Tíminn - 13.10.1977, Qupperneq 7
Fimmtudagur 13. október 1977.
7
Myglaður ostur er
ekki skaðlegur
Fólki stafar hætta af að eta
myglaðan mat yfirleitt.
Myglaður ostur er samt
undantekningin. Það er mið-
stöð krabbameinsrannsókna
i Heidelberg f V-Þýzkalandi
í spegli tímans
er komst að þessari niður-
stöðu. Heilbrigðismálaráðu-
neytiö stóð að baki þessum
rannsóknum. Þessir visinda-
menn hafa árum saman unn-
iö að rannsóknum á myglu-
sveppum. Þeir segja að fólk
ætti að vara sig á mygluðu
brauði og skemmdum ávöxt-
um en myglaðan ost segja
þeir alls ekki óhollan. Sam-
kvæmt skýrslu visinda-
mannanna neytir almenn-
ingur i landinu 5 kg af osti
árlega. Þetta ostaát virðist
alls ekki nein hætta fyrir
heilsu manna.
RITHOFUNDAVERÐLAUN
Hæstu bókmenntaverðlaun i Vest-
ur-Þýzkalandi hafa s.l. 3 ár verið veitt
efnilegum rithöfundum. Litil útborg i
Frankfurt, Bergen-Enkheim, veitir verð-
launin. Þau eru leigufritt húsnæði i eitt ár
og 1800 mörk á mánuði. Það er til þess ætl-
azt að rithöfundurinn hitti fólk og reyni að
vekja áhuga þess á bókmenntum. Peter
Haertling (t.v. á myndinni) mun verða i-
búi rithöfundahússins næsta ár. Hann er
skáldsagnahöfundur, ljóðskáld og ritgerð-
arhöfundur. Áður hafa búið i húsinu Wolf-
gang Koeppen, Karl Krolow og Peter
Ruemkorf (t.h. á myndinni) i glugganum.
Þeir eru allir þekktir. í framtiðinni þegar
gott skipulag er komið á verðlaunin, er
ætlunin að veita þau ungum, óþekktum en
efnilegum rithöfundum.
'vio naigumst >■.
eyjuna óðfluga,)
Svalur. \/
Svalur og Siggi / í
leggja upp i leit |
"að fóreldrum
Alans og flugvélaí
l!7flakinu meðgul’-i
Sílarminum, meOan
Aian jatnar sig.
Ee sé f jölda éýja ' Einmitt',
> er viss urm'ogvélin
;r eru enn ^ gætí hafa ‘
fleiri. brotlent hvar
Tíma-
spurningin
Hvernig finnst þér að vera
án útvarps og sjónvarps?
Gisli Gunnarsson, guðfræðinemi:
— Það er alveg þolanlegt, en helzt
sakna ég frétta, og þá helzt i út-
varpi.
Pétur Eggertz, sendiherra: — Af-
leitt.
Benedikt Þóröarson, lögfræöing-
ur: — Þaö er að visu litið farið aö
reyna á það ennþá, en eflaust má
venjast þessu sem ööru.
Jens E. Fjeld, tæknifræðingur: —
Ég sakna hvorutveggja og sér-
staklega fréttanna.
Ingóifur Guðmundsson: — Ég er
ekkert óhress með að vera laus
við sjónvarpið, en það er konan
sem vill hafa þaö i gangi. Hins
vegar eru það fréttir og veður i
útvarpi, sem ég vill ekki missa af
fyrir nokkurn mun.