Tíminn - 17.05.1977, Side 3
Þriðjudagur 17. mai 1977
3
K III III III II
I
LXIÍ
röru
i fjáröflunarskyni fyrir Norrænt
brunavarðamót, sem haldið verð-
ur I Reykjavik dagana 7. til 10.
júni. Var á sýningunni kynnt
starfsemi brunavarða og almenn-
ingi kennd rétt notkun ýmissa
björgunartækja.
Dagskráin hófst á laugardags-
morgun, þegar þrir slökkvibilar
óku vitt og breitt um bæinn, og
var þar með i ferð gamli bruna-
bill Þjóðminjasafnsins. Var þessi
ökuferð einkum farin i kynn-
ingarskyni. Sýningin fór að öðru
leyti fram við slökkvistöðina I
Reykjavik. Um daginn voru siðan
tvær kvikmyndasýningar á veg-
um Eldvarnaeftirlitsins. önnur
fjallaði um möguleg eldsupptök,
sem rekja má beint til kæruleys-
is, en hin var einkum heimilis-
fólki til fyrirmyndar i viðbrögð-
um við mögulegum eldsvoða.
Fjöldamargt annað var þarna
til gamans og fræðslu. M.a. var
sögusýning, sýning á ýmsum
gömlum björgunartækjum. Hægt
Sigið f björgunarklukku.
var að skoða slökkvibila og
sjúkrabil. Brunaverðir sýndu
björgun úr turninum. Stokkið var
út um glugga og hafnað i fall-
mottu og út af svölum i svo-
kallaðri björgunarklukku. Er það
sjálfvirkt tæki sem gefur ákveðið
eftir og i samræmi við likams-
þunga, og er þvi auðvelt og hættu-
laust aö láta sig siga niður i róleg-
heitum. Kveikt var i pappahúsi og
sýnd rétt og röng notkun hand-
slökkvitækja.
A laugardaginn munu um 3000
manns hafa komið á sýninguna. A
sunnudag voru ýmis atriði hennar
endurtekin, og var þá enn stöðug-
ur straumur fólks.
Stokkið úr glugga i failmottu.
Jarð-
skj álf ta-
hrina á
Reykja-
nesinu i
gærdag
HV-Reykjavik. — Jarðskálfta-
hrina gekk yfir á Reykjanesi
siðasta sólarhring og voru
stærstu skjálftarnir rúmlega
fjögur stig á Richter-kvaröa
að styrkleika.
Hjá Jarðeölisfræöideild
Veðurstofunnar fengust i gær
þær upplýsingar, aö hrinan
hefði hafizt um klukkan fjögur
þrjátiu aöfaranótt mánudags,
en lengst framann af heföu
skjálftarnir ekki veriö stööug-
ir. Frá klukkan um fimmtán i
gærdag ágerðust þeir hins
vegar og stóðu þá nokkuö
samfellt fram eftir deginum.
Hrinur af þessu tagi munu
vera nokkuð algengar á þessu
svæði.
Skjálftarnir i gær fundust
greinilega i Reykjavlk og
einnig á Akranesi, þar sem
I munir hristust i hillum.
Viðskiptaaðilar okkar
munu ekki líða fyrir
— segir Marinó Jóhannsson hjá Arnarflugi,
en vél félagsins stöðvaðist á i Engiandi
á sunnudag
HV-Reykjavik. — Þetta er i
sjálfu sérekkerttilað gera veð-
ur út af. Vélin er stopp eins og
er, en það verður ekki lengi og
okkar viðskiptaaðilar munu
ekki þurfa aö liöa fyrir það.
Spurningin er núna hve lengi,
þvi viö erum ekki búnir að taka
ákvöröun um það hvað við ger-
um I sambandi við þá misbresti
sem komu i ljós, þetta er mál
sem snýst um tima og peninga,
sagði Marinó Jóhannsson hjá
Arnarflugi i viötali við Timann i
gær.
Flugvél Arnarflugs stöðvaðist
á sunnudag i Englandi þar sem
hún var i skoöun. Orsökin til
stöövunarinnar mun vera tær-
ing i væng á vélinni, og var þota
frá Flugleiðum fengin til að
sækja þá sem með vélinni voru
út.
