Tíminn - 13.10.1977, Side 20
Fimmtudagur 13. október 1977. c «18-300 Auglýsingadeild Tímans. f t&MMi s Marks og Spencer HEIMSÞEKKT GÆÐAMERKI YTRIFATNAÐUR
Gæzlan í hliðum Keflavíkurflugvallar:
Sýrö eik
er sígild
eign
HU
TRÉSMIÐJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Menn komast inn án vallarvegabréfa
— ef þeir geta lagt fram
fullgild persónuskilríki
Lögreglumenn á Keflavlkurflug-
velli breyttu starfsaðferöum sin-
um viö öryggisgæzlu i hliöum
Keflavikurflugvallar um hádegi i
gær á þann hátt, aö þeir starfs-
menn á Keflavikurflugvelli, sem
lagt geta fram fullgild persónu-
skilriki og ennfremur staöfest viö
lögregluna, aö þeir starfi hjá viö-
urkenndum aðiium á flugvellin-
um, fá nú aðgang aö vallarsvæö-
inu enda þótt þeir hafi ekki i
höndum gild vallarvegabréf.
Ennfremur þykir ekki ástæöa til
þess lengur aö hindra för þeirra
farartækja, er flytja nauösynleg-
ar birgöirtilvallarins, enda vitaö
aö slikir flutningar eru forsenda
þess aö ýmiss konar starfsemi á
vellinum haldi áfram. Eru hér
eldsneytis- og matvælaflutningar
haföir i huga.
í fréttatilkynningu frá lög-
reglumönnum segir:
„Lögreglumennirnir vilja
leggja rlka áherzlu á, að þeim er
fyrirskipað af kjaradeilunefnd aö
halda uppi öryggisgæzlu á vellin-
um, og þvi hlutverki geta þeir þvi
aðeins sinnt að nokkru gagni, að
mun nákvæmar sé fylgzt með
ferðum manna inn á völlinn en
tiðkast, þegar fuilri gæzlu er hald-
ið uppi á sjálfu vallarsvæðinu. Þá
erlögreglumönnunum ennfremur
vel ljóst, að sú takmörkun, sem á
þriðjudaginn var sett á ferðir
þeirra starfsmanna á flugvellin-
um, sem ekkihöfðu gild vegabréf
I höndum, bitnaði fyrst og fremst
á viðkomandi launþegum, sem
þannig urðu af kaupi sinu fyrir
vikið. Með þvi að breyta þannig
um starfsaðferðir vilja lögreglu-
mennirnir leggja sitt af mörkum
til þess samstarfs, sem félagar i
BSRB vænta af félögum sinum i
Verkalýðs- og Sjómannafélagi
Suðurnesja— og raunarafverka-
lýöshreyfingunni allri.
Þá vilja lögreglumennirnir lýsa
furðu sinni á þeim vinnubrögðum
kjaradeilunefndar að gleyma —
12,300 stöðu-
gildi hjá ríkinu
JH-Reykjavík — Komin er
út skrá/ þar sem titgreindir
eru allir opinberir starfs-
menn i ársbyrjun 1977,
starfsheiti þeirra, launa-
kjör og annað, sem máli
skiptir.
Alls voru svonefnd stöðugildi,
sem heyra undir ráðuneytin, hag-
stofuna, rikisendurskoðun og
fjárlaga- og hagsýslustófnun,
12.298 i ársbyrjun, og hafði þeim
fjölgað um 460 frá ársbyrjun 1976.
Þar voru stöður án heimildar 312,
og hafði þeim fækkað um 264, en
ónotaðar heimildir rúmlega 370.
Langflestar stöður án heimildar
heyrðu undir heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið, 160 aö
tölu, og hafði fjölgað um 134 frá
árinu 1976.
Flest eru stöðugildin á vegum
menntamálaráðuneytisins, enda
.kemur þar til allt kennaraliðið.
Þau eru samtals 3569. Næst kem-
ur samgöngumálaráðuneytið
með 2810 stööugildi þar með póst-
ur og simi, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið með 2021
stöðugildi og dómsmálaráðuneyt-
ið með 1243 stöðugildi.
