Tíminn - 17.05.1977, Side 2
2
Þriðjudagur 17. mai 1977
Elin t>or-
bjarnar-
dóttir senn
búln til
heimfarar
Elin Þorbjarnardóttir, nýr skut-
togari i eigu Hlaðsvikur h.f. á
Suðureyri, smiðaður í skipa-
smiöastöðinni Stálvik, fór i
reynslusiglingu á föstudaginn
var. Ber skip þetta nafn gagn-
merkrar ættmóður dugmikils
frændahóps, sem fremst stendur
um framkvæmdir og atvinnu-
rekstur á Suöureyri við Súganda-
fjörð. Elin var eiginkona Friö-
berts Guðmundssonar, hrepp-
stjóra og útgeröarmanns á
Suöureyri og sonarso-ur þeirra
Einar óiafsson og fleiri niðjar
Elinar eiga og reka fyrirtækiö
Hlaðsvik.
Margt gesta var i reynsluferð-
inni, og margir fluttu ávörp. For-
stjóri skipasmiðastöövarinnar
Stálvikur, Jón Sveinsson, lýsti
skipinu i helztu atriöum.
Skipstjóri á Elinu Þorbjarnar-
dóttur verður Arinbjörn Sigurös-
son, kunnur aflamaður.
Allar vélar og tæki skipsins
hafa reynzt vel við prófanir og
getur skipið væntanlega farið
heim til Suöureyrar siðari hluta
þessarar viku, þegar lokið er
stillingu á flóknum rafeinda-
búnaði þess.
Geta má þess, að i skipinu er
fullkominn viövörunarbúnaður i
vélarrúmi, smiðaður af Iðntækni,
og getur vélarrúmiö verið mann-
laust i allt að átta klukkustundir.
Heilarýrnun
eftir fárra ára
áfengisneyzlu
Nýjar, athyglisveröar rann-
sóknir hafa verið geröar i Svi-
þjóð varðandi misnotkun áfeng-
is.
Heilaskemmdir koma ekki
aðeins fram hjá ofdrykkju-
mönnum og drykkjusjúkling-
um. Svo virðist aö skemmdirnar
geti gert vart við sig, þegar eftir
fárra ára misnotkun áfengis.
Rannsókn á tuttugu sjúklingum,
sem framkvæmd var á áfengis-
lækningastofnun í Sviþjóð,
leiddi i ljós heilarýrnun sem svo
er nefnd i daglegu tali, hjá þeim
öllum. Þaö er rannsóknadeild
við karolinska sjúkrahúsið I
Stokkhólmi sem framkvæmt
hefur þessar rannsóknir. Hún er
ákveðin i að halda þeim áfram
með þvi að fá til sin einstaklinga
sem ekki eru ofdrykkjumenn,
svo að hægt sé með samanburði
að komast aö raun um hve ört
heilaskemmdirnar breiðast út.
Samkvæmt heimildum i ritinu
Verdens Gang er það nýrri
röntgenaðferð að þakka að hægt
er að framkvæma þessar rann-
sóknir þannig að þær hafi enga
áhættu, skemmdir eða óþægindi
i för með sér.
Sjúklingarnir, sem rannsak-
aðir hafa verið, voru á aldrinum
26 til 60 ára. Sá yngsti hafði
neytt áfengis I óhófi i 4 ár. Meö-
altalið var neyzla i um það bil 12
ár. 14 þeirra höfðu atvinnu, 5
voru atvinnulausir og einn var á
eftirlaunum. Vikuna á undan
rannsóknunum höföu þeir að
meðaltali drukkið meira en
heilflösku af sterkum drykkjum
eða um það bil 4 flöskur af létt-
um vlnum. Sá þeirra sem drakk
minnst hefði ekki drukkið meira
en hálfa flösku af sterkum
drykkjum. Sá sem drakk mest
hafði drukkið meira en tvær
heilflöskur af brerinivfni á dag.
Við karolinska sjúkrahúsið er
sérstök deild fyrir drykkju-
sjúka. Tekur hún ekki aðeins til
meðferðar hin erfiðustu tilfelli á
þessu sviði heldur einnig hin
smærri. Þannig er grundvöllur
lagður að rannsóknum á
drykkjusjúklingum á mismun-
andi stigum. Sú rannsókn sem
nú er gerð hefur verið fram-
kvæmd með aðstoð tölvu sem
hefur safnað saman og skil-
greint 10 þúsundir skrásetninga
um röntgengegnumlýsingar á
höfði og heila.
Myndirnar voru síðan rann-
sakaðar af sérfróöu starfsliði
við tauga- og röntgendeild
sjúkrahússins og vissi það ekki
hvort sjúklingurinn var
drykkjusjúklingur eða of-
drykkjumaður. Það kom i ljós
að allir þessir tuttugu menn,
sem undir rannsókn gengu, voru
með heilarýrnun. Skemmdirnar
komu I ljós sökum þess að hol-
rúmið I heilanum var stærra en
eðlilegt er. Skemmdirnar voru i
heilaberkinum sem stjórnar
starfsemi hugans og minnis-
hæfileikanum.
