Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 21.12.1970, Side 14

Mánudagsblaðið - 21.12.1970, Side 14
14 Mánudagsblaðið Mánudagur 21. desember 1970 Bækur á jólamarkaðinum London svarar ekki Fyrir þá, sem gaman hafa af hetjudáðum, sögðum af hetjunum sjálfum er upplagt að næla sér í „London svarar ekki" eftir Sverre Midtskau, sem komin er út hjá Grágás og fjallar um andspyrnu- hreyfinguna í Noregi í síðasta stríði. Midtskau var fyrsti starfs- maður norsku upplýsingarþjónust- unnar í London á stríðsárunum og hafði m.a. þann starfa að koma upp loftskeytastöðvum í Noregi. Hann komst leynilega til Noregs og var handtekinn, slapp og náði að flýja úr fangavistinni á ótrúleg- an hátt. Þetta er vissulega mjög spenn- andi bók, sem menn leggja gjarna ekki frá sér fyrr en að Iestri lokn- um. Gretar Oddsson þýddi. Skúraskin Netta Muskett. Hjónabönd, erjur þeirra, æfintýri og þrár annarshvors eða beggja aðil- anna til alls annars, en til er ætl- azt upprunalega, hefur jafnan þótt ágætt og forvitnilegt lesefni. Skúra- skin, eftir Netta Muskett, í þýð- ingu Ragnars Jóhannessonar, fjallar um hjónabandið, gildrur þess og hættur af mikilli skarpskyggni. Þrátt fyrir loforð þeirra Clöru og Rickys um að enda hjónabandið ef illa gengi, þá kom annað upp á teninginn þegar Clara fór til Lon- don að vinna hjá eklinum. Tilraun- ir Rickys til að fá hana aftur heim virtust ekki hafa mikil áhrif á hana. Eitt hvað varð að gerast — og gerðist. Það er Grágás í Keflavík, sem gefur bókina út, frágangur og prentun er mjög til sóma, en bókin er 212 bls. Auöveldiö yöur matartilbúninginn LÁTIÐ OKKUR UM ERFIÐIÐ JÓLASTEIKINA fáið þér hjá okkur TILBÚNA í OFNINN Úrvalið er meira en yður grunar Vanti yður eitthvað sérstakt, þá spyrjið verzlunarstjó rann AÐ ÞJÓNA YÐUR ER MARKMIÐ OKKAR irnar Auglýsing UM NÚMERABREYTINGU HJÁ PÓSTI OG SÍMA Fimmtudaginn 17. desember n.k. breytist símanúmer hjá Pósti og síma verður 26000 í stað 11000. MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER 26000. Póstur og sími. U C;.OY>N'v**OV>* %" ovóv>^— \ \ Vavxyvaoav Skemmtilegar handa allri fjölskyldunni ATH. Söluskaitur ©r inniíalinn x vorðinu.

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.