Tíminn - 17.05.1977, Síða 12
12
Þriðjudagur 17. mai 1977
Þriðjudagur 17. mai 1977
13
— Danska rikiö keypti þetta hús
1918 eöa 1919eftir aö Island fékk
sjálfstæði 1918 og þjóöirnar
skiptust á sendiherrum. Þessi
kaup voru umtöluð i dönskum
og islenzkum blöðum, og heima
i Danmörku var það nokkuð
gagnrýntaö ráðiztskyldi i kaup
á þviliku stórhýsi fyrir sendiráð
Dana i Reykjavik. 1 þann tið var
Þjóðleikhúsið ekki komið og
gott útsýni héðan yfir höfnina.
Forsætisráöherra Islands, Jón
Magnússon, bjó þá i húsinu, sem
Hiö islenzka prentarafélag á nú
og sendiherrann og hann voru
góðir kunningjar og spiluðu
bridge saman. Fyrsti sendi-
herra Dana hér á landi hét
Böggild og var hér aöeins fáein
ár en næstur honum kom
Fontenay, sem íslendingum er
að góöu kunnur.
Svo fórust Sven Aage Nielsen
ambassador Dana á Islandi orð
i viðtali við Timann i reisulegu
húsi danska sendiráösins i
Reykjavik, þar sem bæði eru
skrifstofur þess og aðsetur
ambassadorsins og fjölskyldu
hans. Sven Aage Nielsen og
kona hans Aase hafa dvalizt hér
i tæp fjögur ár og eru nú á förum
til Danmerkur, þar sem
ambassadorinn mun starfa i
utanrikisráðuneyti Dana.
Þau hjónin komu hingað á-
samtdætrum sinum tveim 1973,
sumarið eftir gosið i Vest-
mannaeyjum Arið eftir fór öll
fjölskyldan akandi i hringferð
um landið eftir nýja veginum og
varð sú ferð þeim ógleymanleg.
Dæturnar eru ekki lengur hér á
landi. önnur lauk B.A.-prófi við
Háskóla Islands og giftist i
fyrrasumar Irving, syni fyrr-
verandi sendiherrahjóna
Bandarikjanna á tslandi. Brúð-
kaupið var haldið i Mosfells-
kirkju og gestir komu austan og
vestan um haf auk íslendinga og
útlendinga búsettra hér. Yngri
dóttirin er nú við háskólanám i
Danmörku.
— Ég hef veriö utanlands i 21
ár, sagöi Sven Aage Nieísen
ambasssador, og nú þykir mál
til komið að sjá hvort ég get gert
eitthvert gagn heima.
Ég gekk i utanrikisþjónustuna
þegar að loknu námi i hagfræði
við Árósarháskóla 1947. 1950
fékk ég mitt fyrsta starf erlend-
is i Búkarest á erfiðleikatimum
eftirstriösáranna. Siðan lá leið-
in um Belgrað, Aþenu, Buenos
Aires. Pabis og London. En
Reykjavik varð siðasti áfang-
inn, eina norðlæga landiö, sem
ég hef starfað i.
Við höfum notið návistar stór-
brotinnar náttúru tslands, sem
ásamt ómenguðu umhverfi gef-
ur mönnum kost á innihaldsriku
lifi . ósjaldan höfum við hjónin
um helgar tekið til nestispakka
og lagt af stað i ökuferð burt úr
bænum árla morguns.
Annars er daglega lifið hér
einnig ólikt lifinu þar sem við
höfum áður veriö. 1 Argentinu
t.d. eyða margir meirihluta
ævinnar utanhúss i görðum og á
gangstéttakaffihúsum. Og kjöt-
ið gegnir sama mikilvæga hlut-
verkinu þar og fiskurinn hér.
Þarvorum viðá árunum 1956-
61, en á þeim tima fór megnið af
nautakjötsframleiðslu Argen-
tinumanna til Englands. I
Argentinu merkir kjöt nauta-
kjöt. T.d. var því komið á með-
an ég var þar, að hafa skyldi
kjötlausa daga einu sinni i viku i
veitingahúsum svo að hægt væri
að flytja meira út. Ef maður
spurði á slikum degi i veitinga-
húsi hvaö þar væri á boðstólum,
þá kom á daginn að gestir gátu
ef þeir vildu gætt sér á svina-
kjöti eða kjúkling, en það hét
ekki kjöt á máli þarlendra.
Við spurðum ambassadorinn
hvers væri helzt að minnast eft-
ir fjögurra ára dvöl á Islandi.
— Hátiðin á Þingvöllum
vegna 1100 ára afmælis Islands-
byggöar er einn þeirra atburða,
sem við hjónin munum aldrei
gleyma.
