Fréttablaðið - 01.03.2006, Page 44
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Eggert Þór Aðalsteinsson, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Óli Kristinn Ármannsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Jónína
Pálsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@markadurinn.is og auglysingar@markadurinn.is
VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeypis með Fréttablaðinu
á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í staf-
rænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
eggert@markadurinn.is l haflidi@markadurinn.is l holmfridur@markadurinn.is l
olikr@markadurinn.is
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
1. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR16
S K O Ð U N
Fréttir í síðustu viku af því að
matsfyrirtækið Fitch hefði efa-
semdir um að íslenska ríkið
stæði undir núverandi lánshæfis-
mati hefðu ekki þurft að koma á
óvart. Það var heldur ekkert nýtt
í rökunum sem fyrirtækið færði
fyrir þessu. Fitch benti einfald-
lega á nokkrar tölulegar stað-
reyndir sem kunnar voru fyrir.
Það er hins vegar ekkert skrítið
að útlendingar eigi erfitt með að
átta sig á íslenska hagkerfinu −
og raunar eiga margir heima-
menn í sömu erfiðleikum.
Þótt Íslendingar hafi búið við
afar góð lífskjör á alþjóðlegan
mælikvarða síðari hluta tuttug-
ustu aldar þá var efnahagslífið
á flesta mælikvarða frumstætt.
Útflutningur byggði á fyrst og
fremst á náttúruauðlindum, sjáv-
arútvegi, raforku, Gullfossi og
Geysi.
Flestar atvinnugreinar lands-
manna voru verndaðar fyrir
erlendri samkeppni, iðnaður
fram á áttunda áratuginn, fjár-
málakerfið fram á þann tíunda,
landbúnaður er það enn. Krónan
var aumasti gjaldmiðill í Vestur-
Evrópu, hrakin úr einni gengis-
fellingu í þá næstu. Bankakerfið
byggði fyrst og fremst á ríkis-
bönkum með pólitískum banka-
stjórum og bankaráðum og
skömmtun á lánsfé og gjaldeyri.
Það hlýtur að teljast eitt af efna-
hagsundrum veraldar að þrátt
fyrir þetta og ýmsa aðra sérvisku,
eins og helmingaskiptareglu í
viðskiptum, tókst Íslendingum
að halda sér áratugum saman í
hópi tíu til tuttugu ríkustu landa
í heimi.
Það er síðan annað efnahags-
undur að upp úr þessu öllu er
síðan sprottin á örfáum árum
vösk sveit kaupahéðna sem legg-
ur undir sig hvert erlent fyrir-
tækið á fætur öðru í viðskipt-
um sem nema sífellt hærri fjár-
hæðum. Allir virðast hagnast á
öllum viðskiptum, hvort sem þeir
eru kaupendur eða seljendur.
Fjármálageirinn skilar á einu ári
meiri hagnaði en honum tókst
að búa til á mörgum áratugum
áður fyrr.
Lánsfé sem áður var skammt-
að úr hnefa flæðir um allt. Í
lok janúar sl. voru útlán inn-
lendra innlánsstofnana samtals
1.730 milljarðar króna. Ári áður
var sama tala 1.144 milljarðar
og hefur því hækkað um 586
milljarða eða vel ríflega helm-
ing vergrar landsframleiðslu á
sama tímabili. Að uppistöðu til
er þetta erlent fé enda er inn-
lendur sparnaður sáralítill og
nær allur fyrir tilstuðlan lífeyr-
iskerfisins.
Féð hefur vitaskuld verið
notað til ýmissa hluta en stór
hluti hefur runnið til að greiða
fyrir sífellt aukinn innflutning.
Viðskiptahallinn hefur slegið
flest met sem menn muna eftir,
er nú um eða yfir tíu milljarðar
á mánuði. Það leiðir óhjákvæmi-
lega til þess að erlendar skuld-
ir vaxa enn hraðar en erlendar
eignir. Í lok september á síð-
asta ári var svokölluð hrein staða
þjóðarbúsins fyrir vikið neikvæð
um 859 milljarða króna eða nær
90% af vergri landsframleiðslu.
Með hreinni stöðu þjóðarbúsins
er átt við eignir landsmanna í
útlöndum að frádregnum erlend-
um skuldum okkar og eignum
útlendinga hérlendis.
Þetta mikla flóð lánsfjár hefur
eins og vænta mátti keyrt upp
eignaverð. Á rúmum fjórum
árum, frá september 2001, hefur
hlutabréfaverð á Íslandi vel ríf-
lega sexfaldast. Það hafði raunar
nær sjöfaldast áður en verðið tók
aðeins að lækka aftur í síðustu
viku. Á sama tíma og að hluta
til af sömu ástæðu hefur gengi
krónunnar styrkst sífellt. Fyrir
vikið er ávöxtun hlutabréfanna
mæld í erlendri mynt enn fjar-
stæðukenndari. Gengi íslenskra
hlutabréfa hefur á þann mæli-
kvarða meira en áttfaldast á
þessum stutta tíma.
