Tíminn - 27.09.1977, Blaðsíða 8

Tíminn - 27.09.1977, Blaðsíða 8
8 Þriðjudagur 27. september 1977 Forsendur menningar á Vesturlöndum: Festa - Vizka - Fegurð Góðir áheyrendur, nemendur, kennarar og annað starfsfólk Fjölbrautaskólans i Breiðholti. I Ég vil i upphafi bjóða ykkur öll velkomin til þessarar skölasetn- ingarathafnar hér i BUstaða- kirkju mánudaginn 12. september 1977. Þaö er nú i þriðja sinn aö Fjölbrautaskólinn i Breiðholti er settur og i fyrsta sinn að skóla- setningin fer fram utan veggja skólans, i helgidóminum hér i Bústaðakirkju. Tvær ástæöur eru fyrir þessu fráviki frá fyrri fram- kvæmd. Hin fyrri er sú að fjöldi nemenda, kennara og annars starfsliðs Fjölbrautaskólans i Breiöholti er nú slikur að engin salarkynni f skólanum sjálfum rúma eöa gera mögulegt að kalla á einn stað svo að ná megi eyrum allra. Hin ástæðan lýtur aö vali þessa staöar þar sem viö nú kom- um saman til skólasetningarinn- ar, Bústaðakirkju, en hún er svo sem kunnugirvita ennþá eiginleg sóknarkirkja ibúa Breiðholts- hverfanna meðan helgidómur er ekki risinn af grunni i þeirri fjöl- mennu byggð. Skóli og kirkja eru i vitund þess sem hér talar tveir hornsteinar menningar og sam- félags islenzku þjóöarinnar, tvær stofnanir sem varða eiga veg hennar til framfara, lifstrúar og mannbóta. Þvi spurningin sem borinerfram i skólasálminum al- þekkta á fullan rétt á sér. Ef sáðland þarfnast sólar að signist geislum stráð, hve mega menntaskólar þá missa guðdóms náð? Megi náð þeirrar forsjónar er við vitum æðsta og háleitasta hvila yfir skólastarfi Fjölbrauta- skólans i Breiðholti á skólaárinu sem framundan er, skólaárinu 1977-1978. Megi þessi helgidómur sem við komum saman i á fyrsta starfsdegi skólans leiða huga okkarað festu, vizkuog feguröen á þeim grundvallarforsendum hafa allirhelgidómar verið reistir i þessu landi hvort sem þeir hafa verið eöa eru kenndir við kristna trú eða ekki. Megum við héðan fara með hugsun þeirra i vitund er letruðu yfir dyr foms helgi- dóms hin sérstæðu orð: „Gakk inn góður — farðu betri út” II A þvi skólaári sem fram undan er, skólaárinu 1977-1978, eru skráðir nemendur Fjölbrauta- skólans i Breiðholti i skólabyr jum 730 talsins eða þar um bil. Til samanburðar má geta þess að skráöir nemendur i upphafi sið- asta skölaárs, hins annars f röð- inni, voru 440, en á fyrsta skölaári voru skráðir nemendur I skóla- byrjun 220. Heildarfjöldi nem- enda hefur þannig aukizt frá sið- asta skólaári um nær 300 nemendur. Nýnemar veröa hins vegar nær 400 aö tölu, en af fyrri nemendum halda um 330 áfram námi. Fjölbrautaskólinn i Breiðholti var fyrstur allra skóla i landinu til að taka upp ákveðna sviða- skiptingu i námi eins og gert er ráð fyrir að verði samkvæmt frumvarpi þvi til laga um sam- ræmdan framhaldsskóla er lagt var fram i lok siðasta alþingis varðandi skipun framhaldsskóla- menntunar i landinu. I Fjöl- brautaskólanum i Breiðholti hafa sviðin verið talin fjögur: 1. Menntaskólasviö kallað i nefndu frumvarpi al- mennt bóknámssvið. 