Tíminn - 17.09.1977, Page 19
Laugardagur 17. september 1977
19
flokksstarfið
Stjórnmálafundir
Samband ungara framsóknarmanna boðar til almennra
stjórnmálafunda föstudaginn 23. september kl. 20.30.
Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum:
Ólafsfirði
Framsögumenn:
Magnús Ólafsson
formaður SUF
Sigurður J. Sigurðsson
formaður FUF i Keflavik.
Dalvik.
Framsögumenn:
Gerður Steinþórsdóttir
varaborgarfulltrúi i Reykjavik
Pétur Einarsson
varaformaður SUF
Akureyri:
Framsögumenn:
Eirikur Tómasson
ritari SUF
Gestur Kristinsson
erindreki SUF
Húsavik
Framsögumenn:
Dagbjört Höskuldsdóttir
i stjórn SUF
Haukur Halldórsson
i stjórn SUF
Kópaskeri:
Framsögumenn:
Einar Baldursson
i stjórn SUF
Halldór Ásgrimsson
alþingism.aður.
A fundunum verður kynnt stefna og störf Framsóknarflokks-
ins M.a. verður leitað svara við eftirfarandi spurningum:
Á að draga úr félagslegri þjónustu?
A að draga saman opinberar framkvæmdir?
Hvernig verður sköttunum bezt varið?
Hvernig má gera stjórnkerfið mannlegra?
Allir velkomnir!
Stjórn SUF
Sjómenn
svæöunum eins og Marias leggur
til, sagði Halldór Hallgrimsson,
skipstjóri á Svalbak EA. — En ég
hef alltaf sagt að það er verið aö
byrja á öfugum enda. Það er ver-
iðaðtala um að togararnir séu að
drepa allan fisk, og svo er stöðugt
verið að kaupa skip til landsins.
Aðalatriðið er það, að ef flotinn
verðurstöðvaður um áramótin og
ekkert gert á hrygningarsvæðun-
um, þá er þetta bara tilfærsla og
spurning um það, hvar eigi að
drepa hann.
— Svona stopp mun eflaust
koma illa við marga, en ég held
að það sé nauðsynlegt, sagði Jó-
hann Adólf Oddgeirsson skip-
stjóri frá Grenivik. — Ég hef allt-
af verið þeirrar skoðunar, að það
sé ekki nóg að friða ungviðið, það
eru hrygningarsvæðin sem þarf
að friða. Ég held að netaveiðarn-
ar séu það hættulegasta sem við
stundum, og ég held að okkur beri
að friða miklu stærra svæði yfir
hrygningartimann.
Grimsvötn
væru göng skáhallt frá yfirborði
jökulsins i 1360 m hæð niður á
botn jökulsins undir 1460 m hæð-
arlinunni, myndú göngin lækka
um 9 metra fyrir hvern metra
sem yfirborð jökulsins hækkaði,
og þess vegna væri alls staöar
sami þrýstingur utan og innan
gangnanna, ef þau væru full af
vatni. 1 reynd þyrfti að vera
nokkuð lægri þrýstingur i göng-
unum en utan þeirra, bæði til þess
að safna saman vatni i þau af dal-
botninum, og til þess að halds
veggjum þeirra sprungulausum.
Ef við segjum aðhæfilegur þrýst-
ingsmunur væri 4 bör, þyrfti að
taka vatnið úrgöngunum i 1320 m
y;S. — önnur göng tækju siðan við
vatninu og flyttu það i átt til Mið-
fells. Þessi göng ættu aö vera um
30m undir yfirborði jökulsins, svo
að sprunguhætta væri litil, og
hallast minnst 1:1000 40-45 km
leið til Miðfells. Þegar af hryggn-
um útaö Miðfelli kæmi væri vatn-
ið i 1280 m y.s., en þar sem is-
hryggurinn norðan við Miðfell
hangir i 1200 m y.s. myndi ráðlegt
að nota þessa 80 m, sem umfram
eru, til þess að auka halla og
straum i göngunum, sem þá
þyrftu ekki að vera eins við og
ella.
Það myndi ráö að bæta ofan á
hrygginn með þvi að sprauta á
hann vatni i frostum og skafrenn-
ingi. A þann hátt mætti sennilega
hækka hann um 60 metra á 20 t-
um, og þá fengist vel yfir 1000 m
nýtilegt fall.
