Tíminn - 17.09.1977, Blaðsíða 3
Laugardagur 17. september 1977
3
ronr nm > wut\KsriÁr ski'Tkubkr i«rr
the icelanders cometh
the good wool sweaters. ..from the far north.
and not a moment too soon. (winter hovers.)
Hond-knt cf pure Þand-spuo 'ce'cnd-c woo'
Eacnoneu- cue c.-. 'ca •.»su3' ihecreafonof
a D’ot'd crsítsman An3 beccjse they're woo'.
they'ra na*urc"y wa-m.protect ve.comfortaWe.
Wcc' ‘n a ctass by itse'f.
In nafura'. chárcoal btown. g'ey 75 00.
The lce'anders — just part of a world-wide
co>'ection of wonderful wool sweate'
new Mcmespun Sncp. Mdn Leve' New Yorl
Jenk'ntown cnd c: fastvon br jnches.
i
%
2
the men s store
tírvalsvara —
14.500
1 New York Times birtist á
dögunum nær heilsiðuauglýsing
um islenzkar ullarpeysur frá
fyrirtækinu Bloomingdales i 3.
stræti i New York. Lögð var á-
herzla á að peysurnar væru
handprjónaðar og úr handspun-
inni ull án nokkurrar iblöndun-
ar, komnar úr fjarlægu norðri.i
senn hlýjár og þægilegar úr
náttúrulegu efni. Ekki var þess
kronur
dulizt að peysurnar eru dýrar,
75 Bandarðcjadalir, eða sem
næst 14.400 krónur islenzkar.
Eins og kunnugt er fá islenzk-
ar konur sem prjóna þessar
peysur, sem auglýstar eru sem
einstök úrvalsvara og seldar
dýrum dómum i stórborgum
heims, harla litið fyrir sinn
snúð.
Kínversk vináttu-
nefnd til íslands
í dag kemur hingað til lands 8
manna sendinefnd frá Vináttu-
samtökum kinversku þjóðarinnar
við erlend riki i boði klnversk-
Islenzka menningarfélagsins.
Formaður sendinefndarinnar
er Frú Ting Sjö-sung, varafor-
maður vináttusamtakanna og .
fulltrúi á f jórða þjóðþingi Alþýðu-
lýðveldisins Kina. Aðrir i nefnd-
inni eru:
Li Tsúven, forystumaður i
Shanghai-deild Vináttusamtak-
anna,
Feng Chi, ljóðskáld og
prófessor i erlendum bókmennt-
um, forstöðumaður
rannsóknastofnunar i erlendum
bókmenntum við Kínversku
félagsvisindaakademiuna,
Rebiya Mohammet (kona), frá
Sinkiang-Uighur-sjálfstjórnar-
svæðinu, sópransöngkona, vara-
forstöðumaður menningarmala-
íslendingur
fórst á Spáni
áþ-Reykjavik23ára gamall mað-
ur, Hafþór Pálmason, lézt er
hann lenti fyrir bil að kvöldi 30.
ágúst i Torremolinos á Spáni.
Hann dvaldist þar á vegum ferða-
skrifstofunnar Útsýnar.
Hafþór var ekki með nein skil-
riki á sér, þegar slysið varð, og
þvi var ekkihægtað berakennsl á
manninn, fyrr en myndum af
honum haföi verið dreift á lög-
reglustöðvar og sjúkrahús.
Hafþór andaðist á sjúkrahúsi
þann 10. þessa mánaðar, en utan-
rikisráöuneytinu barst ekki til-
kynning um lát hans frá spönsku
lögreglunni fyrr en fyrir tveimur
dögum. Hafþór var einnslns liös i
ferðinni, og var hans ekki saknað
fyrr en nokkru eftir slysið.
li'iilii!
Virginia Haviland sem veitir forstöðu barnabókadeild Library og Congress I H ashington sem er stærsta
bókasafn i heimi. Við hliöhennar er MargaretN. Coughlen, sem einnig starfar við deildina. Þær eru hér
að skoða bækur Guðrúnar Helgadóttur um Jón Odd og Jón Bjarna og t afahúsi, sem höfundur var aö
enda við að færa barnabókadeild Bandarfkjaþings að gjöf. —Timamynd: Gunnar.
ÍSLENZK SKÁLDSAGA
á skrá um 20 beztu barnabækurnar
i Bandarikjunum
— Það krefst ekki siður ná-
kvæmni og bókmenntalegra hæfi-
leika að skrifa barnabækur en að
skrifa fyrir fullorðna. Að mörgu
leyti cr erfiðara að semja fyrir
börn en aðra lesendur. Tökum t.d.
frásagnir i myndabókum. Þar er
hvert orð geysimikilvægt vegna
þess hve stuttar sögurnar eru.
Hér er komin Virginia Haviland
frá bókasafni Bandarikjaþings I
Washington, en þar veitir hún for-
stöðu barnabókadeildinni. I ferð
með henni er Margaret N.
Coughlen, sem einnig starfar á
deildinni en þær eru að koma af
tveim þingum bókasafnsfræðinga
I Evrópu. t gegnum kynni við is-
lenzka bókasafnsfræðinga varð
það úr að þær heimsóttu tsland I
heimleiðinni.
Þórdís Þorvaldsdóttir og Sig-
rún Hannesdóttir sátu með þeim
þing alþjóðasamtaka bókasafns-
fræöinga, IFLA, i Brussel, og sú
siöarnefnda fylgdist með hring-
borðsumræðum, sem Virginia
Haviland stýrði um barnabók-
menntir og rannsókna aðstöðu
fyrir barnabókahöfunda og aðra
áhugamenn. Hringboröshópur-
inn, sem þarna kom saman, mun
starfa áfram i þvi skyni að verða
tengiliður þeirra, sem áhuga hafa
á þessum málum.
Sigrún Hannesdóttir lét i ijós
við Timann að brýn þörf væri á
skrifstofu Sinkiang-fylkis og
varamaður á fjóröa þjóöþinginu,
Li Ming-tsjang pianóleikari,
hlaut m.a. fyrstu verðlaun i
Enescú alþjóöa pianókeppninni
árið 1958.
Liu Teh-hai, einleikari á Pipa,
en þaö er kínversk lúta,
Fan Jú-gang, stjórnarmaður
vináttusamtakanna og Vang
Tsen-sing, starfsmaöur samtak-
anna.
Sendinefnd þessi mun dveljast
hér á landi til 25. sept. Hún mun
ganga á fund forseta tslands, hitt
að máli ráðherra og forystumenn
verklýðsmála, ferðast til Vest-
mannaeyja og austur fyrir Fjall,
en I þeim leiðangri mun verða
komið viö i Mjólkurbúi Flóa-
manna, Búrfellsvirkjun skoðuð
og Sögualdarbærinn, Gullfoss og
Geysir, og enað á Þingvöllum.
Mánudaginn 19. þessa mánað-
ar verður haldinn almennur fund-
ur að Hótel Sögu, Atthagasal, kl.
20:30.
Miövikudaginn 21. sept. munu
listamennirnir i hópnum, Li
Ming-tsjang pianóleikari,
Reibiya Mohammet sópransöng-
kona og Liu Teh-hai lútuleikari,
halda almenna tónleika I sam-
komusal Menntaskólans viö
Hamrahlið, þar sem leikin verða
verk kinverskra, norskra og
islenzkra höfunda. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
þvi að rannsóknaraðstöðu fyrir
barnabækur yrði komið upp i
Landsbókasafni tslands, en bóka-
safnsfræðingar telja að slik að-
staða þurfi að vera a.m.k. I
hverju landi.
— Barnabókadeildin i Library
og Congress var stofnuð 1967,
sagði Virginia Haviland. Þar er
reynt að gefa öllum þeim scm á-
huga hafa á barnabókum, tæki-
færi til að kynnast þvi fjölbreyti-
lega barnaefni, sem til er á ensku
og öðrum málum. Safnið fær ein-
tök af öllum barnabókum, sem út
koma I Bandarikjunum. Við eig-
um einnig stórt safn erlendra
barnabóka á meira en 60 tungu-
málum,þ.á.m. islenzku. 1 safninu
eru ennfremur um 16.000 gamlar
og sjaldgæfar barnabækur. IJinn-
ig eigum við mjög mikið af sagn-
fræðibókmenntum fyrir börn.
— Segja má að viö þjónum
þeim, sem þjóna börnum. A
barnabókadeildina koma rithöf-
undar, útgefendur, kennarar,
þeirsem eru að kynna sér barna-
bókmenntir og yfirleitt allir þeir
sem áhuga hafa á lesefni barna.
Við fáum upphringingar hvaðan-
æva að úr Bandarikjunum og til-
skrif frá fjarlægum og nálægum
löndum.
Arlega gefur safnið út lista yfir
frábærar barnabækur, sem koma
út I Bandarikjunum. A þennan
lista komast 200 bækur af um
2000, sem venjulega eru gefnar út
árlega. Ellefu manna nefnd velur
bækur á listann , og sit ég I henni.
Við hittumst mánaöarlega til
skrafs og ráðageröa um bækur
sem við höfum lesið. Aö þessu
sinni veröur islenzk bók á listan-
um, Dalurinn eftir Þorstein Stef-
ánsson sem raunar er þýdd á
ensku úr dönsku.
Þessi listi er aðeins ein af
mörgum bókaskrám sem við gef-
um út. Mikilvægust þeirra kemur
út á fimm ára fresti Children
Þorsteinn Stefánsson rithöfundur.
Literature: A Guíde to Reference
Sources, sem er e.k. handbók
handbókanna i barnabókmennt-
um og notuð um allan heim.
Einnig gengst barnabókadeild-
in fyrir sýningum, og gefur þá
gjarnan út veglegar sýningar-
skrár með upplýsingum um bæk-
ur og höfunda. Sem dæmi má
nefna bókasýningu í tilefni 200
ára afmælis Bandarfkjanna og
sýningu helgaða Louisu Alcott,
sem efnt var til fyrir fáum árum.
1 barnabókadeildinni i Library
og Congress eru þrir fastir starfs-
menn en við eigum aö fá einn til
viðbótar innan tiðar. Og i þessari
upplýsingamiðstöö barnabók-
mennta fyrir allan heiminn, rikir
sannarlega ekkert karlaveldi, þvi
þaö er karlmaöurinn sem varð
eftir heima, hann er ritari og
flokkunarstjóri meöan forstöðu-
konan og aðstoðarkona hennar
fóru að þinga i f jarlægum löndum
og kaupa sjaldgæfar barnabækur
af fornbókasölum i Lundúnum.
— SJ
Skólas tj óralaus t
á Hólmavík
GV-Reykjavik.Við höfum auglýst
eftir skólastjóra, en ekkert hefur
gengið. Skólinn byrjar um næstu
mánaðamót, og ef svo fer sem
horfir, sem blasir viö hreint
vandræöaástand, tjáði okkur Jón
Kristinsson, sveitarstjóri á
Hólmavfk. Við teljum það óhæfu,
að hægt skuli vera að segja upp
svona mikilvægu starfi með eins
mánaðar fyrirvara. Auk þessa
hefur verið mjög erfitt að manna
skólann, og okkur vantar einn
kennara i viðbót. Við höfum þurft
að ráða réttindalausan kennara.
Við skólann eru nú ráðnir þrir
kennarar með kennararéttindi.
Neyðarúrræði verður kannski
það, að einn þeirraveröiráðinn til
að taka að„sér stjórn skólans.