Mánudagsblaðið - 21.12.1970, Síða 16
t
úr EINU«
j ANIMAÐ
Ringelberg og þjófótta kerlingin — íslenzk nöfn í hávegum
— Kraftajötnar í umferS — Búðarþjófar og kaupmenn — Inn-
sigla tækin — Sjoppur og reykjandi börn — Lygafrétt í útvarpi.
RINGELBERG blómasali í Rósinni er allra manna kurteisastur,
enda ættaður frá meginlandinu, þar sem konur eru enn hafðar
í hávegum bæði til ásta og í almennri umgengni. Fyrir skömmu
var Ringelberg í búð sinni og kom þá auga á konugarm, sem
læddi stóru og skrautlegu kerti í tuðru sína og ætlaði auð-
sýnilega að fara án þess að greiða varninginn. Meðfædd
kurteisi og heimsborgarabragur Ringelbergs setti hann þeg-
ar í stóran vanda, því hann vildi ekki koma konunni í bobba,
en leiddist hinsvegar, að hún skyldi ætla að ekki sæist til
hennar. Hann hugsaði málið um stund, en í þann mund er
konan var að fara út greip Ringelberg annað kerti, ekki
smærra og lét það falla í tuðruna um leið og hann sagði, með
sínu sætasta brosi:
,,Og þetta hérna kerti erfrá mig“.
GAMAN ER að sjá í jólaumferðinni hina ungu, upprennandi
afleysinga lögregluþjóna stjórna umferðinni í höfuðstaðnum.
Þó væri enn meira spennandi, að þeir stjórnuðu af lipurð
en ekki kröftum, eins og oft vill verða hjá þeim óreyndu. Það
er næstum broslegt að sjá þessa hvatskeytslegu handatilburði
og ættu reyndari samstarfsmenn þeirra að leiðbeina ungviðinu.
ALLMIKIÐ mun vera um búðaþjófnað í jóliaösinni, eins og
venja er, en gallinn er sá, að eigendur verzlana taka alltof
vægt á þessum yfirsjónum, og sleppa jafnan sökudólgnum
með smá-áminningu, eða láta sér nægja að taka af þeim þýf-
ið. Þetta er misskilin góðgirni og linkind, og gerir ekki annað
en ala ónáttúruna upp í þessum þokkalýð. Þetta er ein af á-
stæðunum fyrir því, að menn hafa ekki sérstaka samúð með
kaupmönnum og styrkir þetta almenning í þeirri trú, að kaup-
menn séu svo ríkir, að ,,þeim muni ekkert um þetta.“
ÞAÐ VÆRI sannarlega þess virði, ef menn gæfu meiri gaum
að tillögu nokkurra félaga í FÍB um að innsigla bíltækin til að
mótmæla afnotagjaldaráninu. Hér er ekki um annað en þjófn-
að að ræða, því flestir, ef ekki allir bifreiðaeigendur eiga út-
varp heima en vilja gjarna fylgjast með fréttum að heiman. Auð
vitað sér útvarpið, eða fjármálaráðherra, hér einstakt tæki-
færi til þess að ræna úr vasa almennings, enda fer þessi rác$-
herra leitandi eftir lausu fé til að halda hit sinni gangandi. Bíla-
eigendur eiga, allir sem einn, að innsigla tækin, því hér er í
rauninni ekki um annað en lagabrot að ræða, samanber það,
að útvarpstæki eru talin til öryggistækja bílanna, sem ekki fá
öryggisskoðun, nema svínaríið sé greitt.
EINS OG KUNNUGT er, þá er útlendum mönnum og konum,
sem vilja gerast íslenzkir ríkisborgarar, gert að breyta eða
,,íslenzka“ nafnið sitt, oft nafn, sem ætt þess hefur borið um
aldaraðir. Það var því ekki að furða, þótt einum af þessum
útlendingum brygði dálítið í brún þegar hann sá, að umsókn
sín um ríkisborgararétt var veitt, ásamt tilmælum um breyt-
ingu nafns, en það, sem alveg fór með hann var, að undir
bréfið rituðu fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins, persónur, sem
báru ein al-íslenzkustu eftirnöfn, sem um getur, nefnilega:
Auðuns, Möller og Thors.
HEITA MÁ, að ekki sé komandi inn í sjoppur borgarinnar, þær
sem eru einskonar biðskýli, vegna reykhafs, sem krakkar, sem
eru að stelast í að reykja, skapa þarna. Stórir hópar hálfstálp-
aðra unglinga sitja þarna um daga og á kvöldin og púa borg-
inmanlega stubba sína, en flestir hafa sloppið að heiman um
stund til að stunda þessa iðju í smúl. Sjoppueigendur geta
fátt aðhafzt, þeir eru ekki gæzlumenn, en lögreglan ætti að
rusla þessu tóbaksliði út við og við unz þeim verður ekki líft
þar inni né fá tækifæri til að forpesta allt loft þar. Ef þeir þurfa
að reykja, þá geta þeir það eins undir beru lofti.
ÞAÐ ER næsta furðulegt, að í þættinum Frá útlöndum sl.
