Fréttablaðið - 16.03.2006, Blaðsíða 65
FÖSTUDAGUR. 17 MARS. 2006
AMPOP RAFREYKJAVIK01.IS
HÚSIÐ OPNAR KL. 20
MIÐASALA Á MIÐI.IS OG
Í VERSLUNUM SKÍFUNNAR
LAUGARD. 18. MARS. 2006
TÓNLEIKAR
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
LUKE VIBERT
DR. MISTER
& MR. HANDSOME
HÚSIÐ OPNAR KL.24
MIÐAVERÐ KR.1500
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
FÓTBOLTI Forráðamenn Manchest-
er United og Celtic hafa ákveðið
að spilaður verði kveðjuleikur til
heiðurs Roy Keane í lok leiktíðar-
innar og mun hann að öllum lík-
indum fara fram á Old Trafford 9.
maí næstkomandi.
Keane lék í tólf ár hjá Man.
Utd., síðustu árin sem fyrirliði, og
vill félagið sýna hversu mikils
virði framlag hans þessi ár hafi
verið jafnvel þó að endalok hans
hjá félaginu í lok síðasta árs hafi
ekki verið á besta veg.
Keane sjálfur hefur blendnar
tilfinningar til leiksins og kveðst
ekki hafa átt von á slíkum leik.
„Ég er ekki fullkomlega viss um
að þetta sé rétt. Það er erfitt að
útskýra af hverju en það er að
hluta til vegna þess hvernig ég
skildi við félagið,“ segir Keane, en
allur ágóði af leiknum mun renna
til góðgerðarmála.
„Það verður gott að snúa aftur
og kveðja stuðningsmennina
almennilega en ég tel mig ekki
hafa neina þörf á því að snúa aftur
til að kveðja stjórann og alla sam-
herjana,“ segir Keane en svo virð-
ist sem ekki séu öll kurl komin til
grafar í deilum hans og Alex
Ferguson, stjóra Man. Utd.
- vig
Roy Keane fær kveðjuleik á Old Trafford 9. maí:
Veit ekki hvort þetta er rétt
FERGUSON OG KEANE Fyrrum fyrirliði Manchester United er ekkert sérlega spenntur fyrir
því að snúa aftur á Old Trafford.
Iceland Express-deild kvk:
GRINDAVÍK-KEFLAVÍK 77-70
Stig Grindavíkur: Tamara Stocks 29, Hildur Sig-
urðardóttir 25, Jovana Stefánsdóttir 6, Alma Rut
Garðarsdóttir 6, Petrúnella Skúladóttir 6, Ingibjörg
Jakobsdóttir 3, Harpa Hallgrímsdóttir 2.
Stig Keflavíkur: Lakiste Barkus 23, Birna Valgarðs-
dóttir 13, Kara Sturludóttir 8, María Erlingsdóttir
8, Auður Jónsdóttir 7, Bryndís Guðmundsdóttir 5,
Svaa Stefánsdóttir 3, Marín Karlsdóttir 2, Ingibjörg
Vilbergsdóttir 1.
HAUKAR-BREIÐABLIK 78-55
ÍS-KR 78-56
LOKASTAÐAN:
HAUKAR 20 19 1 1733:1172 38
GRINDAVÍK 20 14 6 1593:1356 28
KEFLAVÍK 20 12 8 1744:1355 24
ÍS 20 11 9 1423:1382 22
BREIÐABLIK 20 2 18 1198:1691 4
KR 20 2 18 1038:1773 4
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
KÖRFUBOLTI Leikur Grindavíkur
og Keflavíkur var leikur varn-
anna og þá sérstaklega í fyrri
hálfleik en eftir hann var staðan
34-30. Tamara Stocks sýndi mátt
sinn og megin í Grindavíkurlið-
inu en hún nýtti vel styrk sinn í
teignum og Keflavíkurstúlkum
gekk illa að stöðva þennan sterka
leikmann. Stocks skoraði alls 29
stig en Hildur Sigurðardóttir 25.
Grindavíkurstúlkur höfðu fum-
kvæðið framan af og leiddu leik-
inn en þó með litlum mun. Gest-
irnir voru óheppnir með skotin en
um leið og þau fóru að detta betur
komust þær betur í takt við leik-
inn og tókst að jafna snemma í síð-
ari hálfleik. Seinni hálfleikurinn
var jafn og æsispennandi, Grinda-
víkurstúlkur leiddu þó nánast allt-
af en gekk illa að klára leikinn.
Þær innbyrtu þó sigurinn í lokin
þrátt fyrir að gestirnir hafi gert
harða atlögu að sigrinum en loka-
tölur urðu 77-70.
„Ég gæti vel trúað því að þetta
sé það sem koma skal í úrslita-
keppninni. Við vorum að spila
ágætlega í byrjun en slökuðum
síðan aðeins á þegar taugaveiklun
gerði vart við sig. Tamara er enn
að læra inn á liðið og við erum enn
að læra inn á hana en þetta kemur
allt saman,“ sagði Unndór Sig-
urðsson, þjálfari Grindavíkur,
eftir leikinn.
„Ég bíð spenntur eftir úrslita-
einvíginu. Við ætlum okkur að
koma vel undirbúnar til leiks og
við þekkjum Keflavíkurliðið vel,
við vitum kosti þeirra og galla og
þetta verður því hörkueinvígi,“
sagði Unndór að lokum.
- hþh
Bíðum spennt eftir
úrslitaeinvíginu
Grindavík tryggði sér annað sætið í Iceland Express-
deild kvenna með góðum sigri á Keflavík, 77-70.
BIKARINN Á LOFT Haukastúlkur voru kátar er þær fengu afhentan bikarinn fyrir sigur í
deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FIMMTUDAGUR 16. mars 2006