Fréttablaðið - 01.03.2006, Qupperneq 20
1. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís
Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000
SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja
ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum
á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Fyrir skömmu fjallaði Egill Helga-
son um loftslagsbreytingar í þætti
sínum Silfri Egils og gestir hans
voru Hjörleifur Guttormsson og
Illugi Gunnarsson, fyrrverandi
aðstoðarmaður utanríkisráðherra.
Illugi gerði lítið úr ábyrgð
mannkyns á þessari náttúruvá og
lét eins og það væri ástæðulaust
að minnka notkun olíu og kola.
Vegna mikilvægis umræðuefnis-
ins langar mig til að gera nokkrar
athugasemdir við málflutning
Illuga.
Náttúrulegar breytingar?
Illugi benti réttilega á að hitastig
hefði sveiflast til á undanförnum
þúsund árum þrátt fyrir að kol-
tvísýringur í lofti hefði verið
stöðugur allt fram að upphafi iðn-
byltingar. Þess vegna þyrftu þeir
sem nú töluðu um loftslagsbreyt-
ingar af manna völdum að svara
því hvernig stæði á hitabreyting-
um fyrir iðnbyltingu, áður en
mannkynið hóf að losa mikið
magn gróðurhúsalofttegunda út í
andrúmsloftið.
Illugi hefur á réttu að standa
þegar hann segir að sveiflur í
hitastigi séu engin nýjung. Það
sem er hins vegar alveg nýtt er
hversu hröð hlýnunin er. Það er
nú ljóst að á engu tímabili á und-
anförnum þúsund árum hefur
orðið jafn ör breyting og á 20. öld-
inni, um 0,6 gráður.
Rannsóknir sýna líka að magn
koltvísýrings í andrúmsloftinu
var stöðugt síðustu nokkur hund-
ruð þúsund ár en eftir að mann-
kynið hóf að brenna olíu og kol
hefur það aukist um 30 prósent.
Helmingur þessarar aukningar
hefur átt sér stað síðan á miðjum
áttunda áratugnum og síðan þá
hefur loftslagið hlýnað um 0,4
gráður. Þetta sýnir að hækkun
hitastigs núna fellur ekki innan
náttúrulegra sveiflna sem Illugi
vísaði til.
Vísindaleg óvissa
Illugi vitnaði í danskar rannsóknir
sem bentu til þess að eðlilegra
væri að útskýra hækkun hitastigs
með aukinni geislun sólar. Líklega
átti Illugi þar við rannsóknir
Knuds Lassen og Peters Thejll
sem viðurkenndu árið 2000 veik-
leika í eigin niðurstöðum. Aukin
geislun sólar gæti ekki útskýrt
mikla hækkun hitastigs eftir
1980.
Ef Illugi kýs að nefna fleiri
svipaðar vísindalegar niðurstöður
máli sínu til stuðnings þá verður
hann samt að viðurkenna þá stað-
reynd að það eru ekki fleiri en tíu
starfandi vísindamenn sem eru
ósammála því að núverandi hlýn-
un loftslags sé að öllum líkindum
af manna völdum. Vísindamenn
sem telja hins vegar að svo sé
skipta hundruðum. Engu að síður
kjósa sumir að fullyrða að um
þessi mál sé ágreiningur innan
vísindasamfélagsins. Tóbaksfyrir-
tæki beittu sömu aðferðum á
sínum tíma þegar þau vísuðu til
vísindalegrar óvissu um það hvort
tóbak ylli krabbameini.
Auðvitað er ekki hægt að úti-
loka að geislun sólar eigi eftir að
minnka á næstu áratugum og þá
dragi úr hlýnuninni. En spurning-
in er hvort við viljum spila rúss-
neska rúllettu og treysta á að eitt-
hvað slíkt komi okkur til bjargar.
