Tíminn - 27.09.1977, Page 4

Tíminn - 27.09.1977, Page 4
4 Þriðjudagur 27. september 1977 Osta- og smjörsalan við Snorrabraut Osta- og smjörsalan: „Engin máltíð án osts” Kás-Reykjavik — „Trúlega er engin fæðutegund til i eins mörgum tegundum og afbrigð- um og osturinn. Ostur er i raun- inni safnheiti fjölda fæðuteg- unda sem eiga það sameiginlegt aö mikilvægasta næringarefni þeirra er prótein mjólkurinnar, kaseinið. En osturinn er meira en fæðu- tegund. Hann er hluti af menn- ingarsögunni. Ostur hefur verið framleiddur frá ómunatiö og er slöur en svo uppgötvun tækni- aldar. t fornum griskum heim- ildum er osturinn talinn upp- finning guðanna. 1 verkum sin- um lýsir Hómer þvi, hvernig ostur er gerður og notaður i matseldinni, og Hippokrates lýsir lækningamætti ostsins i verkum sinum. I rlki Rómverja var húsdýrahald á háu stigi og ostagerð látin sitja I fyrir rúmi og ostur i hávegum hafður., eins og hið forna ró'mverska m'áltæki „Enginn máltið án osts”, ber með sér. Fyrrnefndar upþlýsingar er a"ð finna I bæklingnum „tslenzkur ostur”, sem Osta- og smjörsal- an hefur gefið út og afhentur er öllum gestum sem heimsækja sýningardeild fyrirtækisins á Iðnkynningunni I Laugardals- höll. Þar má finna sitt hvað um sögu ostsins, framleiðslu og jafnframt er hverri osttegund lýst fyrir sig. Osta- og smjörsalan rekur umfangsmikla kynningarstarf- semi á Iðnkynningunni I Laugardalshöll, þvi auk þessa bæklings sem þegar hefur verið minnzt á, er gestum boðið að smakka á ýmsum tegundum osta, og ostaréttum. Einnig eru til sölu osta-pakkar, sem inni- halda ýmsar tegundir hinna mismunandi osta, á sérstöku kynningarverði. „Mataræði og neyzluvenjur tslendinga hafa tekið talsverð- um breytingum siðustu áratugi. Þvl valda m.a. alþjóðleg áhrif, bættur efnahagur og e.t.v. ekki sizt nýjar uppgötvanir og aukin þekking almennings á sviði næringarfræðinnar. t samræmi við það hefur osta- neyzla Islendinga vaxið ár frá ári. Jafnframt hafa framfarir I ostagerð stuölað að mjög auknu ostaúrvali, sem mætt hefur vel- vilja neytenda.” Vert er að geta þess, að Osta- og smjörsalan hefur gengið á undan með góðu fordæmi og verið til fyrirmyndar fyrir aðra framleiðendur I mat- vælaiðnaðinum, hvað varðar umbúðir og frágang vörunnar. t sýningardeild Osta- og smjörsölunnar gefst gestum kostur á að smakka á ljúffengum ostarétt um. I flestum tilvikum er ost- inum pakkað inn i loftþéttar umbúðir, sem tryggja fyllsta hreinlætiog geymsluþol ostsins. Þá eruá umbúðunum áletranir, sem gefa til kynna heiti ostsins, bragðstyrk og næringargildi, enn fremur pökkunardag, verö á kg, þyngd og smásöluvérð. Skemmst er að minnast þess. að Osta- og smjörsalan fékk við- urkenningu i umbúðasam- keppninni við opnun Iðnkynn- ingarinnar i Laugardalshöll á föstudag fyrir sérstaklega vandaðar og fallegar umbúðir. Smurostur hefur notið mikilla vinsælda slðan hann kom fyrst á markaðinn,- |r^:>xr^ipr í IésS Papnkuosiur jm Kúmonóstur V Atuaostur' ' y Svopp^q.stui ^ L j mZ*! Þór Ingólfsson viðsvningareldhús Vikur eldhusa á iðnkynningunni I Laugardalshöll Víkur Eldhús: Veljið og raðið saman að eigin vild Kás-Reykjavik. Enn erum við staddir á iðnkynningunni i Laugardalshöll, og að þessu sinni I sýningardeild VlkurEld- húsa. Þar hittum við fyrir Þór Ingólfsson, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hann sagði, að Víkur Eldhús framleiddu vandaða islenzka vöru með svokölluðu eininga- fyrirkomulagi, og væri hægt að velja hinar ýmsu stærðir, þ.e. af einingum. Vegna þessa ein- ingarfyrirkomulags gætu til- vonandi kaupendur valið úr og hafnað að vild, raöað síðan saman þvi sem þeir hefðu áhuga á, og þ.a.l. fengið sitt drauma- eldhús, með persónulegum stil. Margs konar gerðir af skáp- um væri um að ræða, einnig væri hægt að velja um mismun- andi áferð á þeim, aö ógievmdu miklu úrvali plasts á borb. Starfsemi Vfkur Eldhúsa fer fram i Súðavogi 44. Nýlega voru teknar Inotkun nýjarvélar, sem gera kleift að auka og bæta iramleiösluna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.