Tíminn - 27.09.1977, Blaðsíða 20
20
Þriðjudagur 27. september 1977
Forest bauð
Gemmill velkom-
inn með sigri
— yfir Leicester. Nottingham Forest,
Liverpóol og Manchester City eru hlið
við hlið á toppnum
Nýlíðar Nottingham Forest/ undir stjórn hins snjalla
framkvæmdastjóra Brian Glough, — „Spútnikarnir"/
eins og leikmenn liðsins eru kallaðir á Bretlandseyjum
um þessar mundir, — héldu áfram sigurgöngu sinni á
laugardaginn— unnu stórsigur (3:0) á Filbert Street í
Leicester. Þeir áttu ekki i vandræðum með strákana
hans Franks McLintock, sem hefur nú mikinn hug á því
að taka fram skóna að nýju og leika með Leicester-lið-
inu. Martin O'Neill, Woodcock og Robertson skoruðu
mörk Forest.
Forest hefur fengið góðan liðs-
styrk þar sem er Archie Gemmill,
fyrirliði Derby og skozka lands-
liðsins. Gemill, sem heimtaði að
vera settur á sölulista i s.l. viku
var keyptur til Forest fyrir 30.
þús. pund en þar að auki fékk
Derby John Middleton, markvörð
Forest. Þarna gerði Clough mjög
góð kaup, þvi að Gemmill er einn
allra skemmtilegasti miðvallar-
spilari Bretlandseyja um þessar
mundir.
Manchester City og Liverpool
héldu einnig áfram sigurgöngu
sinni. Manchester City vann góð-
1. deild
Man. City 7 5 2 0 15:3 13
Liverpool 7 5 2 0 11:2 12
Notth. For 7 6 0 1 15:6 12
WBA 7 4 2 1 15:9 11
Coventry 7 4 1 2 12:10 9
Everton 7 3 2 2 12:7 8
Man. Utd. 7 3 2 2 9:7 8
Leeds 7 2 4 1 12:11 8
Ipswich 7 2 4 1 5:4 8
Norwich 7 3 2 2 7:10 8
Arsenal 7 3 1 3 7:5 7
Wolves 7 2 3 2 9:10 7
A. Villa 7 3 1 3 8:10 7
QPR 7 1 4 2 9:8 6
Chelsea 7 2 2 3 6:8 6
Middlesb. 7 1 3 3 8:9 5
West Ham 7 1 2 4 9:13 4
BristolC 7 1 2 4 6:10 4
Birmingh. 7 2 0 5 7:12 4
Leicester 7 1 3 4 3:13 4
Derby 7 0 3 4 4:11 3
Newcastle 7 1 0 6 6:17 2
an sigur (2:0) gegn Bristol City.
Peter Barnet og Gerry Owen
skoruðu mörk City. Liverpool
vann ekki eins auðveldan sigur —
það var ekki fyrr en 10 min. voru
til leiksloka að Terry McDermott
náði að færa Mersey-liðinu sigur
(1:0) gegn Derby.
Áður en við bregðum okkur á
Elland Road i Leeds, skulum við
lita á úrslitin i 1. deildarkeppn-
inni:
AstonVilla—Wolves...........2:0
Leeds — Man. Utd............1:1
Leicester — Nott. For.......0:3
Liverpool — Derby...........1:0
Man. City — Bristol C.......2:0
Middlesb. — Ipswich ........1:1
Newcastle — Coventry........1:2
Norwich — Arsenal...........1:0
Q.P.R. — Chelsea ...........1:1
W.B.A. — Birmingham.........3:1
West Ham — Everton..........1:1
Það þurfti að kalla til 500 lög-
reglumenn þegar Manchester
United kom i heimsókn til Leeds á
Elland Road. Það kom þó ekki til
átaka og liðin deildu bróðurlega á
milli sin stigunum — i jafnteflis-
leik — 1:1. Gordon Hill skoraði
mark United, en Ray Hankin
fyrrum leikmaður með Burnley,
skoraði mark Leeds — hans 6.
mark á keppnistimabilinu.
Þó að rólegt hafi verið á Elland
Road, var það sama ekki upp á
teningnum á Loftus Road i Lond-
on, þar sem Q.P.R. og Chelsea
leiddu saman hesta sina. Áhang-
endum liðanna lenti saman, og
þurfti lögreglulið að skerast i
leikinn. Af sjálfum leiknum er
það að segja, að Peter Swain náði
forystu fyrir Chelsea, en Skotinn
Don Massin náði að jafna fyrir
Q.P.R.
Arsenal tapaði fyrir Norwich —
John Ryan skoraði sigurmark
Angeliu-liðsins. West Ham og
Everton skildu jöfn á Upton Park
i London, og sáu leikmenn Evert-
on um að skora bæði mörkin.
Martin Dobson skoraði sjálfs-
mark en Duncan McKenzie náði
siðan að jafna — 1:1 hans 6. mark
i 1. deildarkeppninni.
Markhæstur er nú Ian Wallace,
skozki leikmaðurinn hjá
Coventry. Hann skoraði bæði
mörk liðs sins gegn Newcastle, en
Alan Gowling skoraði mark New-
castle, sem er nú á botninum.
W.B.A. hefur sterku liði á að
skipa. Tony Brown var hetja
W.B.A. gegn Birmingham — hann
skoraði 2 mörk en Regis bætti þvi
þriðja við. John Conolly skoraði
mark Birmingham.
