Tíminn - 16.07.1977, Blaðsíða 9
Laugardagur 16. júli 1977
wmmm-
Otgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Jón Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrimur
Gisiason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindar-
götu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aöalstræti 7, simi
26500 —afgreiöslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verö
i lausasölu kr. 70.00. Askriftargjaid kr. 1.300.00 á mánuöi.
Blaöaprent h.f.
Næsti áfangi í
landhelgismálum
Með Oslóarsamningnum sem gerður var i
fyrra, náðist fullur sigur i þeirri sókn að færa
fiskveiðilögsögu Islands út i 200 milur. íslend-
ingar hafa nú tryggt sér full yfirráð yfir fiskstofn-
unum á þessu stóra hafsvæði. En þó þetta mikil-
væga takmark hafi náðst, væri rangt að ræða um
það sem einhvern lokasigur. Miklu fremur er rétt
að ræða um það sem þýðingarmikinn áfanga. 1
framhaldi af honum biður annar áfangi, sem er
engu þýðingarminni. Hann er fólginn i þvi, að
tryggja sem hagkvæmasta nýtingu fiskveiðilög-
sögunnar. Stefnan á þvi sviði hefur enn ekki verið
mótuð, nema að litlu leyti. Árekstrar þeir, sem
nýlega urðu milli sjávarútvegsráðherra og Haf-
rannsóknarstofnunarinnar, sýna mikinn ófull-
komleika þess skipulags, sem nú er búið við i
þeim efnum. Hér skal aðeins vikið að nokkrum
atriðum, sem biða fullkomnari stefnumótunar.
I fyrsta lagi er þess að gæta, að samkvæmt
væntanlegum hafréttarlögum eða hafréttar-
venjum, verður strandrikið að ákveða á sem rétt-
astan hátt, hve mikill leyfilegur afli megi vera og
hve mikið strandrikið getur sjálft hagnýtt af
honum Þessar áætlanir þarf að búa þannig úr
garði, að þær verði sem minnst véfengdar af er-
lendum aðilum, sem telja sig eiga rétt til þess,
sem strandrikið getur ekki hagnýtt sér sjálft. Hér
þarf að koma á traustu samstarfi milli visinda-
manna og stjórnmálamanna.
í öðru lagi þarf svo að gera sér sem fyllsta
grein fyrir þvi hvernig nauðsynlegri verndun
fiskstofnanna verði bezt komið fyrir á þann hátt,
sem hagkvæmast er þjóðinni. Nú er reynt að
framkvæma þetta með ýmiss konar hólfum, þar
sem veiðar eru ýmist bannaðar eða takmarkaðar
i ákveðinn tima. Þá er talað um að banna veiðar
vissra fiskiskipa i lengri eða skemmri tima.
Ýmsir, sem um þessi mál hafa fjallað, eins og
Kristján Friðriksson hafa sett fram hugmyndir
um annað fyrirkomulag. Allt þetta þarf að taka
til gaumgæfilegrar athugunar og leitast við að
marka sem hyggilegasta framtiðarstefnu i fisk-
verndarmálum.
í þriðja lagi verður i sambandi við framan-
greind atriði að hafa fiskmarkaðina meira i huga.
Framundan biður harðnandi samkeppni á þeim.
T.d. hyggja Bandarikjamenn að stórauka fisk-
veiðar sinar i framhaldi af útfærslu fiskveiðilög-
sögunnar. Þvi þurfa íslendngar að leggja áherzlu
á að framleiða fyrst og fremst gæðavöru og
tryggja sér þannig hæsta verð. í samræmi við
það verður að haga bæði veiðunum og vinnslunni.
Gæðin hafa oft meira að segja en magnið.
í fjórða lagi þarf að auka eftir megni veiðar
þeirra fisktegunda, sem nú eru vannýttar, þvi að
eíía geta komið fram kröfur frá erlendum aðilum
um nýtingu þeirra.
Mörg atriði önnur mætti nefna, þar sem eftir er
að móta þau úrræði, sem eru vænlegust til að
tryggja hagkvæmust not hinnar stækkuðu fisk-
veiðilögsögu. Það er vafalaust eitt stærsta vel-
ferðarmál þjóðarinnar að hér verði mótað sem
réttust stefna. Annars getur útfærsla fiskveiði-
lögsögunnar ekki reynzt sá ávinningur og þjóðin
hefur gert sér vonir um. Framar öllu verður þó
það sjónarmið að rikja, að ekki verði gengið um
of á fiskstofnana. Þá gæti jafnvel svo farið að sig-
urinn i Osló glataðist.
liiiiíi'
9
ERLENT YFIRLIT
Ræður Yeh eins
miklu og Hua?
Margt bendir til þess að svo sé
1 KINVERSKUM fjölmiölum
er haldiö áfram aö tefla Hua
Kuo-feng fram viö hliöina á
Maó og ekkert tækifæri látiö
ónotaö til aö segja frá honum
og störfum hans. 1 hvert sinn,
sem erlend sendinefnd kemur
til Kina, eru birtar af honum
myndir, þar sem hann er aö
taka á móti nefndarmönnum
eöa er aö ræöa viö þá. Þá eru
birtar myndir af heimsóknum
hans á vinnustaöi, og viö
margvisleg tækifæri önnur. Aö
sjálfsögöu er vitnaö óspart til
þess, sem hann hefur sagt viö
umrædd tækifæri. Öhætt er aö
fullyröa, aö enginn þjóöarleiö-
togi fær nú meira rúm I fjöl-
miölum lands sins en Hua
Kuo-feng.
Þrátt fyrir þetta draga
margir fréttaskýrendur i efa,
aö Hua sé oröinn eins traustur
I sessi og ráöa mætti af fjöl-
miölunum. Þvert á móti telja
ýmsir þeirra, aö þessi mikli
áróöur rekji rætur til þess, aö
nauösynlegt þyki aö reyna aö
styrkja stööu hans á þennan
hátt. Þá þykir þaö koma betur
og betur i ljós, aö viö hliö Hua,
eöa á bak viö hann, standi
maöur, sem sé álika valda-
mikill eöa jafnvel valdameiri.
Þetta er Jeh Chien-Ying
varnarmálaráöherra, sem er
varaformaöur flokksins og
herráösins. Yeh var áöur einn
af fimm varaformönnum
flokksins, en hinir fjórir eru
ýmist látnir eöa hafa lent I
ónáö. Aö nafni til gengur Yeh
þannignæsturHua aö völdum,
en hann hefur þaö umfram aö
gegna embætti varnarmála-
ráöherrans, en ekki er ólik-
legt, aö þaö sé nú valdamesta
embætti landsins. Fleira og
fleira er aö koma i ljós, sem
bendir til þess, aö herinn hafi
ráöiö mestu um þaö eftir frá-
fall Maos, aö völdin lentu hjá
Hua en ekki fjórmenningunum
svonefndu, sem falliö hafa I
ónáö.
ALYKTUNIN um vaxandi
völd og áhrif Yeh er m.a.
dregin af þvi, aö hann kemur
nú meira og meira fram og er
þá jafnan sýndur sem jafnoki
Hua. T.d. ræddu þeir nýlega
viö sendinefnd frá Vftnam,
sem var undir forsæti Giaps
hershöföingja. A myndum,
sem voru birtar frá þessum
viöræöum, var þeim stillt upp
nákvæmlega eins, en rööun á
leiötogum Kinverja viö slfk
tækifæri þykir yfirleitt vis-
Yeh Ching-Ying
bending um hvar þeir standa I
valdastiganum.
Annaö dæmi, sem þykir
sýna vaxandi áhrif Yehs er
þaö, aö kínverskir fjölmiölar
hefja nú Chu En-lai oröið
næstum eins mikiö til skýj-
anna og Maó sjálfan. Þeir Yeh
og Chou voru mjög nánir sam-
verkamenn.
Yeh hefur aldrei veriö mikiö
fyrir þaö aö koma fram opin-
berlega og þvi getur hann
vafalaust unnt Hua þess aö
láta meira á sér bera, enda
virðist flest benda til, að Yeh
hafi ráöiö mestu um, aö Hua
var valinn formaöur flokksins,
ogaö hann ætli Hua forustuna
I framtiöinni. Yeh mun vafa-
litib ekki sækjast eftir henni,
enda er hann oröinn 78 ára.
Sennilega lltur hann nú á þaö
sem eitt helzta hlutverk sitt aö
styrkja Hua. Fyrir Hua er þaö
lika vafalaust mikill styrkur
aö hafa Yeh viö hliö sér, en
hann nýtur mikils trausts hjá
hernum, enda veriö aöalleiö-
togi hans um langt skeiö. At-
hygli hefur vakiö aö undan-
förnu, aö verulegar breyting-
ar hafa orbið á yfirmönnum i
hernum.einkum þó I flughern-
um og sjóhernum. Ekki þykir
ósennilegt, aö Yeh sé þar aö
fjarlægja menn, sem hafa þótt
standa of nærri fjórmenning-
unum svonefndu.
YEH er ættaöur frá Kanton.
Ýmsar fréttir frá Kina þykja
benda til, aö Kanton sé aö
veröa ein mikilvægasta miö-
stöö hersins og raunar sé
hemum I Suöur-Kina alveg
stjórnaö þaðan. Ýmsir frétta-
skýrendur telja, aö hér sé Yeh
aö verki og þyki honum þetta
nauösynlegt til aö treysta
stööu sina.
Þá hefur nýlega veriö til-
kynnt, aö geröar hafi veriö
nýjar áætlanirum aö efla her-
inn og búa hann fullkomnustu
vopnum, svoaö hann veröi fær
um aö mæta hvaöa andstæö-
ingi, sem er. Enn er þvi haldið
fram, aö hér hafi Yeh verið aö
verki, en hann er talinn sér-
staklega tortrygginn I garö
Rússa, enda má ráöa þaö af
rússneskum fjölmiðlum, aö
þeir hafi talið, aö framan-
greindum ummælum væri
stefnt gegn Sovétrlkjunum.
Þ.Þ.
Yeh (lengst til vinstri) og Hua (lengst til hægri) tala viö Giap
Þ.Þ.