Auðvelt væri að laga isgöngin
að þessari breyttu stöðu, þvi nýj-
um göngum yrði að koa upp á 5 til
10 ára fresti, bæði vegna þess aö
jökulskriðið bæði þau af leiö og að
þau myndu grafast i jökulinn
vegna ákomu.
Glæsilegir möguleikar
ísgöngin yrðu ekki sérlega dýr,
ef hentug tæki væru fengin, en
þess bæri að gæta, að kostnað við
gerð gangnanna ætti að reikna
fremur til viðhalds en stofnkostn-
aðar.
Enginn grundvöllur er fyrir
kostnaðaráætlun, og hér er aðeins
bent á nægilega glæsilega mögu-
leika, til þess að vert væri aö at-
huga þá nánar.
Þetta orkuverk gæfi svipaða
orku og Sigölduverið, og i Gríms-
vötnum^mætti geyma vatn frá
einu ári til annars, en það væri
ekki fært að breyta afkastagetu
þess á skemmri tima en svo sem
viku. Þaö tæki þann tima aö
breyta vidd útrásarinnar úr
Grimsvötnum. Þess vegna væri
hagkvæmast að reka þetta orku-
ver I sambandi viö önnur, sem
gætu ráðið við daglegar sveiflur i
orkuþörfinni.
Athugandi væri að reka Mið-
fellsorkuverið I sambandi við
jarðvarmaorkuver i Grimsvötn-
um. Þar væru sumar aðstæður
erfiðar en aðrar ákjósanlegar.
Má þar fyrst telja y’firdrifið leys-
ingarvatn, sem yröi iramúrskar-
andi kælir. Auövelt væri að bora i
gegnum is og vatn fyrstu 300 til
400 metrana. Þá er líklegt að
taki við frekar vatnsþétt leirlag
og undir þvi mikið sprungiö berg,
sem aldrei hefur soðið i, svo
sprungurnar séu kisilfríar, og að
vatn hafi runnið um bergiö nægi-
lega til þess að skola burt sýrum
og öðrum óþverra.
Vona mætti, að þarna fengist
vatn 200 gr. C eöa jafnvel vel það,
en þó engin gufa, vegna þrýst-
ings. Þegar þetta vatn kæmi upp
undirminni þrýsting, myndi fyrst
rjúka Ur þvi svo aö segja allt gas,
sem halda mættisér og nýta niður
i eina loftþyngd.
Þegar farginu væri ltt af vatn
inu á uppleið, fengist svo til hrein
gufa, og hana mætti taka undir
mismundandi þrýstingi eftir þvi
sem hentaði þrepum i túrbinunni.
Það mætti fá góöa nýtingu á jafn-
vel 100 gr. C gufu, vegna þess hve
kælirinn væri ágætur.
Fljótandi orkuver i jökl-
inum.
Eftir að vatniö kældist við gufu-
framleiðsluna hefði það samt
nægan varma til þess að bræða
orkuverinu leið um isinn, hvort
sem það væriflotiseða skriöis. Að
sjálfsögðu yrði orkuverið að vera
fljótandi i vatni.
Það má spyrja hvaö á aö gera
við rafmagnið? Ekki er fært að
reisa venjulega háápennilinu, þvi
möstrin myndu berast af leiö, eða
fenna i kaf, en svar við þvier ein-
falt. Tækin, sem notuð væru við
vatnsleiðslugöngin, mætti einnig
nota við gerö umferðargangna. 1
þau mætti leggjaháspennukapal,
kæling áhonumværinæg, efhann
lægi á Isnum.
Þjóðgarður á Vatna-
jökli.
Um þessi göng gæti lika verið
sleðalest sem héldi uppi sam-
göngum, hvernig sem viðraði.
Göngin næðu aðeins að Miðfelli,
og það yrði sennilega hagkvæm-
ast að leggja spor fyrir lestina
niður felliö. Þetta yrði nokkur
kostnaðarsamt, en undir nokkru
af þeim kostnaöi gætu staðið
flutningar á fólki frá Skaftafells-
þjóðgarðinum, upp á hájökul og
til baka eftir áætlum óháðri veð-
urfari.