Íslensku fyrirtækin þurfa að
skila allt að því ævintýranleg-
um hagnaði á næstu árum til að
standa undir þeim miklu vænt-
ingum sem verð þeirra endur-
speglar. Því eru takmörk sett hve
mikið af þeim hagnaði getur
orðið til með eignaumbreyting-
um, þótt þær geri mönnum hugs-
anlega kleift að auka arðsemi
og innleysa hagnaðinn af því
löngu áður en reksturinn skil-
ar honum. Fyrr eða síðar þarf
daglegur rekstur að skila þeim
hagnaði sem þarf til að réttlæta
hlutabréfaverðið, ef ekki hlýtur
verðið að lækka.
Það er ekkert skrýtið að
útlendingar skilji þetta ekki
alveg. Þeir sjá t.d. ekki í hendi
sér hvernig hægt er að snúa ofan
af viðskiptahallanum og fara að
greiða niður erlendu lánin, nú
eða hvernig hægt er að búa til
allan þann hagnað sem hluta-
bréfaverðið lofar. Það virðist sér-
lega erfitt fyrir nágranna okkar
á hinum Norðurlöndunum að sjá
þetta. Við verðum bara að sýna
þeim það.
Ótroðnar slóðir
Gylfi
Magnússon,
dósent við
viðskipta- og
hagfræðideild
Háskóla Íslands.
O R Ð Í B E L G
Það er síðan annað efnahagsundur að upp úr þessu öllu er sprottin á örfáum
árum vösk sveit kaupahéðna sem leggur undir sig hvert erlent fyrirtækið á
fætur öðru í viðskiptum sem nema sífellt hærri fjárhæðum. Allir virðast hagnast
á öllum viðskiptum, hvort sem þeir eru kaupendur eða seljendur.
Rektor Háskóla Íslands, Kristín Ingólfsdóttir, lýsti við útskrift
stúdenta því markmiði að Háskóli Íslands kæmist í hóp hundrað
bestu háskóla heims. Þetta er verðugt verkefni, en miðað við stöðu
dagsins býsna fjarlægt. Háskóli Íslands nær ekki enn sem komið er
í hóp 500 bestu háskóla heims.
Það kemst enginn lengra en hann ætlar sér og því er yfirlýsing
háskólarektors mikilvæg. Háskólinn getur ekki einn ráðið því hvar
hann lendir, þrátt fyrir hæft starfsfólk og mikinn metnað. Til þess
þarf fleira að koma til.
Ástæða þess að Háskóli Íslands er ekki í hópi 500 bestu háskóla
heims er ekki að innan skólans starfi ekki fólk með mikla þekkingu
á fræðum sínum og vísindum. Ástæðan er fyrst og fremst sú að við
sinnum ekki grunnrannsóknum og birtingu fræðigreina í virtum
vísindatímaritum. Slíkt rannsóknarstarf er forsenda alls annars,
vilji menn koma íslenskum háskóla í fremstu röð. Háskóli sem ekki
uppfyllir slíkt útskrifar enga doktorsnema með viti.
Háskóli Íslands hefur mannskap sem leggur góðan grunn að því
að markmið sem þetta náist. Hins vegar þarf að verða grundvall-
arbreyting á afstöðu stjórnvalda til að svo
megi verða. Áhersla stjórnvalda hefur verið
að koma upp litlum háskólaeiningum víða
um land. Þessir háskólar eru fyrst og fremst
starfsgreinaháskólar, en ekki akademía. Þeir
eru allra góðra gjalda verðir, en koma ekki í
stað alvöru rannsóknarháskóla.
En hvers vegna eigum við að stefna
að háskóla sem er í hópi hinna bestu. Jú,
þekkingarstig samfélags hvílir á grunni
frumrannsókna. Það eru þær stoðir sem
þekkingasamfélag hvílir á. Spurningin um
að byggja upp öfluga akademíu er því spurn-
ingin um hvers konar samfélag við viljum
byggja til framtíðar. Ætlum við að verða
verksmiðjusamfélag eða þekkingar- og þjónustu samfélag. Svarið
er augljóst þeim sem hugsa á annað borð.
Leitin að þekkingu er markmið í sjálfu sér. Notagildið kemur
síðar. Þannig voru uppgötvanir Gottliebs Frege og Bertrands
Russel í setningarökfræði og smíði táknmáls hugsaðar til að leysa
flókin heimspekileg vandamál. Hvorugum þeirra datt í hug að með
vísindastarfi sínu legðu þeir grunn að kerfi sem stýrir rafmagni
og rökrásum í tölvum. Hagsaukinn af sérviskulegri leit þeirra að
lausn í rökfræði er stjarnfræðilegur og á hverjum degi njótum við
þæginda af þessari uppgötvun.
