Fréttablaðið - 18.04.2006, Side 20
18. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Okkar hjartkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Helgi Jóhannesson
fyrrverandi aðalgjaldkeri, Hæðargarði 29,
verður jarðsunginn miðvikudaginn 19. apríl í
Fossvogskirkju kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á að láta líknarfélög njóta þess.
Þóra Þorleifsdóttir
Halldóra M. Helgadóttir Þorbergur Atlason
Hörður Ó. Helgason Sigrún Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hreggviður Hermannsson
læknir, Nónvörðu 14, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
miðvikudaginn 19. apríl kl. 14.00.
Lilja Jóhannsdóttir
Margrét Hreggviðsdóttir Bjarni Guðjónsson
Hermann Hreggviðsson Ágústa Hildur Gizurardóttir
Elín Kristín Hreggviðsdóttir Júlíus Sigurðsson
Guðmundur Páll Hreggviðsson Sólveig Silfá Karlsdóttir
Björn Blöndal
Gísli Blöndal Sólveig Leifsdóttir
James William Sandridge
Jóhann Dalberg Kristín Ruth Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Áttatíu ár eru í dag liðin frá því að rit-
höfundurinn Indriði G. Þorsteinsson
fæddist. Óhætt er að fullyrða að Indriði
G. hafi sett mark sitt á ýmis svið þjóð-
lífsins á meðan hann lifði. Hann ruddi
sér rúms á ritvellinum þegar smásaga
hans, Blástör, hlaut verðlaun í smá-
sagnakeppni Samvinnunnar árið 1951.
Upp frá því sá hann fyrir sér með
skrifum bæði á eigin verkum en einnig
sem blaðamaður, pistlahöfundur og rit-
stjóri.
„Indriði var fyrst og fremst sagna-
skáld. Hann skrifaði einnig ævisögur og
ýmislegt annað en skáldsögurnar eru
það merkilegasta sem eftir hann liggur,“
segir Gunnar Stefánsson bókmennta-
fræðingur. Gunnar er manna fróðastur
um Indriða G. og hefur rannsakað verk
hans. Hann er meðal annars höfundur
ritgerðar um hann í Skagfirðingabók, riti
Sögufélags Skagfirðinga, sem birtist árið
2005. „Hann er tímamótahöfundur á
árunum eftir stríð og í rauninni er hans
merkasta framlag að hafa lýst lífi fólks
af eigin kynslóð á þessum umrótatímum.
Í bókinni 79 af stöðinni sýnir Indriði
meðal annars mjög vel tilfinningar kyn-
slóðarinnar sem flutti úr dreifbýli til
borgarinnar. Land og synir er svo lýsing
á sveitasamfélagi kreppuáranna og jarð-
veginum sem fólkið kom úr.“
Ásamt því að vera virkur rithöfundur
hafði Indriði mikinn áhuga á kvikmynda-
gerð. Kvikmynd byggð á bók hans 79 af
stöðinni var tekin upp árið 1962 og varð
hún gríðarlega vinsæl hér á landi. Seint á
áttunda áratug síðustu aldar var Indriði
einn stofnenda Ísfilm en fyrsta verkefni
fyrirtækisins var að kvikmynda, Land og
syni árið 1980. „Indriði skrifar mjög
myndrænan stíl og þess vegna hefur
örugglega verið mjög auðvelt að kvik-
mynda bækurnar hans,“ segir Gunnar.
„Frásögnin er svo sjónræn að lesandinn
gerir sér mjög vel í hugarlund hvað
Indriði er að segja.”
Færni í lýsingum atburða kom Indriða
líka vel á farsælum blaðamannsferli
hans. Fyrsta starf hans var á Tímanum
þar sem hann byrjaði árið 1952 en hann
varð síðar blaðamaður á Alþýðublaðinu
áður en hann fór á ný yfir á Tímann til að
taka við ritstjórn blaðsins.
