Tíminn - 13.10.1977, Blaðsíða 6

Tíminn - 13.10.1977, Blaðsíða 6
Fimmtudagur 13. október 1977. Hún ætlar aftur í kvennabúrið Frönsk stúlka að nafni Diana varð yfir sig ástfangin af arabiskum prins Múhameð, frænda Arabiukonungs, og fór með honum til hans heima, þar sem hún varð ein af mörgum eiginkonum hans i kvennabúrinu. Henni lik- aði ekki ófrelsið og einangrun þá, sem hún varð við að búa i kvennabúrinu, og kom orð- sendingu tii fólksins sins i Liege i Frakklandi. Bræður hennar komu tii Austurlanda og hjálpuðu henni að flýja, og var þetta allt saman eins og i ævintýri úr Þúsund og einni nótt. Diana fór heim til fjölskyldu sinnar — en ástin er sterk! Arabahöfðinginn kom og vildi vingast við hana aftur og bauð henni gull og græna skóga ef hún kæmi til sin á ný. Diana féll i faðm hans og nú er hún farin i aðra brúðkaupsferð meö Múhameð sinum, og að þessu sinni til Kaliforniu. Siðan ætla þau aftur til Arabíu og Diana ætlar aftur I kvennabúrið. Hér er mynd af þeim þar sem þau eru að leggja upp i brúökaupsferð nr. tvö. Nýr vinur Karólinu Kennedy Karólína Kennedy hefur starfað að undanförnu sem Ijósmyndari við New York Daily News (á byrj- andakaupi). Hún kunni mjög vel við sig þar og var áhugasöm í starfinu. Þarna kynntist hún góðum, vini sem sumir á blaðinu kölluðu ,,kærastann henn- ar Karólínu", en það er Richard Licatta, sem var þarna í sumarstarfi. Þegar Richard kvaddi til þess að snúa sér aftur að námi, þá bauð hann vinkonu sinni út að borða á veitingastað einum í Manhattan. Þau sátu þarna og létu fara vel um sig, en hin ró- lega og innilega stemmning hjá þeim fór fljótt út um þúfur því að áður en varði höfðu margir ,,kolI- egar" þeirra, bæði Ijósmyndarar og blaðamenn ruðzt inn á barinn þar sem þau sátu og ætluðu að njóta kvöldsins eins og annað ungt fólk. Starfsfé- lagar þeirra voru aðgangsharðir og kepptust um að Ijósmynda þau og að reyna að fá þau til að segja eitthvað um samband þeirra. — Voru þau aðeins vinir? Ætluðu þau að halda sambandi sínu áfram? O. s. frv. Unga parið sagði víst lítið, nema að þau væru að kveðjast og þakka hvort öðru fyrir sam- starf ið og Licatta blaðamaður var í þann veginn að missa þolinmæðina, honum fannst þetta allt of mik- ill ágangur og frekja, en Karólína er öllu vön, og sagði að þau skyIdu taka þessu létt — því f yrr er það af staðið, og þetta er nú einu sinni þeirra starf, sagði Karólína Kennedy, sem er vön Ijósmyndurun frá barnæsku. Síðan brostu þau f yrir Ijósmyndarana og vonandi hafa þau svo fengiðað kveðjast í f riði. Jæja, þú gætir nú '\/"þ.ví skyldi ég tekið við Geiri og leyft hafa aua mér stökkva. ánægjuna. í

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.