Fréttablaðið - 20.02.2006, Blaðsíða 2
2 20. febrúar 2006 MÁNUDAGUR
STJÓRNMÁL Jóhannes Bjarnason
hlaut 1. sæti í prófkjörinu og telur
sigurinn viðurkenningu á sínum
störfum í bæjarstjórn undan-
farin fjögur ár. Það er mikil ein-
ing í hópi frambjóðenda að sögn
Jóhannesar og þeir sem ekki kom-
ust í efstu sex sæti munu taka þátt
í málefnavinnu og undirbúningi.
Jóhannes segir Framsóknar-
flokkinn hafa mjög sterka stöðu
á Akureyri eftir að hafa verið í
meirihluta seinasta kjörtímabil en
hefur þungar áhyggjur af slakri
útkomu flokksins á landsvísu í
nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins. Þar bætir Sjálfstæðisflokkur
við sig fylgi meðan Framsókn-
arflokkurinn fer niður fyrir sjö
prósent og telur Jóhannes mjög
óeðlilegt að annar flokkur í ríkis-
stjórn stækki meðan hinn minnki.
Hann kallar eftir naflaskoðun í
flokknum og segist ósáttur við þá
stefnu forystu flokksins að bera
ekki hönd fyrir höfuð sér gegn
endalausum áróðri stjórnarand-
stöðunnar. Vissulega hafi mistök
verið gerð og þá höggstaður gef-
inn en það þarf að draga öll góðu
málin fram í dagsljósið, þjóðfé-
lagsástandið hafi aldrei boðið upp
á fleiri kosti. ,,Taktíkin er ekki
rétt,“ segir Jóhannes að lokum og
telur ekki nóg að segja að fylgið
komi í kosningum. - sdg
www.expressferdir.is
Express Fer›ir, Grímsbæ,
Efstalandi 26, sími 5 900 100
Nánar á www.expressferdir.is
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
GOLFFERÐ TIL LONDON
55.900 kr.
INNIFALI‹:
HANBURY MANOR
Hanbury Manor er frábært golf-
hótel, örstutt frá Stansted flug-
velli. Fimm stjörnu hótel með
öllum nútímaþægindum.
Golfvellinum er mjög vel við-
haldið og er skemmtilegur og
krefjandi. Fjölmargir Íslendingar
hafa dvalið á þessu golfhóteli
og eiga það allir sameiginlegt
að koma himinlifandi til baka!
Flug með Iceland Express
til Stansted með flugvallasköttum, tvær
nætur á hótelinu ásamt tveimur hringjum
á golfvellinum.
Einnig er hægt að kaupa 4 nótta pakka
með 4 golfhringjum á 79.900 kr.
GOLF
NÍGERÍA, AP Fimmtán manns létust
þegar hópur vopnaðra múslíma í
Lagos í Nígeríu, mótmælti teikn-
ingunum af Múhameð spámanni
harðlega á laugardag. Fólkið réðst
á kristna menn, brenndi 15 kirkj-
ur og réðst inn í bifreiðar fólks í
mannskæðustu mótmælum hing-
að til sem tengjast teikningunum
sem Jótlandspósturinn birti af spá-
manninum.
Hafa að minnsta kosti 45 manns
látið lífið í mótmælum gegn teikn-
ingunum víða um heim til þessa.
Ósætti á milli kristinna manna
og múslíma í Nígeríu hafa leitt til
þúsunda dauðsfalla á síðustu árum.
trúarhópa. -bg
Mótmæli múslíma:
Mannskæð
átök í Nígeríu
LÓÐAÚTBOÐ Árni Þór Sigurðsson,
sem situr í borgarstjórn fyrir
Vinstri hreyfinguna - grænt fram-
boð, segir það hafa legið ljóst fyrir
frá því að útboðsskilmálar voru
samþykktir í borgarráði að „pen-
ingavaldið réði því hverjir myndu
byggja hús í Úlfarsárdal“.
Hann segist ekki hafa getað
stutt þá tillögu sem lögð var fram
af fulltrúum Samfylkingarinnar
þar sem í henni fólst að aðeins þeir
fjársterku myndu fá lóðirnar. „Það
hefur nú komið í ljós að þetta var
rétt athugasemd sem ég lét bóka
við afgreiðslu málsins. Enda lá
það alveg ljóst fyrir að niðurstað-
an yrði sú að þeir sem gætu borg-
að mest myndu fá lóðirnar.“
Aðeins Dagur B. Eggertsson,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
og Stefán Jón Hafstein greiddu
atkvæði með skilmálunum í borg-
arráði en aðrir borgarráðsfulltrú-
ar sátu hjá við atkvæðagreiðsl-
una.