Pólitík og vísindi
Illugi sagði að það mætti ekki
tengja saman pólitík og vísindi
eins og stundum væri gert. Illugi
ætti að hafa í huga þegar hann
segir þetta að forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins fóru fremstir í
flokki í síðustu landhelgisdeilunni
og tengdu þá saman pólitík og vís-
indi. Fiskifræðingar höfðu varað
þá við að þorskstofninn væri að
hruni kominn, ekki ósvipað viðvör-
unum vísindamanna núna um hlýn-
un loftslagsins. Ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins hefðu getað tekið í
sama streng og Illugi og sagt að
vísindin væru ekki nægilega langt
á veg komin til að grípa þyrfti til
aðgerða. Málið þyrfti að rannsaka
betur. Sem betur fer voru sjálf-
stæðismenn þá nægilega framsýn-
ir til að trúa niðurstöðum vísinda-
manna og breski flotinn var rekinn
af miðunum, landhelgin færð út í
200 mílur og umhverfisvænni fisk-
veiðistjórn tekin upp. Ég vil ekki
hugsa til þess hvaða afleiðingar
það hefði haft ef ekki hefði verið
gripið til þessara aðgerða. Ég vil
heldur ekki hugsa til þess hvað
gerist ef ekki verður gripið strax
til aðgerða í loftslagsmálum.
Hræðsluáróður og hagvöxtur
Síðar í þættinum sagði Illugi að
það væri beinlínis hættulegt að
venja mannkynið af notkun olíu og
kola vegna þess að það myndi
draga úr hagvexti.
Þessi rök hafa verið notuð af
stórfyrirtækjum sem sjá fram á að
tapa peningum ef gripið er til
aðgerða til að vernda umhverfið.
Fólki er talið trú um að það standi
frammi fyrir fátækt og vesöld ef
strangari reglur eru settar á iðn-
fyrirtæki. En reynslan hefur hins
vegar sýnt okkur að það er innan-
tómur áróður. Honum var beitt
þegar George Bush eldri setti regl-
ur um að dregið yrði úr notkun
ósoneyðandi efna og losun brenni-
steinsdíoxíðs sem veldur súru
regni. Árangurinn af reglunum
hefur verið framar vonum og
hræðsluáróður um minnkandi hag-
vöxt reyndist tilhæfulaus.
Illugi ætti frekar að hafa
áhyggjur af ríkisstyrkjum sem
olíu- og kolaiðnaðurinn fær, lík-
lega um 200 milljarðar dala á ári.
Ætli við Illugi getum ekki sam-
mælst um að því fé yrði betur
varið í skattalækkanir en til að
brengla samkeppni í orkufram-
leiðslu.
Önnur stórfyrirtæki, t.d.
DuPont og Whirlpool, hafa beitt
sér fyrir því að bandarísk stjórn-
völd dragi úr losun koltvísýrings.
Á sama tíma hefur eftirspurn eftir
hlutabréfum í fyrirtækjum sem
framleiða raforku með endurnýt-
anlegum orkugjöfum aukist mikið
í bandarísku kauphöllinni. Ekki
dregur það úr hagvexti.
Höfundur stundar meistaranám
í umhverfisfræðum við Edinborg-
arháskóla.
Illugi í rússneskri rúllettu
Í DAG
HLÝNUN
LOFTSLAGS
GUÐMUNDUR
HÖRÐUR
GUÐMUNDSSON
Fólki er talið trú um að það
standi frammi fyrir fátækt og
vesöld ef strangari reglur eru
settar á iðnfyrirtæki. En reynsl-
an hefur hins vegar sýnt okkur
að það er innantómur áróður.
Vinsælt og hagnýtt 3ja kvölda námskeið um
öll helstu grundavallaratriði stafrænna
myndavéla og meðferð stafrænna mynda í tölvu.
• Stillingar stafrænna myndavéla
• Stærðir og upplausn mynda
• Myndir færðar yfir í tölvu
• Skipulag myndasafns í tölvu
• Heimaprentun / framköllun
• Myndir skrifaðar á CD/DVD
• Frágangur mynda í tölvupósti
• Grundvallarlagfæringar
• Vinsælt, ókeypis myndvinnslu-
forrit á Netinu tekið fyrir
Verð: kr. 15.000, (Innifalin er ný kennslubók á íslensku).
