Tíminn - 28.10.1977, Blaðsíða 8

Tíminn - 28.10.1977, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 28. október 1977 Magnús Ólafsson formaður SUF. Fðlkið á að ráða — frumvarp Jóns Skaftasonar um persónukjör skref í rétta átt Loksins hefur verið lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á kosningalögum. Það var framsóknarþingmað- urinn Jón Skaftason, sem lagöi þetta frumvarp fram, og er meginefni þess það, að hinum almenna kjósanda veröi tryggö áhrif á hvaöa menn veljist til þingsetu. Full ástæða er þvl til þess aö fagna frumkvæöi Jóns i þessu efni og láta I.ljós þá von, að þetta frumkvæöi veröi til þess aö Alþingi taki nii á sig rögg og geri nauösynlegar; breytingar á kosningalöggjöf- inni. A siöustu árum hafa miklar umræður fariö fram hér á landi um nauösyn þess að tekið veröi upp meira persónukjör alþing- ismanna, en nú er. Kröfurnar um þetta hafa slfellt oröiö há- værari, og er ekki að furöa, enda er staöreyndin sú, aö með kosningalögunum, sem sam- þykkt voru samfara kjördæma- breytingunni 1959 er valiö um rööun frambjóöenda á lista nær alfarið tekiö úr höndum hins al- menna kjósrnda. Reynslan hef- ur lika oröið sú, aö iðulega hafa valizt menn til þingsetu, sem fjöldi manns fullyrðir, að ekki eigi almennan stuöning kjós- enda flokksins I viðkomandi kjördæmi. Sllkt hlýtur ævinlega að vera mjög skaðlegt, og ekki sízt fyrir viökomandi þingmenn, sem ekki geta með nokkru móti eftir núverandi kosningalöggjöf sýnt fram á raunverulegt fylgi sitt meðal kjósenda flokksins. Með persónukjöri fæst úr þvi skorið hvaöa menn innan hvers flokks hafa raunverulegt fylgi til þess aö sit ja á Alþingi. Þessir menn leggja siðan geröir sinar undir dóm kjdsendanna á nokk- urra ára fresti og fá þá áfram- haldandi stuðning til þingsetu, ef störf þeirra hafa veriö i sam- ræmi viö vilja kjósendanna. Ótti þingmanna En þótt von sé látin I ljósi um aö frumkvæði Jóns Skaftasonar veröi til þess aö Alþingi taki nú á sig rögg og breyti meingall- aðri kosningalöggjöf þá skal það viðurkennt, aö mörg ljón eru á veginum. M.a. eru fjöl- margir þingmenn andvigir per- sónukjöri enda að sumra mati ólikt þægilegra aö sitja I ein- hverju af hinum svokölluðu „öruggu sætum” og þurfa litt fyrir lifinu að hafa. Siðan geta þeirlátiö þá.sem Ibaráttusætin veljast annast kosningabarátt- una aö miklu leyti. Hinu skal þóekki gleymt, aö formenn stjórnmálaflokk- anna hafa allir lýst þvi yfir I sjónvarpi og viöar, aö þeir séu hlynntir persónukjöri. Vonandi eru slikar yfirlýsingar ekki aö- einsorðin tóm, heldur muni þeir leggja áherzlu á aö þeirra flokksmenn styöji persönukjör- iö. Meirihlutinn ræður — Einn helzti kosturinn viö frumvarp Jóns, ef aö lögum veröur, er aö með þvi fyrir- komulagi á kosningum geta kjósendurnir valiö þann fram- bjóöanda, sem þeir helzt vilja. Umsjónarmenn:Pétur Einarsson Ómar Kristjónsson Þvi er ekki hætta fyrir nokkurn flokk, að kjósendur, sem styðja vilja stefnu flokksins, neyðist til aö kjósa aöra flokka vegna þess aö þeim fellur ekki einhver frambjóöandi flokksins I geö. Þá losna flokkarnir lika viö þann mikla vanda, sem þvifylg- ir,aðþurfa að velja millimanna á flokkslistann. I flestum tilfell- um geta allir, sem hug hafa á að spreyta sig i kosningabaráttu fengið tækifæri til þess. Siðan verða þeir, sem ná kjöri að leggja sig fram um að vinna þannig,að þeir eigi möguleika á endurkjöri i næstu kosningum. Prófkjör Verði frumvarp Jóns sam- þykkt veröa prófkjör þau, sem nú fara fram víða um land óþörf. Við það vinnst margt, m.a. það að fleiri veröa virkir fyrir hvern flokk i