Tíminn - 04.11.1977, Page 21
Föstudagur 4. nóvember 1977
21
íþróttir |
Hreinn og Lára
við meiðsli
að stríða
Meiðsli Hreins það slæm, að
hann mun lítið taka þátt 1
keppni næsta ár
LARA SVEINSDÓTTIR... frá æfingum og keppni fram yfir áramót.
íslenzka unglingalandsliðið
sigraði i Wales
„Strákar-
nir voru
stórkost
legir”
— sagði Helgi Danielsson.
Wales-búar réðu ekki við
aðeins 10 íslendinga
— Strákarnir voru hreint út
sagt stórkostlegir/ Þeir
léku aðeins 10 nær allan
síðari hálfleikinn/ og þrátt
fyrir það náðu Wales-menn
ekki að brjóta þá niður,
sagði Helgi Daníelsson,
varaformaður K.S.Í., sem
er fararstjóri með ungl-
ingalandsliðinu í knatt-
spyrnu, sem vann það
frækilega afrek að vinna
sigur (1:0) yfir Wales í gær
i Bridgen og þar með
tryggði Island sér rétt til
að leika í 16-liða úrslitum
Evrópukeppni unglinga-
landsliða í Póllandi næsta
vor.
Helgi sagði að það hafi verið
rok, þegar leikurinn fór fram og
hafi völlurinn verið rennandi
blautur og háll. — Strákarnir léku
undán vindi i fyrri hálfleik, en
fengu ekki mörg marktækifæri.
Þeir náðu þó að skora eitt mark,
aðeins min. fyrir leikshlé. Páll
Ólafsson tók þá innkast — Bene-
dikt Guðmundsson tók við knett-
inum og skallaði hann inn i vita-
teig, þar sem Arnór Guðjohnsen
/átti i höggi við einn varnarmann
Wales — knötturinn hrökk frá
þeim til Ingólfs Ingólfssonar
(Stjörnunni), sem skoraöi auð-
veldlega af stuttu færi, sagði
Helgi sagði að á 7. min., siðari
hálfleiksins hefði Páll Ólafsson
verið rekinn af velli, en hann
hafði fengið að sjá gult spjald fyrr
i leiknum. — Þrátt fyrir þetta
mótlæti, náðu strákarnir að sýna
mjög góðan leik, þótt að þeir hafi
aðeins leikið 10 á móti vindi og
gegn 11 Wales-búum. Þeir urðu
betri og betri, þegar á leikinn leið.
Wales-búar pressuðu mikið að
marki íslendinga undir lokin, en
þá varði Guðmundur Baldvins-
son, markvörður, tvisvar sinnum
snilldarlega. Guðmundur átti
stórleik, ásamt miðvörðunum
Agústi Haukssyni og Benedikt
Guðmundssyni, semvoru klettar i
vörn islenzka liðsins, sagöi Helgi.
Þessi sigur islenzku strákana
er frækilegur — hann kom
skemmtilega á óvart. íslenzka
unglingalandsliðið hefur nú
þriðja árið i röð tryggt sér rétt til
að leika i úrslitakeppni Evrópu-
keppninnar. Þess má geta, að
liðið sem lék i Wales i gær, er
yngsta unglingaliðið, sem Island
hefur teflt fram, þvi að 7 af leik-
mönnum liðsins mega leika með
þvi i næstu Evrópukeppni.
— Ég hef farið margar ferðir
erlendis með ýmsum knatt-
spyrnuhópum. Þessi hópur er sá
albezti sem ég hef farið með —
strákar, sem eru mjög samstilltir
jafnt á leikvelli, sem utan leik-
vallar. Þeir eru frábærir fulltrúar
Islands — maður er ungur i annað
sinn, að vera með þeim, sagði
Helgi.
Strandamaðurinn
sterki, Hreinn Halldórs-
son hinn snjalli kúlu-
varpari verður að öllum
likindum litið i sviðsljós-
inu næsta sumar, þar
sem hann hefur átt við
meiðsli i hné að striða og
var hann skorinn upp við
þeim fyrir stuttu.
Hreinn hefur þvi ekkert
getað æft, enda gengur
hann haltur.
Hreinn getur byrjað aö æfa aft-
ur ef tir áramót og þaö tekur hann
þó nokkurn tima að ná sinum
fyrri styrkleika og þvi er ekki
reiknað með að hann taki þátt i
stórmótum næsta sumar, sem
hann mun þó nota tilaö þjálfa sig
upp.
Lára Sveinsdóttir, hin fjölhæfa
frjálsiþróttastúlka úr Armanni
hefur einnig átt viö meiðsli að
striða þar sem hún meiddist i
ökkla — liðbönd slitnuðu. Lára
var skorin upp fyrir stuttu og er
hún nú með gifsumbúöir um ökkl-
ann. — Hún mun ekki geta byrjaö
aö æfa fyrr en eftir áramót.
Stefán Hallgrimsson ætlar ekki
að hafa heppnina meö sér þvi að
pilturinn sá er nú enn einu
sinni tognaður og hefur hann ekki
getaö keppt neitt að ráöi i rúm-
lega tvö ár, vegna tognunar.
Hörð barátta framundan í körfuknattleik:
ÍR-ingar hef ja
vörn sína...
