Fréttablaðið - 18.04.2006, Qupperneq 29
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja
leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um
notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð,
hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða
öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn
yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
www.nicorette.is
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er
aðnota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
20% afsláttur af
Nicorette Freshmint
Bragðsemendist lengur
*Tilboðið gildir til 30. apríl
5 100 300 www.apollo.is
Beint leigflug til stærsta sólarstaðar við Svartahafið.
Búlgaría - stærsti sólarstaðurinn okkar.
Berðu saman verð og gæði.
Fyrsta smáskífulagið af annarri
plötu hljómsveitarinnar Keane er
komið út. Lagið nefnist Is It Any
Wonder en platan ber heitið Under
the Iron Sea og er væntanleg í
búðir 12. júní.
Árið 2004 kom út frumburður
Keane, Hopes and Fears, sem naut
mikilla vinsælda. Sama ár kom
sveitin fram á Iceland Airwaves-
tónlistarhátíðinni við góðar undir-
tektir.
Upptökustjórn á nýju plötunni
er í höndum Adam Green, en plat-
an mun vera dekkri en fólk á að
venjast frá bandinu.
Ný smáskífa
KEANE Hljómsveitin Keane er að gefa út sína aðra plötu.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Stórstjarnan Tom Cruise þvertek-ur fyrir það að hann hafi
beitt áhrifum sínum til þess
að stöðva endursýningu á
umdeildum South Park-þætti
þar sem gert var stólpagrín
að Vísindakirkjunni. Cruise
er einn þekktasti meðlimur
Vísindakirkjunnar og fékk sjálfur
hressilega á baukinn í þættin-
um. Leikarinn sagði í viðtali
á ABC-sjónvarpsstöðinni að
þessar ásakanir væru svo vitlausar að
hann nennti varla að elta ólar við þær
og hann hafi verið allt of upptekinn við
gerð Mission Impossible III til þess að
geta verið að velta sér upp úr þessu.
„Ég vissi ekki einu sinni af þessu. Ég
er að vinna, að gera bíómyndina
mina. Og svo á ég fjölskyldu. Ég er
upptekinn og eyði dögum mínum
ekki í að hafa áhyggjur af því
hvað fólk segir um mig.“
Leikaraparið kynþokka-fulla, Angelina Jolie
og Brad Pitt, ætlar að
eignast barn sitt í Namibíu ef eitthvað
er að marka þarlendan embættismann.
Samuel Sheefeni Nuuyoma,
fylkisstjóri í Namibíu, segist hafa snætt
morgunmat með parinu á föstudaginn
langa og þá hafi þau tjáð honum að
Jolie vilji fæða barnið í landinu þar
sem hún sé gjörsamlega heilluð af
Namibíu. Þá munu hjónaleysin vera
að íhuga að gefa barninu namibískt
nafn. Jolie og Pitt hafa eytt drjúg-
um tíma í Namibíu undanfarið
og dvelja í húsi sem er umkringt
lífvörðum en þar þáði Nuuyoma
morgunverðinn góða.