2. Iönfræðslusvið kallað i frumvarpinu tæknisvið. 3. Viðskiptasviö 4. Samfélags og uppeldissviö Þaö heiti er ekki að finna i frumvarpinu til laga um sam- ræmdan framhaldsskóla, held- ur er brautum þessa fjórða sviðs I Fjölbrautaskólanum i Breiðholti skipaö i fjögur sjálf- stæð svið, þessi: a) Heilbrigðissvið b) Uppeldissvið c) Hússtjórnarsvið d) Listasvið Má þvi með sanni svo að orði komast að Fjölbrautaskólinn i Breiðholti hafi þegar búið nem- endum sinum möguleika til náms á 7 af þeim 8 sviðum sem marg- nefnt frumvarp gerir ráð fyrir að verði i hinum samræmda fram- haldsskóla, en það eina sviö sem skólinn hefur ekki gert nein skil er búnaöarsviö Aö sjálfsögðu vantar mikiö á að Fjölbrauta- skólinn í Breiðholti bjóði fram all- ar þær mörgu brautir sem frum- varpið gerirráð fyrirá hinum sjö sviðum er finna má þróaðar nokkuð eða visi aö i núverandi skipan skólans. En vikið skal lítil- lega að brautum skólans. Menntaskólabrautir Fjölbrauta skólans I Breiöholti eða almennar bóknámsbrautir verða i vetur fjórar talsins, af þeim eru þrjár aöalbrautir: þ.e.a.s. tungumála- braut, náttúrufræöibrautog eölis- fræöibraut, en ein svokölluð blönduð braut: tónlistarbraut. Nemendafjöldi á menntaskóla- brautum veröur 140 nemendur, en af þeim eru 80 nýnemar. Iðnf ræðslubrautir Fjölbrauta- skólans i Breiðholti eða tækni- brautir verða sem hér segir: Þrjár grunnnámsbrautir i þrem iðngreina-hópum: Tréiðnum, málmiðnum og rafiðnum. A þess- um þrem grunnnámsbrautum eru skráðir 70 nemendur. Þá verða þrjár framhaldsbrautir I eftirfar- andi iðngreinum: Húsasmiði, vél- smiðiog rafvirkjun. Eru nemend- ur á framhaldsbrautunum mis- jafnlega langt komnir, eru 36 á 3. önn eða fyrstu önn framhalds- náms,en23á4.önneða siöari önn fyrsta árs framhaldsnámsins. A iðnfræöslusviöinu eru þannig alls 129 nemendur. A viðskiptasviði Fjölbrauta- skólans i Breiðholti eru þrjár brautir og er fjölbreytni við- skiptanáms hvergi meiri á ís- landi. Brautirnar þrjár eru: Verzlunar- og sölufræðabraut, skrifstofu- og stjórnunarbraut og loks samskipta- og málabraut (nefndist áður einkaritarabraut). A viðskiptasviði eru alls 175 nem- endur en þar af 80 nemendur á fyrsta ári. Á viðskiptasviði luku 12nemendur almennu vcrzlunar- prófisiðastliðið vor og munu lik- lega milli 20-30 nemendur ljúka þvi til viðbótar i lok haustannar. Þeir nemendur á viðskiptasviði sem lokið hafa almennu verzlunarprófi stefna að sérhæföu verzlunarprófi eða verzlunarprófi hinu meira sem næsta áfanga. Báðir eru þessir áfangar sem og áfangar allra sviða skólans þrep á leið til stúdentsprófs. Einsogáðurer að vikiö er sam- félags- og uppeldissviö Fjöl- brautarskólans i Breiðholti sér- stæðasta og fjölbreytilegasta sviö skölans enda rúmar það raun- verulega visi að fjórum sjálfstæð- um sviðum samkvæmt fyrir- hugaðri framtiðarskipan hins samræmda framhaldsskóla. Er þvi óhjákvæm ilegt að gera nokkru ýtarlegri grein fyrir nú- verandi stöðu og skipan þessa sviðs en þeirra sem áður hefur verið greint frá. A samfélags- og uppeldissviði