Tíminn - 13.10.1977, Page 3

Tíminn - 13.10.1977, Page 3
Fimmtudagur 13. október 1977. 3 Jarðræktarlög árið 1976: Mest í hlut hvers býlis í Austur- Skaftafellssýslu — og flugvélarnar gæla við flug- Félaginu hafa borizt margar fégjafir á árinu og þess má geta a& allar gjafir til félagsins eru frádráttarbærar til skatts, sam- kvæmt ákvör&un rikisskattstjóra. Félagið fékk rúmar 400 þúsund krónurtilminningar um Kristján Ingólfsson fyrrverandi fræðslu- stjóra en hann lézt 31. janúar á þessu ári. Fundarmenn risu úr sætum og vottuðu hinum látna virðingu sina. Einnig var gefið fé að upphæð kr. 203.507 til minning- ar um Magnús Magnússon fyrr- verandi bónda á Hrolllaugsstöð- um i Hjaltastaðaþinghá, Fá- skrúðsfirðingafélagið i Reykjavik gaf 100 þúsund kr. og Kvenfélag Vallarhrepps gaf kr. 50.000.- Avörp fluttu Vilhjálmur Hjálm- arsson, menntamálaráöherra Ástráður Magnússon og Helgi Seljan flutti eftirfarandi ljóð i til- efni dagsins Af hugsjón og þori skal heimilið reist, svo hlutverki megi það sinna. Og þá munu vandamál verða þarleyst, svo vlst megi á skuldinni grynna við þá, sem hér áttu svo erfiða braut, einir og smáðir, unz gönguna þraut. Og vel skal það munað, er Vonarlandris, að velferð þess er oss a& sinna. Framhald á bls. 19. Útvarps- mönnum berast stuðnings- yfir- lýsingar áþ—Rvik. Verkfall starfsmanna litvarpsins hefur vakið töluverða athyglihjá frændum vorum á hin- um Norðurlöndunum. Þannig hafa borizt stuöningsy firlýsingar frá starfsm önnum útvarps og sjónvarps i Noregi, Sviþjóö og Finnlandi. 1 einu skeytanna segir m.a. að fyrir utan islenzkt efni sem þegar var búið að gera ráö fyrir í dagskránni, verði ekki tek- ið við efni frá islenzka útvarpinu. alltaf að bætast við nýir félagsmenn Grænfóður Auk hinna 127.000 ha túna eru um 4000 ha ræktaðir grænfóður- akrar. Þeir voru á árinu 1976 alls 3976 ha og fara stækkandi. Voru 3560 ha 1975 og 3585 ha árið 1974. Fyrirð árum (1971) voru þeir 3455 ha og fyrir 10 árum (1966) 911 ha. Helztu grænfóðurjurtimar eru hafrar, fóðurkál og rýgtesi og eru um 30% af grænfóðurökrunum með hverri tegund fyrir sig. Um GV Rvik. Þann 7. ágúst siðastlið- inn var haldinn á Egilstö&um aðalfundur Styrktarfélags van- gefinna á Austurlandi og sama dag tók Vilhjálmur Hjálmarsson menntamélaréðherra fyrstu skóflustinguna að nýju vistheim- ili fyrir vangefna á Austurlandi, en það mun risa á Egilstöðum og sér Húsiðjan h.f. um fram- kvæmdir fyrsta áfanga bygging- arinnar. Arkitektar eru Vilhjálm- ur og Helgi Hjáimarssynir en alls eru þetta sjö hús. í fyrsta áfanga eru tvö hús með tengigangi á milli. t öðru húsinu eru höfuð- stöðvar kennslu og stjórnunarað- staöa. t hinu húsinu eru herbergi fyrir vistfóik, átta manns, eldhús, dagstofa, leikherbergi, sjúkra- herbergi og þvottahús. Fiaiarmál fyrsta áfanga er 613 fermetrar. Vistheimilið hefur þegar hlotið nafn og heitri það Vonarland. Haldin var samkeppni um nafn- gift heimilsins og hlutskörpust var Sveinlaug Þórarinsdóttir, Neskaupsstað. Gjafir til félagsins. Samkvæmt upplýsingum frá ótt- ari Geirssyni, jarðræktarráðu- naut hjá Búnaðarfélagi tslands nam nýrækt hér á landi árið 1976 samtals 3140 hektörum. Af þessu voru. 1640 hektarar ræktaðir á framræstu mýrlendi ,og 1500 á þurrlendi. Arið 1975 voru nýræktir 2996 ha og 2848 ha árið 1974. Arið 1976 var mest ræktað á Suðurlandi, en i Arnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu voru ræktaðirum 1000 ha af þessum rösklega 3000 ha, sem ræktaðir voru á landinu öllu. I Rangár- vallasýslu bættist meira en 1 ha við tún hvers býlis að meðaltali og hátti 1 ha bættist við túnstærð i Austur- og Vestur-Skaftafells- sýslu og í Norður-Þingeyjarsýslu. Tún á öllu landinu