Fréttablaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 45
MARKAÐURINN
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
17MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006
S K O Ð U N
Ernst & Young hf. veitir víðtæka og faglega endurskoðunar-, skatta- og
ráðgjafarþjónustu.
Ernst & Young hf. á Íslandi er endurskoðunarfyrirtæki sem er hluti af
alþjóðlegri keðju endurskoðunarfyrirtækja. Ernst & Young er meðal
fjögurra stærstu fyrirtækja í sinni grein í heiminum.
Aðild okkar að Ernst & Young International veitir okkur aðgang að
nýjustu tækni, upplýsingum og sérfræðingum á starfssviði okkar og
gerir okkur kleift að veita fyrsta flokks þjónustu hvort sem er á Íslandi
eða erlendis.
AÐ BORGARTÚNI 30.
SKRIFSTOFUR ERNST & YOUNG ERU FLUTTAR
GÆÐI ÁREIÐANLEIKI FAGMENNSKA
Borgartúni 30 105 Reykjavík Sími 595 2500 www.ey.is
Þú ert steinsofandi þegar þú vakn-
ar upp við símann. Starfsmaður
Neyðarlínunnar tilkynnir þér að
búið sé að brjótast inn í fyrirtæk-
ið þitt. Það er ekki skemmtileg
lífsreynsla að vakna upp við slíka
hringingu en innbrot í fyrirtæki
eru framin á hverjum degi hér
á landi.
Nýlega var framið innbrot í
fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu
og þjónustu með dýra sérvöru,
vöru sem gengur sem gjaldmiðill
á götunni. Áður hafði verið brotist
inn í umrætt fyrirtæki og eigandi
þess hafði því gripið til ýmissa
ráðstafanna til að verjast innbrot-
um. Fyrirtækið var beintengt
stjórnstöð öryggisfyrirtækis auk
þess að vera með eftirlitsmynda-
vélar. Lýsing í kringum fyrirtæk-
ið var góð og allar inngönguleiðir
læstar. En allt kom fyrir ekki
þrjótar náðu að brjóta upp sterka
hurð við aðalinnganginn en til
þess beittu þeir öflugum verk-
færum.
Þegar þar var komið við sögu
hafði öryggiskerfið sent boð til
stjórnstöðvar öryggisfyrirtæk-
isins og hávær bjalla glumdi í
versluninni. Þjófarnir höfðu því
takmarkaðan tíma til að athafna
sig.
Þegar skoðaðar eru myndirn-
ar úr eftirlitsmyndbandinu sjást
tveir hettuklæddir menn ganga
rakleiðis að ákveðnum stað og
það virtist sem þeir væru búnir
að skoða aðstæður og vissu hvað
þeir vildu. Þegar þeir ætluðu að
byrja að tína þýfið í töskurnar
sem þeir höfðu meðferðis komst
styggð að þeim. Þeir hlutir sem
þeir ætluðu að ræna og voru eft-
irsóttastir í versluninni voru ekki
á sínum stað.
Starfsfólk verslunarinnar hafði
nefnilega haft það fyrir reglu í lok
hvers vinnudags að fjarlægja þá
hluti sem verðmætastir voru og
læsa þá inni annarsstaðar. Með
þessari einföldu aðgerð tókst fyr-
irtækinu að lágmarka tjón sitt og
koma í veg fyrir að starfsemin
raskaðist verulega. Fyrirtækið
opnaði verslun sína á réttum tíma
morguninn eftir og þjónusta við
viðskiptavini hélst óbreytt.
Sú staðreynd að brotist er inn
í fyrirtæki hér á landi daglega
ætti að vekja forsvarsmenn fyr-
irtækja til umhugsunar um eftir-
farandi ráðstafanir: Skoða þarf
húsnæðið vandlega og setjið sig í
spor innbrotsþjófsins. Er hurðum
og gluggum vandlega lokað og
læsingar nægilega góðar? Þarf að
gera nauðsynlegar endurbætur á
húsinu til að varna óprúttnum
aðilum inngöngu og gera þeim
erfiðara fyrir að komast inn?
Skoða þarf hvort lýsing í kringum
húsið er nægilega góð, sérstak-
lega við innganga. Þá hafa örygg-
iskerfi og eftirlitsmyndavélar
fælingarmátt og geta stuðlað að
því að brotamenn náist, eins og
gerðist í dæminu sem rakið var
hér á undan. Sigurjón Andrésson
viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Sjóvár
Innbrot í fyrirtæki
Átak Marka›arins og Sjóvá
ÖRUGG FYRIRTÆKI
Stundum er svo gott að vera ég
að það er synd að geta ekki gefið
fleirum hlut í því. Reyndar er ég
gjafmildur maður og læt vini og
vandamenn oft njóta þess hversu
vel mér gengur í lífinu.
Ég held að nánast öll ættin
ásamt mökum og börnum
hafi hringt í mig fyrir viku.
Spurningin var bara ein. „Á ég
að selja núna?“ Familían getur
þakkað mér að menn stukku ekki
út af markaðnum. Allir nema
Nonni frændi, Hann hefur aldrei
verið góður á taugum, né held-
ur mikið fyrir að hlusta á aðra.
Hann hringdi í mig hróðugur og
var þá búinn að selja. Hann er
alveg ótrúlegur bjáni og ekki
sjaldan sem maður er búinn að
redda honum út úr vandræðum.
Það er ekki hægt að láta konuna
og krakkana líða fyrir hvað hann
er mikið fífl.
Sjálfur var ég náttúrlega á
fullu að kaupa allan þriðjudag-
inn. Innleysti svo slatta fljótlega.
Gjaldeyrisskiptasamningarnir
gáfu auðvitað mest af sér, enda
alveg ljóst að krónan myndi snúa
til baka. Þannig að þegar krónan
fór í veikasta gildið og kollegar
mínir sátu með magaherping, þá
var ég að kaupa krónur á fullu.
Hlutabréfin gáfu líka vel
af sér. Tíu prósenta lækkun á
Íslandsbanka og FL Group var
náttúrlega bara grín, svo maður
keypti slatta þar líka.
Þetta var frábær vika. Það er
aldrei eins gaman að vera spá-
kaupmaður eins og þegar sveifl-
urnar eru almennilegar. Fimm
til tíu prósenta sveifla í geðs-
hræringum á markaði eru algjör
draumur. Þá finnur maður blóðið
renna og adrenalínið pumpast út
í líkamann. Gjaldeyrismarkaður
er skemmtilegastur, enda tekur
maður alltaf reglulega einn og
einn gjaldeyriskross til að halda
spennu í lífi sínu. Hinn kosturinn
til að ná almennilegu kikki er
framhjáhald, en því fylgir alls
konar vesen sem betra er að vera
laus við.
Nú kunna einhverjir að spyrja
hvers vegna ég hafi verið svona
öruggur með markaðinn. Jú, núna
í mars streyma arðgreiðslurnar
út á markaðinn. Þeir peningar
fara eitthvert. Ríkið hefur ekki
undan að gefa út víxla og pen-
ingarnir leita því að markaðinn.
Þar fyrir utan eru stórir aðilar á
markaðnum og þeir ekkert á leið-
inni burt. FL Group, Straumur,
Exista og bankarnir hafa mik-
inn hag af því að markaðurinn
gefi ekki stórkostlega eftir. Og
ef stóru strákarnir hafa engar
áhyggjur, hvers vegna ætti ég
að hafa þær? Skjólið er af hinum
stóru og þar er líka svalur skuggi
ef hitinn verður of mikilll.
Spákaupmaðurinn á horninu
Stórkostleg
vika