Fréttablaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 24
[ ]Bílaleigubílar eru góð lausn fyrir þá sem eru á ferðalögum erlendis og vilja skoða eitthvað upp á eigin spýtur.
Flugstöðvarblaðið, ferðablað
sem gefið er út í samstarfi við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, hef-
ur fengið góðar viðtökur á því
hálfa ári sem það hefur verið
gefið út.
Tímaritið kemur út mánaðarlega
og er því dreift frítt meðal gesta
flugstöðvarinnar. Flugstöðvarblað-
ið er unnið að erlendri fyrirmynd
og er bæði á íslensku og ensku. Í
marshefti blaðsins kennir ýmissa
grasa. Þar er meðal annars fjallað
um tannlækningar erlendis en
færst hefur í vöxt að fólk fari í
tannviðgerðir í öðrum löndum enda
getur verðmunur á stórum aðgerð-
um verið mikill hér á landi og sunn-
ar í Evrópu. Einnig er fjallað um
skíðasvæði í Noregi, salsakennslu á
Kúbu á vegum Heiðars Ástvalds-
sonar og hugmyndir að páskaferð-
um gefnar. Að jafnaði fara um 161
þúsund manns um flugstöð Leifs
Eiríkssonar og taka þeir eflaust
þessari nýju viðbót í tímarita-
flóruna fagnandi.
Ferðablað
Í Flugstöð Leifs Eiríkssonar má finna Flug-
stöðvarblaðið sem allir geta nálgast á ferð
sinni út í heim.
HVERT ERTU AÐ FARA?
Göngu-Hrólfur er gönguklúbb-
ur sem starfað hefur í átta
ár. Kveikjan að klúbbnum
var gönguferð forkólfsins,
Steinunnar Harðardóttur til
Majorka 1989. Umsvif klúbbs-
ins eru orðin æði mikil og
hann stendur fyrir fjölmörg-
um spennandi gönguferðum í
Evrópu í ár. Áhugasamir geta
kynnt sér ferðirnar næsta
laugardag.
Steinunn Harðardóttir, fararstjóri
og útvarpskona með meiru, gekk
um fornar slóðir á Majorka árið
1989 og heillaðist svo af eyjunni
að hún hóf að breiða út fagnaðar-
erindið. Nokkrum árum síðar var
gönguklúbburinn Göngu-Hrólfur
stofnaður og eru um tvö þúsund
meðlimir í honum. Þrjú hundruð
manns fara í gönguferðir með
klúbbnum ár hvert. Meðal nýjunga
á vegum klúbbsins í ár er göngu-
ferð um svonefnda Lýkíuleið í
Tyrklandi.
Steinunn segir Sunday Times
hafa valið leiðina eina af tíu bestu
gönguleiðum heims þegar hún var
opnuð almenningi árið 2000. Þá
fer Göngu-Hrólfur til Krítar, Spán-
ar, Ítalíu og Slóvakíu í ár. En hvaða
staðir skyldu vera í uppáhaldi hjá
forkólfinum Steinunni? „Ég held
mjög mikið upp á Majorka því
gönguævintýrið hófst þar,“ segir
Steinunn og segir að farið
verði á slóðir smyglara, pílgríma
og erkihertoga á eyjunni sem
margir Íslendingar þekkja ein-
ungis af góðum ströndum.
Steinunn segir boðið upp á þrjá
flokka af gönguferðum, í léttum
takti, en þá er gengið í tvo til fimm
tíma dag hvern, í hefðbundnum
takti en þá er gengið í fimm til átta
tíma og svo í auknum taki þar sem
gengið er allt að tíu tíma á degi
hverjum. Svo má nefna göngu-
ferðir í léttum sælkeratakti. Farið
er í eina slíka til Toskana í sumar
og er sú ferð þá ætluð matgæðing-
um. Einnig verður farið í ævin-
týraferð til Krítar í haust þar sem
bæði verður gengið og siglt á
kajökum.
Áhugasamir geta kynnt sér
ferðirnar nánar á ferðakynningu
Göngu-Hrólfs í Nýju skátabúðinni
í Faxafeni næstkomandi laugar-
dag milli 13 og 16. Bókanir fara
fram í gegnum ferðaskrifstofuna
Úrval-Útsýn.
