Tíminn - 17.09.1977, Side 9
Laugardagur 17. september 1977
9
Útgefandi Framsóknarfiokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein-
grfmur Gfslason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda-
stjórn og auglýsingar Sfðumúla 15. Sfmi 86300. Verö f
iausasölu kr. 80.00. Askriftargjald kr. 1.500 á mánuði.
Blaðaprent h.f.
ERLENT YFIRLIT
Hoxha fangelsar
aðdáendur Hua
Neikvæðir og úr-
ræðalausir nöldrarar
Þeir, sem lesa ekki annað en Alþýðublaðið og
Þjóðviljann og taka mark á þvi, sem þar segir,
hafa meira en óglæsilega mynd af ástandinu á ís-
landi. Þeir geta ekki fundið neitt, sem núverandi
rikisstjórn hefur vel gert. Þeir sjá ekki sigurinn,
sem hefur unnizt i landhelgismálinu með viður-
kenningunni á tvö hundruð milna fiskveiðilögsög-
unni. Þeir sjá ekki, að Islendingar hafa búið við
næga atvinnu á undanförnum árum meðan flestar
vestrænar þjóðir hafa glimt við stórfellt atvinnu-
leysi. Þeir sjá ekki að lifskjörin eru betri á íslandi
en viðast annars staðar og t.d. stórum betri en i
sósialisku löndunum, þar sem það skipulag er rikj-
andi, sem Þjóðviljamenn dreymir um. Þeir sjá
ekki árangur hinnar þróttmiklu byggðastefnu,
sem hefur stuðlað að blómlegu atvinnulifi og fólks-
fjölgun, þar sem áður var kyrrstaða og fólksflótti.
Allt þetta dylst þeim. Alþýðublaðið og Þjóðviljinn
eru samhljóða i þeim söng, að allt hafi núv. rikis-
stjórn mistekizt. í störfum hennar haf i ekki neitt
farið á betri veg.
Að sjálfsögðu verður þessum blöðum tiðrætt um,
að ekki hefur tekizt að hemja verðbólguna nægi-
lega og að skuldasöfnun hafi aukizt erlendis, m.a.
vegna mikilla orkuframkvæmda og skipakaupa,
sem eiga eftir að skila góðum arði. Hitt eru Al-
þýðublaðið og Þjóðviljinn fáorð um, hvort verð-
bólgan eða skuldasöfnunin hefði orðið minni, ef
farið hefði verið að ráðum Alþýðuflokksins eða Al-
þýðubandalagsins. Það mætti halda af skrifum
þeirra, að ekki hafi staðið á góðum ráðleggingum
frá forustumönnum þessara flokka um að draga úr
verðbólgunni og skuldasöfnuninni. Frá þessum
ráðleggingum er þó ekki sagt i Alþýðublaðinu og
Þjóðviljanum. Ástæðan er ákaflega einföld. For-
vigismenn Alþýðuflokksins og Alþýðubandalags-
ins hafa ekki bent á nein slik ráð. Þvert á móti hafa
öll þeirra ráð verið á þá leið, að verðbólgan hefði
stóraukizt og skuldasöfnunin sömuleiðis, ef farið
hefði verið eftir þeim. Þeir hafa stutt allar launa-
kröfur og ekki sizt þær, sem bornar hafa verið
fram af þeim, sem betur hafa mátt sin. Þeir hafa
borið fram stórfelldar kröfur um aukin framlög og
lántökur til margvislegra framkvæmda. Þannig
skiptu slikar tillögur Alþýðubandalagsmanna
mörgum milljörðum króna i sambandi við af-
greiðslu fjárlaganna fyrir yfirstandandi ár. Al-
þýðuflokkurinn hefur ekki látið standa á sér i þess-
ari samkeppni. Þannig hefði verðbólgan og
skuldasöfnunin orðið miklu meiri, ef þessir flokkar
hefðu fengið að ráða. Tillöguflutningur þeirra er
óvéfengjanlegur vitnisburður um það.
Þjóðin hefur þannig ótviræðar sannanir fyrir
þvi, að ekki heföi ástandið i efnahagsmálunum
verið betra, ef þessir flokkar hefðu átt aðild að
stjórn. Ef til vill hefðu þeir þá orðið eitthvað
ábyrgari, en tillöguflutningur þeirra bendir siður
en svo til þess, að þeir búi yfir einhverjum undra-
ráðum eða séu reiðubúnir til að veita verðbólgunni
meira viðnám en gert hefur verið. Af þvi verða
þeir lika dæmdir. Stjórnarandstaða þeirra hefur
einkennzt af nöldri, yfirboðum og úrræðaleysi.
Hún mun ekki auka tiltrú til þeirra hjá þjóðinni.
Það eiga þeir eftir að reyna.
ROMANIA
YUGOSLAVIA
ALBANIA
JTALY
Adriatic Sea
ÞÓTT Tftó væri tekiö meö
kostum og kynjum, þegar
hann kom i heimsókn til
Moskvu í siöastl. mánuöi, voru
móttökurnar, sem hann fékk i
Peking nokkru siöar, enn mik-
ilfenglegri. Oörum þjóöhöfö-
ingja mun ekki hafa veriö tek-
ið betur i Kina siöan kommún-
istar komust þar til valda,
enda þótt sú væri tföin, aö
Titóisminn ætti ekki upp á
pallboröiö hjá þeim.
Um það leyti, sem Titó var
hylltur þannig i Peking, gerö-
ust þeir atburðir I Albaniu, aö
helztu aðdáendur kinverska
kommúnismans voru hand-
teknir hundruðum saman.
