Tíminn - 27.09.1977, Blaðsíða 9

Tíminn - 27.09.1977, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 27. september 1977 9 fIfénwood STBftUVÉUN Bjfenvjooá MmÉTT1R HEINV>HS Fiolbrautaskolinn i Breiðholti ibUakjarna höfuðborgarinnar, Breiðholtshverfanna, er nú hafa um 18 þUsund ibúa, en ibUatala hverfanna verður áð- ur en langt liður milli 25 og 30 þUsund. 3) Ræða hinar miklu bygginga- framkvæmdir við skólann.en þar ber tvö verkefni hæst, smiði sundlaugabyggingar annars vegar og smiði nýrrar kennsluálmu, D-álmu, hins vegar. Jarðhæð kennsluálm- unnar verður nothæf í vetur, 11 stofur, 1050 fermetrar. Ég hefði einnig kosið að ræða nokkuð hinn nýja námsvisi og vekja athygliá ákveðnum þáttum og köflum. Til þess gefst heldur ekki tími nú. Ég hlýt engu að sið- ur aö beina þvi sérstaklega til nemenda að kynna sér vel náms- visinn og gæta vel hvaða kröfur eru gerðar til mætinga í skólan- um svo og umgengni. 1 þvi sam- bandi vil ég lesa ályktun skóla- stjómar um reykingar á þessa leið: ,,Þar sem sérstök stofa hef- ur verið nemendum tryggð til að reykja i, er með öllu bannað að reykja i anddyrum skólans jafnt og annars staðar innan skólans. Brot gegn þeim ákvæðum varða refsingu er kemur fram á fjar- vistarstigum eða verði um alvar- legri brot að ræða þá brottrekstri úr skóla. Við fyrsta brot hlýtur hinn brotlegi 14 stig i fjarvist, við annað brot 70 stig i fjarvist, en gerist hann eða hUn brotleg i þriðja sinn kemur málið fyrir skólastjórn og þá til þess að álykta um brottvisun eða aðrar aðgerðir”. A hitt vil ég leggja þunga áherzlu að námsvisirinn býr ekki aðeins yfir takmörkun- um og refsiákvæðum. Þvert á móti. Hann á að vekja athygli nemendanna á möguleikum, fjöl- breytni og framboði náms er þroskar, göfgar og glæðir. III Það vill svo til að einmitt i dag, mánud. 12. september 1977, er annar fjölbrautaskóli að hefja starfsemi sina, Fjölbrautaskólinn á Akranesi, sem nú er settur i fyrsta sinn. Þar með eru fjöl- brautaskólar landsins orðnir f jór- ir talsins, en þeir voru stofnsettir i þessari röð: Fjölbrautaskólinn i Breiðholti haustið 1975 Flensborg, fjölbrautaskóli haust- ið 1976 Fjölbrautaskóli Suðurnesja haustið 1976 og Fjölbrautaskólinn á Akranesi haustið 1977. Héðan skulu árnaðaróskir ber- ast til hins ný ja skóla sérstaklega á þessum degi, en um leiö vonir og bænir að blessun megi fylgja fjölbrautaskólunum fjórum á starfsárinu sem framundan er. Það var kunnur maður er sagði eitt sinn likingasöguna um disim- ar þrjár. I árdaga, sagði hann, fóru disirnar þrjár Frelsi, Rétt- lætiog Bræðralagsaman og lögðu leið sina til jarðarbúa. Svo gerðist þaö skyndilega að leiðir þeirra skildust. Frelsiðfór i vestur Rétt lætiði austur, en til Bræðralags- insspurðist ekki framar. Nú bið- ur mannkynið þeirrar stundar að Bræðralagið birtist að nýju á jörðu og sameini Frelsi vesturs- ins, Réttlætiaustursins, en báðar hafa dísirnar breytt verulega eðli sinu og einkennum i fjarvist Bræðralagsins. Skóli er veröld út af fyrir sig. Einnig þar verður jafnvægi að rikja, samstilling hinna beztu eiginleika. Einnig þar verður samhugur og eining að tengja kosti frelsisins og réttlætisins. Um leið og ég segi Fjölbrauta- skólann i Breiöholtisettan i þriðja sinn vildiég mega hafa yfirkvæði Hannesar Péturssonar skálds um íslandaö glæða skilning okkar og vekja metnað Hvammstangi Til sölu er ibúðarhúsið að Klapparstig 3, Hvammstanga, með viðbyggingu sem er gripahús, heyhlaða og áburðargeymsla. Tilboðum sé skilað til undirritaðs fyrir 15. október. Björn Kr. Guðmundsson Klapparstig 3, Hvammstanga. Gjaldkeri Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða gjaldkera frá og með 1. nóvember n.k. Umsóknum skal skilað á sérstökum um- sóknareyðublöðum fyrir 5. október, til raf- veitustjóra, sem veitir nánari upplýsingar um starfið. Rafveita Hafnarfjarðar. Minn staður er hér þar sem Evrópa endar og auðnir hnattarins taka við. Eldgröf I sæ, með isbláan múrinn á aðra hlið Orlagastaður sem stundirnar markar Hér stendur rótum i gleöi og sorg mitt svitamannslif, min hálfgildings hugsun i hálfgildings borg og er viðspyrna, farg það fellur hér saman flækjuleg reynsla. Hvort nýtist hún mér til fullnaðarsöngva? CJtmörk Evrópa endar hér Komið heil til starfa, verið heilistarfi. Guðmundur Sveinsson Kennarar Kennara vantar við Grunnskóia Skógar- strandar. Húsnæði til reiðu. Upplýsingar hjá skólastjóra i sima (95)4713. Út og suður um helgina Flugfélag íslands býður upp á sérstakar helgarferðir allan veturinn fram undir páska: Ferðina og dvöl á góðum gististað á hagstæðu verði. Út á land, til dæmis í Sólarkaffið fyrir vestan, á Sæluvikuna á Sauðár- króki eða þorrablót fyrir austan, til keppni í skák eða í heimsókn til kunningja. Víða er hægt að fara á skíði. Suður til Reykjavíkur vilja flestir fara öðru hverju. Nú er það hægt fyrir hóflegt verð. Þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi til að gera ferðina ánægjulega. Margir hafa notað helgarferðirnar og kunnaðvel að meta. Gerið skammdegið skemmtilegt! Leitið upplýsinga hjá skrifstofum og umboðum um land allt. FLUGFÉLAG /SLAJVDS INNANLANDSFLUG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.