Næsta kvöldnámskeið hefst 8. mars og lýkur 15. mars.
Kennt er mánudags- og miðvikudagskvöld kl. 18 - 21.
S T A F R Æ N A R M Y N D A V É L A R
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
Þrátt fyrir opnun hagkerfisins eru erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi enn nokkrum takmörkunum háðar. Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, hefur nú
kynnt áform um að taka lítið skref til opnunar fyrir erlenda fjár-
festingu á þessu sviði með því að heimila útlendingum að eiga og
reka fiskmarkaði hér á landi.
Í sjálfu sér er hér ekki um mikla breytingu að ræða og ólík-
legt að hún hafi teljandi áhrif. Ráðherrann stígur því afar var-
lega til jarðar í þessum efnum. Hvað sem því mati líður er hér
um skynsamlega ráðstöfun að ræða. Það voru fyrst og fremst
varfærnissjónarmið, sem réðu því á sínum tíma, að þessi afmark-
aði þáttur var skilinn frá almennum breytingum, er urðu við inn-
gönguna í evrópska efnahagssvæðið.
Sú smávægilega breyting, sem nú er boðuð að því er varðar
fiskmarkaðina, vekur hins vegar upp þá spurningu hvers vegna
ekki er gengið lengra. Augu manna beinast þá að útgerðinni. Þar
gilda enn verulegar takmarkanir á erlendri fjárfestingu. Hún
lýtur þannig hámarks takmörkun og getur aðeins átt sér stað
með óbeinum hætti í gegnum önnur íslensk fyrirtæki.
Hvers vegna eiga önnur sjónarmið að ráða varðandi erlenda
fjárfestingu í útgerð en á öðrum sviðum atvinnulífsins? Það er
að sjálfsögðu ekki náttúrulögmál, og þau rök, sem að baki liggja,
þurfa stöðugt að vera til endurskoðunar í ljósi breyttra tíma og
nýrra aðstæðna. En á sinni tíð voru höfuðrökin skýr og einföld.
Veiðirétturinn er markaðsvara, sem felur í sér takmörkuð eigna-
réttindi. Rétt þótti að girða fyrir það, að útlendingar kæmust
eftir þeim leiðum eins og inn um bakdyrnar í landhelgina.
Eitt af mörgum álitaefnum í þessu máli er, hvort þessi rök eru
enn góð og gild. Segja má, að minnkandi vægi sjávarútvegsins í
þjóðarbúskapnum hafi dregið úr þeirri almennu áhættu, sem
erlendar fjárfestingar í útgerðarrekstri gætu haft í för með sér.
Að því leyti er þessi röksemd meira matsatriði nú en fyrir ára-
tug, en hún er eigi að síður ekki orðin gildislaus.
En hér hljóta fleiri röksemdir að koma til skoðunar. Sjávarút-
vegur samkeppnislandanna nýtur verulegra styrkja bæði að því
er varðar veiðar og vinnslu. Þetta á ekki síst við innan Evrópu-
sambandsins, og þar eru mikilvægustu keppinautarnir. Að þessu
leyti er samkeppnisstaðan afar ójöfn. Í því ljósi eru skýr rök
fyrir því að viðhalda að svo stöddu þeim takmörkunum, sem hér
hafa gilt.
Erlendar fjárfestingar innan Evrópusambandsins leiddu til
þess, að aðildarríkjunum var heimilað að setja ýmiss konar átt-
hagatakmarkanir á útgerðina. Það á til að mynda við um hvar
aflanum má landa, hvaðan aðföng eru keypt og hvaðan ráða má
áhafnir. Í markaðsreknum sjávarútvegi eins og við búum við
hefur engum dottið í hug að hneppa útgerðarreksturinn í fjötra
af þessu tagi. Óhagræði af slíkum takmörkunum gæti vegið upp
hagræðið af því að opna þessa fjárfestingarmöguleika. Þessi
atriði þarf því að hafa í huga þegar staðan er metin.