Þessar fangelsanir komu ekki
aö öllu leyti á óvart, því aö
ljóst hefur verið, aö sambúö
stjórnanna i Tirana og Peking
hefur fariö síversnandi sfðan
Maó lézt fyrir rúmu ári. Enver
Hoxha, einræöisherra Al-
baniu, hefur bersýnilega taliö,
að hinir nýju valdhafar Kina
væru að fjarlægjast hinn
sanna Maóisma, sem ekkja
Maós og félagar hennar beittu
sér fyrir. Hinir nýju valdhafar
Kina virðast lfka hafa lagt
minna upp úr samvinnunni viö
Albaniu en þeir Mao og Chou
En-lai geröu á sfnum tfma.
Fregnir hafa borizt af þvf sfö-
ustu mánuðina, aö þeir væru
að draga úr fjárhagslegri aö-
stoö viö Albaniu, sem var all-
mikil um skeið. Eins væru þeir
að kveöja heim sérfræöinga,
sem hefðu dvalizt um lengra
eöa skemmra skeiö f Albaníu.
Sumar fregnir herma reynd-
ar, að þetta hafi verið gert aö
kröfu Hoxha, sem sýnt hefur
bæöi i oröi og verki, aö hann
væri andsnúinn Hua og lfti á
hann sem svikara viö komm-
únismann. Hoxha hafi svo tal-
iö mælinn fullan, þegar Hua
féll i faöm Titós, sem Hoxha
litur á sem erkióvin sinn. Þess
vegna tengja ýmsir frétta-
skýrendur áðurnefndar fang-
elsanir i Albaniu viö heimsókn
Titós til Peking.
ÞEIR Hoxha og Titó eiga
álfka langan valdaferil aö
baki. Hoxha tók viö for-
mennsku I kommúnistaflokki
Albaniu 1941 og stjórnaöi sföan
skæruhernaði gegn Itölum,
sem höföu hernumiö Albaniu
tveimur árum áöur. Skæruliö-
um Hoxha varö mikiö ágengt,
og tóku þeir viö stjórn i land-
inu, þegar ítalir hröktust þaö-
Þetta er 10 ára gömul mynd af Hoxha og Chou En-lai, en þá var
Hoxha mikill vinur Kfnverja.
an nokkru fyrir lok heims-
styrjaldarinnar. Hoxha er bú-
inn aö vera einræöisherra Al-
baniu i 33 ár eöa jafnlengi og
Titó i Júgóslaviu. Hoxha er
mun yngri en Titó eöa 69 ára
gamall, en er ekki sagöur
heilsuhraustur, svo að enginn
veit i þessu tilfelli hver annan
grefur. I fyrstu var þokkaleg
sambúö milli þeirra Hoxha og
Titós, enda þótt nokkur hluti
hinnar upprunalegu Albanfu
sé innan landamæra
Júgóslaviu og um ein millj.
Albana séu búsettir þar. Þeg-
ar samvinnuslit urðu milli
Titós og Stalins, fylgdi Hoxha
Stalin að málum og hélzt góö
sambúö milli Sovétrikjanna
og Albaniu til 1961, en þá tók
Krústjoff að vinmælast viö
Titó, og þaö þoldi Hoxha ekki.
Upp úr þvi sleit hann öll skipti
við Sovétrikin, en leitaði sam-
starfs viö Kinverja. Þeir Maó
og Chou En-lai t'óku Hoxha
sem glötuöum syni, m.a. til að
striöa Rússum. Um meira en
Albanfa og umhverfi hennar
15 ára skeiö hefur Albania
fylgt Kina fast aö málum á öll-
um alþjóöaþingum og
skammaö risaveldin enn
hraustlegar en Kinverjar
sjálfir, en þó einkum Sovétrik-
in. Ýmsir fréttaskýrendur
bíöa þess nú meö forvitni,
hvernig fulltrúar Albaniu
muni haga málum sinum á
allsherjarþingi S.Þ, sem
hefst i næstu viku.
ALBANIA hefur undir for-
ustu Hoxha verið eitt lokaö-
asta land i heimi. Samgöngur
viö umheiminn hafa verið
ótrúlega litlar. Þvi er erfitt að
gera sér fyllilega grein fyrir
þjóöfélagsháttum þar. Þó
virðist ljóst, að kenningum
kommúnismans hefur veriö
fylgt þar fram af meiri ná-
kvæmni en annars staðar.
Þannig hefur hvergi verið
gengiö lengra i þvi aö útrýma
öllum trúarbrögöum og eru
hvers konar guösþjónustur al-
gerlega bannaðar. Verklegar
framfarir hafa orðið allmikl-
ar, en þó sennilega hlutfalls-
lega minni en víðast annars
staöar, sem m.a. stafar af þvi
aö Hoxha hefur ekki viljað
þiggja mikla efnahagslega aö-
stoö. Rússar veittu hana þó
nokkra i fyrstu og siöar Kin-
verjar. 1 ræöu sem Hoxha hélt
siðastliðiö haust, sagöi hann
að Albanir yröu aö búa sig
undir það að standa algerlega
á eigin fótum, en hann mun þá
hafa verið farinn aö reikna
meö vinslitum viö Kfnverja.
Siðustu misserin hafa sam-
skipti Albaniu við viss vestræn
lönd heldur aukizt. Þannig
hefur griska flugfélagið
Olympic Airways nýlega
fengið leyfi til vikulegrar viö-
komu i Tirana. Þá hafa Alban-
ir fengiö leyfi til meiri afnota
af höfninni i Saloniki. Sam-
skiptin viö Italiu hafa einnig
farið vaxandi. Siöast en ekki
sizt er ástæða til aö geta þess,
aö Albanir viröast sækjast eft-
ir nokkuö auknum samskipt-
um viö Noröurlönd. Þ.Þ.
Pekingför Titos fyllti mælinn
Þ.Þ.