Indriði kallaði oft á hörð viðbrögð
samfélagsins vegna dálksins Svarthöfða
sem olli oft miklu umtali. Svarthöfði kom
fyrst til sögunnar á ritstjórnarárum
Indriða á Tímanum en færðist yfir á Vísi
og síðar DV. „Indriði hafði nú enga opin-
bera yfirlýsingu um að hann væri höf-
undur Svarthöfða en allir þóttust nú vita
að svo væri. Hann þótti mjög beittur á
köflum og ádeilukenndur og fólki líkaði
það mjög misvel. Svarthöfði var þó alltaf
lesinn og vakti athygli og Indriði náði að
minnsta kosti tilgangi sínum þannig.“
Skrif Indriða í prentmiðla landsins
héldust allt til síðasta dags.Hann skrif-
aði pistla um sjónvarpsdagskrána sem
birtust reglulega í Morgunblaðinu og
skilaði síðasta pistlinum einungis
tveimur dögum áður en hann lést, þann
3. september 2001 á sjúkrahúsinu á
Selfossi.
INDRIÐI G. ÞORSTEINSSON: ÁTTATÍU ÁRA FÆÐINGARAFMÆLI
Tímamótarithöfundur
með sterkar skoðanir
INDRIÐI G. ÞORSTEINSSON, RITHÖFUNDUR Þótt Indriði G. hafi fyrst og fremst verið rithöfundur kom
hann víða við í lifanda lífi. Hann á að baki farsælan feril sem blaðamaður og ritstjóri ásamt því að hafa
tekið virkan þátt í vori íslenskrar kvikmyndagerðar. FRÉTTABLAÐIÐ/MYND ÚR SAFNI
ALBERT EINSTEIN (1879-1955), LÉST
ÞENNAN DAG
„Manneskja sem gerir aldrei
mistök hefur aldrei reynt neitt
nýtt.“
Þótt hann væri talinn einn gáfaðasti maður í
heimi viðurkenndi Albert Einstein að hafa
gert mistök.
MERKISATBURÐIR
1506 Júlíus páfi annar leggur
hornstein að Péturskirkj-
unni í Róm.
1903 Mikill eldsvoði eyðilegg-
ur húsið Glasgow milli
Fischersunds og Vesturgötu
í Reykjavík. Húsið var það
stærsta sem reist hafði
verið á Íslandi.
1944 Hermann Jónasson er kjör-
inn formaður Framsókn-
arfloksins og tekur við af
Jónasi Jónssyni frá Hriflu.
1983 63 látast í Beirút þegar
sendiráð Bandaríkjanna
er gjöreyðilagt með sjálfs-
morðssprengjuárás.
1997 Helga Kress er kjörin forseti
þáverandi heimspekideildar
og er fyrst kvenna til að
fara með forsæti deildar í
Háskóla Íslands.
Á þessum degi árið 1980 fékk
Afríkuríkið Simbabve sjálfstæði
frá Bretlandi. Landið hét áður
Ródesía og hafði verið nefnt eftir
Bretanum Cecil Rhodes sem
hafði forgöngu um að landið yrði
bresk nýlenda á árunum 1888
og 1889.
Heimamenn reyndu strax á
árunum 1896-1897 að losa sig
við bresku nýlendustjórnina. Þá
reyndu Ndebele og Shona ættflokkarnir að beita
hervaldi til að hrekja Bretann brott og er stríðið
kallað frelsisstríðið hið fyrra. Frumstæð vopn heima-
manna höfðu þó ekkert að segja móti fallbyssum
breska hersins sem náði að kæfa uppreisnina niður.
Árið 1975 hófst svo seinna frelsisstríð Ródesíu
þegar uppreisnarmenn með kommúnískan bak-
grunn hófu að berjast gegn yfir-
stjórninni. Þeir voru vopnaðir
byssum og beittu einnig vopn-
um jafnréttisbaráttu blökku-
manna. Yfirstjórn Breta sá svo
að sér árið 1978 og sættist
á mikilvægi þess að semja
um aukinn rétt blökkumanna
meðal annars með því að veita
þeim hlutdeild í þinginu. Árið
1979 var kosið til þings og
unnu blökkumenn yfirburðasigur sem leiddi til þess
að nafni landsins var breytt í Simbabve.
Bretar voru þó ekki reiðubúnir að viðurkenna
sjálfstæði landsins fyrr en eftir samningaviðræð-
ur. Í febrúar voru aðrar þingkosningar haldnar og
ríkisstjórn mynduð sem varð til þess að sjálfstæði
Simbabve var viðurkennt á alþjóðlegum vettvangi.