skólans eru nú 5 brautir, þessar: Heilsugæzlu- braut, snyrti- og heilbrigöisbraut, uppeldis- og fósturbraut, hús- stjórnar- og handmenntabraut og loks myndlistar- og handiöa- braut. Samkvæmt frumvarpinu um samræmdan framhaldsskóla yröi tveim fyrstu brautunum skipað á svokallað heilbrigöis- sviö. Nemendafjöldi á heilsu- gæzlubraut verður i vetur alls 130 nemendur, það af 70 á fyrsta ári. A snyrti- og heilbrigðisbraut verða nemendur 10 talsins, allir á 2. námsári, en ákveöið var að taka ekki nýja nemendur inn á þessa braut fyrr en fyrsti nem- endahópurinn heföi endanlega verið brautskráður úr skólanum. Samkvæmt þessu verður heildar- nemendafjöldi á heilbrigðissviði, svo notað sé hugtak framhalds- skólafrumvarpsins, alls 140 nem- endur. Þess má geta að fyrstu sjúkraliðarmeð fullum réttindum verða brautskráðir frá Fjöl- brautaskólanum i Breiðholti ekki siðar en i lok haustannar. A uppeldis- og fdsturbraut skól- ans verða f vetur 60 nemendur. Hér er að vissu leyti um nýja braut að ræða eða réttara sagt nýtt námssvið i Fjölbrauta- . skólanum i Breiðholti. Að vísu ber að hafa þaö jafnframt i huga að hússtjórnar- og handmennta- brautsem starfrækt hefur verið frá upphafi skólastarfsins haustið 1975 var öörum þræði skipulögð sem fósturbraut tii undirbúnings námi i Fósturskóla íslands. Má þvi ætla að af þeim nær 30 nem- endum sem nú eru skráðir á 2. Ræða við skóla- setningu Fjölbrauta skólans í Breiðholti Guömundur Sveinsson námsári hússtjórnar og hand- menntabrautar kunni allt að helmingur að lita á nám sitt fremur sem uppeldis- og fóstur- nám. Væri svo gert yrðu nemar á sjálfstæðu „uppeldiss viði” i skólanum samtals 75. Hússtjórn- ar- og handmenntabraut skólans er eina námsbrautin er veitir heils vetrar nám i hússtjórnar- fræðum á öllu höfuöborgarsvæð- inu. Nýirnemendur á þeirri braut verða alls 16 talsins. Framhalds- braut hússtjórnarfræða er lika starfrækt við skólann og e/ eina framhaldsbrautin á þessu náms sviði á öllu iandinu. Erhér um til- raun að ræöa með framtíðarskip- an þessarar menntunar til færni og réttinda og því mikið kapps- mál, enda mikið i húfi að þessi til- raun takist vel. Láta mun nærri að alls verði milli 30-40 nemendur á hússtjórnarsviði eins og það er hugsað I framtiðinni sem nám stundai veturi Fjölbrautaskólan- um i Breiðholti. Fimmta brautin á núverandi samfélags- og upp- eldissviði skólans, er myndlistar- og handiðabraut en sú braut ætti að vera á sérstöku listasviði i framtiðarskipan skólans. Sam- kvæmt núverandi skipan er myndlistar- og handiðabrautin byggð upp sem tveggja ára for- skólabraut hliðstæð forskóla Myndlistar- og handiðaskóla ís- lands. I slikum forskóla verða i vetur 26 nemendur, en 10 nem- endum er lokið hafa forskólanum hafa verið gefin fyrirheit um framhald i nytjalist og verður fyrst um sinn bundin að mestu eða öllu leyti við auglýsingateikn- un, enda mun sú séraðstaða sem brautinni verður sköpuð nýtast um leið viðskiptabrautum skól- ans.Afþvisem nú hefursagt ver- ið má augljóst verða að nemend- ur