Tíminn - 13.05.1977, Page 9
Föstudagur 13. maí 1977
9
Um fleipur
Ólafs á Oddhól
Ég hef talið mig i hópi þeirra
sem þola að heyra sitt af hverju
sagt i útvarp annað en það sem
mér finnst sjálfum að sé satt og
rétt. Það fylgir málfrelsinu og
heyrir til frjálsri umræðu. En
þá er lika viöeigandi að halda
umræðunni áfram og svara Vit-
leysunum.
Ölafur á Oddhól var sýndur i
sjónvarpi 30. april. Þá sagðist
hann vera á móti öllum stórum
sölufélögum bænda og taldi þau
slæm. Það þykist ég vita að
maðurinn hafi aldrei komizt svo
langt að hugsa sér hvernig haga
skyldi sölu og vinnslu fram-
leiðslunnar. Hitt heyrum við að
hann vill hvorki Mjólkurbú
Flóamanna né Sláturfélag Suö-
urlands. Hann vill að bændur
selji sinar vörur sjálfir beint til
neytenda. A þá hver bóndi i
Rangárvallasýslu að bera sina
mjólk i húsin i Reykjavik? Og
hvað er meö gerilsneyðingu?
Mjólkuriðnaðurinn á auövitaö
að verða heimilisiðnaður. Það
er tillaga sem hægt er að ræða.
Við það myndi þó hvorki öryggi
um vöruvöndun né hagkvæmni i
þjóðarbúskap vaxa.
Það er greinilegt að mann-
tetrið i Oddhól vill hafa þá til-
högun á sölu sláturafurða sem
var áður en afurðasölulögin
komu þegar bændur úr Rangár-
vallasýslú og Húnavatnssýslu
voru samtimis með óselda fjár-
hópa i Reykjavik og buðu verðið
niður hver fyrir öörum.
Ég sagði manntetriö vegna
þess að virðulegra orð á ekki við
um þá persónu sem lætur út úr
sér á almannafæri svona van-
hugsaða vitleysu i sambandi við
það sem persónan lifir og hrær-
ist i. Þar kemur fram nöturlegt
sálarlif. Annað mál ef reynslu-
laus krakki ætti i hlut.
Hitt er mannlegt að Ólaf lang-
ar til að fegra minningu föður
sins. Annað mál er svo hvað
langt verður komizt i þvi.
H.Kr.
UM „FÁTÆKT FÓLK”
Yfirlýsing og greinargerð
t bókinni „Fátækt fólk”
lýsir hr. Tryggvi Emilsson
heimilinu á Draflastöðum I
Sölvadal á mjög óhugnanleg-
an hátt. Viö undirrituö, sem
þekktum vei þetta heimili á
þeim árum sem Tryggvi var
þar, furðum okkur á þessari
frásögn hans og getum ekki
trúaö henni.
Lýsum viö hér meö yfir
andstyggö okkar á þeim
þætti bókarinnar sem fjallar
um heimilislífiö á fyrrnefnd-
um bæ.
Ketill S. Guöjónsson
Þorvaldur Guðjónsson
Hjalti Guömundsson
Kristln Siguröardóttir
Stefán Benjaminsson
Jóhann Sigurösson.
Laust fyrir siðustu jól kom út
bókin „Fátækt fólk” eftir
Tryggva Emilsson. Fáar bækur
munu hafa vakið meira umtal
viða um land en þessi bók. Þó
mun það umtal hafa orðið einna
mest hér i eyfirzkum sveitum
sem eðlilegt má telja, þar sem
þessar frásagnir Tryggva eru
mestar úr Eyjafiröi og af Akur-
eyri. Nokkrar umsagnir um
bókina hafa birzt i blöðum og er
henni þar yfirleitt hælt, einkum
fyrir ágæta frásagnarhæfileika
höfundar og góðan stil. Má það
til sanns vegar fær.
Allmargir munu þó vera ofan
moldar sem muna þá tima er
þessar æviminningar Tryggva
spanna yfir og áttu heima I
fjölda ára I næsta nágrenni við
þá staði sem bókin getur um og
mesta athygli hafa 'vakið i frá-
sögninni. Við, sem vorum i 15 til
20 ár á næstu bæjum við Drafla-
staöi I Sölvadal og áttum þess
kost að koma þar við og viö og
hafa ýmiss konar samskipti við
heimilisfólkið á bænum eins og
geristá nágrannabæjum i sveit,
viljum lýsa megnri andúö okkar
á hinum ógnvekjandi frásögn-
um Tryggva af fólkinu þar og
framkomu þess við hann og full-
yrðum að þetta á sér engan
stað. Hjónaleysunum á Drafla-
stöðum, Sigfúsi og Guðrúnu, er
lýst sem fullkomnum óþokkum
og er þá ekki of sterkt til oröa
tekið. Sannleikurinn er hins
vegar sá að þetta fólk fékk al-
menningsorö fyrir að vera
sómafólk, glaölynt i viöræðum
og á engan hátt til baka haldið
né hafa tilburöi til að einangra
sig.