— Það ganga af þessu sögu-
sagnir núna, sagði Marlnó enn-
fremur f gær, en það er ails ekki
rétt með máliö fariö. Það voru
okkar eigin verkfræðingur og
flugvirkjar sem fundu þessa
vankanta og gáfu þann úrskurð,
aö þeir væru þess eölis, að við
ættum ekki að reka vélina eins
og sakirstanda. Viö erum nú aö
vinna úrmálinu, tæknilega og á
annan hátt, og þegar við höfum
allar staðreyndir i höndunum
veröur tekin ákvörðun um það
hvernig verður snúizt við mál-
Ég vil leyfa mér aö fullyröa,
að við verðum ekki stopp lengi,
þvi þetta er ekki afdrifarlk bil-
un, þóttég geti ekki sagt til um i
dag hvenær vélin kemst aftur I
loftið. —
Marinó sagði Timanum einnig
I gær, að rekstur Arnarflugs
gengi vel og betur en aðstand-
endur félagsins heföu þorað aö
vona.
Félagið biður enn eftir svari
samgöngumálaráöuneytis viö
beiöni um heimild til áætlunar-
flugs. Beiðnin hefur verið lögö
fyrir Flugleiðir h.f. og Flugráð,
sem gefið hafa neikvæðar um-
sagnir, en ráöuneyti tekur end-
anlega afstöðu til afgreiðslu
málsins.
Nauðlenti á ókyrrum sjó
KJ-Reykjavik — KI. 8:32 á laug-
ardagsmorguninn fékk flug-
stjórn á Reykjavikurflugvelli
tilkynningu i gegnum Loftleiða-
vél á ieiö til Luxemborgar um
eins hreyfils land- og sjóflugvél,
sem væri með dauðan mótor, og
undirbyggi flugmaöur nauð-
lendingu á sjónum i stefnu um
280 gr. frá Keflavík.
Þegar voru gerðar ráðstafan-
ir um björgun, flugvél Flug-
málastjórnar send út til leitar
og siðan björgunarliöið á Kefla-
vikurflugvelli. Kl. 9:45 var flug-
vél Flugmálastjórnar komin á
vettvang og sveimaði yfir nauð-
lentu vélinni. Haföi nauðlending
tekizt framar vonumi nokkuð
ókyrrum sjó, vélin óskemmd og
hafðist flugmaður við inni I
henni heill heilsu aö öðru leyti
en þvi aö kenna til sjóveiki.
Flugmaöurinn var raunar
finnsk kona, Kuortti Orvokki,
ferjuflugmaöur að atvinnu. Hún
var i sinni 10. ferjuflugsferö yfir
Atlantshaf þegar óhappið varö.
Vélin er af geröinni Lake
Buccaneer og . átti að hafa
bensin til 15 tima flugs en haföi
aðeins verið á lofti I 13 tima,
þegar vélin drap á sér vegna
eldsneytisleysis. Rannsóknar-
skipið Arni Friöriksson tók vél-
ina I tog, en siðan varð að taka
hana um borð þar sem komin
var veruleg slagsiöa á hana.
Skemmdist vélin nokkuð viö
þessar aðgerðir og aftur þegar
henni var skipaö á land.
Flugmanni var i upphafi
bjargað um borð i gúmmibát frá
Arna Friðrikssyni en áiöan hifö
upp i björgunarþyrlu frá Kefla-
vikurflugvelli, sem flutti hana
til Reykjavikur. Verður ekki
annað sagt en allar björgunar-
aðgeröir hafi tekizt með miklum
ágætum og forsjónin verið mjög
hliöholl flugkonunni finnsku.
Eins og fyrr sagöi var þaö
bensinleysi sem olli þvi að flug-
maður varð aö nauölenda, en
tvo tima vantaði upp á áætiað.
flugþol. Þegar bensin var sett á
mótorinn, fór hann þegar I
gang, svo ekki er um vélarbilun
að ræða. Vélin mun þó hafa ver-
ið eitthvað á eftir áætlun og lent
i isingu og þurft að n.ota eitthvaö
sterkari bensinblöndu. Loft-
ferðaeftirlitið mun hafa sent
fyrirspurn til framleiðanda vél-
arinnar um hvað gæti orsakað
óeölilega bensineyðslu.
— Finnskri flugkonu bjargað á hafi úti
Finnska flugkonan aö skoöa skemmdir á véi sinni.
I------------------------—--------