Dagur B. Eggertsson, formaður
skipulagsráðs Reykjavíkurborgar,
segir markmið útboðsskilmálanna
ekki nást þar sem sami einstakl-
ingur eigi hæsta boð í næstum
öllum tilfellum. „Ef þessi niður-
staða útboðsins stendur óbreytt þá
næst ekki helsta markmið þessara
útboðsskilmála. Við höfum fullan
hug á því að ná því markmiði, sem
var að gefa fjölskyldufólki kost á
því að byggja yfir sig.“
Framkvæmdaráð Reykjavíkur-
borgar mun í dag ræða það hvort
einbýlishúsalóðirnar í Úlfars-
felli verði boðnar út að nýju þar
sem einn einstaklingur, Benedikt
Jósepsson, átti hæsta boð í 39 lóðir
af 40. Hann er eigandi bygging-
arfyrirtækisins ByggBen ehf.
en sótti um einbýlishúsalóðirnar
undir sínu eigin nafni.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
oddviti Sjálfstæðismanna í borg-
astjórn, segir það augljóst mál að
stefna Samfylkingarinnar í lóða-
málum í borginni sé komin í ógöng-
ur. „Það er forgangsmál í borg-
inni að lóðaskorti verði útrýmt.
Samfylkingarfólk, þá sérstaklega
Dagur B. Eggertsson, formaður
skipulagsráðs og Steinunn Valdís
Óskarsdóttir borgarstjóri, ber að
sjálfsögðu mikla ábyrgð á þeirri
stöðu sem upp er komin. Við Sjálf-
stæðismenn munum leggja mikla
áherslu á það að nógu margar lóðir
verði í boði borginni. Þannig hefur
málum ekki verið háttað í stjórn-
artíð R-listans, sem hefur búið
til þessa lóðarskorts- og lóðaupp-
boðsstefnu.“
magnush@frettabladid.is
Samfylkingin réði
útboðsskilmálunum
Aðeins þrír fulltrúar Samfylkingarinnar samþykktu útboðsskilmála vegna
útboðs lóða í Úlfarsfelli. Augljóst að aðeins þeir ríku myndu fá lóðirnar, segja
borgarfulltrúarnir Árni Þór Sigurðsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
FRÁ BYGGINGARSVÆÐINU VIÐ ÚLFARSFELL Útboð á einbýlishúsalóðum þarna hefur heldur
betur dregið dilk á eftir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þrír bílar í spyrnu Lögregla á Ísafirði
hafði afskipti af þremum ökumönnum
sem voru í spyrnu á Skutulsfjarðarbraut
í gær. Ísing var á veginum og keyrðu
ökumennirnir verulega hratt miðað við
aðra umferð. Allir þrír náðust og munu
verða kærðir.
Keyrðu of hratt í sólinni Tíu
ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur
af lögreglunni á Ólafsfirði og í Dalvík
um helgina. Snjósleðamót var haldið á
Ólafsfirði, sem skýrir fjöldann að sögn
lögreglu, en einnig báru ökumenn því
við að sólin og blíðviðrið ættu þátt í
hraðakstrinum.
Stútur keyrði út af Umferðaróhapp
varð á Gaulverjabæjarvegi skammt frá
Stokkseyri í gær. Bíll fór út af veginum
og er bílstjóri grunaður um ölvun. Málið
er í rannsókn og niðurstöðu blóðprufu
beðið að sögn lögreglunnar á Selfossi.
Maður rotaður Ráðist var á mann í
Keflavík á sunnudagsmorgun sem, að
sögn vitna, hafði verið að angra konu.
Nærstaddir réðust þá á manninn með
höggum og spörkum. Konan þekkti ekki
árásarmennina. Maðurinn var fluttur til
aðhlynningar á heilsugæsluna í Keflavík
og þaðan á Landspítalann. Eftir skoðun
var manninum leyft að fara heim. Málið
er í rannsókn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Sigurvegari prófkjörs Framsóknarmanna á Akureyri:
Gagnrýnir flokksforystuna
ÁRNI ÞÓR SIG-
URÐSSON Lýsti yfir
andstöðu sinni við þá
útboðsskilmála sem
samþykktir voru af
fulltrúum Samfylking-
ar í borgarráði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FINNLAND Niðurstöður úr rann-
sóknum á hræjum dauðra svana í
Finnlandi benda til þess að dauði
þeirra tengist ekki fuglaflensu.