Þá hef ég fylgzt af miklum á-
huga meö þvi hve gæfusamlega
stefna íslendinga I fiskveiði-
málum hefur náð fram að
ganga, en heita má aö 200 milna
fiskveiðilandhelgi hafi nú hlotið
alþjóöa viðurkenningu.
— Hvernig er viðskiptum
Dana og Islendinga nú háttaö,
bæði i menningu og á öörum
sviðum?
— Ég álit að þau séu stöðugt i
þróun, en að þessum málum
þarf að sjálfsögðu alltaf að
vinna. Verzlunar- og menning-
Sven Aage Nilsen
ambassador Dana
á íslandi hættir
störfum hér
arleg samskipti þjóöanna eru
góð.
Við Danir dáumst mjög aö þvi
hve Islendingar hafa mikinn á-
huga á að viöhalda kunnáttu
landsmanna i Norðurlandamál-
um og kenna þau i skólum hér.
En þar hefur dönsku boriö hæst.
Islendingar bera af öðrum
Norðurlandabúum hvað kunn-
áttu i öðrum Norðurlandamál-
um snertir. Þessa viöleitni og
þennan áhuga tslendinga viljum
við Danir gjarnan styðja eftir
megni.
Ýmis menningarsamskipti
fara fram hér milli þjóöanna
bæði i Norræna húsinu, leikhús-
unum og i Danmörku gegnir hús
Jóns Sigurðssonar mikilvægu
hlutverki sem tengiliður milli
þjóðanna.
— tslendingar sóttu um aldir
nær eingöngu æðri menntun
Danska sendiráðið við Hverfisgötu
Sven Aage Nielsen, ambassador.
sina til Kaupmannahafnar, hver
hefur þróunin orðið i málum is-
lenzkra námsmanna i Dan-
mörku siðari ár?
— Háskóli Islands menntar
nú fjölda námsmanna og auk
þess leita íslendingar sér
menntunar viöa um heim. Þó
eru enn sem fyrr margir is-
lenzkir námsmenn i Danmörku,
en mér virðist það færast i vöxt
að þeir séu þar nú fremur i
styttra sérnámi, en til margra
ára eins og áður var.
Einmitt á þessum árstima
leita fjöldamargir námsmenn
til sendiráðsins til að afla sér
upplýsinga um menntaleiðir.
Við höfum mjög fullkomnar
upplýsingar um skóla i Dan-
mörku og þeir sem leita til okk-
ur fá afrit af þeim, þvi oft vill
það fljótlega gleymast, sem
menn geta aðeins kynnt sér á
skömmum tima. Þessar upplýs-
ingar hafa stöðug' farið batn-
andi á undanfömu.n árum.
— Er mikil verzlun milli
landanna?
— Já,við seljum Islendingum
eins mikið af vörum og Argen-
tinu- og Brasiliumönnum til
samans. Staða Dana á markaði
Islendinga er að minu áliti góö,
10% af heildarinnflutningi ykk-
ar kemur frá Danmörku og þótt
t.d. Bretar og Þjóðverjar séu
þar ofar á blaði, er það drjúgur
skerfur. Þetta eru margvisleg-
ustu vörur allt frá tizkuvörum
og upp i eitt og eitt skip, sem
hleypa viðskiptunum upp viö og
við.
Starfsemi Eimskips og Flug-
leiða i Danmörku hafa eflt og
auðveldað mjög viðskipti milli
landanna.
Helztu innflutningsvörur
Dana frá Islandi eru lambakjöt
og ullarvörur, auk sildar, sem
landað er i Danmörku.
Sala á islenzku lambakjöti i
Danmörku hefur farið heldur
vaxandiár frá ári, en þó held ég
mætti auka hana með meiri
kynningarstarfsemi. Ég er ekki
viss um að dönskum húsmæðr-
um sé almennt ljóst hvert
hnossgæti kjötið ykkar er. En
hverjum þeim, sem komið hefur
út i islenzka náttúru, hlýtur að
vera ljóst, að þar er um allt ann-
að kjöt að ræða, en það sem
framleitt er við aðrar og óeðli-
legri aðstæður.
Við þökkum Sven Aage Niel-
sen fyrir samtalið og óskum
þeim hjónunum góðrar ferðar.
Þau ætla að eyða sumarleyfi
sinu i sumarbústað sinum á
vesturströnd Jótlands, en þaðan
eru þau bæöi. 1. júli tekur
ambassadorinn til við ný verk-
efni i Kaupmannahöfn.