þriðjudag var staðhæft, að ein af orsökum hins mikla flóða-
slyss í Pakistan væri, að ekkert aðvörunarmerki hefði verið
gefið um hættuna. Sannleikurinn er sá, að hættumerkið var
gefið í fjölmiðlum um yfirvofandi hættu. Bandaríkjamenn að-
vöruðu stjórnina um hvaða héruð væru í hættu, en staðreynd-
in er, að á þessum svæðum er svo lítið um fjölmiðla, útvarp
og sjónvarp, hjá almenningi að allur földinn heyrði ekkert um
hættuna. Auðvitað er skýringin á þessum „fréttum" útvarps-
ins sú, að hatramur kommi er stjórnandi þáttarins og hreinlega
fælist það, að segja eitthvað gott um vestmenn eða stjórnir
yfirleitt, sem ekki lúta yfirráðum skoðanabræðra hans.
Veröld Vinstrimennsku — 16. tilræði: „AMtef tekur
LÝÐRÆÐIÐ GEGN LlFINU. sjórinn við"
Olíuhagvizka drepur
fisk og eyðir súrefni
Gegn ofurveldinu — „Calypso“ kemur til hafnar — 1.000
dýrategundir, 40% sjávarlífsins og 13.000.000 smálestir —
Bókhald Singers — Velferðarkratinn Gustafson — „Það er
kominn tiími til . .
„Taumlaust frelsi, hvort
heldur samfélaga eða ein-
staklinga, virðist aðeins
hafa óbærilegan þrældóm í
för með sér.
iá, auðvitað.
Og þess vegna á harð-
stjórn rætur sínar að rekja
til lýðræðis, og þungbær-
asta tegund harðstjórnar og
þrældóms til öfgafyllsta
frelsis?
Eins og við getum
vænzt.“
— Platon (427—347 f. Kr.),
grískur heimspekingur:
„RÍKIÐ", VIII. bók.
ORÐIN OG RÆÐURNAR
í uphafi var hugsun, og hugsun-
in var sannleikur, og sannleikurinn
var sköpunarverkið. Og sköpunar-
verkið staðfesti náttúrulögmálin —
'eingöngu til þess að þóknast sér
sjálfu.
Milljörðum ára eftir sköpun ver-
aldar varð manneskjan til. Henni
var aldrei ætlað annað en þjón-
ustuhlutverk, göfugt hlutverk í
töfraheimi Iífs og dauða, og til þess
að geta rækt hlutverk sitt með
sóma, var henni lánað mikið, enda
umhverfið henni að mörgu leyti
andsnúið, ef ekki beinlínis fjand-
samlegt, og höfuðskepnurnar algert
ofurefli. Af þeim sökum hlaut
henni að verða lífsnauðsyn að við-
urkenna, að af náttúrunnar hendi
væri hún hlekkjuð fortíð og fram-
tíð, eins og allt annað, lifandi og
dautt, því að alfrjáls manneskja
var og er óhugsandi, en í því, og
dauðanum, er einasta jafnræði
mannanna fólgið, eins og franski
skáldsagnahöfundurinn Henry Bor-
deaux (1870—1963) hefir svo
meistaralega bent á í „La Croisée
des Chemins").
En síðar, löngu síðar, kom lýð-
ræðið, og Iýðræðið kom með öll
orðin sín allar ræðurnar sínar, öll
fyrirheitin sín. Og öll orðin og
allar ræðurnar og öll fyrirheitin
voru hugsunarleysi og lygar.
Og öll orðin og allar rasðurnar
og öll fyrirheitin hafa æ síðan ver-
ið hugsunarleysi og lygar — og eru
því enn.
Og munu ávallt verða.
Þ. e. a. s.: Ef framtíðin er ekki
þegar fortíð.
SAMHLJÓÐA ÁLIT
Allir mikilhæfustu lærdóms- og
vísindamenn heims hafa þungar og
vaxandi áhyggjur af þeim hroða-
legu bölverkum, sem lýðræðisleg
vinstrimennska hefir unnið og vinn
ur viðstöðulaust á sjálfum tilveru-
grundvelli alls lífs á jörðinni. Jafn-
vel hinir peningasjúkustu atvinnu-
Iýðræðismenn komast ekki hjá að
játa. Þannig Iét Bandaríkja-sentator
inn Edmund Muskie, sem langar af-
- Að telja eða velja —
skaplega mikið til þess að komast
á forsetalaun í landi sínu — einn
af átján, — svo um mælt í fyrra:
„Þessi heimur hefir breytzt svo
skyndilega, að morgundagurinn
rann upp í gær."
Þó að hin mesta óvizka sé að taka
orð atkvæðasafnara á borð við
Muskie þennan alvarlega, þá er uml
úr hans horni eigi að síður dágóð
vísbending um hversu geigvænleg
ófremdin er orðin. Svartsýni á því
fullan rétt á sér, er raunsýni, og
ekkert efamál er lengur, að fyrsta
og sjálfsagðasta öryggisráðstöfunin,
sem nú kallar að, er að mýla alla
„bjartsýnismenn" án frekari tafa.
