Tíminn - 17.05.1977, Page 7
^cwcc
Þri&judagur 17. mai 1977
7
Listmunir íré
Nú á dogum eru Khokloma hstmumr heimsfrægir. Þessi
listiðnaður er upprunninn meðal bænda og máluðu þeir
upphaflega skálar, diska, heimilisáhöld og húsgögn.
Tæknin við aö breyta viðarbút I ausu eða skeið er töluvert
flókin. Fyrst er búturinn tálgaður i ákveðið form, siðan
þurrkaður, þá boriö á hann og aö lokum er hann þurrkaður
aftur i ofni. Siðan er hann nuddaður þrisvar eða fjörum
sinnum meðkálfsskinnsbótsem dyfiö hefur verið 1 oliu, og
svo nuddað silfurdufti með sauðskinni. Nú fer báturinn að
verða tilbúinn undir málningu. Þá fær hugmyndafiugið
vængi, alls konar blóm og alls konar litir koma fram.
Verst er að litirnir skuli ekki sjást á myndunum. Siðast er
hluturinn lakkaður fjórum sinnum eða fimm sinnum og
stungið inn i ofn að lokum.
/ Það veit ég ekki, en þvilika ‘
krafta héf ég aldrei séð -
Tíma-
spurningin
Telur þú skyndiverk-
fall hafnarverkamanna
vænlegt til árangurs?
Guðmundur Kristinsson:
Já, frekar. Þaö dregur aö sjálf-
sögðu ur hraðanum viö upp-
skipunina. Það ætti einnig að
flýta eitthvað fyrir samningun-
um.
Jdn Arni Gunnarsson nemi:
Já, en svona skyndiverkföll eru
bara ekki nóg. Það þyrfti að
verða allsherjarverkfall, verkfall
hjá einni stétt hefur ekki nóg
áhrif. Daglaun verkamanna á Is-
landi eru alltof lág i dag.
Fanny Laustsen, verzlunarmær:
Ég held aö það þurfi aö vera
meiri samstaða, það er ekki nóg
að ein stétt skeri sig úr og fari i
verkfall. Það þurfa allir aö fara
eða enginn.
Kristmann Klemenzsson, nemi:
Ég tel þetta vera réttmætt, þó
erekki að vita um áhrif þess. Það
þrýstir þó sennilega á samninga-
viðræðurnar.
Hilmar Fri&riksson, kaupma&ur:
Ég myndi álita það hafa ein-
hver áhrif, en betra væri þó alls-
herjarverkfall, þaö yröi
árangursrikast.