Tíminn - 13.05.1977, Page 7
Föstudagur 13. mal 1977
7
Ekki virðist nýja hjonabandið eiga sérlega vel við Elisa-
beth Tavlor cftir útliti hennar að dæma. Eiginmaður
hennar er stjórnmálamaður og hún tekur þátt I stjórn-
málabaráttunni við hlið hans. Eru þvl oft birtar frétta-
myndir af þeim hjónum. Þykir hún hafa hraðelzt, fitnað
og bera geðvonzkuna utan á sér á þeim myndum. Með-
fylgjandi myndir sýna Elizabeth fyrir ári og Elizabeth
núna.
Oll eldumst við
Góð íþróttaaðstaða
hússiþróttagreinum i Þýzkalandi. Þessi iþróttasamstæða
kostaði 27.5 milljónir v-þýzkra marka. Borgin er 19 km
fyrirsunnan Stuttgart, hefur 57.000 ibúa, en þar eru stór
iðnaðarfyrirtæki og gegnum skatta á þau var hægt að ná
þvi sem til þurfti i þessa háu fjárhæð. Hæsti skattgreið-
andi er Daimler-Benz AG, sem hefur eina af verksmiðjum
sinum þar.
Þessi geysistóra innanhdss-sundlaug, sem skiptist i 4
sundlaugar er i Sindelfingen nálægt Stuttgart, V-Þýzka-
landi. Hún var opnuð fyrir nokkrum vikum. Hún er ein
stærsta laugin i Evrópu. Hún kostaði um 30 milljónir v-
þýzkra marka. Skömmu siðar var einnig lokið við að
byggja alhliða iþróttahöll i Sindelfingen. Hún hefur þegar
sannað gildi sitt, þegar keppt var i meistaraflokki i innan-
Tíma-
spurningin
Væntir þú þess, að
samningar takist milli
Alþýðusambandsins og
samvinnuhreyfingar-
innar?
Jónas Sv. Einarsson, verkamaö-
ur: — Já það vona ég sannarlega.
Þessi tvenn samtök hafa svo
margt sameiginlegt.
Ragnar Bergsson, verkamaður:
— Ég vonast til þess að það verði
sem allra fyrst. Þvi fyrr þvi
betra. Við viljum ekki verkfall.
Höfum ekki ráð á þvi.
Gunnar Bergþórsson, verkamaö-
ur: — Ég vona að samningar tak-
ist sem allra fyrst. Ég er á móti
verkföllum alla vega eins og þeim
er nú beitt. Ég hef ekki efni á
þvi að fara i verkfall, og vona aö
samið verði fljótt.
Guörún ölafsdóttir, Ijósmóöir: —
Ég vil endilega aö samningar
takist sem fyrst, þvi að við þolum
ekki þessi verkföll.
Kristján Jóhannesson: — Ég á
ekki von á þvi að SIS semji fyrr en
hinir.