Tíminn - 17.05.1977, Blaðsíða 1
SJ ræðir við Svend Aage Nielsen —bls. 12
rÆNGIR"
Aætlunarstaðir:
Bíldudalur-Blönduóc Búðardalbr
IFIateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf'jörður-Stykkishólmur
; Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug
,um allt land
Símar:
.2-60-60 oq 2-60-66
tl
Slöngur — Barkar — Tengi
WMXEwmaEmm
SMjÐJUVEGI 66
Kópavogi — Sími 76-600
Atvinnurekendur:
JH-Reykjavik. —
Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna hefur, að ósk
sáttanefndar, gert henni
grein fyrir þvi, hvaða lciðir
það telur einna helzt færar til
þess að rétta hlut lág-
launastétta i landinu, án þess
að því fylgi stórröskun i
þjóðfélaginu. Gerðist þetta á
laugardaginn.
Hér er um að ræða hug-
myndir, ætlaðar sáttanefnd
til glöggvunar og úrvinnslu,
en ekki tillögur, og voru þær
látnar i té sem trúnaðarmál.
Er þess vegna ekki unnt aö
skýra frá efnisatriðum aö
svo stöddu, enda væri þaö
ekki til þess falliö aö greiöa
fyrir sáttum á þessu stigi
mála.
A hinn bóginn mun
Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna vilja stuðla
að lausn kjaradeilunnar,
þegar þar að kemur, á þeim
grundvelli, sem það hefur
lagt með hugmyndum þeim,
sem sáttanefndin hefur
fengið i hendur.
Segja
fallið
Sáttanefnd
fær hugmynd-
ír fra Vinnu-
málasambandi
legt
- ríkisstjórnin
heldur fund
með sátta
nef nd og
deiluaðilum
i dag
gébé Reykjavik — Þetta hefur
verið til umræðu hjá hafnar-
verkamönnum i marga daga.
Þetta eru harðsnúnir menn og
mjög samstilltir, sem oftast
hafa frumkvæði i vinnudeiium
og eru kjarni félagsins á
mörgum sviðum, það er varla
á nokkurs manns færi að halda
svona hópi i skefjum og ég
ætla ekki að taka að mér að
vernda atvinnurekendur fyrir
þeim, sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, varaformaður
Dagsbrúnar i gær. — Okkur
finnst þetta skyndiverkfali
ha f na r verka m a nn a til
skammar verkalýðssam-
þykktum i þjóðfélagi sem
þessu, þar sem borgarar
veröa aö treysta hver öðrum.
Venjulega er ys og þys við Reykjavikurhöfn á virkum dögum, enda vinna þarna mörg hundruö manna. Eftir hádegi i gær,
var hins vegar mjög rólegt, örfáir menn álferii og allar stórvirkar vinnuvélar stöðvaðar. Tímamynd: G.E.
Þetta er til skammar og
tvimælalaust ólöglegt verk-
fall, sagði Barði Friöriksson,
hrl., hjá Vinnuveitendasam-
bandi islands
Varðandi það, hvort hafnar-
verkamenn hefðu haft frum-
kvæði um skyndiverkfallið, og
hvort hann áliti það löglegt,
hafði Guömundur J.
Guömundsson þaö að segja, að
engin stjórnarsamþykkt væri
til i Dagsbrún fyrir verk-
fallinu, og þó að verkfall sem
þetta væri t.d. löglegt á
Norðurlöndum, mætti deila
um hvort svo væri hér. Hann
kvaðst ekki búast við að
hafnarverkamenn legðu niöur
vinnu I dag. Hann kvað
hafnarverkamennina vera
grama yfir þvi að vita af
fory stumönnum sitjandi
árangurslausa fundi dag eftir
dag, en aö þeir væru glugg-
andi I lögbækur kvaðst hann
efast um. — Þeir eru fyrst og
fremst reiðir út i atvinnu-
rekendur, en þetta er iika
aövörun til Dagsbrúnar og
samninganefndar um að þeir
vilji meiri aðgerðir, sagði
hann.