aöalkosn- ingabaráttunni. Gallinn á þessari aðferö er hins vegar einn og sá hinn sami og upp getur komið viö skoöana- kannanir og prófkjör. Þessi galli er sá, aö ákveðinn meiri- hluti, jafnvel naumur meirihluti kjósenda eins flokks i kjördæmi, getur ráöið hverjir skipi þing- sæti flokksins, meira aö segja þótt þingsætin verði þrjú eða fleiri. Þetta byggist á þvi að i frumvarpi Jóns er gert ráö fyrir að hver kjósandi f lokksins f ái að tilnefna menn i öll þingsætin. Þvi er hér lagt til, að þing- menn kanni rækilega, hvort ekki sé unnt að finna lausn á þessu vandamáli. Sérstaklega er bent á, hvort ekki væri heppi- legra að taka upp írska kerfið i einhverri mynd. Með þvf kerfi væri unnt að komast fram hjá þessu vandamáli. Með þvi kerfi heföi fólkið mesta möguleika á að ráöa hvaða menn veljist til þingsetu. Magnús ólafsson Kynning á ungoim framsóknarmönnum FRAMSÓKNARFLOKKURINN ER EINI BYGGÐASTEFNUFLOKKURINN í dag kynnum við ungan framsóknar- mann frá Raufarhöfn. Hann heitir Pétur Björnsson fæddur á Raufarhöfn og uppal- inn þar. Hann varð stúdent 1975 og tók fiskimannapróf 1976. 1 haust settist hann síðan i útgerðardeild Tækni- skóla íslands og mun útskrifast þaðan i vor. Pétur hefur lagt stund á iþróttir og spilar oft bridge við kunningja sina. Hann hefur mikinn áhuga á þjóðmálum og tekur þátt i starfi Fram- sóknarflokksins eftir þvi sem aðstæður hans á hverjum tima leyfa. Milli þess, sem hann hefur setið á skólabekk hefur hann stundað sjó- mennsku. M.a. var hann siðasta ár á tog- aranum Rauðanúpi frá Raufarhöfn. Pétur er kvæntur Margréti Þor- valdsdóttir frá Akur- eyri og eiga þau einn son. Nýlega tókum við Pétur tali og spurðum hann fyrst hvað það væri, sem kennt væri við útgerðardeild Tækniskólans. — Þar er veitt alhliða menntun um á hvern hátt stjórna skuli útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækjum. Þessi — og hætt er við að víða væri erfitt atvinnu- ástand um landsbyggð- ina, ef Framsóknar- flokkurinn hefði ekki komizt í stjórn 1971 og haft forystu í byggða- málum síðan menntun er að minum dómi mjög góö undirstaða fyrir þaö verkefni, að taka aö sér slfka stjórnun. Ég tel mjög gott að hafa slfka menntun, ef atvikin eiga eftir aö haga þvi þannig að ég lendi einhvern tíma I að stjórna sllku fyrirtæki. En eins og er stefnir hugurinn mest á sjóinn, og hef ég áhuga á aö stunda sjómennskuna a.m.k. eitthvaö áfram. Er ekkiútgerðog fiskvinnsla undirstaða alls atvinnuiffs I þinni heimabyggö á Raufar- höfn? — Rétt er það, og segja má aö allt atvinnulff á Raufarhöfn standi og falli meö útgerðinni. Sömu sögu er einnig aö segja af Þórshöfn, og á Kópaskeri er út- gerðvaxandi þáttur I atvinnulif- inu. Eru margir togarar geröir út frá þessum stöðum? — Nei, aðeins einn togari er geröur út frá Þórshöfn, ann ar frá Raufarhöfn. Hugmynd manna á Þórshöfn var að byggja eingöngu á Utgerð smærri báta, enda var mikil fiskigengd skammt frá landi, þegar áætlanir voru gerðar um uppbyggingu fiskiðnaðarins á staðnum. Siðan gerðist það, að fiskurinn hverfur af grunnslóð, m.a. vegna mikils ágangs er- lendra veiðiskipa út af Norð- austur-landi. Þvi var ekki um annaö að gera fyrir Þórshafnar- búa en að kaupa togara. Attu þeir f harðri baráttu með aö fá skip, enda var þá fariö að stemma stigu viö innflutningi nýrra togara. Niðurstaöa þessa máls varð, aö þeir urðu að sætta sig við að kaupa fremur lélegt skip og hefur þaö háö þeim alla tið. Þaö er þvi ljóst, aö það hefur háð vexti Þórshafnar verulega, að sú mikla fiskigengd sem var á grunnslóð, þegar flestir togar- amir voru keyptir til landsins 