Enda þótt draumur rektors Háskóla Íslands sé fjarlægur miðað
við núverandi forsendur, þá er hann brýning um hvert beri að
stefna. Til þess þarf stefnu og fjármuni. Hvorugt er nægjanlegt
enn sem komið er. Stjórnvöld þurfa að velta fyrir sér í fullri alvöru
hvort kennslu í ákveðnum greinum sé ekki betur komið hjá starfs-
greinaháskólunum og að sjónum Háskóla Íslands verði fremur
beint að svæðum þar sem fræða- og vísindastarf er markmiðið,
fremur en starfsréttindi.
Þetta markmið krefst þess líka að Háskóli íslands geti laðað að
sér vísindamenn í fremstu röð. Til þess að svo megi verða þarf skól-
inn að vera samkeppnishæfur í launum og starfsaðstöðu.
Það er hægt að ná slíku markmiði, en til þess að það gerist þarf
að verða grundvallarbreyting á viðhorfum til vísinda og háskóla-
menntunar, auk þess sem efndir þurfa að fylgja orðum.
Háskóli í hópi hundrað bestu er fjarlægt markmið:
Hvers konar samfé-
lag viljum við?
Hafliði Helgason
Enda þótt
draumur rektors
Háskóla Íslands
sé fjarlægur
miðað við núver-
andi forsendur,
þá er hann brýn-
ing um hvert beri
að stefna.
Góðmennska ríka fólksins
The Economist | The Economist fjallar um fjárveit-
ingar ríka fólksins í Bandaríkjunum til líknar- og
góðgerðarmála í nýjasta tölublaði sínu. Er bent á
að þau Bill og Melinda Gates hafi veitt 31 milljarði
Bandaríkjadala til heilbrigðismála á síðastliðnum
árum. Sömu sögu sé að segja af öðrum ríkum ein-
staklingum sem hafa hagnast á nýrri tækni, s.s. hafi
stofnendur ebay og Google sett á laggirnar svip-
aða styrktarsjóði. Bandaríski auðmaðurinn Warren
Buffet stendur utan við hópinn líkt og oft áður en
sérstaklega er tekið fram í umfjöllun Economist að
hann hafi ekkert látið renna til líknarmála. Hefur
tímaritið eftir Buffet að breyting verði á að honum
látnum. Tímaritið velti því upp hverju sæti að auð-
menn heimsins hafi í auknum mæli látið fé rakna
til líknar- og góðgerðarmála og veltir því upp að
breikkandi bil á milli ríkra og fátækra sé um að
kenna og hafi þeir orð Andews Carnegie frá 1889
á bak við eyrað um að hinir ríku eigi að styðja við
bakið á þeim sem minna hafa á milli handanna til
að bæta heiminn.
Góð staða GE
Fortune | Bandaríska stórfyrirtækið General
Electrics er í fyrsta sæti á lista bandaríska við-
skiptatímaritsins Fortune yfir virðingarverðustu
fyrirtæki í Bandaríkjunum. Þetta er í sjötta skipti
á síðastliðnum áratug sem fyrirtækið lendir á
listanum. Þessi árangur fyrirtækisins þykir að
sjálfsögðu góður en undarlegur, sér í lagi þar sem
fyrirtækið er hvorki eitt af stærstu fyrirtækjum
Bandaríkjanna né skilar meiri hagnaði en önnur. Þá
hafi hlutafé GE staðið í stað síðastliðin ár og virðist
lítil breyting í sjónmáli. En hvað veldur? Fortune
hefur eftir mikilsverðum stjórnendum í bandarísku
fjármálalífi, þ.m.t. fyrrnefndum Warren Buffet, að
góðar verklagsreglur fyrir stjórnendur fyrirtæk-
isins skipti þar miklu og hafi það bætt ímynd GE
mikið út á við. Bendir tímaritið sérstaklega á fimm
binda rit sem fyrirtækið lét gera um verklagsregl-
ur fyrir framkvæmdastjóra GE á sjötta áratug
síðustu aldar og hafi það verið öðrum fyrirtækjum
fyrirmynd.
U M V Í Ð A V E R Ö L D
Ætlar þú
að grípa
tækifærið?
Meiri tími – Aukið forskot – Sterkari sérstaða
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, krefjandi, skemmtilegt, góð skipulagning, einbeiting,
jákvæðni, mikil aðstoð, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.
Þriggja vikna fyrirtækjanámskeið Hraðlestrarskólans eru sérsniðin að
þörfum atvinnulífsins. Aukinn lestrarhraði, markvissari upplýsingaöfl-
un og fleiri klukkustundir gætu opnað þér og þínu fyrirtæki aðgang
að stórkostlegu tækifæri. Ert þú tilbúinn að grípa það?
Hafðu samband í síma 586-9400, sendu póst á jovvi@h.is
eða kíktu á www.h.is
„...á námskeiðinu fékk ég svörin
og ábendingarnar sem mig
vantaði.“
Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur.
„Í þessu er fólginn mikill
tímasparnaður.“
Ester Ýr Jónsdóttir, kennari.
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu.