Tíminn - 16.07.1977, Blaðsíða 17

Tíminn - 16.07.1977, Blaðsíða 17
Laugardagur 16. júli 1977 17 ZICO Brasi- lía til Argen- tínu Brasiliumenn tryggöu sér far- seðilinn til Argentínu, þegar þeir unnu stórsigur (8:0) yfir Bóliviu i aukakeppni HM i Suður-Ameriku, þegar þjóðirnar mættust I Kolombiu á fimmtudagskvöldið. 50 þús. áhorfendur sáu Brassana leika sér að Boliviu-mönnum, eins og köttur að mús — og enginn lék betur en nýi PELÉ þeirra Brasiliumanna, ZICO, sem skoraði fjögur mörk i leiknum. Zico, sem er nú talinn einn fremsti knattspyrnumaður heims, var óstöðvandi — og átti hann þátt I flestum hinum mörkum Brassanna, sem þeir Gil, Roberto, Marcelo og Ger- ezzo skoruðu. Perú leikur gegn Boliviu á morgun i keppninni og sigurvegarinn i þeim leik fer einnig til Argen- tinu, þar sem lokakeppni HM fer fram 1978, en sú þjóð sem tapar, leikur aukaleik gegn Ungverjalandi um sæti i HM I Argentinu. ATLI...sést hér skora fyrra mark Valsmanna I gærkvöldi. (Timamynd.G.E.) Valur ruddi erfiðum keppinautum úr ve — unnu sætan sigur (2:0 ) yfir Eyjamönnum í gærkvöldi — Við náðum þvi sem við ætluö- um okkur, sagði Ingi Björn Al- bertsson, fyrirliði Valsliðsins, i gærkvöldi, eftir að Valsmenn höfðu unnið sætan sigur (2:0) yfir Eyjamönnum I 1. deildarkeppn- inni. — Við gerðum okkur grein fyrir þvi, að það var annaö hvort að duga eða drepast — við máttum ekkert gefa eftir, sem okkur tókst ágætiega, og upp- skárum sigur, sagði Ingi Björn. Leikurinn i gærkvöldi bauð upp á allt, sem knattspyrna getur boðið upp á — spennu, marktæki- færi og fjöruga knattspyrnu. Ingi Björn átti fyrsta tækifærið I leikn- um — en honum brást bogalistin, skallaði i stöng af stuttu færi. Þetta kom þó ekki að sök, þvl að stuttu siðar (21. min.) skoraöi Atli Eðvaldsson fyrra mark Vals- manna, eftir að Bergsveinn Al- fonsson hafði sent knöttinn fyrir mark Eyjamanna, þar sem Atli var staddur á réttum stað og renndi knettinum örugglega I net- ið. Valsmenn gerðu út um leikinn i byrjun fyrri hálfleiksins, þegar Guðmundur Þorbjörnsson skor- aði stórglæsilegt mark, með þrumuskoti. Eftir markið lögðust Valsmenn I vörn, ákveðnir að halda forskotinu, sem þeim og tókst, þrátt fyrir mikla pressu Eyjamanna, sem náðu ekki að leika á sterka varnarmenn Vals. MAÐUR LEIKSINS: Tómas Pálsson, sem sýndi enn einu sinni, að hann á heima i landslið- inu. Elías sviptur meistaratitlÍTmnn — í spjótkasti, fyrir að keppa í vinnufötunum Elias Sveinsson, hinn fjöl- hæfi frjáisiþróttamaður úrKR, var öruggur sigur- vegari i spjótkasti á Reykjavíkurmeistara- Dave Sextoná Old Trafford mótinu i frjálsum iþróttum, þar sem hann keppti i vinnufötunum, hefur verið sviptur meistaratitlinum og þarf þvi að skila verðlauna- peningi sínum. Framkvæmdaaðilar mótsins ákváðu þetta, þar sem þeir töldu að Elias hefði óvirt bæði mótið og mótherja sina i spjótkastinu, með þvi að keppa i vinnufötunum. Stefán Halldórsson úr !R varö þvi Reykjavikurmeistari. ELÍAS SVEINSSON — þar sem hann tekur við stjórninni hjá Manchester United DAVE SEXTON, fram- kvæmdastjóri Lundúnaliðsins Queens Park Rangers, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Manchester LJnited. — Ég hlakka til að hefja störf á Old Trafford og vona aö okkur takist að tryggja okkur Eng - landsmeistaratitilinn, sagði Sextonistuttuviðtali, eftiraöþaö varð ljóst, að hann myndi taka við stjórninni á Old Trafford. Sexton er enginn viðvaningur — hann hefur náð mjög góöum árangri hjá Lundúnaliðinu Orient, Chelsea og Q.P.R. sem framkvæmdastjóri — þá hefur hann veriðþjálfarihjá Arsenal og Fulham. Sexton hefur mjög góða hæfileika og þarf ekki aö efa, að hann muni fylla þaö skarö, sem Tommy Docherty skilur eftir sig á Old Trafford. SEXTON....er ánægður að vera kominn tii Manchester United. Fer Dalglish frá Celtic? Skozki landsliðs ma ður in n Kenny Dalglish, hjá Celtic, er mjög óánægður hjá Ceitic — og hefur hann lent i árekstrum við forráðamenn félagsins að undanförnu. Dalglish, sem hef- ur farið fram á kauphækkun að undanförnu, án þess að kröfum hans hafi verið svarað, fór ekki með Celtic-liðinu I keppnisferð- ina til Astraliu, sem nú stendur yfir. Þessi ákvörðun hans á örugg- lega eftir að draga dilk á eftir sér, þvi að forráðamenn Celtic eru ekki yfir sig hrifnir af fram- komu hans, eins og skiljanlegt er. Það má þvi búast við tiðind- um hjá Celtic á næstunni — og er liklegt að Dalglish verði sett- ur á sölulista.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.