eru nú lik- lega um 127.000 ha að stærð. Þar sem enginn einn aðili safnar sam- anstærð þeirra túna, sem falla úr ræktun ár hvert, t.d. undir hús, vegi og önnur mannvirki, vegna skemmda t.d. af skriðuföllum og vegna þess að jarðir fara i eyði, er ógerlegt að segja til um ná- kvæma stærð túna. Ef tekin eru öll lögbýli, sem ekki eru I eyði hvort sem um engan, stóran eða smáan búrekstur er að ræða á býlinu verður meðaltúnstærð á býli tæpir 26 ha og hefur stækkað um 1/2 ha á árinu 1976. Ef einung- is eru tekin þau býli, þar sem um einhvern búskap er að ræða, verður meðaltúnstærð nærri 30 ha. Styrktarfélag vangefinna á Austurlandi 10% af grænfóðurökrunum eru vaxnir byggi og fóðurnæpu en stutt er sfðan farið var að rækta hana hérá landi. Hún er hins veg- ar svo efnileg grænfóðurjurt, að ekki þykir ótrúlegt að hlutur hennar I grænfóðurræktun eigi eftir að aukast á næstu árum. útihús Byggingaframkvæmdir voru á- móta miklar á árinu 1976 og 1975, nema hvað verulega meira var byggt af votheyshlöðum 1976 en árið áður. Arið 1976 var rými nýrra votheyshlöðubygginga 27.892 rúmmetrar en árið áður 17.410 rúmmetrar. Strandamenn og Vestur-Hún- vetningar reistu helming allra votheyshlaða, sem byggðar voru á árinu 1976. Strandamenn 8.888 rúmmetra og Vestur-Húnvetn- ingar 5.032 rúmmetra. Næstir i Framhald á bls. 19. Aukatónleikar hjá Sinfóní uhlj óms veitinni Annað kvöld, föstudaginn 14. október heldur Sinfóniuhijóm- sveit islands tónleika i Bústaða- kirkju, og hefjast þeir klukkan hálf-niu. Stjórnandi er Páll P. Pálsson og einieikari Sigurður Ingvi Snorrason. Efnisskráin er sem hér segir: D. Cimarosa: Forleikur að ,,Le Mariage Secret”. W.A. Mozart: Konsert fyrir klarinett og hljóm- sveit KV 622 i a-dúr. G. Fresco- baldi: Toccata. Bach-Stokowsky: Komm susser Tod. G.F. Handel: Vatnasvitan. Óþarfi er að kynna Pál P. Páls- son. Hann hefur á siðustu árum stjórnað sinfóniuhljómsveitinni oftar en nokkur annar hljóm- sveitarstjóri, og átt sinn stóra þáttiþvi,hve henni hefur vegnað vel. Reisir vistheimili fyrir vangefna Leik- listar- þingi frestað t ráði var að haida leiklistar- þing i Þjóðleikhúsinu nú um helgina. Hafa fuiltrúar 10 leik- listarfélaga — og stofnana átt sæti i undirbúningsnefnd og höfðu um 70 manns tiikynnt þátttökui þinginu, sem er opið öilum þeim, sem starfa hafa að ieiklist. Vegna lokunar þjóöleikhúss og ýmissa framkvæmdaörð- ugleika vegna yfirstandandi verkfalls BSRB, hefur veriö ákveðið að fresta þinginu um sinn. Aðalviðfangsefni þings- inser Verkefnavalleikhúsa og ræktun listamannsins. Stefnt er að þvi að halda þingið aðra helgieftirað verk- falli lýkur og verður nánar til- kynnt um það siðar. brautirnar Mest allt flug lagðist niður i gær og stóð floti Fokker-Friendship flug- véla aðgerðarlaus á Reykjavikurvelli i gær. Einungis er hægt að fljúga sjónflug. Miklar tafir hafa orðið á flug- umferð yfir Norður-At- lantshaf vegna verkfalls aðstoðarflugumferðar- stjóranna og ekki hefur það bætt úr skák, að samstarfsbræður þeirra i Bretlandi eru einnig i verkfalli. T mynd: Gunnar Stofnun Grænlandsvinafélags Ahugafólk um stofnun félags til að efla samskipti og sam- vinnu milli íslendinga og Græn- lcndinga á sviði menningar- fé- lags- og atvinnumála mun hitt- ast i dag, fimmtudaginn 13. okt. i Norræna húsinu til að stofna félagið. Grænlandsvinir hafa lengi haft á orði sin á milli, að eðlilegt væri að stofna félag til að auka samskipti okkar við þessa ná- granna okkar i vestri. Vonum við að þú sjáir þér fært að mæta á fundinn og e.t.v. einhverjir sem áhuga kynnu að hafa á málinu. f.h. undirbúningsnefndar, Guðmundur Þorsteinsson, Arni Johnsen

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.