á meistaratitlinum, þegar þeir
mæta Ármanni á sunnudag*
tslandsmeistarar tR Tkörfuknatt-
leik, byrja nú á sunnudaginn að
verja meistaratitil sinn en þá
mæta þeir Armenningum i 1.
deildarkeppninni i körfuknatt-
leik, sem hefst um helgina.
1. deildarkeppnin hefst á
morgun með leik Vals og nýliða
Þórs frá Akureyri, og siðan mætir
KR Njarðvikurliði. A sunnudag-
inn leika svo IR — Ármann og
Fram — Stúdentar.
Baráttan verður hörð i körfu-
knattleiknum i vetur, þvi að tvö
lið falla niður i 2. deild, þar sem
er næsta keppnistimabil hefst
verður „úrvalsdeildin” — skipuð
aðeins 6 liðum.
Mikið hefur verið um breyting-
ar á leikmönnum 1. deildarlið-
anna.
FRAM...leikur meö þrjá nýja
leikmenn — landsliðsmennirnir
Simon Ólafsson og Guösteinn
Ingimarsson leika með liðinu, og
einnig Björn Magnússon, allt
fyrrverandi leikmenn Armanns.
Guösteinn lék með Njarðvlkurlið-
inu sl. keppnistimabil.
KR...hefur fengiö Jón Sigurðs-
son, landsliðsmann úr Armanni, i
sinar raðir og þá leikur Banda-
rikjamaðurinn Andrews Pizza
meö KR-liðinu, en hann er einnig
þjálfari liðsins.
STtiDENTAR...hafa fengið
Kolbein Kristinsson, landsliðs-
bakvörö úr 1R, og Bandaríkja-
maöurinn Dirk Dunbar leikur
einnig með liðinu. — Hann á nú
við meiðsli að striða og verður frá
keppni til að byrja með.
VALUR...hefur Bandarikja-
manninn Rick Hockenos f herbúð-
um sinum, en Valsmenn hafa
misstlandsliðsmanninn Jóhannes
Magnússon til Akureyrar.
ARMANN...hefur oröið fyrir
mikilli blóðtöku. Ármann hefur
misst Jón Sigurðsson, sem hefur
verið burðarás liðsins undanfarin
ár. Birgir Orn Birgis hefur tekið
fram skóna aö nýju og þá hafa
Armenningar fengiö Bandarikja-
manninn Micael Wood i sinar raö-
ir.
ÞóR...frá Akureyri hefur einn-
ig Bandarikjamann i herbúðum
sinum — Mark Kristiansen. Þá
hafa nýliöarnir fengið Jóhannes
Magnússon frá Val og Jón Ind-
riöason frá Stúdentum.
lR...hefur oröið fyrir blóötöku.
ÍR-liðið missti landsliösmanninn
Jón Jörundsson til Danmerkur og-
Kolbein Kristinsson til Stúdenta.
NJARÐVlK...hefur sama
mannskapá aö skipa og sl. vetur,
nema aö Guösteinn Ingimarsson
gekk yfir I raöir Framara.
Rafeindatímatöku
tæki í Laugardal
— verða keypt í vetur, sagði Sveinn Björnsson,
varaforseti ÍSÍ á ársþingi SSÍ
26. þing Sundsambands tslands
var haldið 16. október s.l. i
Snorrabæ. Gestir þingsins voru
Sveinn Björnsson, formaður
tþróttaráðs Reykjavlkur og Her-
mann Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri t.S.l.
Skuldir sambandsins minnkuðu
á s.l. ári úr liðlega 2 milljónum i
rúm 1400þúsund, þetta er lofsvert
framtak, sérstaklega þegar tillit
er tekið til þess, aö i sumar var
haldið stærsta sundmót sem
nokkurn tima hefur verið haldið
herna, 8-landa keppnin I sundi.
Helzta málið sem lá fyrir þing-
inu var breyting á Bikarkeppni
SSl, en við hana bætist nú 3. deild.
SveinnBjörnssonupplýsti á þessu
þingi, að rafeindatimatökutækin,
em kaupa átti fyrir 8-landa
keppnina i sumar, yröu væntan-
lega keypt I vetur. Þessi tæki á aö
nota bæði á Laugardalsvelli og i
Laugardalslaug, enda eru þau
forsenda þess að við getum haldið
alþjóðleg mót hér á landi I fram-
tiðinni. I stjórn SSl fyrir næsta
starfsár sitja eftirtaldir:
Formaöur: Birgir Indriðason,
Vestmannaeyjum, Siguröur
Helgason, Kópavogi, Höröur
Óskarsson, Selfossi, Olafur Guð-
mundsson, Hafnarfiröi, Hafþór B.
Guömundsson, Reykjavik, Oddur
R. Hjartarson, Borgarnesi, Torfi
Tómasson, Reykjavik og Ólafur
Gunnlausson Reykjavik.
Að endingu skal vitnað i skýrslu
stjórnar fyrir siðasta starfsár,
þar segir m.a.: ,,Eins og sá fjöldi
unglingameta, sem settur var á
siðasta starfsári ber með sér, þá
eru afrek I sundiþróttinni á upp-
leið þó að nokkuð vanti á aö fram-
farir séu jafn stórstigar og hjá
nágrannasjóðum okkar. Er von-
andi að komandi stjórnir SSI svo
og stjórnir félaga, þjálfarar og
annað áhugafólk beri gæfu til
þess að vinna i auknum mæli aö
eflingu sundiþróttarinnar”.