Eitt af þvi sem vekur okkur
einna mestrar andstyggöar i
sambandi viö frásögn Tryggva
af Draflastaðaheimilinu, er þaö
tillitsleysi sem fram kemur
gagnvart afkomendum þessa
fólks sem enn er á bezta aldri.
Til glöggvunar á þessu skal
fram tekið að þau Sigfús og
Guörún giftust nokkru eftir að
Tryggvi fer alfarinn frá Drafla-
stööum. Attu þau eina dóttur
barna. Þekkti hún föður sinn
ekki neitt þvi hún er aðeins 4 ára
þegarhanndeyr. Nú er hún hús-
freyja á ágætu heimili hér i
firöinum og á uppkomin börn.
Þess er vert að geta að hún er
rómuð fyrir góövild og myndar-
skap.
Menn geta gizkaö á hvert áfall
þaö hefir veriö fyrir þessa konu
að fá allt i einu þessa viðbjóðs-
legulýsingu af foreldrum sinum
i bók sem seld er um allt land.
Manni býður i grun aö þarna sé
verið að reyna að kitla eyru les-
enda bókarinnar meö skáldleg-
um tilþrifum og æsandi sögum.
Eitt er enn sem vekur athygli
i sambandi við vist Tryggva á
Draflastöðum og það er að
Emil, faðir hans, hikar ekki við
að láta son sinn vera 3 sumurog
einn vetur i þessum kvalastaö.
Hann sýnist ekki hafa neina til-
burði til að taka drenginn þaðan
fyrr en seint og um siðir og
koma honum i aðra vist. Þó
hefði hann eflaust átt að vita,
eftirsögusögnTryggva, hvernig
að honum var búiö á þessu
heimili.
Sögusviöið i öxnadal er okkur
óviðkomandi en við höfum þó
góöar heirpildir fyrir þvi aö þar
sé farið rangt meö ýmis atriði
og vekur þaö grun um óvandaða
heimildaöflun eða oftrú
höfundarins á eigið minni.
Tryggvi segir að Draflastaðir
séu nú i eyði en ekki er þetta rétt
hjá honum. Jöröin er byggð og
hefði hann þvi getað sparaö sér
vangavelturum þaö atriði á bls.
110. Fleiri villur mætti nefna en
þær skipta litlu máli.
Okkur er það vel ljóst, aö þó
að við sendum þessar athuga-
semdir viö skrif Tryggva um
vist hans á Draflastööum i fjöl-
lesnustu blöð landsins I dag, þá
mun fljótt fyrnast yfir þær og fólk
gleyma þvi að þær hafi nokkurn
tima birzt. Hins vegar mun bók-
in „Fátækt fólk” áfram vera til
og verða lesin I framtiðinni sem
einhver sannfræöilegasta lýsing
þeirra sagna á þeim tima sem
hún fjallar um.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreið,
vörubifreiðar og sumarferðahús er verða
sýnd að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 17.
mai kl. 12-3, ennfremur strætisvagn er
verður til sýnis á afgreiðslu vorri á Kefla-
vikurflugvelli. Tilboðin verða opnuð i
skrifstofu vorri kl. 5.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Auqlvssd í Tírrianum
Fjölsviðs-mælar
Amper-tangir
Einangrunar-
mælar
MV-búðin
. Suðurlandsbraut 12
sími 85052.
Bænadagur þjóðkirkjunnar:
lands
og lýðs
ÉG minni á, að hinn árlegi
BÆNADAGUR (5. sd. e. páska)
er að þessu sinni 15. MAl. A
bænadegi í fyrra var beöið fyrir
„giftu og góðum lyktum I land-
helgismálinu". Jafnframt var
minnt á, að það mál hafði þá að
undanförnu veriö stöðugt bæn-
arefni i kirkjum landsins.
A þessu ári, 1977. er réttur
aldarfjórðungur liðinn síöan
landhelgi Islands var færö út i 4
mflur. Þá þróun, sem siðan
varð, ber vissulega að þakka og
sérstaklega bá bænhevrslu, að
háskaleg átök á miðunum
ollu aldrei slysum á mönnum né
liftjóni.