Greinargerð fisksjúkdómanefndar:
Enginn látinn vita um
ódöngunina í laxa-
seiðunum í Laxalóni
Fisksjúkdómanefnd ber það á
Skúla Pálsson i Laxalóni, að
hann hafi leynt þvi siðan voriö
1976, að ódöngun var I laxaseiö-
um i stöð hans, og siðan ekki
svarað bréfum nefndarinnar i
nær tvo mánuði, er hún haföi
komizt á snoöir um rannsókn þá
sem gerö var á seiöum þaðan l
Noregi.
Þetta kemur fram i langri
greinargerð, sem fisksjúk-
dómanefnd hefur sent fjölmiöl-
um.
Þar segir enn fremur að þeg-
ar svö fengust frá Skúla hafi
hann gengizt við þvi, að
2000-3000 laxaseiði hafi drepizt I
fimm eða sex eldiskerjum, en
hann heföi taliðorsökina gamalt
og vont fóður. I bréfi frá hinni
norsku rannsóknarstofnun kem-
ur einnig fram, að menn þar
voru i uphafi i vafa um, hvaö að
seiöunum amaði — hvort heldur
hægfara sýking eða skaðleg efni
i fóðri heföu orðið þeim að ald-
urtila. Seiöi þau, sem drápust
kveðst Skúli hafa sent sorpeyö-
ingarstöð Reykjavikurborgar,
og skrár um sölu og afhendingu
hrogna og seiða frá stöðinni i
Laxalóni hefði hann ekki tiltæk-
ar.
Þá segir, aö 6. april hafi hér-
aðsdýralæknir tekið tuttugu
iaxaseiði og tvo regnbogasil-
unga i Laxalóni til rannsóknar á
Keldum, og hefðu sex seiöi úr
efra eldishúsi og öll úr hinu
neðra reynzt hafa nýrnaveiki,
samkvæmt skýrslu Guðmundar
Georgssonar, sérfræðings i
meinafræði. Við framhalds-
rannsókn fundust ekki sjúk-
dómaeinkenni á bleikju og
regnbogasilungi, en aftur á móti
i öllum laxaseiöum úr útikerj-
um og þremur af átta úr efra
eldishúsi.
20. april bannaði fisksjúk-
dómanefnd allan flutning á fiski
og hrognum frá Laxalóni meöan
betur væri rannsakað hvernig
háttað væri vatnskerfi stöövar-
innar þar og dreifingu sjúk-
dómsins innan hennar, og at-
hugað hvaða aðgeröum yrði við
komið til þess aö hefta út-
breiðslu sjúkdómsins hér á
landi.
Samsetning lita,
andstæður og kraftur
Yfirlitssýning á verkum Jóhanns
Briem í Listasafni íslands
SJ-Reykjavik. —
Þjórsá undan Þrándarholti
„þykir mér sem blóð”
er heitið á nýjasta málverki Jó-
h'anns Briem listmálara, en á
laugardag kl. 2 verður opnuð
sýning á verkum hans i Lista-
safni Islands, Elztu myndirnar
á sýningunni málaði Jóhann
1932 þegar hann var við nám i
Dresden i Þýzkalandi en þær
yngstu eru frá þessu ári. Á ofan-
nefndu málverki Jóhanns, sem
kennt er viö tilvitnun úr-Sturl-
ungu, horfa grænar verur á
grænum hestum út á rautt fljót
og gulur himinn og jörö sveipa
þær annarlegri birtu. Menn og
dýr hafa verið viðfangsefni Jó-
hanns Briem frá upphafi listfer-
ils hans og eru það enn. I for-
mála fyrir sýningarskrá segir
Selma Jónsdóttir listfræðingur:
Jóhann málar af traustri þekk-
ingu og heitri tilfinningu. Litur-
inn og gildi hans er mikilvæg-
asti þátturinn i málverki Jó-
hanns mun mikilvægari en
lina eða form. Má segja að á siö-
ari árum byggi hann myndir
sinar nær eingöngu á lit, sam-
setningu hans andstæðum og
kraftiog er alls óhræddur viö að
tefla samanólikum litum, djarft
en þó hnitmiöað. Formin, sem
byggö eru upp af lit, veröa æ
stærri og einfaldari.
A sýningu Jóhanns eru 125
málverk, flest frá siðustu tveim
áratugum, en einnig mörg
yngri. Hann á sjálfur ekkert af
málverkunum, Listasafniö á
nokkur þeirra, en fjölmargir
hafa sýnt lipurð og lánaö mál-
verk á sýninguna.