Vinnuveitendasamband ís
lands mótmælti harðlega
skyndiverkfalli hafnarverka-
manna á fundi með sáttanefnd
i gær. Vinnuveitenda-
sambandið hefur áskilið sér
allan rétt til skaðabóta frá
Dagsbrún eða einstökum
verkamönnum fyrir það tjón
sem þaö kann að veröa fyrir
vegna verkfallsins.
Samningafundum lauk á
Hótel Loftleiðum um kl. 18 i
gær, en þá höfðu þeir staðiö
frá kl. 16. Sáttanefnd ræddi viö
bæði samninganefnd ASl og
samninganefnd Atvinnurek-
enda, hvora I sinu lagi I gær,
en lltið miðaði i samkomu-
lagsátt.
Hins vegar virðist sem
einhver hreyfing gæti komist á
samningamálin i dag, en
rikisstjórnin hefur boðaö
fulltrúa ASI á fund kl. 11 fyrir
hádegi, og atvinnurekendur
stuttu siöar. Rikisstjórnin
mun þó fyrst, áður en hún
ræðir við fulltrúa deiluaöila,
halda fund með sáttasemjara
rikisins og sáttanefndinni
I Sundahöfn var þó unnið við
'eitt skip cftir hádegi i gærdag,
Göafoss, eins og sést á þessari
mynd. Þar sögðust menn ekki
hafa fengið nein boð um að
leggja niður vinnu.
— Timamynd ,G.E.
fyrir hádegi.
Almennur
sáttafundur
deiluaðila hefur verið boðaður
hjá sáttanefnd kl. 16 i dag.
1 <
Hafrannsóknastofnun
lokar tveim hafsvæðum
— vegna of mikils smáfisks og seiða i afla skipa
gébé Reykjavik — Tveim
svæðum var iokað I gær,
annars vegar talsverðu
hafsvæði á miðju Vopna-
fjarðargrunni, þar sem vart
varð mikils smáfisks i afla
togara á þeim sióðum, og
hins vegar var rækju-
veiöisvæðinu á Axarfirði lok-
að, þar sem mikiö reyndist
af ýsuseiðum i afla báta þar.
Axarfjarðarsvæöinu verður
lokað um óákveðinn tima, en
fylgzt verður með þvi á
næstu dögum. Að sögn Ólafs
Karvels Pálssonar, fiski-
fræðings hjá Hafrannsókn-
arstofnun verður svæðinu á
Vopnafjarðargrunni hins
vegar lokaö i sjö sólar-
hringa. Lögunum um fyrir-
varalausa lokun hafsvæða
hefur verið breytt i þessu til-
viki, en áður hafði
Hafrannsóknastofnunin að-
eins leyfi til að loka hafsvæð-
um fyrir veiðum I þrjá sóiar-
hringa.
baö var skv. upplýsingum
frá Markúsi Guömundssyni,
eftirlitsmanni Haf
rannsóknastofnunar, að
svæöinu á Vopnafjaröar-
grunni var lokað. Markús
var um borð i skuttogaran-
um ólafi Bekk frá Ólafsfirði,
en þar reyndist meðaltal afl-
ans úr fimm togurum vera
56% undir 58 cm. Mörkin eru
þau, að ekki séu meira en
40% aflans undir 58 cm. Um
fimmtán togarar voru aö
veiðum á þessum slóðum
þegar bannið var sett. Ekki
mun eftirlitsmaöur hafa
fariö um borð i hina togar-
ana, en beinast liggur við að
álita aö afli þeirra hafi veriö
svipaður og hjá Ólafi Bekk.
Rækjuvertiöinni á Axar-
firði lýkur i enda maimánað-
ar, og eru Húsavikurbátarn-
ir svo til búnir að fylla kvóta
sinn, en Kópaskersbátarnir
munu enn eiga talsvert eftir
af sinum kvóta. Mjög hefur
gætt þess á þessari rækju-
vertið á Axarfirði, aö mikið
seiöamagn hefur komið i
rækjutrollin og hefur svæö-
inu hvaö eftir annaö verið
lokað á vertiöinni um
skemmri eöa lengri tima.
“ -
• Jón Sigurðsson um Grundartangaverksmiðjuna bls. 10