1972-74, skyldi hverfa svo gjör- samlega, sem raun ber vitni. Raufarhafnarbúarhafa aldrei treyst á útgerð smábáta? — Vöxtur Raufarhafnar var mestur á sildarárunum, en þegar hún hvarf skapaðist mjög alvarlegt ástand á staönum. Siðan var togbátur keyptur og frystihUsið endurbyggt. Siðan var þessi togbátur seldur, strax og unnt var að fá togara. Annað stórt atriði I atvinnu- málum Raufarhafnarbúa er loðnubræöslan, sem þar er. Hún veitir mikla atvinnu á vetrum, og vinna verður aö því að lengja þann ti'ma sem hún veitir at- vinnu. En f þvi sambandi má nefna, aö á Þórshöfn er sildarbræðsla, sem byggð var f lok sfldarár- anna. Þessi bræðsla hefur lftið Pétur Björnsson verið notuð. Ég tel aö það kosti litiö að standsetja hana þannig að lo&iubræðsla geti einnig haf- izt á Þórshöf n og veitt þar mikla atvinnu. Hvaö getur þú nefnt annað, sem tryggði vöxt og eflingu byggðanna I Noröur-Þfngeyjar- sýslu? — Að mínum dómi háir það Raufarhöfnverulega hve lítiö er þar um iðnaðarmenn. Það á einnig við aðra þéttbýliskjarna f sýslunni, þó að ástandið sé ekki eins slæmt og á Raufarhöfn. Td. er öll þjónusta viö Utgerð- ina frá Raufarhöfn mjög léleg og er mikil nauðsyn á öflugu verkstæði til þess að þjóna út- gerð, fiskvinnslu og öðrum, sem á þessari þjónustu þurfa að halda. Eins skortir okkur verulega aöra iönaðarmain, sérstaklega byggingariönaöarmenn. I mörgum tilfellum verða menn aö vera aö brasa I því sjálfir aö byggja hús yfir sig. Þótt ýmsir vilji gjarnan hafa þann hátt á, eruþó fjölmargir, sem vilja fá fagmenn til þess aö byggja fyrir sig, ef þess er kostur. Þá væri þaö stórt skref i þá átt að fjölga ibúum á þessum stöðum ef þar væri meira um ibúðarhúsnæði, sem unnt væri aö fá keypt eöa leigt. En hvað segir þú um eflingu ýmiskonar smáframleiðsluiðn- aöar i sýslunni? — Aö slíkri iönaðaruppbygg- ingu veröur markvisst aö stefna, enda yröi slfkt til þess að skjóta fleiri stoöum undir at- vinnulifið og gera það á allan hátttryggara. Auk þess eru fjöl- margir, sem ekki geta eða vilja vinna f fiski. Þaö fólk veröur að fá vinnu við sitt hæfi. Nú höfum við fyrst og fremst talaö um atvinnu og manniif I þéttbýliskjörnum Noröur-Þing- eyjarsýslu. En hvaö getur þú sagt okkur um búskap i sýsl- unni? — Frá náttúrunnar hendi eru búskaparskilyrði góð í sýslunni. Þar eru sauðlönd góð og dilkar vænir. Hins vegar fóru kalárin mjög illa með marga bændur, og segja má að margir bændur hafi ekki náð sér enn eftir þau áföll. NU um skeið hefur veriö unniö að gerð landbúnaöaráætlunar fyrir sýsluna og vona ég að þegar farið verður að fram- kvæma þá áætlun verði það veruleg lyftistöng fyrir sveitir sýslunnar.Eins telég nauðsyná að leggja áherzlu á að auka at- vinnuval I sveitum og koma þar á fót ýmissi annarri atvinnu en þeim hefðbundna búskap, sem um aldir hefur verið stundaöur. I þvisambandi má nefna fiski- raekt og sitthvað fleira. Hvernig er samgöngum um Noröur-Þingeyjarsýslu háttaö? — Það er ekki ofsögum sagt, þótt þaö sé fullyrt að á sumum svæöum sýslunnar séu vegir með þvi versta, sem gerist á landinu. T.d. má nefna veginn um Melrakkasléttu. Þann veg verður aö endurbyggja, svo og aðra vegi i' héraöinu, sem ekki hafa veriö endurbyggöir á sið- ustu árum. Snjóþyngsli I hérað- inu eru mikil, og þvi er þar mikil nauðsyn á háum og góöum veg- um, sem ekki lokast I fyrstu snjóum. Nú flýgur Flugfélag Norður- lands reglulega til nokkurra staða i sýsiunni. Er ekki mikil samgöngubót I þvi? — Tilkoma þessa flugs mark- aði þáttaskil I samgöngumálum Framhald á bls. 20

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.