Skiðafólk gæti leikið sér á öllum
árstimum og forvitnir ferðalang-
ar gætu séð jarðgufuorkuver á
flotiniðri i jökli. Þessir möguleik-
ar ættu að ýta eftir framkvæmd
þeirrar tillögu Sigurðar Þórarins-
sonar aö gera mikið af Vatnajökli
að þjóðgarði.”
Viðurkennt
Akureyrar.
Enn var haldinn fundur á
Kópaskeri og svohljóðandi
ályktun send sjávarútvegsráö-
herra:
„Fundurinn átelur harðlega
úthlutun sjávarútvegsráðuneyt-
isins á veiðileyfum til rækju-
veiða s.l. vertið, og itrekar þær
skoðanir og þau mótmæli sem
heimamenn hafa látið frá sér
fara, án þess að nokkurt tillit
væri tekið til þeirra fram til
þessa.
Fundurinn vekur athygli á
þeim afleiðingum, sem nefndar
leyfisveitingar hafa nú þegar
haft i för með sér, en nú aö lok-
inni vertið tala starfsmenn
Hafrannsóknastofnunar um að
minnka beri kvótann um hvorki
meira né minna en 40%.
Hverjar sem lokaniðurstöður
Hafrannsóknastofnunar kunna
að verða, krefst fundurinn þess
að við Uthlutun veiðileyfa fyrir
komandi vertíð verði aðeins
bátum við öxarfjörö veitt veiöi-
leyfi, og aflinn veröi unninn á
Kópaskeri.”
— A rækjuveiðunum sem
hefjast nú i næsta mánuði hefur
Hafrannsóknastofnunin lagt til
að 650 tonn rækju veröi veidd f
öxarfirði. Þá hefur Matthias
Bjarnason sjávarútvegsráð-
herra ákveðiö, án þess að taka
nokkurt tillit til ályktana og
sjónarmiða okkar, sagði
Kristján,ánþessaðgera tilraun
til þess að kanna atvinnulegar,
efnahagslegar og félagslegar
aðstæður, og án alls tillits til
yfirlýstrar byggðastefnu
stjórnar sinnar, — að þessum
aflakvóta verði skipt jafnt milli
HúsvikingaogKópaskersbúa. Þá
sagði Kristján, aö þetta gengi
þvert á þær hugmyndir, sem
sjávarútvegsráðherra virtist
hafa haft við upphaf ráðherra-
ferils sins, þegar hann stóð i
striði við að útiloka aðra en
heimamenn frá veiðum i Húna-
flóa, enda sé það nú orðið regla
um allt, land, að heimamenn
hafi forgang til nýtingar rækju-
miða sinna, nema i Oxarfirði,
þar sem Húsvikingum eru enn
veitt forréttindi, þrátt fyrir að
Kópaskersbúar séu fullfærir til
að nýta miðin sjálfir, og það þótt
aflakvótinn væri stærri.
Þá tindu þeir fulltrúar öx-
firðinga margt fleira til, sem
styður málstað þeirra. Þeir
lögðu áherzlu á margfalda at-
vinnumöguleika. Húsvikinga
miðað við það sem gerist á
Kópaskeri, en auk
Kaupfélagsins er Sæblik, rækju-
vinnslan, eina atvinnufyrirtæk-
ið á staðnum og búið að kosta til
þess miklu fjármagni, án þess
að nokkur lögboöin lán, hvað þá
umframlán, hafifengist til þess.
Þá eru hafnarskilyrði á Kópa-
skeri engin, og þvi ekki hægt um
vik að stunda t.d. úthafsrækju-
veiðar, en það er Húsvikingum i
lófa lagið.
