Mánudagsblaðið - 21.12.1970, Qupperneq 11
Mánudagur 21. desember 1970
Mánudagsblaðið
11
Bækur á jólamarkaðinum
Þriðja bindi ritverksins VÉR ÍS-
LANDS BÖRN eftir Jón Helgason
er komin á markað. Útgefandi er
IÐUNN, en prentsmiðjan Oddi h.f.
prentaði.
Meginþáttur bókarinnar, alls 120
blaðsíður, hefst norður á Melrakka
sléttu á fyrstu árum nítjándu aldar,
er kona með fimm ung börn missir
mann sinn í sjóinn. Þessari konu
og börnum hennar og niðjum er
síðan fylgt eftir, unz frásögninni
lýkur með brúðkaupi í Eyjafirði og
greftrun í Kaupmannahöfn undir
aldarlokin. Þá hefur sagan borizt
víða um land — austur um Langa-
nes, Fljótsdalshérað og Austfirði,
vestur um Þingeyjarsýslur, Eyja-
fjörð, Húnavatnssýslur og allt tii
ísafjarðar, suður í Árnessýslu og
Reykjavík.
Segir hér af mörgu fólki, sumu
alþekktu í sögu ýmissa héraða og
Iandsins alls, og er lýst bæði svo
beiskum örlögum og ljúfum atvik-
um, að fullboðlegur efniviðir væri
í stórbrotnar skáldsögur, ef þeim
tökum væri beitt. Munu margir
geta orðið nokkurs vísari um sögu-
Ieg atvik í lífi forfeðra sinna og
frændmenna, ástardrauma þeirra og
andstreymi, skyggnzt um leið inn
í daglegan hugarheim þeirra. Meðal
eftirminnilegs fólks er mótgangs-
presturinn, sem varð hetja við
dauða sinn, húsfreyjan stórráða, er
endaði ævi sína vestur í Svartárdal,
gamli prentarinn í Melhúsum,
prestsdæatrnar á Sauðanesi, frí-
hyggjumaðurinn úr Mývatnssveit,
fógetaskrifarinn í Reykjavík og
hinir góðu kvenkostir á Héraði. í
baksýn er svo Magnús Eiríksson.
einn föðurlausu systkinanna fimm,
og er meginuppistaða þáttarins sótt
í bréf hans, er varðveitzt hafa
hundruðum saman, þótt víða sé
fanga leitað annars staðar til þess
að gera myndina sem fyllsta.
Aðrir þættir í bókinni eru af
Suðurnesjum og Djúpavogi, úr
Breiðafirði, Húnaþingi og Eyjafirði
— einnig næsta sögulegir sumir
hverjir, þótt þeim sé þrengra svið
markað en þeim, sem fyrst var
nefndur.
★
IÐUNN hefur sent á markað
tvær skáldsögur eftir tvo brezka
metsöluhöfunda. Önnur er LEIK-
FÖNG DAUÐANS eftir Alistair
MacLean, sem alkunnur er hér á
landi enda er þetta ellefta bókin,
sem út kemur á íslenzku eftir hann.
Þessi nýja saga fjallar um baráttu
alþjóðalögreglunnar, Interpol, við
harðsnúinn, alþjóðlegan hring eit-
urlyfjasmyglara. — Allmargar
sögur MacLeans hafa verið kvik-
myndaðar. Hér á landi hefur ein
kvikmynd, Byssurnar í Navarone,
verið sýnd tvívegis við mikla að-
sókn. Og alveg á næstunni sýnir
Gamla Bíó kvikmyndina Arnarborg
in, sem gerð er eftir samnefndri
sögu MacLeans. — Andrés Krist-
jánsson hefur þýtt Leikföng dauð-
ans.
Hin sagan er KÓNGSRÍKI
CAMPBELLS eftir Hammond Inn-
es í þýðingu Magnúsar Torfa Ólafs-
sonar. Þetta er ein af þekktusm sög
um þessa víðlesna höfundar og ger
ist í fjallahéruðum Kanada. Þar
eiga sér stað hörð og óvægileg átök
um stað þann, sem sagan dregur
nafn af, og ætlað var, að olía myndi
finnast þar í jörðu. Áður eru komn
ar út á íslenzku þrjár sögur eftir
Hammond Innes: Ofsi Atlanzhafs-
ins, Silfurskipið svarar ekki og
Ógnir fjallsins.
