum,
lifað af daglaunatekjum.
3. Að knýja á um samþykkt
við þessar láglaunakröfur af
hálfu ríkisstjórnarinnar og
vinnuveitenda, enda litur fund-
urinn svo á, að i sliku máli sem
þessu, verði aö rikja full sam-
staða innan rikisstjórnarinn-
ar”.
.
Kaupfélag Hérað
Heilda
2,6 mi!
JK Egilsstöðum — Aðalfundur
Kaupfélags Héraðsbúa var
haldinn i Valaskjálf sunnudag-
inn 8. mai s.l. Formaður félags-
ins Steinþór Magnússon setti
fundinn ineð ræðu og stjórnaði
honum. Þorsteinn Sveinsson
kaupféiagsstjóri flutti skýrslu
uni starf félagsins og útkomu
þess á liðnu ári. Heildarveltan
var rúmlega 2,6 milijarðar
V or kappr eiðar
Fáks eru á
sunnudaginn
FB-Reykjavik. Arlegar vorkapp-
reiðar Fáks vcrða á skeiðvellin-
um að Viðivöllum á sunnudaginn,
og hefjast þær klukkan 14. Um
citt hundrað hcstar munu taka
þátt i keppninni að þessu sinni.
Þar á meðal verða Stokkhólma-
Blesi, Vafa og Fannar sem jafn-
aði íslandsmet óðins sfðastliðiö
sumar.
i 250 metra stökki munu koma
fram litt þekktir hestar, sem eiga
áreiðanlega eftir að sjást oft á
kappreiðum á næstu árum, að þvi
er Fáksmcnn scgja.
Vænta má spennandi keppni i
350 metra stökki. Þar munu mæta
til leiks m.a. Loka, Þórdisar Al-
bertsson, en Loka varð íslands-
methafi i 350 m stökki siðast liðið
sumar. Þá mætir einnig Þjálfi,
Sveins K. Sveinssonar og Gustur
Björns Baldvinssonar.
t 800 metra stökki munu ganga
fram til leiks margir efnilegir
hestar, og er búizt við að sú
keppni geti orðið tvisýn og mjög
skemmtileg.
Vegna hinnar nýstofnuðu
iþróttadeildar Fáks verður nú
keppt i nokkrum nýjum iþrótta-
greinum. Meðal annars verður
gæðingaskeið, fjórgangur, fimm-
gangur hindrunarstökk o.fl. Þetta
eru sömu keppnisgreinar og
ákveðnar hafa verið fyrir
Evrópumót islenzkra hesta, sem
haldið verður i Danmörku seinni
hluta sumars i sumar.
Áhugi ungs fólks og unglinga á
hestamennsku hefur farið hrað-
vaxandi undanfarin ár. Kemur
þetta mjög greinilega fram þegar
athugaðir eru þátttakendur i
keppnisgreinum hinnar nýstofn-
uðu iþróttadeildar Fáks.
Vorkappreiðarnar hefjast eins
og fyrr segir kl. 14 með keppnis-
greinum iþróttadeildarinnar. en
kappreiðarnar sjálfar hefjast kl. 15
Veðbanki verður starfræktur á
kappreiðunum að vanda.
Frá kapprciöum Fáks.