Að lokum lagði Friðrik Jóns-
son áherzlu á að rækjuvinnslan
veitir 20manns atvinnu á Kópa-
skeri og getur veitt fleiri at-
vinnu, ef Kópaskersbúar fá að
sitja einir að rækjumiðunum f
Oxarfirði. Með þessu fyrirtæki
hafi þeir séð þess kost að taka
við fólki úr sveitunum og
aðfluttum, og slikt væri mjög
mikils vert, ekki sizt með tilliti
tilbyggðajafnvægis og viðgangs
byggðar. Þá benti Björn
Guömundsson á, að eins og
ástandið er nú, sækir margt fólk
úr sveitunum suður á land á
vertið á vetrum, en fengi það
vinnu á Kópaskeri, væri ekki
lengra aö fara en svo, aö það
gæti ekið á milli kvölds og
morgna. A allan hátt sogðu þeir
þremenningar að hér væri um
réttlætis- og sanngirnismál að
ræða. Þarna rækjust á hags-
munirheils byggðarlags annars
vegar og hinsvegar örfárra
manna á Húsa’vik.
Kvikmynda-
sýning í
Norræna
húsinu
F.I. Reykjavík — Laugardaginn
17. sept. kl. 15.00 verður kvik-
myndasýning i Norræna húsinu.
Sýnd verður kvikmyndin „Tur i
natten”, en efni hennar byggist á
smásögu eftir danska rithöfund-
inn Leif Panduro sem er nýlátinn.
Tveir menn hittast af tilviljun á
þjóðveginum á milli Korsör og
Kaupmannahafnar er bifreið
annars bilar. A milli mannanna
tveggja skapast mikil spenna og
ökumanninum tekst að lokum að
afhjúpa lágkúrulegt innræti far-
þega sins.
O
Auglýsið í
Tímanum
Til leigu — Hentug i lóöir
Vanur maöur
Simar 75143 — 32101 av
Bílaleiga
Höfum til leigu Vauxhatl
Viva.
Sparneytinn, þægilegur,
öruggur.
Berg s.f. Skemmuvegi
16 Kópavogi.
Simi 7-67-22.
Kvöld og helgar simi 7-20-58.
Rfl
IÐNKYNNINgMP j f
í REYKJAVÍKÍÉ^S
Dagskrá
19. sept.
Kl. 13:00
Kynnisferðir í iðnfyrirtæki.
Kl. 16:00
Opnun Iðnkynningar, athöfn
í Austustræti.
20. sept.
Kl. 13:00
Kynnisferðir í iðnfyrirtæki.
21. sept.
Kl. 13:00
Kynnisferöir í iðnfyrirtæki.
22. sept.
Kl. 13:00
Kynnisferðir í iðnfyrirtæki.
Kl. 16:00-22:00
Iðnminjasýning í Árbæ.
23. sept.
Kl. 13:00—18:00
Iðnnámskynning í Iðnskólanum.
Kl. 16:00—22:00
Iðnminjasýning í Árbæ.
Kl. 16:00—22:00
Iðnkynning i Laugardalshöll.
24. sept.
Kl. 13:00—18:00
Iðnnámskynning í Iðnskólanum.
Kl. 13:00—22:00
Iönkynning í Laugardalshöll.
Kl. 14:00—22:00
Iðnminjasýning i Árbæ.
25. sept.
Kl. 13:00—22:00
Iðnkynning í Laugardalshöll.
Kl. 14:00—22:00
Iðnminjasýning í Árbæ.
26. sept.
Kl. 15:00—22:00
Iðnkynnin^í Laugardalshöll.
Kl. 16:00—22:00
Iðnminjasýning í Árbæ.
27. sept.
Kl. 15:00—22:00
Iðnkynning í Laugardalshöll.
Kl. 16:00—22:00
Iðnminjasýning í Árbæ.
28. sept.
Kl. 13:00
Kynnisferðir í iðnfyrirtæki.
Kl. 15:00—22:00
Iðnkynning í Laugardalshöll.
Kl. 16:00—22:00
Iðnminjasýning í Árbæ.
Varahlutir i JCB-
3C og 4D o.fl . teg.
Til sölu 10 stk. glussatjakkor
(passa i margar gerðir
vinnuvéla og traktora) 2
dekk á JCB, litið slitin 2 lelg-
ur, drif 2 girkassar, fram-
skófla meö gálga, hentugt á
stóra traktora, glussadælur,
Ford dieselvé! ’68 model
(uppgerð), og margt fleira.
— Simi 32101.
Motorola Alternatorar
í bíla og báta.
6/12/24/32 volta.
Platínulausar transistor-
kveikjur f flesta bila.
HOBART rafsuöuvélar.
Haukur og Olafur hf. Armúla
32, Slmi 37700.