LandgræBslusjóður
Jólatré
Sala jólatrjáa Landgræðslusjóðs er hafin —
Aðal útsöluslaðir: Laugavegi 7 og Fossvogsbletti 1
AÐRIR ÚTSDLUSTAÐIR:
Bankastræti 2.
Laugavegur 63
Laugavegur 54.
Óðinsgata 21
Blómabúðin Runni, Hrísateig 1.
Blóm og grænmeti, Langholtsvegi 126.
Gróðrarstöðin Valsgarður, v/Suðurlandsbraut
Vesturgata 6
Sjóbúðin, Grandagarði.
Hornið Birkimelur / Hringbraut.
Fremristekkur S, Breiðholti.
Árbæjarkjör, Árbæ.
Sláturfélag Suðurlands, Háaleitisbraut 68.
Silli og Valdi, v/Álfheima.
Verzlun Halla Þórarins, Hraunbæ 102.
KÓPAVOGUR:
Blómaskálinn v/Kársnesbraut.
Rein, Hlíðarvegi 23.
VERÐ Á JÓLATRJÁM:
0.70 — 1.00 ........
1.01 — 1.25 .........
1.26 — 1.50 ........
1.51 — 1.75 ______
1.76 — 2.00 .......
2.01 — 2.50 _______
kr. 170.00
— 205.00
— 255.00
— 300.00
—• 365.00
— 485.00
BIRGÐASTÖÐ, FOSSVOGSBLETTI 1. — Sími 40-300 og 40-313.
FURU-OG GRENIGREINAR SELDAR Á DLLUM ÚTSDLUSTDÐUM.
Aðeins fyrsta fíokks vara
☆ ☆ ☆
Við framleiðslu á
Adrett-vörum
er tvennt
í hávegum haft:
Vöruvöndun
Verði stillt í hóf
FYRIR ALLA
Hiárkrem
N aglalakkaeyðir
Svitalyktareyðir
Hárlagningavökvi
Shampó í glösujm
Hárlakk unga fólksins
Shampó í túpum
„JUGEND 77“
Adrett er alltaf til í verzlun yðar
V iðskiptamenn:
Berið saman
— sannfærizt
Heildsölubirgðir:
FARMASIA HF.
Sími 25385.
I. Konráðsson & Hafstein — Sími 11325
:
□ Ódýr og mjög góð plasteinangrun í
plötustærðunum allt að 2x3 metrar,
þykktir allt að 50 cm.
Vönduð framleiðsla
Reyplast h.f.
Ármúla 44. Sími 30978.
Auglýsing
um kosningu til
fulltrúaþings F.Í.B.
8. gr. laga félagsins:
„Félagsmenn í hverju hinna 6 umdæma, sem talin eru í 3. gr.
skulu kjósa fulltrúa til fulltrúaþings F.I.B., sem hér segir:
Umdæmi —
I Vesturland
II Norðurland
III Austurland
IV Suðurland
V Reykjanes
VI Reykjavík og
4 aðalfulltrúa
og 4 varafulltrúa
4 aðalfulltrúa
og 4 varafulltrúa
4 aðalfulltrúa
og 4 varafulltrúa
4 aðalfulltrúa
og 4 varafulltrúa
6 aðalfulltrúa
og 4 varafulltrúa
20 aðalfulltrúa
og 10 varafulltrúa
Alls 42 fulltrúar og 30 varafulltrúar.
Kosningar til fulltrúaþings skulu haldnar annað hvert ár.
Kjörtímabil fulltrúa er 4 ár og miðast við fulltrúaþing.
Skal helmingur fulltrúa kjörinn á 2ja ára fresti.
Uppástungur um jafnmarga fulltrúa og varafulltrúa og kjósa skal,
skulu hafa borizt félagsstjórnlnni í ábyrgðarbréfi fyrir 15. janúar
það ár, sem kjósa skal. Komi ekki fram uppástungur um fleiri
en kjósa skal, verður ekki af kosningu.
Með uppástungunum um þingfulltrúa skulu fylgja meðmæli eigí
færri en 30 fullgildra félagsmanna. Berist ekki uppástungur,
skoðast fyrri fulltrúar endurkjörnir, nema þeir hafi skriflega
beðizt undan endurkjöri."
Samkvæmt þessu skulu uppástungur um helming þeirrar full-
trúatölu sem í 9. grein getur hafa borizt aðalskrifstofu F.I.B.,
Eiríksgötu 5, Reykjavík í ábyrgðarbréfi fyrir 15. janúar 1971.
Reykjavík, 12. desember 1970.
F. h. stjórnar F.I.B.
Magnús H. Valdimarsson.