Áfangastaðir Göngu-Hrólfs 2006
Tyrkland 22.-1.maí: Hefðbundinn taktur.
Majorka 19.-26. sept.: Hefðbundinn taktur.
Krít 23.-30. maí, léttur taktur, 4.-11. sept.
hefðbundinn taktur, 11.-18. sept. aukinn
taktur.
Pyreneafjöll: 1.-8. júlí, 8.-15.júní og 19.-26.
ágúst: Hefðbundinn taktur.
Toskana: 3.-10. júní: Hefðbundinn taktur.
17.-26. júní: Léttur sælkerataktur.
Dólómítar á Ítalíu: 10. júní: Hefðbundinn
taktur.
Slóvakía: 18.-25. júlí hefðbundinn taktur.
26.-1. ágúst: Léttur taktur.
Gönguferðir um Evrópu
Gengið á Krít.
Hrönn Sturlaugsdóttir er
verðandi bókmenntafræðing-
ur frá Háskóla Íslands. Hún
féll fyrir Asíu í fyrsta sinn
sem hún kom þangað og sú
hrifning hefur síst minnkað
með tímanum enda matur og
menning afar fjölbreytt í Asíu.
Síðasta utanlandsferðin sem
Hrönn fór var til Hanoi í Víetnam,
þar sem hún dvaldi með mannin-
um sínum. Hún lýsir Víetnam
sem meiriháttar landi og fannst
Hanoi æðisleg borg. Þrátt fyrir
að hafa komið til nokkurra Asíu-
landa þá hitti hún þarna fyrir
alveg nýja menningu og nýja sýn
á fólkið.
Næsta ferð sem Hrönn er með í
bígerð er einnig til Asíu. Hún
segir að það sé svo auðvelt að
vera þar, menningin er þægileg,
maturinn góður og veðrið gott.
Þessi ferð verður öllu lengri en sú
síðasta eða um mánuður. Hún
mun hefjast í Bankok í Taílandi
en svo er planið nokkuð opið. Þau
hjónakornin hafa áhuga á að ferð-
ast til landanna í kring og nefnir
hún meðal annars Myanmar og
Tíbet. Hugsanlega má finna eitt-
hvað skemmtilegt hringflug á
milli staða. Þó verður afslöppunin
einnig ofarlega á baugi og hyggj-
ast þau taka viku í slíkt. Finna sér
einhvern kofa á ströndinni og
slappa af. Hugsanlega verður þá
Hua Hin fyrir valinu enda hafa
þau komið þangað nokkrum sinn-
um og líkað frábærlega.
Heilluð af Asíu
Síðasta utanlandsferð Hrannar
Sturlaugsdóttur var farin til
Víetnam og næsta ferð verður
einnig til Asíu.
Reykjavík – Billund:
Bjóðum flug frá Reykjavíkurflugvelli til
Billund á Jótlandi.
Flogið til Billund alla mánudaga og til Reykjavíkur alla föstudaga frá
03. apríl til 20. júní. Frá 25. júní til 12. ágúst er svo flogið frá Reykja-
vík til Billund mánudaga, miðvikudaga og föstudaga og frá Billund til
Reykjavíkur alla daga nema fimmtudaga og laugardaga. Millilent í
Færeyjum.
Í tengslum við þennan nýja ferðamöguleika bjóðum við frábær fjöl-
skyldutilboð í páskafríinu:
Flogið mánudaginn 10. apríl til Billund og til Reykjavíkur 14. apríl
(föstudaginn langa). Verð á mann miðað við 4 í bíl og gistingu í sum-
arhúsi frá 50.100,- krónum
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, bíll í C-flokki og gisting í sum-
arhúsi í sumarhúsabyggð við Løjt á Suður-Jótlandi eða í nágrenni
Silkiborgar.
Afsláttur fyrir börn innan 12 ára: 12.500,-
Billund er vel í sveit sett á miðju Jótlandi og þaðan liggja leiðir til allra
átta. Hringið og leitið nánari upplýsinga og frekari tilboða.