EKKERT ER ALVEG
ÁHRIFALAUST
Hugsunarleysi, ekki miklu síður
en hugsanaauður; Iygar, alveg eins
og sannleiksorð, eru áhrifavaldar,
orsakir. Þessi gagnstæðu öfl eiga
í eiiífri baráttu. Af öllum orsök-
um, stórum og smáum, fyrirsjáan-
legum og ófyrirsjáanlegum, liljót-
ast afleiðingar. Úrslitum veldur um
líf eða dauða, hvort sigurinn fellur
í skaut hægri eða vinstri, lífvernd-
ar eða lýðræðis, í hinni ævarandi
stríðsorrustu þessara ósættanlegu
afla, sem aldrei geta samið frið —
og aldrei mega semja frið. Sátta-
hugmynd af hálfu lífverndarmanna
Bók verður til —
Sænskt gaman —
Hún Ása Kleveland —
Spekingar h.f. —
Dagskrárliðurinn um hversu
bók verður til, er einn af. beztu
fræðsluiþáttum sjónvarpsins, sem
gerðir hafa verið af okkarmönn-
um. Kvikmyndun var með ágæt-
um, kilipping og kúnstin að veilja
og hafna sýndi, að ’parna vont
kunnáttumenn að verki eða a.m.k.
mjög heppnir menn. Forspjall
Laxness var eins og góður leik-
þáttur. Skáldið greip til næstum
listrænna mimimikbragða, sem
hann reyndar er þekktur fyrir,
a,uk þess, sem hann biastti v'ð
nokkrum, sem aðeins nénustu
vinir hans þekkja. Þótt Lamess
væri dáilítið tilgerðairlegur, eins
og sikáldi jafnan hæflr, þá var
ábugavert að heyra frásagnir
hans af því hvernig hann vinnur
verk sitt. Þó myndin fjallaðiað-
eins um bókartilbúning, þáhefðu
margir haft gaman af því að
kynnast örlítið betur einkalífi
skáldsins, daglega háttu hans,
vlnnustofu hans, umhverfi allt,
hvert hann fer í dagllegar göngu-
ferðir o.s.frv. Nóbedsskáld eru
ekki á hverju strái hér og al-
menningur vill gjama vita sem
flest um þessi mikilmenni. Kvik-
myndun í prentsmiöju vareink-
ar góð og fylgjandi skýringar
með miklum ágætum.
★
Bkki virðist ferðailag Andrésair
Indriðasonar um Hafnarstræli
væri glæpur, af hálfu lýðræðis-
manna hræsni.
Hiklaust og hreinskilnislcga
gangast flestir hægrimenn við þeirri
raunalegu skoðun sinni, að þeim
finnst möguleikar lýðræðisins á end
anlegum sigri yfir mannkyninu
vera yfirgnæfandi rniklir og alveg
á næsta leiti. Á meðan enn hefir
ekki svo af þeim dregið að þeir
hafa þrótt í sér til þess að tyggja
smjörið, þrjózkast þeir samt sem
áður við að kasta trúnni á krafta-
verkið, enda hefir aldrei neinn
grætt á að gefa skák. Alltaf er sá
möguleiki fyrir hendi, að fjandinn
leiki af sér, eða að af litlum neista
kvikni stórt bál, auk þess, sem al-
kunna er, að kraftaverk hafa oftast
gerzt.
En, eins og að framan segir, fulln
aðarsigur vinstrimennskunnar, alls-
herjartortímingin, virðist nálgast
risaskrefum. Mér er leikur einn að
leiða ótal vitni, sem enginn hag-
vaxtarhálfbjáni þyrði að reyna að
andmæla, staðhæfingu minni til
stuðnings. Að þessu sinni læt ég
hins vegar tvo vitnisburði nægja.
VITNISBURÐUR UM
DAUÐASTUNUR
ÚTHAFANNA
Fyrri hluta September þ. á. kom
franski djúpsjávarkönnuðurinn
Jacques-Yves Cousteau heim aftur
úr 3J2 árs rannsóknarleiðangri á
skipi sínu „Calypso". Leiðangurinn
hafði farið rösklega, 25Q.000 km
Framhald á 9. síðu.
hafa tekizt betur en eltingaleik-
ur hans við barna- og strætis-
va,gna í Aðalsitræti á dögunum.
Þátturinn var ilíla unninn, ó-
heflaður og ósköp vandræðaleg-
ur, eiginlega ekki getað orðið
miklu lakari þótt ólærðir hefðu
verið að verki. Vélin var óstöð-
ug í rásinni, og þótt talið fylgdi
nú sasmilega, en ekki meira vél-
inni, þá var þessi óskapnaður
einstakilega rislár. Val gamalla
mynda var einhæft og tilbreyt-
ingalaust og er þó úr nógu að
velja. Þessir þættir eru lítils
eða einskis virði frá listrænu
sjónarmiði, þiótt texti Árna Óla
sé með ágætum.
★
Sænskur skopleikur. Þvílfk
háðung.
★
Gaman var að hejrra í hinm
umtöluðu norsku söngkonu Ase
Framhald á 5. síðu.