Fréttablaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 4
4 18. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ ����������� ������������������������������������������������������������������ ���� ����� ����� � Bandaríkjadalur 75,27 75,63 Sterlingspund 132,03 132,67 Evra 91,37 91,89 Dönsk króna 12,244 12,316 Norsk króna 11,671 11,739 Sænsk króna 9,804 9,862 Japanskt jen 0,6369 0,6407 SDR 108,64 109,28 GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 11.4.2006 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA Gengisvísitala krónunnar 127,8039 EFNAHAGSMÁL Verðbólga á Íslandi hefur verið 5,5 prósent síðustu 12 mánuði samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Verðbólgumark- mið Seðlabanka Íslands er að halda verðbólgu við 2,5 prósent á hverju tólf mánaða tímabili og efri þolmörk verðbólgu á hverjum tíma eru fjögur prósent. Verð- bólga síðasta árs er því þremur prósentum yfir verðbólgumark- miði auk þess sem hún hefur verið yfir efri þolmörkum bankans í átta mánuði í röð. Alþýðusamband Íslands telur að þessi háa verðbólga skýrist af miklum hækkunum á eldsneyti, nýjum bílum og húsnæði. Einnig er hluta skýringarinnar að finna í hækkuðum vöxtum á íbúðarlán- um. Tryggvi Þór Herbertsson, for- stöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir að ekkert bendi til annars en að verðbólga komi til með að halda áfram að hækka á næst- unni og að kaupmáttur almennings muni minnka. „Það er komið að endalok- um góðu áranna í íslensku efnahagslífi. Hækkanir hingað til hafa verið drifn- ar áfram af olíuverðs- hækkunum og fasteigna- verði en nú koma inn í þetta áhrif af margumtalaðri þenslu. Það er æskilegt að ein- staklingar dragi úr neyslu og ríkið úr útgjöldum.“ Tryggvi telur jafn- framt að það hafi verið mistök hjá ríkisstjórninni að hækka hámarks- lán Íbúðalánasjóðs miðað við horfurnar í efnahags- málum. Tryggvi minnir á orð sín að vegna uppbygging- ar í stóriðju þá verði að slá af við aðrar stórfram- kvæmdir. Til dæmis væri hyggilegt að fresta bygg- ingu tónlistarhúss og hátæknisjúkrahúss sem samtals kosta 60 til 70 milljarða króna. Aðrar stórframkvæmdir ríkisins, sem hafist verður handa við á næstunni eru Héðinsfjarð- argöng sem kosta sex til sjö millj- arða króna og Sundabraut sem ríkið mun leggja átta milljarða til. Stjórnarandstaðan hefur gagn- rýnt stjórn efnahagsmála harð- lega. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að ekki sé aðeins um verð- bólguskot að ræða heldur að nú sé að hefjast verðbólguskeið. Þess vegna þurfi að aflýsa stóriðju- framkvæmdum og ráðgerðum skattalækkunum. Valgerður Sverr- isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, er þessu ósammála og segir að stefnu ríkisstjórnarinnar verði ekki breytt. svavar@frettabladid.is Talið hyggilegt að ríkið fresti stórframkvæmdum Verðbólga á Íslandi hefur verið 5,5 prósent í heilt ár og mun hækka á næstunni að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Stjórnarandstaðan talar um nýtt verðbólguskeið en stjórnvöld um verðbólguskot. TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON NOKKRAR FRAMKVÆMDIR RÍKISINS 2006-2012* Kostnaður Framkvæmdatími Annað Hátæknisjúkrahús 18 milljarðar 2007-2012 Áætlaður heildarkostnaður 30-40 milljarðar Héðinsfjarðargöng 7 milljarðar 2006-2009 Sundabraut 8 milljarðar 2007-2010 (1. áfangi) Tónlistarhús 12,5 milljarðar 2006-2009 (Ríkið 54 prósent) *Allar upphæðir eru áætlaðar. SVEITASTJÓRNARMÁL Tillaga kjör- nefndar Vestmannaeyjalistans að nýjum framboðslista var sam- þykkt í síðustu viku. Lúðvík Bergvinsson er í efsta sæti og situr því áfram sem odd- viti listans en að öðru leyti er mikil endurnýjun á listanum. Í næstu sætum eru Hjörtur Kristjánsson og Kristín Jóhannsdóttir. Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV, situr í fjórða sæti sem er álitið baráttusætið fyrir sveitarstjórn- arkosningarnar sem fara fram 27. maí næstkomandi. Vestmanna- eyjalistinn og Sjálfstæðisflokkur- inn hafa síðan í nóvember 2004 verið í meirihluta. - sdg Bæjarmál í Vestmannaeyjum: Framboð V-lista kynnt SVEITARSTJÓRNARMÁL Framsóknar- menn eru ósáttir við vinnubrögð Lúðvíks Bergvinssonar, oddvita V-listans í Vestmannaeyjum, en á sunnudag slitnaði upp úr viðræð- um V-lista og Framsóknarflokks um sameiginlegt framboð eftir að Lúðvík kom með einhliða tillögu um lista að sögn Sigurðar Vil- helmssonar, formanns framsókn- arfélagsins í bænum. Innihélt listinn meðal annars nöfn fólks sem hafði aldrei komið nálægt starfi V-listans og virtist Sigurði sem þetta hafi komið flatt upp á aðra meðlimi kjörnefndar sem voru allir frá V-listanum, en þeir hafi þó samþykkt listann eftir að Lúðvík stillti nefndinni upp við vegg. „Ég greiddi ekki atkvæði á móti listanum því ég leit svo á að aðkomu Framsóknarflokksins að listanum væri lokið,“ sagði Sig- urður. „Við fórum með skýrar for- sendur inn í starfið og okkar krafa var eitt af efstu fjórum sæt- unum,“ segir Sigurður sem segist hafa átt gott samstarf við fólk innan V-listans og hafði hann von- ast eftir að það fólk hefði meiri vigt gagnvart Lúðvík. En ljóst sé af þessu að hann stjórni listan- um. Spurður um hvað taki við hjá framsóknarmönnum segir Sigurð- ur að boðað verði til félagsfundar á næstunni og staðan metin. - sdg VESTMANNAEYJAR Framsóknarflokkur og Vestmannaeyjalisti sátu saman í meirihluta bæjarstjórnar í tvö ár á kjörtímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Deilur varðandi framboð V-lista í Vestmannaeyjum: Framsóknarflokki bolað út SUNDABRAUT Á myndinni er sýnd lega hábrúar en líklegt er að önnur leið verði valin. TÓNLISTARHÚS VIÐ HÖFNINA Áætlaður kostnaður við byggingu nýs tónlistarhúss við Reykjavíkurhöfn er um 12,5 milljarðar króna. „Verðbólga er mikið áhyggjuefni fyrir fjölskyldur og fyrirtæki. Reykja- víkurborg hefur ekki skorast undan ábyrgð í efnahagsstjórninni og við höfum á þessu kjörtímabili bæði flýtt framkvæmdum, til að hafa rými nú þegar þenslan er, og hægt á þessi ár sem fyrirséð var að þenslan yrði. Ég held að nærtækast sé að hægja á uppbyggingu í stóriðju því þeim áformum fylgja mjög fjárfrek- ar og mannaflsfrekar framkvæmdir í virkjunum. Aðalatriðið er að hafa heildarmyndina undir og arðsem- ina af hverju um sig.“ - shá Dagur B. Eggertsson: Verðbólga mik- ið áhyggjuefni „Nokkuð ljóst er að framkvæmdir við Sundabraut verða ekki á dag- skrá fyrr en í fyrsta lagi síðla árs 2008 eða 2009. Þetta er ekki síst vegna seinagangs R-listans með undirbúning vegna þessarar mikil- vægu samgönguæðar. Þeim er því í raun sjálfhætt fram að þeim tíma. Þegar er búið að undirrita samn- inga vegna byggingar tónlistarhúss- ins og frestun á þeim framkvæmd- um myndi valda borgarsjóði mörg hundruð milljóna króna skaða. Það liggur fyrir að byrjunarframkvæmdir hefjast á næstu vikum.“ - shá Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson: Framkvæmdum sjálfhætt í bili

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.