Fram til þessa hafa möguleikar til óbeinna fjárfestinga verið
notaðir í óverulegum mæli. Það bendir ekki til þess að verulegur
þrýstingur hafi verið á breytingar. Að öllu athuguðu sýnast því
ekki vera gildar ástæður til þess að gera hér á breytingar eins og
sakir standa.
SJÓNARMIÐ
ÞORSTEINN PÁLSSON
Erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi.
Lítið skref vekur
upp spurningu
AUGL†SINGASÍMI
550 5000Sögurnar, tölurnar, fólki›.
Hagsmunaárekstrar
Fjölmiðlar hafa sagt fréttir af miklum
gengishagnaði bankanna. Varla hafi
hann verið undir 100 milljörðum króna
á síðasta ári. - Það var nú gott hugsaði
hugsandi útvegsbóndi norður í landi
sem selur fiskafurðir og fær tekjur sínar í
evrum og dollurum. Honum varð í leiðinni
hugsað til vinar síns sem verið hefur í
góðu plássi á frystitogara í tólf ár. Sá er
upp á hlut og tekjur hans eru háðar afla-
verðmæti sem rýrnað hafa um 30 prósent
á fáeinum árum vegna þess hversu fáar
krónur fást fyrir hvern dollar eða hverja
evru. Það er nú svo. Á móti gengishagnaði
bankanna er gengistap útflutnings- og
samkeppnisgreinanna hugsaði útvegs-
bóndinn með sér. Og spurði: Eru ekki
hagsmunaárekstrar hér einhvers staðar?
Hverra hagsmuna gæta bankarnir í þessu
sambandi? Hafa þeir kannski fórnað
hagsmunum útflutnings- og samkeppnis-
greinanna á altari eigin skammtímagróða?
Hafa bankarnir nokkuð tekið þátt í að
spila gengi krónunnar upp með því að
dæla inn erlendu lánsfé, ýta þar með
undir kaup á hlutabréfum og verðhækkun
þeirra? Hafa bankarnir slegið tvær flugur í
einu höggi; spennt upp gengi krónunnar
og hlutabréfanna um leið? Hver skyldi
vera höfundurinn að skuldabréfaútgáfu
í íslenskum krónum erlendis? Spyrjum
ætíð um aðstöðuna og hagsmunina, sagði
útvegsbóndinn við sjálfan sig.
Enn um skattbyrðina
„Skattar hafa hækkað hjá öllum
nema hinum best efnuðu síðan
núverandi ríkisstjórn tók við völd-
um. Aðeins þeir allra tekjuhæstu
borga minna í skatta í dag en
þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók
við fjármálaráðuneytinu.“
Þessar setningar, sem hér er
vitnað til, segir Össur Skarphéðinsson ekki
vera sína eigin niðurstöðu heldur kjarnann
í því sem hann kallar hlutlausa umfjöll-
un Jóhönnu Vilhjálmsdóttur í Kastljósi
Ríkisútvarpsins. Össur heldur áfram á
vefsíðu sinni:
„Hún hefur á skýran og einfaldan hátt
flysjað utan af flókinni umræðu um
skattamál og sett kjarnann fram á diski
þar sem allir geta skoðað hann – og skilið.
Umfjöllun hennar síðustu vikur er mjög
fagleg, og þannig að fólk skilur hana. Hún
hlýtur að koma til álita þegar fjölmiðla-
verðlaunin verða veitt á næsta ári.
Í kvöld sýndi Jóhanna fram á með
einföldum hæti að engir nema þeir
tekjuhæstu greiða minni skatta en
árið 1995 – þegar núverandi ríkis-
stjórn tók við.“ Menn bíða í ofvæni
efir viðbrögðum við þessum
útleggingum þingmannsins.
johannh@frettabladid.is