Fuglarnir fundust í Hanko í Finn-
landi og á Álandseyjum, en sýni
úr þeim voru send til rannsóknar
til öryggis.
Samkvæmt Mia Lindertz, yfir-
dýralækni í Karja í Finnlandi,
höfðu fuglarnir haft vetursetu
á svæðinu og drepist af öðrum
orsökum. -bg
Niðurstöður úr rannsóknum:
Ekki fuglaflensa
í Finnlandi
SPURNING DAGSINS
Kristján, er öll nótt úti?
Nei. Það er aldrei öll nótt úti.
Kristján Hreinsson er einn þeirra texta-
höfunda, í forkeppni Eurovision, sem er
óánægður með að eitt lag hafi fengið spilun
á netinu áður en það var frumflutt í keppn-
inni, sem er andstætt reglum keppninnar.
Lagið sem lak á netið var lag Silvíu Nóttar
sem bar sigur úr býtum á laugardag.
JÓHANNES GUNNAR BJARNASON
Segir uppgang hafa verið
á Akureyri og að
Framsóknarflokk-
urinn hafi sterka
stöðu þar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/J
Ó
H
A
N
N
ES
ATVINNUMÁL Ráðningarsamningur
frá al-Kaída var nýlega gerður
opinber af banda-
ríska varnarmála-
ráðuneytinu. Þar
segir að nýliðar
fái greiddar þús-
und krónur og fá
fimm daga frí í
mánuði. Strangar
reglur gilda um
launamál í neti
hermda r verka -
manna sem starfa
hjá samtökunum. Samkvæmt
CNN fundust skjölin á heimili
eins stjórnenda al-Kaída í Afgan-
istan. ■
Laun hermdarverkamanna:
Al-Kaída greiða
laun og orlof
FRAMBOÐ Hópur stúdenta við
Háskólann á Akureyri íhugar að
bjóða fram lista til bæjarstjórna-
kosninganna á Akureyri í vor.
Fundur hefur verið boðaður á
morgun klukkan 10:15 í rannsókn-
arhúsi Háskólans að Borgum og
hvetur hópurinn samnemendur
sína til að ganga úr tíma og sækja
fundinn.
Egill Arnar Sigurþórsson,
talsmaður hópsins, segir hug-
myndina á bak við hugsanlegt
framboð einfalda.“Hópurinn vill
mótmæla aðgerðar og áhugaleysi
menntamálaráðherra, þingmanna
kjördæmisins og bæjarfulltrúa á
Akureyri á málefnum háskólans“,
segir Egil Arnar. Hann segir fyrir-
hugaðan niðurskurð til háskólans
hafa hleypt umræðunni af stað.
„Við skiljum ekki þetta áhugaleysi
stjórnvalda á uppbyggingu skól-
ans. Við teljum að háskólinn sé
álver Eyfirðinga og komi til með að
skapa mun meiri auð fyrir svæðið
til langs tíma heldur en nokkur
stóriðja myndi gera“. Mikill hugur
er í hópnum að sögn Egils Arnars
og segir hann hópinn hafa orðið
var við mikinn stuðning innan
veggja skólans.
Á fundinum á morgun er
ætlunin að gefa nemendum
tækifæri að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri og um leið kanna
grundvöll til framboðs. -æþ
Urgur í háskólastúdentum á Akureyri:
Íhuga framboð í bæjarstjórn
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI Mikil óánægja er
meðal stúdenta í Háskólanum á Akureyri
vegna skilningsleysis stjórnvalda á málefn-
um skólans. Þeir íhuga nú framboð.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÆGIR
AMSTERDAM, AP Opið hús var hjá
nokkrum strippbúllum og kynlífs-
sýningahúsum
í Rauða hverfi
Amsterdam í
Hollandi um
helgina.
Á k v e ð i ð
var að halda
opið hús eftir
að leiðtogi
stærsta stjórn-
m á l a f l o k k s
A m s t e r d a m
reyndi að fá
konur ofan af
því að mark-
aðssetja sjálf-
ar sig í gluggum borgarinnar. Hug-
myndin að kynningardeginum var
studd af Upplýsingamiðstöð um
vændi, Kynlífssafninu og Hjálp-
ræðishernum. - smk
Ókeypis inn á nektarbúllur:
Opið hús í
Rauða hverfinu
FRÍTT INN Ekkert kostði
inn á búllur sem þessa
í Rauða hverfi Amster-
dam um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FLENSA
BIN LADEN