En skemmdirnar voru ekki á
sama staö i heilaberkinum á öll-
um sjúklingunum. Þeir sjúkl-
ingar sem rannsakaðir voru
gengu undir greindarpróf. Aug-
ljóst var að greind fimm þeirra
hafði minnkað. Allir voru þeir
með rýrnun i fremsta hluta heil-
ans.
Rannsóknirnar við karolinska
sjúkrahúsið eru áreiðanlega
þær fyrstu þessarar tegundar i
heiminum. Aður voru nær ein-
göngu rannsakaðar heila-
skemmdir sjúklinga sem voru
algjör reköld sökum áfengis-
neyzlu.
Sú spurning sem nú leitar á
hugann er þessi: Er hægt að
styrkja heilastarfsemina á ný ef
menn hætta að neyta áfengis?
Rannsóknir sem geröar hafa
verið i þessum efnum I Amer-
Iku, benda i þá átt. Menn hafa
komizt að raun um aö sú heila-
starfsemi sem er óeðlileg hjá
drykkjusjúklingum, leitar til
réttrar áttar hjá þeim sem lagt
hafa niður áfengisneyzlu I nokk-
ur ^r' Afengisvarnaráð
Gamii slökkvibillinn á rúntinum niöri i bæ
Sýning brunavardc
I gam
og ali
KJ-Reykjavik — Um helgina fór
fram sýning á vegum Bruna-
varðafélags Reykjavikur að við-
stöddu miklu fjölmenni. Var sýn-
ingin bæði með léttum og aivar-
legum undirtón og einkum haldin
Minna selt af kinda-
kjötinu en meira
af nautakj ötinu
FB-Reykjavik. Sala dilkakjöts
hér innanlands frá slátrun
siðastliðið haust og fram til 1.
aprilhefur reynzt 18% minni en
á sama tima árið á undan, sam-
kvæmt upplýsingum Jóns
Kagnars Björnssonar hjá
Framleiðsluráði landbúnaöar-
ins. 1. aprii höfðu verið seld hér
innanlands 4200 tonn af fram-
leiöslunni 1976.
Jón sagði, aö þess bæri að
gæta, viö samanburð þessara
talna, að mjög mikil sala varð i
marz i fyrra. Þá hafði k jöt átt að
hækka 1. marz, en hækkunin
kom ekki fyrr en 20. marz.
Fram til þess tima hamstraöi
fólk kjöt á eldra verðinu. Er sal-
an þvi óvenjumikil i fyrra, og
ekki að öllu leytisambærileg við
söluna i ár.
Kindakjötsbirgöir i landinu 1.
april siðastliðinn námu 6759
tonnum, en voru 5847 tonn 1.
april i fyrra. Enn er verið að
flytja út kindakjöt af siðustu
framleiðslu.
Samfara samdrætti i kinda-
kjötssölunni hefur orðið tölu-
verð aukning i sölu nautakjöts.
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs
voru seld 453 tonn af nautakjöti,
en i fyrra voru seld 405 tonn. Er
aukningin þvi 12%.
1 ár hefur veriö slátrað 169
tonnum af nautakjöti, en fyrstu
þrjá mánuði ársins 1976 var
slátrað 213 tonnum, er slátrunin
þvi 21% minni nú en þá.
Þegar litið er á nautakjöts-
birgðirnar nú og i fyrra er um
miklar breytingar að ræða. Nú
voru birgöir nautakjöts 1. april
709 tonn, en voru 1376 tonn l
fyrra. Ekkert er flutt út af
nautaköti, enda erum við vart
aflögufær á þvi sviði.
N autgripum
fækkar, en fé og
hrossum f jölgar
var 3.584,889 rúmmetrar þurr-
heys, um 250 þúsund rúmmetr-
um meira en 1975, og 155.218
rúmmetrar votheys, um átján
hundruö rúmmetrum meira en
1975.
Kartöfluuppskera er talin
hafa verið 69.182 tunnur, rúm-
lega sex þúsund tunnum meiri
en 1975 og rófnauppskera 7.922
tunnur, langt til þrefalt meiri en
1975. Þessar tölur um garöupp-
skeru munu þó ekki alls kostar
traustar.
JH-Reykjavik. — Samkvæmt
hagskýrslum voru 60.783 naut-
gripir á fóðrum i landinu um
slðustu áramót, og hafði fækkað
um 1.002 frá árinu. Sauðkindur á
fóðrum voru 870.848 — 10.472
fleiri en árið áður. Hross voru
48.205 og hafði fjölgað um 1.280.
Svin voru síöustu áramótin
talin vera 1.013 og alifuglar
296.252.
Fóður handa búpeningnum