Um langt árabil hefur venjan veriö sú, aö lögreglumenn ihliöum
Keflavikurflugvallar hafa meö handabendingu einni gefiö mönn-
um heimild til þess aö fara inn á hersvæðiö. í fyrradag þurftu
menn aö sýna vegabréf til þe ss aðkomast inn á hersvæðið og í
gær fullgild persónuskilriki.
eins og reyndin varö — tilvist
annars fjölmennasta lögregluliðs
á landinu — en við borð lá að
engri löggæzlu yrði haldið uppi á
vallarsvæðinu, þar sem engin
fyrirmæli um störf liðsins höfðu
borizt, þegar verkfall BSRB hófst
aðfaranótt þriðjudags”.
Litlar biðraðir
við Kefla-
víkurvöll
Listar komnir yfir starfsmenn
áþ-Reykjavik — Þaö er enn sama
eftirlitið við Keflavikurflugvöll en
nú eru komnir listar yfir starfs-
menn vallarins svo iitlar sen eng-
ar tafir eru i hliöinu, sagöi Hauk-
ur Helgason á skrifstofu BSRB í
samtali við Timann. — En ef
menn geta ekki gert nægjanlega
grein fyrir sfnum feröum, eru
þeir stöövaöir.
1 fyrradag mynduðust langar
biðraðir við hlið Keflavikurflug-
vallar, þar sem lögreglumenn
framkvæmdu mjög nákvæma
skoðun á hverjum og einum sem
taldi sig eiga erindi á völlinn. Það
furðulega gerðist, að Kjaradeilu-
nefnd skipaði svo fyrir að lög-
reglumennirnir skyldu hætta að
skoða skilriki manna svo ná-
kvæmlega. BSRB vildi ekki una
þessum úrskurði og nú eru sem
sagt komnir listar með nöfnum
allra sem starfa á vellinum.
Margar fyrirspurnir hafa verið
gerðar til skrifstofu BSRB um
hvort þetta eða hitt væri leyfilegt.
Þannig fóru verkfallsverðir á
skrifstofu sveitarstjórans i Mos-
fellssveit en skiptar skoðanir
voru um hve margir mættu vinna
á skrifstofunni. Þar, eins og við-
ast hvar annars staðar, varð
strax samkomulag um starfs-
mannafjöldann.
432 stjórnir,
nefndir og ráð
JH-Reykjavík— Á vegum
rikisins voru 432 stjórnir,
nefndir og ráð árið 1976 og
áttu alls sæti i þeim 2.232
menn. Þóknun sú, sem
þessir nefndarmenn
fengu, nam 134,5 milljón-
um króna, en annar
kostnaður var 26,6 milljón-
ir.
Hæst var menntamálaráðu-
neytiö með 124 nefndir, og hafði
þeim fækkað um 26 frá fyrra ári,
og I árslok voru þær komnar nið-
ur i 113. Undir önnur ráöuneyti
heyrðu nefndir, sem hér segir:
Forsætisráðuneytið 18, utanrikis-
ráðuneytið 7, landbúnaðarráðu-
neytiö 25, sjávarútvegsráðuneyt-
ið 17, heilbrigöis- og trygginga-
málaráðuneytið 45, fjármála-
ráðuneytið 29, samgöngumála-
ráðuneytið 25, iðnaðarráðuneytið
56, viðskiptaráðuneytið 12. Loks
var ein nefnd tilheyrandi hagstof-
unni og 7 tilheyrandi fjármála-
ráðuneyti og fjárlaga- og hag-
sýslustofnuninni.
65 nýjar nefndir höfðu verið
stofnaðar á árinu, en 98 fallið úr
sögunni.
Senn má búast
við tíðindum af
Kröflusvæðinu
áþ-Reykjavik — Landiö er að
risa á Kröflusvæöinu með svip-
uöum hraöa og þaö hefur gert
undanfariö, sagöi Axel Björns-
son jaröeölisfræöingur hjá
Orkustofnun I samtali við Tim-
ann. — Landiö er komið núna f
þá hæð sem það var i fyrir sið-
asta gos, þannig að þaö mætti
fara að búast viö einhverjum
tiðindum.
Hallabreyting landsins við
stöðvarhúsið hefur ekki náð
sama gildi og fyrir gos og
skjálftum fækkar smámsaman.
Bjarnarflagið hefur verið að
hitna að undanförnu, og sagöi
Axel það liklegast að hér væri
um beina afleiðingu af umbrot-
unum i september að ræða,og þvi
er aukið gufumagn afleiöing
sprungumyndunar og skemmda
á borholum. — Það er ekki lik-
legt að það verði frekar gos i
Bjarnarflagi en annars staðar á
svæðinu, sagði Axel.