Ég rifja upp ályktun kirkju-
þings 1976, sem samþykkt var á
fullveldisdegi, 1. desember: „A
fullveldisdegi islenzku þjóðar-
innar fagnar kirkjuþing þeim
lyktum, sem orðnar eru i land-
helgismálinu, þakkar þá hlifð og
giftu, sem þjóðin hefur notiö i
baráttu sinni til sigurs i þessu
máli og biður þess, að þessi
mikilvægu þáttaskil i islenzkri
sögu veki og glæði kristna vit-
und um helgi lands og lifs”.
Ég óska þess að niðurlagsorð
þessarar ályktunar veröi yfir-
skrift bænadagsins að þessu
sinni: HELGI LANDS OG LIFS.
Unnum sigrum fylgir aukin
ábyrgð. Islendingar bera nú
meiri ábyrgð en áður á lifinu i
sjónum umhverfis landið.
Mörgum stendur ógn af mengun
hafsins, ekki sizt vegna oliuleit-
ar og oliuvinnslu. En Islending-
ar bera fyrst og fremst ábyrgð á
eigin geröum i sambandi við
sókn á miðin. Þar þarf vit að
ráða, hófstilling og þegnskapur.
En það þarf lika að muna, aö
umsvif og tækni og gróöahyggja
eru hæffuleg lifi landsins, ekki
siður en sjávarins, ef menn
sjást ekki fyrir I sókn sinni á
hendur þeirri náttúru, sem lifs-
afkoman i nútið og framtið
byggist á. Þvi mátti maðurinn
taka viö þvi boöorði frá skapara
sinum að gera sér jörðina undir-
gefna, að hann átti að skilja og
virða þá staðreynd, að hann er
sjálfur undirgefinn skapara
himins og jarðar og ábyrgur
fyrir föður alls lifs.
Mættum vér læra að umgang-
ast landið, auðlindir láðs og lag-
ar, og þau gæði einnig, sem
verða ekki metin til fjár, i
ábyrgri vitund um helgi þeirrar
náttúru, sem Guö skapar, nærir
og prýðir. Þvi aðeins skiptir
maðurinn við náttúruna á þegn-
legan, ábyrgan og farsælan
hátt, að hann kunni aö meta þau
verðmæti, sem eru ekki af þess-
um heimi. Þvi aðeins skiptir
hann bróöurlega við meðbræö-
ur, aö hann hafi heilbrigð, and-
leg viöhorf, heila samvizku. Hér
er fólgið hið ómetanlega hlut-
verk kristinnar kirkju I þjóölif-
inu. Köllun hennar er helgun
mannlifsins fyrir áhrif Jesú
Krists.
Islenzk náttúra getur veriö
harðleikin. Tjón og voða af
hennar völdum hefur þjóðin
mátt reyna og reynir enn. Biðj-
um þess, að byggðum, mann-
virkjum og mannslifum veröi
hlift við háska vegna eldsum-
brota. Þökkum augljósa vernd
og ytri farsæld. Greiðum Islandi
drengileg heit. Megi það eiga
biðjandi börn, þakklát i gengi,
þolgóð i þraut, samhent systkin
1 bliðu og strlðu, sem helgi sitt
land og líf viö lindir Guðs orðs.
Svo skal veröa beöiö I anda og
sannleika i hverri kirkju lands-
ins á komandi bænadegi.
Sigurbjörn Einarsson
J
KANADAFERÐ
Samvinnuferðir og þjóðræknisfélögin efna
til þriggja vikna Kanadaferðar i sumar.
Flogið til Winnipeg 15. júli og heim aftur 4.
ágúst.
Gisli Guðmundson verður aðalfararstjóri.
Honum til aðstoðar fróðir heimamenn er
þurfa þykir.
Skipulögð ferð til Kyrrahafsstrandar hefst
þann 16. júli. Fyrsti .næturstaður Vatna-
byggðir. Þá3 dagari Alberta (Edmonton,
Markerville, Calgary).
Ógleymanleg ökuferð vestur um Kletta-
fjöll til Vancouver, vikudvöl á hinni fögru
vesturströnd, ferðirtil Seattle og Victoria.
Flogiðþann 29. til Winnipeg og siðan dval-
ið i Manitoba. Þátttaka i Islendingadegin-
um á Gimli. Gist á hótelum.
Skoðunarferðir um Manitoba fyrir þá sem
þar dvelja allan timann, eru i boði á veg-
um Viking Travel Ltd. Winnipeg.
Leitið upplýsinga hjá Samvinnuferðum,
Austurstræti 12, Reykjavik, simi 27077
eða á Hótel KEA, Akureyri, simi 22200.
Samvinnuferðir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077
I