á sérstöku „listasviði” i Fjöl- brautaskólanum i Breiðholti verða 36 talsins. Heildaryfirlit samfélags- og uppeldissviðsins verður þvi sem hér segir: Heilbrigðissvið 140nemendur Uppeldissvið 75nemendur Hússtjórnarsvið 35nemendur Listasvið 36nemendur Samtals verður nemendafjöldinn þannig 286 nemendur. Verður þá prósenttala nemenda sem hér segir: Amenntaskólasviði 20% Aiðnfræðslusviði 20% - A viðskiptasviði 22% Aheilbrigðissviði 20% A uppeldissviði 9% A hússtjómarsviði 4.5% Alistasviði 4.5% Eða alls á hinum gömlu hefð- bundnu námssviðum 62% en á ný- myndunum framhaldsskólastigs- ins alls 38%. Sé sviöum skipt i bóknámssvið annars vegar og verknámssvið hins vegar eru skráðir nemendur á bóknámssviðum alls 315 en á verknámssviðum alls 415. Brautir skólans verða i vetur 15 talsins og hefur þeim f jölgað um 3 frá siðasta skólaári. Réttara væri aðtelja námsbrautirnar alls 18, 6 brautir á iðnfræðslusviði. A starfsliði Fjölbrautaskólans i Breiðholti hafa orðið verulegar breytingar frá siðasta kennsluári. Mestar eru aö sjálfsögðu þær breytingar á kennaraliði skólans, að fastráðnum kennurum hefur fjölgað verulega en enginn þeirra kennara er fastráðnir voru við skólann á siðasta ári sögðu starfi sinu lausu. Voru áður ráðnir við skólann 32 kennarar i fullu starfi og 4 i hálfu starfi. Til viðbótar voru ráðnir i sumar og haust 14 kennarar i fullt starf og 2 i hálf. starf auk þess sem stöðugildi kennara er ráönir voru á siðasta ári var breytt þannig að um nokkra viðbót varð að ræða. Tveir af skipuðum kennurum við skól- ann verða i launalausu orlofi næsta vetur, annar skipaður i fullt starf en hinn i hálft. Hafa verið tryggð skólanum samtals 49 stöðugildi, en tala fastráðinna kennara en nokkru hærri. Auk þess hafa stundakennarar verið ráðnir að skólanum svo að láta mun nærri að milli 60 og 70 kennarar annist kennslu við skól- ann veturinn 1977-1978 i alls 14 kennsludeildum skólastofnunar- innar. Mun kennsludeildanna gæta i vaxandi mæli á skólaárinu sem framundan er. Þess má geta að ráðnir hafa verið 11 deildar- stjórar að kennsludeildunum, en deildarstjórum mun fjölga og verksvið þeirra aukast eftir þvi sem kennslumagn hinna ýmsu deilda vex. Þá var auglýst laus til umsókn- ar isumarstaða námsráðgjafa og var dr. Bragi Jósepsson ráðinn i stöðuna. Húsvörður skólans, Jóhann Helgason, sagði starfi sinu lausu frá 1. september og var Benedikt Jónasson ráðinn húsvörður frá sama tima. Ég býð alla, nemendur og starfslið skólans velkomið til verka og dáða, þakka þeim störf erhéðan hafa horfið og óska þeim velfarnaöará nýjum vegum. Ver- ið öll er til starfa gangið hjartan- lega velkomin. Ekki verður hjá þvi komizt á upphafsdegi skólastarfs Fjöl- brautaskólans i' Breiðholti haustið 1977 að fara nokkrum orðum um skipulagsmál stofnunarinnar. Þar biða mikil verkefni úrlausn- ar, en margt hefur þó gerzt er vekur okkur er að stofnuninni vinnum bjartsýni og sókndirfð. Lagt var i mikinn kostnað á sið- asta vori að vinna námlýsingar i nýjan nápisvisi skólans sem ný- lega