Aston Villa sigraði (2:0) Úlfana
— Colin Brazier, sjálfsmark, og
John Deehan, skoruðu mörk
Villa-liðsins.
Úrslit i 2. deildar keppninni urðu
þessi:
Blackburn — Orient.........1:0
Bristol — Sheff. Utd.......2:1
Bristol R. — Oidham........0:0
Cardiff — Fulham...........3:1
C.Palace — Boiton..........2:1
Mansfieid — Burnley........4:1
Millwall—Chariton..........1:1
NottsC.—Biackpooi..........1:1
Southampton — Hull.........1:0
Stoke — Sunderland.........0:0
Tottenham—Luton ...........2:0
ARCHIE GEMMILL....mun klæðast búningi Nottingham Forest um
næstu helgi.
TOTTENHAM
Á TOPPNUM
— í 2. deildar
keppninni
Tottenham skauzt upp á toppinn
f ensku 2. deildarkeppninni á
laugardaginn, þegar liðið sigr-
aði (2:0) Lutou á White Harl
Lane. Keith Osgood og Chris
Jones skoruðu mörk Lundúna-
liðsins.
A sama tíma var Bolton að
tapa á öðrum stað i London —
l:2gegn Crystal Palace,sem er
nú í þriðja sæti i 2. deild.
Southampton færðistnær toppn-
um, þegar liðið lagði Hull að
velli (1:0) á The Dell I South-
ampton. Ted MacDougall, hinn
mikli markaskorari, skoraði
mark Dýrlinganna — hans
fyrsta á keppnistfmabilinu.
Brighton-liðið, sem hefur
komið mjög á óvart undir stjórn
Alan Mullery, fyrrum fyrirliða
Tottenham og enska landsliðs-
ins, vann góðan sigur — 2:1
gegn Sheffield United. Peter
Ward skoraði bæði mörk liðsins.
2. deild
Tottenham 7 5 2 0 11:3 12
Bolton 7 5 11 9:3 11
C. Palace 7 4 2 1 13:6 10
Brighton 6 3 2 0 10:6 10
Stoke 7 3 3 1 8:3 9
Southampt. 7 4 12 9:7 9
Blackpool 7 3 2 2 12:10 8
Blackburn 7 2 4 1 6:3 8
Luton 6 3 12 10:5 7
Oldham 7 2 3 2 8:8 7
Charlton 6 2 3 1 9:12 7
Hull 7 2 2 3 5:5 6
Sunderland 7 14 2 7:9 6
Mansfield 7 2 2 3 7:9 6
Cardiff 6 14 1 6:7 6
Fulham 7 13 3 7:8 5
Orient 7 2 14 10:13 5
Millwall 7 13 3 7:9 5
Bristol R. 7 0 4 3 6:10 4
Notts.C. 7 0 4 3 9:15 4
Sheff. Utd. 7 115 7:15 3
Burnley 7 0 2 5 3:12 2
Manchester United heldur áfram í Evrópukeppninni,
en má ekki leika á Old Trefford
Wembley heima
völlur United?
— „Við myndum fylla Wembley”, sagði þjálfari
United, Cavanagh
MARTIN
United.
BUCHAN... fyrirliöi
— Ég er mjög glaður — þetta
eru gleðifréttir fyrir strákana
sagði Sir Matt Busby, fyrrum
framkvæmdastjóri Manchester
United og núverandi stjórnar-
maður félagsins, þegar þriggja
manna nefnd UEFA ákvað I
gær, aö Manchester United,
sem dæmt var úr Evrópukeppni
bikarhafa i siðustu viku, vegna
óláta áhangenda féiagsins i
Paris, fengi aö vera áfram I
keppninni.
Eins og menn muna, þá var
United-liðið dæmt úr keppninni
vegna óláta áhangenda liðsins,
þegar það lék gegn St. Etienne i
Paris, en leik liðanna lauk með
jafntefli. United þarf að borga
30. þús. svissneska franka (7.500
pund) í sekt, og þar að auki má
United ekkileika heimaleik sinn
á Old Trafford, þegar félagið
mætir St. Etienne i Englandi.
ManchesterUnited þarfað leika
sinnheimaleikí 200 km fjarlægð
frá Manchester
Þegar Busby var spurður að
þvi, hvort Manchester United
myndi sækja eftir þvi, að fá að
leika heimalejk sinná Wembley
i London, sem er 294 km frá
Manchester,sagðihann: — „Ég
get ekkert sagt um það, en viö
sjáum til”.
— Það er mjög bagalegl að
geta ekki leikið heima á Old
Trafford, sagði Martin Buchan,
fyrirliði Manchester United. —
Ég er í sjöunda himni yfir þess-
um gleðifréttum, sagöi Tommy
Cavanagh, þjálfari United-liðs-
ins.
— Leikmenn Manchester
United og áhangendur liðsins
eru ávallt velkomnir hingað á
Wembley. Þeim er velkomið að
leika hér I Evröpukeppninni”,
sagði einn af yfirmönnum
Wembley-leikvangsins.
Wembley-leikvangurinn er
stærsti leikvöllurinn I Englandi.
—Við myndumfylla hann, sagði
Cavanagh, þjálfari United-liðs-
ins.