Jóhann Briem er fæddur að
Stóra-Núpi i Arnessýslu 17. júli
1907. Hann stundaöi myndlistar-
nám á árinu 1922 hjá Jóni Jóns-
syni og hjá Rikarði Jónssyni og
Jóhann Briem við eitt málverka sinna, ásamt Selmu Jónsdóttur. —Timamynd: GE
Eyjólfi Eyfells 1927-1929. Jó-
hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum i Reykjavik
1927. Aárunum 1929-1931 stund-
aði hann nám við Akademie
Simonsson-Castelli i Dresden og
var kennari hans Woldemar
Winkler. 1931-1934 var hann
nemandi við Staatliche Kunst-
akademie i Dresden og voru
kennarar hans Max Feldbauer
og Ferdinand Dorsch.
Jóhann hélt sina fyrstu einka-
sýningu i Reykjavik 1934 og
hefur siðan haldið fjölmargar
einkasýningar og tekið þátt i
mörgum samsýningum bæði
hér heima og erlendis.
Jóhann rak myndlistarskóla i
Reykjavik ásamt Finni Jóns-
syni á árunum 1934-1940 og var
teiknikennari viö Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar 1936-1971.
Jóhann hefur myndskreytt
fjölda bóka og samið þrjár
myndskreyttar ferðabækur,
Landið helga, Rvk. 1958, Milli
Grænlands köldu kletta, Rvk.
1962 og Til Austurheims, Rvk.
1967.
Jóhann Briem hefur tekið
virkan þátt i félagssamtökum
myndlistarmanna. Hann var
formaður Bandalags islenzkra
listamanna 1941-1943 og einn af
stofnendum Nýja myndlistarfé-
lagsins 1952.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 13.30-22 næstu þrjár vik-
ur:
Sigurgrfmur Grímsson.
Pá lyf tu menn
tonni með
handafli
"V4
nú þarf lyftara
fyrir 50 kg.
SJ-Reykjavik — Ég tók á móti
fyrstu pokunum i húsið, og
sennilega sé ég á eftir þeim sið-
ustu út héðan, sagði Sigurgrim-
ur Grfmsson verkstjóri i Inn-
flutningsdeild StS, þegar við
liittum hann að máli í birgða-
stöðinni við Geirsgötu, en hún er
nú flutt i ný húsakynni i Holta-
görðum svo sem frá heftir verif
skýrt i Tímanum. Verið var aö
reka endahnútinn á að tæma
húsið og bjóst Sigurgrimur viö,
að þvi verki yrði lokið á föstu-
dag. Sigurgrimur mun starfa
áfram við nýju birgðastöðina.
Sigurgrfmur hefur starfað i
birgðastöðinni við Geirsgötu í 46
ár eða frá 1931, en húsið var
byggt á árinu 1930. Á þessum
árum hefur húsið verið stækkað
og starfsemi margfaldazt. Þá
hefur starfsfólki fjölgaö, og
samstarfsmenn Sigurgríms fyrr
og siðar eru orðnir margir.
Fyrstu vörurnar, sem komu i
húsið voru áburður og siðar
ýmis áhöld fyrir bændur.
— Það hefur veriö ánægjulegt
að starfa hér við höfnina, alltaf
lif og fjör, sagði Sigurgrímur.
Þó er orðið rólegra eftir að
starfsemin hefur dreifzt á fleiri
staði. A timabili var orðið hreint
öngþveiti hér.
Við áttum okkar hlut að þvi en
oft hefur orðið að hafa vörurnar
titi á götunni. T.d. var hér einu
sinni fóðurblöndun, og var
framleiðslan 50tonná dag. Ekki
var annar staður fyrir hráefnið
en úti, og það var siðan tekið
inn, þegar við lokuðum á kvöld-
in.
— Margt hefur breytzt a þess-
um tima. Fyrstu sextán árin var
allt unnið með handafli, en 1947
fékk birgöastöðin fyrsta lyftar-
ann. Aður fyrr voru heldur eng-
in vandræöi með að koma eins
tonns kassa upp á vörubilspall
með handafli einu, en nú er ekki
einu sinni hægt að gera það við
50 kg, nema hafa lyftara.
Auglýsið í Tímanum
Aðalfundur
Aðalfundur Hagtryggingar hf. árið 1977
verður haldinn i Tjarnarbúð i Reykjavik
laugardaginn 21. mai og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta
félagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæða-
seðlar verða afhentir hluthöfum eða öðr-
um með skriflegt umboð frá þeim i skrif-
stofu félagsins að Suðurlandsbraut 10,
Reykjavik, dagana 17. til 21. mai á venju-
legum skrifstofutima.
Stjórn HAGTRYGGINGAR HF.