hefur komið út. Er þar á mörgum sviðum um algera frum- vinnu aö ræða og þvi eðlilegt að ýmislegt þurfi endurskoðunar við og úrbóta. En mikið starf hefur verið unnið og ber að þakka öllum er lagt hafa fram krafta sina að treysta þannig og tryggja starf- semi og framgang skólans. Er það allra von að áfram verði haldiö á sömu braut aö skapa megi aukna festu og gera nám og starf við skólann i Breiðholti markvissara, svo að skólinn fái áfram rækt forystuhlutverk sitt i þróun og framkvæmd samræmds framhaldsskóla á Islandi. Afangakerfi Fjölbrautaskólans i Breiðholtier i senn viðamesta og vandasamasta kerfi þeirrar gerð- ar sem ráðizt hefur verið I að framkvæma á íslandi. Það er þvi næsta eðlilegt að sú frumsmíð sem áfangakerfi okkar er, valdi öllum er við skólann vinna ýms- um erfiðleikum er gera kröfur til þolinmæði okkar, viljastyrks og ekki sizt tilhliðrunarsemi og góð- vildar. Þaö er nánast sagt afrek að takast skuli að handvinna áfangakerfi i eins fjölmennum skóla og Fjölbrautaskólinn i Breiðholti er nú orðinn með allri þeirri breidd i námi sem þar er boðin fram. Framboð kennsluefnis til náms á sviöunum sjö er Fjölbrauta- skólinn i Breiðholti spannar og brautunum átján, sem nemend- um er gefinn kostur á að velja á milli, er af næsta skornum skammti ef miða ætti eingöngu við islenzkt námsefni. Er þar fljótt frá að segja að mikill skort- ur er aðgengilegra og nothæfra kennslubóka. Verður þetta næst eftir skipulagningu og námslýs- ingar sá vandi sem ekki verður undan vikizt að leysa. Hér búa allir framhaldsskólar landsins við sömu afarkosti. Til þriggja ráða hefur einkum verið gripið: 1) Að nota erlendar kennslu- bækur. 2) Að þýða og staðfæra að nokkru erlendar bækur. 3) Að einstakirkennararsemji og fái gefnar út bækur. Enginn þessara kosta er góður, þótt sá siðasti sé beztur. Hafa skólar og skólasamtök upp á ein- dæmi hafið útgáfu kennslubóka, þýddar bækur, frumsamdar bæk- urog útdráttur erlendra bóka eða jafnvel glósur að auðvelda lestur erlendra bóka. Má i þessu sam- bandi sérstaklega benda á bóka- útgáfu MH, bókaútgáfu LIM, bókaútgáfu iðnskóla á íslandi o.s.frv. Nú er hins vegar hafin á vegum menntamálaráðuneyt.is- ins skipulögð vinna að samningu kennslubóka, þar sem kvaddur er til vinnuhópur að gera tillögur um kennslubækur á námssviðum og sjá um að slikar bækur séu samd- ar sem hópvinna þótt einstakir aðilar taki að sér ákveðin verk- efni. Þessu framtaki ber að fagna og óska þess að framhald verði á. Er nauðsynlegt að nemendur jafnt sem kennarar gefi þessu stórmáli gaum og veiti þvi brautargengi. Ég sé að tognað hefur verulega úr ræðu minni og hlýt ég senn að ljúka henni. Ég hefði óskað að ræða fleiri þætti skólastarfsins sem framundan er i Fjölbrauta- skólanum i Breiðholti. Þrennt hefði ég talið mikilvægast. 1) Ræða hin vaxandi tengsl milli Fjölbrautaskólans i Breiðholti og atvinnulifsins, vinnu- markaðarins i höfuðborginni. 2) Ræða sérstöðu skólans sem hverfisskóla fjölmennasta

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.