Tíminn - 16.07.1977, Page 13

Tíminn - 16.07.1977, Page 13
Laugardagur 16. júli 1977 13 hljóðvarp framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan LÍKI OFAUKIÐ Laugardagur 16. júli 7.00 Morgunútvarp Veöur- fregnirkl. 7.00, 8.15og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00: Kristján Jónsson held- ur áfram að lesa ævintýrið um „ívan Tsar og villiúlf- inn”, Magnea Matthiasdótt- ir Islenskaði (2). Tilkynn- ingar kl. 9.30. Létt lög milli atriöa. óskalög sjúklingakl. 9.15: Kristin Sveinbjörns- dóttir kynnir. Barnatimi kl. 11.10: Þetta vil ég heyra. Börn velja efni til flutnings i samráði við stjórnandann, Guðrúnu Birnu Hannesdótt- ur. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 12.30 Laugardagur til lukku Svavar Gests sér um þátt I tali og tónum. (Fréttir kl. 16.00, veðurfregnir kl. 16.15). 17.00 Létt tónlist „Fjöll og firnindi” eftir Ama Óla Tómas Einarsson kennari les um ferðalög og hrakn- inga Stefáns Filippussonar (4). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Allt i grænum sjó Stolið stælt og skrumskælt af Hrafni Pálssyni og Jörundi Guðmundssyni. 19.55 Vor i Vestur-Evrópu Jónás Guömundsson sér um annan slikan þátt I tali og tónum. 20.30 Atriði úr óperettunni „Ævintýrum Hoffmanns” eftir Jacques Offenbach Flytjendur: Rita Streich, Rudolf Schock og fl. ásamt kór og hljómsveit Rikis- óperunnar i Berlin, Wilhelm Schuchter stj. 21.10 „Friöjón kemur i heim- sókn”, smásaga eftir Hrafn Gunnlaugsson Höfundurinn les. 21.30 Hljómskálamúsik Guð- mundur Gilsson kynnir. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. Heimilis ánægjan eykst með Tímanum --------c 12. kafli Klukkan var ekki enn orðin átta, en Milan fann Silone á skrifstof u sinni. Nat brosti sínu daufasta brosi og benti i áttina að stól. Milan settist og laut áfram. — Hún fór út að ganga í dag, sagði hann bálreiður. — Og þegar hún kom aftur, var Whiting þar fyrir. — Það hljómar óhugnanlega, sagði Silone. Það virtist þó ekki hafa sérstaklega mikil áhrif á hann. — Ég skal sjá um hann, svaraði Milan. — Hún var með skilaboð frá þér. Silone kinkaði kolli. Hann brosti aftur til Milans. — Fran hringdi til mín. — Hún sagði mér það. — Og, hélt Silone áf ram. — Strákarnir hans Max Kane náðu henni og óku með hana þangað út í heimsókn. — Hún sagði ekki orð um það, hvæsti Milan reiðilega. — Ég býst við að hún haf i vitað að ég mundi segja þér það, ef ég kærði mig um að þú vissir það, sagði Silone hægt. — Og ég vildi það. Milan hallaði sér aftur á bak og reyndi að slaka á. Það þýddi ekkert að reyna að berjast gegn Silone vegna slíkra hluta. Silone mundi segja honum það sem hann vildi að hann vissi, þegar honum fyndist tími til kominn. Allt annað varð hann að grafa upp sjálfur. — Hvað gerði Kane? — Hann sýndi lit, svaraði Silone. — Hann sagði það ekki, en greinilegt er að hann hef ur haft auga með íbúð- inni þinni. — Ég efast um að menn hans hafi séð hana í bænum bara af tilviljun, samþykkti Milan. — Einhver hefur kannski stungið upp á því að hann sendi mann yfir til þín til að athuga hvort hún væri þar, sagði Silone. — Hvers vegna? spurði Milan. — Hvaða máli skiptir það hann? — Kane er lítt hrif inn af mér, minnti Silone hann á. — Það er önnur ástæðan. Hin er sú, að hann langar til að ná sér niðri á mér. Hann heldur að ég sé í klípu núna. Hann þagnaði og barði f ingrunum í borðið.— Hann hef ur verið á eftir mér lengi. Ef honum tekst að brjóta mig niður, getur hann líka hreinsað út úr hinum klúbbunum og tryggt sjálfan sig. Hann langar til að vera stóri maður- inn á staðnum. — Ég þekki Max Kane, sagði Milan. — Fram að þessu, hélt Silone áf ram., eins og hann hefði ekki heyrt innskot Milans, — hef ég getað haldið honum í hæfilegri fjarlægð. En morðið á Neilson rétti honum tækifæri upp í hendurnar og hann ætlar að nota það til hins ítrasta. — Hvað á ég að gera við því? Silone opnaði skúffu og tók upp peningabúnt. — Komstu að, hvað hann hef ur í hyggju. Ég hef mínar hug- myndir um það, en mig vantar traustar upplýsingar. Milan horfði á peningana. Það voru stórir seðlar. — Haltu aurunum þínum, sagði hann. — Ég skal senda þér skýrslu. Hann stóð upp, en röddin var bitur. — Hvenær fæ ég sjálfur einhver svör, Nat? — Ég hef sagt þér allt, sem ég veit, sagði Silone ofur rólegur. — Þú hefur ekkertsagt mér, svaraði Milan. Hann lagði hendurnar á skrifborðsbrúnina og laut áfram. — Rick, sagði Silone. — Ég get ekki meira. Ég vildi heldur að þú létir málið niður falla, en að þú tækir það þannig. Milan bölvaði. Silone brosti sínu blíðasta á meðan. En svo hélt Milan áfram: — Þú veizt að ég gæti ekki hætt núna þótt ég feginn vildi. — Gerðu bara það sem í þínu valdi stendur, hélt Silone áfram. — En þú verður að flýta þér. Ogle er farinn að snuðra og hefur áreiðanlega fljótlega uppi á þér. — Ég á von á honum á hverri stundu, svaraði Milan. — Og ef Fran vill vera kyrr í felum, er mögulegt að ég geti gert eitthvað. Ef Fran héldi sig í felum. Hann mátti ekki vera að því að gæta hennar lengur. Honum var alveg sama þó að lög- reglan næði henni, nema hvað þeir kæmust ef til vill á slóð hans gegnum hana. Hann langaði ekki hið minnsta til að eyða tímanum í fangelsi. Ekki með þá hugmynd, sem hann hafði fengið af því sem Silone hafði sagt um Max Kane. — Fyrst ég er hérna, sagði Milan, — þá get ég alveg eins talað við Emile. Hvenær kemur hann? — Hann kemur ekki, svaraði Silone. — Hann hringdi og sagðist vera veikur. Ég sé um rúllettuna hans i kvöld. Milan hnussaði. — Veikur? Þessir stóru menn verða aldrei veikir. Silone brosti. — Hann er taugaóstyrkur, Rick. Þegar hann verður æstur, kemur það niður á maganum í hon- um. Hann sagði að lögreglan hefði kallað sig á stöðina og yfirheyrt sig aftur í dag. Mér heyrðist hann vera alveg bugaður. Milan spurði ismeygilega: — Það er víst ekki vegana þess að hann var vitni að morðinu á Neilson, sem hann er veikur? Silone leit ekki undan. — Ég get ekki séð hvers vegna það ætti að vera. Hiller var líka vitni og hann er í f ullu f jöri. — Allt í lagi, svaraði Milan. — Ef hann kemur ekki, ætla ég ekki að bíða. Hann gekk yf ir að dyrunum. — Ég skal láta þig vita um Kane, bætti hann við um leið og hann gekk út. Milan stöðvaði bíl sinn í þröngri götu. Hann fann lykt- ina af sjónum nokkru f jær, þegar hann gekk niður göt- una. Milan hafði komið hingað áður og hann opnaði dyrnar á tveggja hæða húsi og gekk inn í illa upplýst and- dyri. Tvær íbúðir voru á neðri hæðinni og breiður stigi lá upp að þremur á efri hæðinni. Milan gekk upp, beygði til vinstri og gekk ganginn á enda. Hann barði að dyrum á herbergi númer þrjú og beið. Það var Ijósrák undir hurðinni og hann heyrði hreyfingu að innan. Hann barði aftur fastog þá heyrðist gengið yfir gólfið. Dyrnar voru opnaðar nægilega mikið til að Milan sá karlmann gægjast hikandi fram fyrir. Hann sagði nánast undrandi: — Gott kvöld, Fritz! Er Emile hérna? Maðurinn var kringluleitur, ekki ólíkur Emile, en varla jaf n feitur. Yf irskegg hans var svart og gerði hann fremur skuggalegan á svipinn. — Emile er fluttur, svaraði Fritz. Milan sá að hann var bæði óstyrkur og óvinveittur hon- um. — Allt í lagi, sagði Milan. — Svo Emile er fluttur. Hvert? — Veit það ekki, svaraði Fritz. Milan svaraði reiðilega: — Hann er bróðir þinn og þú ert í hans íbúð. — Ég veit það ekki, endurtók Fritz. Hann talaði með daufum erlendum hreim. — Hann fór í dag. Hann ætlaði að loka dyrunum. Milan stakk fætinum á milli starfs og hurðar og setti öxlina í hurðina um leið. Fritz reyndi að ýta á móti, en Milan hafði opnað nógu mikið til að hann gat smeygt hendinni inn fyrir og gripið í skyrtu Fritz. Fritz sleppti

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.