ÞETTA GERÐIST: 18. APRÍL 1980
Sjálfstæði Simbabve viðurkennt
Frá Simbabve
AFMÆLI
Ragnar Guðbjörns-
son, ræstitæknir
og blaðberi, er
fimmtugur.
Séra Hjörtur Magni
Jóhannsson Fríkirkju-
prestur er 48 ára.
Jóhanna V. Þór-
hallsdóttir söng-
kona er 49 ára.
Magnea Magnús-
dóttir frá Kleifum
rithöfundur er 76
ára.
Ólafur Halldórs-
son handritafræð-
ingur er 86 ára.
JARÐARFARIR
13.00 Aðalgeir Olgeirsson (frá
Húsavík), Háholti 1, Hafnar-
firði, verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju.
13.00 Gunnar Einarsson fyrrver-
andi stöðvarstjóri Pósts og
síma, Hörgshlíð 8, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju.
ANDLÁT
Auður Jónsdóttir lést á heimili
sínu 31. mars. Útför hefur farið
fram í kyrrþey.
Aðalbjörg Pálsdóttir, Hrafnistu,
áður Sólheimum 23, lést miðviku-
daginn 12. apríl.
Árni Kristinn Finnbogason skip-
stjóri frá Vestmannaeyjum, lést í
Noregi sunnudaginn 9. apríl.
Bergljót Sigurjónsdóttir, áður
til heimils á Aflagranda 40, lést á
Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn
31. mars. Útför hefur farið fram í
kyrrþey.
Björg Ólína Júlíana Eggertsdóttir,
Meistaravöllum 29, lést miðviku-
daginn 12. apríl á Landspítala
Landakoti.
Elín Dagmar Guðjónsdóttir,
Hjallaseli 55, áður Æsufelli 2, lést
miðvikudaginn 12. apríl.
Gísli K. Sigurðsson bifreiðastjóri,
Mjósundi 15, Hafnarfirði, varð bráð-
kvaddur miðvikudaginn 12. apríl.
Gunnar Pétur Gestsson bóndi,
Kotströnd, Ölfusi, er látinn. Útför
hefur farið fram í kyrrþey.
Gunnhildur Ásta Steingrímsdótt-
ir, Háaleitisbraut 59, Reykjavík, lést
þriðjudaginn 11. apríl á Landspítal-
anum við Hringbraut.
Herdís K. Karlsdóttir fyrrver-
andi leikskólastóri, Frostafold 14,
Reykjavík, lést þriðjudaginn 11. apríl
á hjúkrunarheimilinu Eir.
Hulda Salóme Guðmundsdóttir
frá Úlfsá lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Ísafirði miðvikudaginn
12. apríl.
Ingi Adolphsson lést á Grensás-
deild LSH miðvikudaginn 12. apríl.
Jón Árni Egilsson rafvirkjameistari,
Hátúni 29, Reykjavík, lést á Land-
spítalanum laugardaginn 1. apríl.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Jónína Guðmundsdóttir, Hjallahlíð
31, Mosfellsbæ, áður til heimilis
á Miklubraut 72, Reykjavík, lést
fimmtudaginn 13. apríl á hjúkrun-
arheimilinu Vífilsstöðum.
Jónína Jónsdóttir, dvalarheimilinu
Seljahlíð, áður til heimilis í Vestur-
bergi 78, lést mánudaginn 10. apríl.
Jónína Guðbjörg Kristinsdóttir,
Lyngholti 7, Ísafirði, lést föstudaginn
14. apríl.
Þorsteinn Jón Þorsteinsson
vélstjóri, Nesbala 62, Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu fimmtudaginn
13. apríl.
Þóranna Hansen,
Öldugötu 6, Dalvík,
er sjötug í dag.
13.30 Anna J. Jónsdóttir, Sóltúni 2,
Reykjavík, áður Skipagötu 2,
Akureyri, verður jarðsungin
frá Akureyrarkirkju.
15.00 Hulda R. Jensen verður
jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu.
15.00 Sigrún Sumarrós Jónsdóttir,
Sunnuvegi 5, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði.