Fréttablaðið - 18.04.2006, Page 30

Fréttablaðið - 18.04.2006, Page 30
30 18. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is "NÁMSKEIÐ BJÖRNS JÓNSSONAR SKÓGRÆKT ÁHUGAMANNSINS Undanfarin ár hafa fjölsótt námskeið verið haldin með Birni Jónssyni, fyrrv. skólastjóra, en hátt í 2000 manns hafa sótt þessi námskeið. Björn mun halda áfram með slík námskeið nú í vor og verða þau haldin í húsi Skógræktarfélags Íslands, Skúlatúni 6, 3. hæð. Námskeiðið tekur tvö kvöld og kostar 5.500 kr. á mann og felur í sér ítarleg námskeiðsgögn og kaffi.Haldin verða námskeið A. 25. og 27. apríl og B. 2. og 4. maí. Skráning á skog@skog.is og í síma 551 8150. www.skog.is R V 62 05 Arngrímur Þorgrímsson Sölustjóri hjá RV Lotus enMotion snertifrír skammtari 3.982 kr. Á tilb oði í aprí l 200 6 Skam mtar ar og tilhe yrand i áfylli ngar frá L otus Profe ssion al Lotus miðaþurrku skápur Marathon RVS 4.778 kr. Lotus miðaþurrku skápur Marathon 1.591 kr. Einnig eru á tilboði Lotus sápuskammtari og statíf í hvítu fyrir Lotus WC pappír. Einnig eru á tilboði Lotus sápuskammtari og statíf úr ryðfríu stáli fyrir Lotus WC pappír. Lotus Professional Heildarlausn fyrir snyrtinguna Hollensku deildarkeppninni lauk nú um helgina en PSV Eindhoven varð meistari þar í landi. Grétar Rafn Steinsson og félagar hans í AZ Alkmaar höfnuðu í öðru sætinu og er Grétar ánægður með þann árangur. „Ég er bara mjög sáttur við að ná að enda í öðru sætinu og það er ljóst að ákveðinn stöðugleiki er farinn að myndast hjá félaginu. Við höfum góða leikmenn og það er mjög vel staðið að hlutunum hérna, við höfum góða þjálfara og það kemur okkur sjálfum kannski ekki á óvart hve vel hefur gengið,“ sagði Grétar sem segir að rífandi uppgangur sé hjá félaginu. „Við fáum nýjan leikvang og æfingasvæði fyrir næsta tímabil, það er mikið að gerast hjá okkur.“ Tímabilinu er þó ekki lokið hjá félag- inu því framundan er erfitt umspil. „Það er ekki nóg að spila einhverja 34 leiki til að geta tryggt sér sæti í meistaradeild- inni, við leikum tvo leiki gegn Groningen sem hafnaði í fimmta sætinu og var tuttugu stigum á eftir okkur. Ef við leggjum það lið munum við mæta Feyenoord eða Ajax um lausa meistaradeildarsætið. Það er því langur vegurinn ennþá,“ sagði Grétar en honum finnst þetta fyrirkomulag frekar skrýtið. „Þetta er kannski góður bónus fyrir þau lið sem eru um miðja deild að geta enn átt möguleika á Evr- ópusæti en leiðinlegt fyrir þau lið sem hafa verið að berjast um efstu sætin. Allt í einu skiptir það engu máli að hafa náð öðru eða fimmta sætinu, Leikirnir gegn Groningen verða erfiðir, við gerðum jafntefli í báðum leikjunum í deildinni. Hugurinn í okkur er mikill að komast í meistaradeildina en allt þarf að ganga upp ef það á að takast,“ Áður en næsta leiktímabil hefst mun annar íslenskur leikmaður bætast í leikmannahóp AZ Alkmaar en Jóhannes Karl Guðjónsson kemur til félagsins í sumar. „Ég er mjög ánægður með að Jói Kalli sé að koma enda er hann mjög góður leikmað- ur. Leikmannahópurinn í heild hlakkar einnig mjög mikið til að fá hann,“ sagði Grétar Rafn. GRÉTAR RAFN STEINSSON HJÁ AZ ALKMAAR: DEILDARKEPPNINNI Í HOLLANDI ER LOKIÐ Enn langur vegur í meistaradeildina > Ísland ekki á EM Íslenska piltalandsliðið u-20 ára tók um páskana þátt í undankeppni fyrir Evrópumót þess aldursflokks en EM verður haldið í sumar í Austurríki. Íslensku strákunum tókst ekki að tryggja sér sæti á mótinu en leikir liðsins fóru fram í Tékklandi. Þeir byrjuðu á því að vinna Tyrkland með átta marka mun en töpuðu síðan hinum tveimur leikjum sínum, gegn Tékkum með fjórum mörkum og gegn Þýskalandi með sjö mörkum. Ernir Arnarson úr Aftur- eldingu var marka- hæstur íslensku strákanna á mótinu með fimmtán mörk, hann skoraði sjö í lokaleiknum gegn Þýskalandi en Björgvin Hólmgeirsson og Elvar Friðriksson komu þar á eftir með fimm. FÓTBOLTI Fyrri leikur stórliðanna AC Milan og Barcelona í undanúr- slitum meistaradeildar Evrópu fer fram á Ítalíu í kvöld en leiksins er beðið með mikilli eftirvæntingu. Meiðsli eru í sóknarlínum beggja liða. Henrik Larsson fór meiddur af velli í leik Barcelona gegn Vill- areal í spænska boltanum á föstu- dag og getur ekki leikið í kvöld. Þá er argentínska undrabarnið Lionel Messi einnig meiddur og missir af báðum viðureignunum. Ronaldinho er hins vegar klár í slaginn eftir að hafa verið hvíldur í tveimur síðustu leikjum og verður frammi með Samuel Eto´o. Hjá AC Milan er ólíklegt að Fil- ippo Inzaghi geti leikið en hann hefur átt við veikindi að stríða. Leikurinn verður því líklega próf- raun fyrir Alberto Gilardino sem mun verða við hlið Andriy Shev- chenko í sókninni. Gilardino hefur enn ekki náð að skora í Evrópuleik fyrir Milan síðan hann var keypt- ur síðasta sumar á átján milljónir punda frá Parma. „Ég hef frekar ungt lið sem er hungrað í að vinna þessa keppni og komast á spjöld sögunnar. Milan er hins vegar reynslumikið lið, vel skipulagt og með frábæra vörn. Það verður fróðlegt að sjá hvernig okkur gengur gegn þeim,“ segir Frank Rijkaard, knatt- spyrnustjóri Barcelona. Um helgina náði AC Milan að minnka forskot Juventus í ítölsku deildinni niður í fjögur stig en Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan, segir að sínir menn séu með hugann algjörlega við leikinn gegn Barcelona. „Ég held að þetta verði stórskemmtilegt einvígi, ekki bara fyrir stuðningsmenn Milan heldur knattspyrnuáhuga- menn um allan heim,“ sagði Berlusconi. - egm AC Milan mætir Barcelona á San Siro í kvöld: Hungrið í hámarki RONALDINHO Þennan mann verður AC Milan að ná að stöðva svo liðið komist í úrslitaleikinn. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES HANDBOLTI Valsstúlkur virtust mæta ágætlega stemmdar til leiks í Rúmeníu á sunnudag og höfðu í fullu tré við heimamenn á upp- hafsmínútum leiksins. En fljót- lega skildi leiðir og áttu rúmensku stúlkurnar afar auðvelt með að finna leið framhjá slakri 3-3 vörn Vals. Þegar gengið var til búnings- klefa í hálfleik var staðan 21-8 og úrslitin fyrir löngu ráðin. „Við spiluðum mjög illa í vörn- inni í fyrri hálfleik en breyttum í 6-0 vörn í þeim síðari og þá gekk þetta mun betur,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, við Fréttablaðið. Leikmenn hans stóðu sig mun betur í síðari hálfleik, vörnin þéttist til muna og sóknar- leikurinn fór sömuleiðis að ganga betur. Svo fór að Valur vann síðari hálfleikinn með einu marki en lokatölur urðu 37-25, Tomas Constanta í vil. „Það er ekki spurning að við getum spilað betur en þarna vorum við einfaldlega að mæta gríðarlega sterku handboltaliði sem er vel mannað í öllum stöð- um,“ sagði Ágúst og bætti því við að líklega væri það óskhyggja að ætlast til þess að Valsstúlkur gætu unnið upp þennan mun í síðari leiknum sem fram fer í Laugar- dalshöllinni um næstu helgi. „Fyrst og fremst ætlum við að reyna að vinna þann leik og sjáum hvert það fleytir okkur.“ Ágústa Edda Björnsdóttir átti skínandi leik fyrir Val og skoraði átta mörk og þá átti Alla Georgis- dóttir mjög góðan leik í síðari hálf- leik. Markvörður Constanta átti stórleik í markinu og varði hátt á þriðja tug skota, en gegn henni misnotuðu Valsstúkur sjö af níu vítum sínum í leiknum. Þá er liðið með gríðarlega sterka skyttu sem íslensku stelpurnar réðu ekkert við, en hún skoraði alls 15 mörk í leiknum. - vig Skelfilegur fyrri hálfleikur Möguleikar Valsstúlkna á að komast í úrslit Áskorendakeppni Evrópu eru nán- ast úr sögunni eftir 12 marka tap fyrir Tomas Constanta frá Rúmeníu í fyrri leik liðanna á sunnudaginn. Þjálfari Vals segir liðið gríðarlega sterkt. Í STRANGRI GÆSLU Alla Gokorian fékk oftast 2-3 varnarmenn á sig þegar hún gerði sig líklega til að stökkva upp í leiknum gegn Constanta á sunnudag. Þessi mynd lýsir vel þeim móttökum sem hún fékk frá leikmönnum rúmenska liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/KURSUMPRESS Samstarf við Stoke? Verið er að vinna í því að Víkingur fái lánsmenn frá Stoke City fyrir átökin í Landsbankadeildinni í sumar en þetta segir vefsíðan vikingur.net. Víkingur fékk tvo leikmenn frá Stoke lánaða sumarið 2004, Palmer og Keogh, en þess má

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.