Tíminn - 27.09.1977, Síða 19

Tíminn - 27.09.1977, Síða 19
Þriðjudagur 27. september 1977 19 //Á vogarskálum" 1 þættinum „A Vogarskálum” er ekki ætlunin að fjalla ein- göngu um offitu, hreyfingu og leiðir til að ná kjörþyngd, heldur einnig um hollar lifsvenjur al- mennt þar á meðal um fjöl- breytni i fæðuvali. En hvers vegna fjölbreytt fæði? Er þetta eitthvert lykil- orð, sem visindamenn tönnlast á til þess að vera spekingslegir? Ástæðan fyrir þeirri áherslu, sem er lögð á þetta atriði er að við þurfum að fá fjöldamörg næringarefni úr þeim mat, sem við borðum ef okkur á aö liða vel. Ein fæðutegund getur þann- ig verið ágæt uppspretta fyrir tiltekið næringarefni, en afleit fyrir annað. Eina leiðin til þess að tryggja að þörfum okkar fyr- ir öll næringarefni sé fullnægt er að borða fjölbreyttan mat, þ.e. að borða úr öllum fæðuflokkun- um. Hvaö eru næringarefni? Næringarefni skiptast i þrjá flokka: orkuefni, lifsnauðsynleg næringarefni og trefjaefni. Orkuefnin eru eldsneyti likam- ans og eru fjögur talsins: kol- vetni, hvita, fita og vinandi. Taflan hér á eftir sýnir hve margar hitaeiningar (HE) við fáum úr hverju grammi af hverju fyrir sig. Hitaeiningagildi orkuefn- anna Hvita 4 HE/gramm Kolvetni 4HE/gramm Á vogarskálum Fita 9HE/gramm Vinandi 7 HE/gramm t fæði tslendinga koma að jafnaði 40-45% hitaeininganna úr kolvetnum (15-20% úr sykri), um 15% úr hvitu, um 40% úr fitu og um 3% úr vinanda. Hvitan er sérstök að þvi leyti að hún nýtist ekki aðeins til orku heldur er hún einnig nauðsynlegt nær- ingarefni. Nauðsynleg næringarefni fyr- irutan hvitu eru talin 35-40 tals- ins, þar af um 15 vitamin og ai- gangurinn steinefni. Þörf okkar fyrir þessi efni er ákaflega mis- jöfn. Þannig þurfum við um 10- 18 milligrömm af járni á dag i matnum, en yfirleitt ekki meira en tiu þúsundustu hluta úr, milligrammi af D-vitamini svo dæmi sé nefnt. Þrátt fyrir þenn- an mismun getum við án hvor- ugs verið. bætiefnaauðugar? Hvituneysla Islendinga er meö mesta mtíti svo vel ætti að vera séð fyrir þeim þætti. ööru máli kann að gegna um ýmis vitamin, stein- og trefjaefni. Taflan hér fyrir neðan sýnir hvaða fæðutegundir Islendingarfá helst ýmis efni úr þessum flokki. Taflan sýnir einnig aö hver fæðuflokkur gegnir ákveönu hlutverki við að sjá okkur fyrir nauðsynlegum næringarefnum. Meö þvi að auka hóflega neyslu á grófu korni og grænmeti i samræmi við framboð og fjárhag ætti að vera sæmilega séð fyrir þörfum okkar fyrir nauösynleg snefil- efni og trefjaefni. Með þvi aö skoða þennan lista ætti einnig að vera ljóst hvers vegna það hlýt- ur að vera óæskiiegt að lifa vik- um eða mánuðum saman á ein- hæfu megrunarfæði eða fá- breyttu fæði af ööru tagi. NUna veröur fjallað um þetta efni i þættinum i kvöld sem hefst kl. 20.30. Trefjaefnin hafa sérstöðu vegna þess að þau voru eitt sinn álitinónauðsýnleg og voruýms- ar aðferðir notaðar til þess að fjarlægja þau úr matnum. Rannsóknir siðustu ára benda hins vegar til þess að þau gegni mikilvægu hlutverki við að halda meltingarfærum okkar i góðu lagi og að hlutur þeirra i fæðunni megi ekki vera of naumur. Hvaðan kom næringarefnín? Orkuefni finnast einkum i sæt- um og feitum mat. Með breytt- um lifnaðarháttum þar sem vél- ar vinna i auknum mæli erfiðis- verkin eru margir, sem brenna allt að helmingi minni orku (2000 HE/dag) en forfeður þeirra. En þtítt orkuþörfin hafi þannig minnkað hefur þörfin fyrir nauðsynleg næringar og trefjaefni ekki minnkað að sama skapi. Við þurfum þvi að draga úr neyslu á hreinum orkugjöfum og leggja þess I stað aukna áherslu á fæðutegundir, sem eru bætiefnaauðugar. En hvaða fæðutegundir eru Vitainin A og D lýsi) Bl - B2 B6 B12 C Steinefni Kalk Járn Trefjaefni Helstu uppsprettur næringar- og trefjaefna Fituflokkur (smjör, smjörliki, lýsi) Kornflögur Mjólkurflokkur Garðávaxtaflokkur Kjötflokkur Garðávaxtaflokkur Mjólkurflokkur Kjöt/ kornflokkur Korn/ garöávaxtaflokkur Sýsluskrifstofa á Eskifirði Tilboð óskast i gerð grunns og botnplötu byggingar sýsluskrifstofu á Eskifirði. Verkinu skal lokið 20. nóv. 1977. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri og skrifstofu sýslumanns á Eskifirði gegn 10000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri föstudaginn 7. okt. 1977 kl. 11.30. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Eftirtalið starfsfólk óskast til starfa: 1. Hjúkrunarfræðingar. 2. Ljósmóðir. 3. Sjúkraþjálfari. Upplýsingar veitir hjúkrunarfram- kvæmdastjóri i sima 95-5270. Auglýsið í Tímanum Gjörið svo vel að heimsækja okkur í bás nr. 52ásýning- unni Iðnkynning í Laugardalshöll 23/9 til 2/10 1977. Við kynnum m.a. nýjar prjónauppskriftir og Álafoss lop- ann, sem verður aðal efnið í vetrarfatnaðinn, bæði á stóra og smáa. Takið einnig eftir Álafossi átískusýning- unum. ÁÆdfoss Hf

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.